Alþýðublaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 2
2 STJÖRNMÁL FRÉTTIR Föstudagur 17. september 1976. JISÍm*’ Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Hekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Árni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Útbr.stj.: Kristján Einarsson, simi 14900. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsinga- deild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar - simi 14900. Prentun: Blaðaprenti h.f. Áskriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50 krónur i lausasölu. Flugvélaræningjar á íslandi Óhugnanleg alda flugvélarána hefur gengið yfir um árabil, og er þetta eitt skuggalegasta einkenni ófriðar, lögleysis og mannvonzku, sem einkennir samtíðina. íslendingar hafa lifað i þeirri sælu trú, að þessi ósköé mundu ekki snerta þá, fekar en þeir hafa til skamms tíma trúað, að morð, skipulegir glæpahringar og stór- felld f jármálaspilling gæti átt sér stað í þessu landi. Nú hefur það gerst, að króatískir flugvélaræningjar hafa lent á Keflavíkurvelli, og þjóðin fær að heyra, aí hér sé til flugránsnefnd. Viðbrögð manna hafa verið mismunandi, oftast undrun og jafnvel gamansemi. Og auðvitað gagnrýni á yfirvöldin, þóttþakka megi fyrir, að eitthvað hafi verið hugsað fyrir slíku. Islendingar verða aðtaka slíka atburði af meiri alvöru og gera sér grein fyrir að það, sem gerist F öðrum lönd- um, getur einnig gerzt hér. Hefur lýðveldið okkar bol- magn til að verjast hermdarverkamönnum? Getum við einir ráðið við slíkann innlendan skríl eða smyglara eða morðingja eða svikara. Mundum við ráða við erlenda glæpamenn, ef þeir sneru sér að okkur? Hugsandi menn hafa talið það okkur til bjargar, að til- gangslaust væri að ræna íslenzkum flugvélum eða taka gísla, til dæmis æðstu menn þjóðarinnar, sem er mjög auðvelt. Venjulega er slíkt gert til að kref jast stórf jár eða f relsis fyrir fanga. Hvorugt er til á íslandi. En nú er þetta breytt. Nú var flutvél rænt til þess að vekja athygli á málstað Króata i baráttu þeirra í sam- bandsrikinu Júgóslavíu. Gæti ekki einhverjum slíkum dottið í hug að ræna litlu lýðveldi, og NATO-ríki i þokka- bót, til að vekja á sér athygli? Möguleikarnir eru svo margir, að Alþýðublaðið telur ábyrgast að ræða þá ekki frekar. Það er enginn leikur að halda uppi lögum og reglu, mæta f lugránum og hermdarverkamönnum. Allar þjóðir geta staðið andspænis slíkum vanda. Þetta ættu ís- lendingar að hugleiða — og um leið, hvort öryggi, lög og réttur innanlands sé ekki að verða eitt af mestu óleystu vandamálum þjóðarinnar. Snemmkynnt framboð Morgunblaðið sagði frá því undir fyrirsögninni| ,,Snemmkynnt framboð," að Finnur Torfi Stefánssonj hefði verið útnefndur efsti maður á lista Alþýðuflokks-j ins í Norðuriandskjördæmi vestra. Það er orð að sönnu,[ þetta framboð er snemma á ferðinni og það er gottj framboð. Vel getur liðið allt að tveim árum til næstu þingkosn- inga, en það getur líka orðið styttra. Alþýðuf lokkurinni hef ur þegar hafið undirbúning sinn með auknu og bættuj skipulagsstarf i innan f lokksins og sókn út á við. Eitt af, því, sem nauðsynlegt hefur verið talíð að gera tíman- lega, er að ákveða framboð í þeim kjördæmum, þar sem! flokkurinn hefur hvorki þingmann eða varaþingmann.j Þannig gefst nýjum frambjóðendum tóm til að starfa íL kjördæmum sínum, kynnast mönnum og málefnum bet- ur en f yrr og sameina krafta f lokksfólks og f lokksfélagaj til átaka. Finnur Torfi Stefánsson er ágætur fulltrúi þeirrarj ungu kynslóðar, sem nú flykkist til liðs við Alþýðuf lokk-J inn. Hann hef ur tekið þátt í pólitísku æskulýðsstarf i inn-J an f lokksins um langt árabil og verið kjörinn til ýmissaj trúnaðarstarf a, þótt hann sé aðeins 29 ára. Hann er velj menntaður og hefur sýnt með opinberum málflutningij og erindum áhuga og þekkingu á íslenzkum stjórnmálumj og stjórnkerfi. Hann hefur, eins og margur íslenzkurj námsmaður, unnið til sjós og lands í skólaleyf um sínum.J Alþýðublaðið spáir því, að hann muni hljóta sæti áj næsta þingi, sem kjörið verður. —Ó—■ Dalvík: 2 bAtar keyptir TIL RÆKJUVEIÐA — Það hefur verið ansi stopul vinna hjá okkur i sumar, þar sem litið hráefni hefur bor- izt til verksmiðjunnar, sagði Jóhann Antons- son framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar á Dalvik i samtali við Alþýðublaðið i gær. Sagði Jóhann að fyrirtækið hefði isumar keypt tvo báta, 105 og 63 tonna, til rækjuveiðanna, og