Alþýðublaðið - 23.09.1976, Síða 3

Alþýðublaðið - 23.09.1976, Síða 3
MaSwV Fimmtudagur 23. september 1976 OLAFUR RAGNAR GRIMSSON: Stór hluti Samtakafólks vill gera hlut Alþýðu- bandalagsins meiri — Ég get svarað þvi hreint út, að ég er ekki genginn i Alþýðu- bandalagið, en hins vegar er það ljóst, að mikill hluti félags- manna i Samtökunum telur rétt að efla Al- þýðubandalagið og auka þannig styrk vinstri stefnunnar i landinu, sagði ólafur Ragnar Grimsson for- maður Framkvæmda- nefndar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna þegar Alþýðu- blaðið spurði hann um þessi mál i gær. Tilefni spurningarinnar var yfirlýsing sem Ólafur Ragnar gaf i Þjóð- viljanum i fyrradag. Þar segir að mikill fjöldi Samtakafólks telji sig eiga mun meiri samleið með stefnu Al- þýðubandalagsins en Alþýðuflokksins, og myndi þvi vilja efla þann flokk sem breiða fylkingu vinstri manna á grundvelli markmiða sósialisma og þjóð- frelsis og hagsmuna verkalýðsstéttarinnar. En ætlar Ólafur Ragnar aö ganga i Alþýðubandalagið, ef Samtökin verða lögð niður? — Mér er það ekkert launungarmál , að ég hef átt mun meiri samvinnu við þann hóp innan Samtakanna sem vill gera veg Alþýðubandalagsins meiri, ef til þess kemur að okk- ar flokkur verður lagður niður. En ég mun ekki taka ákvörðun i málinu nema i samráði við þetta fólk. Samþykkt Vestfirðinganna hefur gert það að verkum að máliö krefst nú skjótari ákvörð- unar en álitið var i fyrstu, en ég ólafur Ragnar Grimsson. álit, að sá hluti Samtakafólks sem hefur áhuga á samstarfi við Alþýðuflokkinn sé bundinn við Vestfirði og Akureyri að mestu. Nokkrir viija halda starfsemi Samtakanna áfram, en eins og ég sagði áðan er stór hluti flokksmanna þeirrar skoðunar, að ef til þess kemur að leggja flokkinn niður, þá beri að efla Alþýðubandalagiö sem breið- fylkingu á grundvelli þjóðfrelsis og verkalýðshyggju i islenzkum stjórnmálum. Og innan þessa hóps eru yngri mennirnir I verkalýðshreyfingunni meðal annars, sagði Ólafur Ragnar Grimsson að lokum. —HM. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON: ALÞÝÐUBANDALAGIÐ ER EKKI FRAMTÍÐ, ÍSLENZKS VERKALYÐS Ég er aðili að þessari ályktun, og þar af leið- andi fylgjandi henni. Það eina sem ég hef við hana að athuga er það, að hún er heldur seint fram komin, sagði Jón Baldvin Hannibalsson skólameistari á isa- firði, þegar Alþýðu- blaðið leitaði álits hans á ályktun SFV á Vest- fjörðum um að Sam- tökin ættu að ganga til samstarf við Alþýðu- flokkinn. — Ég taldi að kosningaúrslitin I974gæfu til kynna, að Samtökin ættu ekki framtfö fyrir sér og þvi hefði átt að ganga i þessi sameiningarmál fyrr. í annan stað virðist Alþýöu- flokkurinn vera að tilkynna framboð þessa dagana, þótt tvö ár séu til kosninga. Komi til áameiningar flokkanna tveggja viljum við að sjálfsögðu fá eðli- leg pólitisk mannréttindi og hafa áhrif á framboð. Það ætti aö vera eðlilegt miðaö viö þaö atkvæðamagn sem við fengum hér i siðústu kosningum. Til