væri það von manna, að bátar þessir myndu hressa upp á atvinnulifið bráðlega. Stærri báturinn, Arnarborg, hefur verið á rækjuveiðum siðustu 3 vikur — skipstjóri er Snorri Arngrimsson frá Dalvik. Sagöi Jóhann að aflinn þessa daga lof- aði góðu, enda sýndi báturinn það að hann væri mjög vel hentugur til slikra veiða, auk þess sem þakka mætti vel-, gengni þessa þekkingu skip- stjórans á rækjumiðunum og allri veiðitækni. — Annars er þessi árstimi slæmur til rækju- veiðanna, sagði Jóhann, en við vonum að afli taki að glæðast með haustinu. Rækjuverð heldur á uppleið Varðandi sölu á framleiðslu Rækjuvinnslunnar sagði Jó- hann, að hún hefði gengið vel þetta árið: allt hefði selzt um íeið. Hins vegar væri litill glans yfir verðinu, enda óljóst um framboð á heimsmarkaði eins og á stæði. En verðið væri þó heldur á uppleið oe ólikt betra en á sama tima i fyrra. — Það má þvi segja að verðið sem við fáum sé viðunandi, sagði Jó- hann Antonsson. Þrefað um togarakaup Eins og fram hefur komið i frettum, hefur Snorri Arn- grimsson útgerðarmaður á Dal- vik, sótt um leyfi til kaupa á tog- ara, til veiða á djúprækju, en Shorri hefur manna mesta þekkingu á slikum veiðum og er eittfrumkvöðlaum rækjuveiðar fyrir Norðurlandi. Snorri fékk synjun um þessi togarakaup og hefur siðan staðið i nokkru þrefi milli hans og ýmissa stjórn- kerfisaðila „fyrir sunnan” um þetta mál. Jóhann Antonsson sagði, að skip Snorra hefði átt að vera frábrugðið öllum öðrum sem nú sutnda rækjuveiðar. Hefði verið gert ráð fyrir mun lengra út- haldi á veiðunum en nú tiðkaðist og auk þess að frysta allan afla um borð. Sagði Jóhann að margir útgerðarmenn teldu ekki rekstrargrundvöll fyrir veiðum á djúprækju, en nauð- syniegt væri þrátt fyrir það að hyggja að þeim veiðum. UPPLYSINGASKYLDA STJÓRNVALDA íslenzk réttarvernd heldur almennan fund Á morgun laugardag, verður haldinn almenn- ur umræðufundur að hótel Esju um upp- lýsingaskyldu stjórn- valda. Er það félagið ís- lenzk réttarvernd sem gengst fyrir fundinum, en frummælandi verður Baldur Möller ráðu- neytisstjóri i Dóms- málaráðuneytinu. Auk hans munu nokkrir rit- stjórar og fulltrúar dag- blaðanna, svo og fulltrúi rikisútvarpsins, flytja stuttar ræður. Arið 1972 var samþykkt á Al- þingi þingsályktunartÚlaga þess efnis að rikisstjórninni skyldi fal- ið að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga um hver væri skylda stjórnvalda og rikisstofn- ana til að skýra opinberlega frá störfum sinum ogákvörðunum og hvenær bæri að veita þeim sem þess óska, aðgang að reikningum og skjölum er almenning varða. Frumvarpið var lagt fyrir alls- herjarnefnd og skilaði hún áhti i marz 1975. Sagði i nefndarálitinu að nefndin væri sammála þeirri meginskoðun sem fram kæmi i frumvarpinu, að settar yrðu al- mennar reglur um upplýsinga- skyldu stjórnvalda. Hins vegar sagðist nefndin ekki vera reiðubúin til að mæla með samþykkt frumvarpsins eins og það væri sett fram. Var frumvarpinu siðan visað til rikisstjórnar og hefur hún haft málið með höndum sfðan. Nýlega skipaði Óiafur Jó- hannesson dómsmálaráðherra svo nefnd til að endursemja frumvarptil laga um upplýsinga- skyldu stjórnvalda en formaður nehidarinnar er Baldur Möller ráðuneytisstjóri. Fundur Islenzkrar réttarvernd- ar hefst kl. 14 á morgun og er hann öllum opinn. 17 fulltrúar MFA á Norðurlöndum: Halda ráðstefnu um Island Á mánudaginn kemur hefst i ölfusborgum fimm daga ráðstefna um ísland. Þessi ráðstefna er haldin á vegum fræðslusambands verkalýðssamtakanna á Norðurlöndum og koma 17 erlendir fulltrúar til landsins til að sitja hana. Að sögn Stefáns ög- mundssonar hjá Menningar- og fræðslu- sambandi alþýðu verður dagskráin i meginatriðum sem hér segir: Starf Alþýðusambands - Islands og MFA. Heimsóttur veröur garð- yrkjuskólinn i Hveragerði. Þáttur verður um islenzkar bókmenntir og annar um fisk- veiðar og fiskiðnaö. t sambandi við þann siðartalda verður heimsótt fiskiöjuver i Þorláks- höfn. Auk þess verður ferðast um Suðurland og fulltrúar pólitisku flokkanna koma á fund, skýra stefnu flokka sinna og svara fyrirspurnum. A Selfossi verður opnuð sýning i Listasafni alþýðu og fjallað verður um hana á fundi. Þá verður Mjólkurbú Flóamanna heimsótt og fjallað um samvinnuhreyfinguna á tslandi á sérstökum fundi. Auk þessa sagði Stefán, að fram myndi fara tónlistar- dagskrá, en ekki hefði endan- lega verði gengið frá henni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.