þess aö ræða þessi mál, meðal annars, var kosin fjög- urra manna nefnd á kjördæmis- ráðsfundinum um daginn, tii að ræöa við forystu Alþýðuflokks- ins hér a Vestfjörðum. — Hverjir eiga sæti i þeirri nefnd? — Það eru þeir Karvel Pálmason, Jonas Helgason, sem er i stjórn Verkalýösfélags- ins Baldurs á tsafiröi, Ragnar Þorbergsson formaður Verka- mannafeiagsins i Súöavik og Henrik Tausen formaöur Verkamannafélagsins á Flat- eyri. Raunar má geta þess i sam- bandi viö það sem haft er eftir Sighvati Björgvinssyni i Morgunblaðinu á þriðjudaginn um framboðsmálin á Vestfjörö- um eftir þessa ályktun okkar, að ef komiö hefði verið fram af heilindum af forystumönnum Alþýðuflokks og Samtaka fyrir þær kosningar, heföi framboö hér á Vestfjörðum orðiö sam- eiginlegt hjá þessum flokkum. En þar skorti nokkuð upp á mannasiðina. Alþýðublaðið bar undir Jón Baldvin þá fullyrðingu Olafs Ragnars, að tilhneigingin til samvinnu við Alþýðuflokkinn væri aö mestu bundin viö Vest- firði og Akureyri. — Já, ég er sammála honum um það, en vil bæta þvi við, aö það er einmitt á þessum stöð um sem flokkurinn er öflug- astur. Annars staðar er lítið sem ekkert starf innan félags- deilda, nema ef vera skyldi i Reykjavik. Jón Baldvin Hannibalsson. En ég er aftur á móti ekki sammála Ólafi um að I Alþýðu- bandalaginu sé framtiðin. Við sem þekkjum til innan þess flokksvitum.aðsvoerekki. Ég tel Aiþýöubandalagið henti- stefnuflokk i utanrikis-, efna- hags- og verkalýðsmálum, enda má sjá það i stefnuskrá flokk- sins, sem nýbúið er að gefa út, aö hann er mjög á milli vita. Þorir ekki lengur aö vera kommuniskur, en viröist ekki hafa endurskoðaö stefnu sina til neinnar hlitar. Auðvitað gæti hann með timanum þróast i þá átt að verða raunverulegur jafnaðarmannaflokkur, en eins og ástatt er um hann nú, tel ég fráleitt að llta á hann sem lif- akkeri islenzkrar verkalýðs- hreyfingar og jafnaðarstefnu. —HM. VILJUM EKKI BRJOTA I BAGA VIÐ ÍSL. HAGSMUNI — sagði utanríkisráðherra Póllands í gær Opinberri heimsókn Stefans Olszowskís utanrikisráðherra Pól- lands hér á landi lauk i gær. Ráðherrann ræddi Nú eru siöustu forvöö fyrir þá sem vilja sjasýninguna Brúökaup og brúöarskart, sem staðiö hefur yfir i Þjóðminjasafninu i sumar, þvi nú eru aöeins eftir þrir sýningardagar. A fimmtudag verður sýningin við islenzka ráðamenn um aukin viðskipti land- anna og hugsanlegar veiðar pólskra togara innan 200 milna land- opin milli kl. 13.30 og 16.00 siðan veröur sýningin opin á laugardag og sunnudag milli kl. 13.30 og 22.00 um kvöldið. Að sögn forráðamanna sýningarinnar hefur aðsókn að sýningunni verið nokkuö góð. helginnar, en engar ákvarðanir voru teknar i þeim málum. — Við höfum mikinn áhuga á að fá að veiða innan fiskveiöilög- sögu ykkar, sagði utanrikisráö- Þó má geta þess, að um þessar mundir stendur yfir önnur sýning I forsal Þjóðminjasafnsins sem nefnist Isienzkar útsaumsgerðir, og mun hún verða opin eitthvaö fram eftir hausti. —GEK herrann á blaöamannafundi i gær, — en við viljum að sjálf- sögöu ekki gera kröfur til neins, sem brýtur i bága við islenzka hagsmuni. Ef hins vegar Islend- ingar gætu komið þessu til leiðar myndum viö að sjálfsögöu vera mjög þakklátir. Aðaláhugaefni Pólverja innan fiskveiðilögsögunnar eru grá- lúðuveiðar fyrir Austurlandi, en einnig er áhugi fyrir hendi um veiðar stærri togara. Aðspuröur um það, hvaö væri efst á baugi hjá pólskum stjónr- völdum þessa dagana sagði ráö- herrann, aö það væri 5 ára efna- hagsáætlun, sem ætti að sneiða helztu galla af efnahagsástandi landsins og auka erlend viöskipti. Auk þess væri eitt meginverkefni þeirrar áætlunar að koma 1 veg fyrir aö atburöir svipaöir þeim sem geröust i júni sl. endurtækju sig, þ.e. þegar pólskur almenn- ingur reis upp og kom i veg fyrir hækkun á matvælum. Sameiginlegrar yfirlýsingar er aö vænta frá utanrikisráöherr- unum tveimur, Einari Agústssyni og Stefáni Olsowski er aö vænta, og veröur hún birt I Alþýðu- blaðinu á morgun. ~4im BRÚÐKAUP 0G BRÚÐARSKART Síðustu forvöð að sjá sýninguna FBÉTTIB 3 Fordæma harðlega bráðabirgða- lögin Fundur haldinn i stjórn Alþýðu- sambands Austurlands á Reyðar- firði 10. sept. samþykkti aö for- dæma harðlega þau bráðabirgða- lögsem rikisstjórnin liefur nú sett um sjómannakjör. Telur fundur- inn að lagasetning þessi sé ósvifin árás á sjómannasamtökin, og bendir á að ekki er nýtt að launa- mál sjómanna séu lögbundin á svfvirðilegan hátt, með hagsmuni útvegsmanna fyrir augum. Hvetur fundurinn sjómenn tíl aö láta lagasetningu þessa sér að kenningu verða, og þjappa sér saman, svo þeir standi sem einn maður um kjör sin. Einnig mót- mælir fundurinn harðlega þvi gjörræði rikisstjórnarinnar aö rifta með vaidi hagstæðari kjara- samningum sem gilda nú á mörg- um stöðum þar sem kjarasamn- ingum sjómanna hefur ekki verið sagt upp af hvorugum aðila samningsins. Beinir fundurinn þvi til sjó- manna hvort nú sé ekki ástæða til sameiginlegs átaks til að hrinda þessari lagasetningu meö þvi að sigla öllum fiskiskipum i land, og sýna þeim i mjúku stólunum aö þeir sem vinna með höröum höndum fyrir gjaldeyri i þjóðar- búið geti lika ráðið, hvað svo sem öllum lagasetningum liður. Fundarsamþykkt: Almennur fundur i Vélstjórafé- lagi Suðurnesja, haldinn 19. sept. 1976, mótmælir harðlega setningu bráðabirgðalaganna frá 6. sept. s.l. Telur fundurinn að þarna hafi verið um rangláta og ótimabæra lagasetningu að ræöa frá hendi rikisstjórnarinnar. Ljóst er þó að þessi bráða- birgðalög eru sett eftir pöntun frá útgerðarmönnum. Með þessum lögum er samn- ingsréttur sjómanna fótum troö- inn af þeim sömu pólitisku öflum og oft áður hafa sýnt sjómanna- stéttinni ofrlki og beinan fjand- skap. Sjómann krefjast þess að lög þessi verði þegar numin úr gildi, og útgeröarmenn semji við sjó- menn um kaup og kjör sem þeir geti unaö viö. Fundurinn hvetur sjómenn um land allt, að sýna samstöðu og mótmæla þessum bráðabirgða- lögum með þeim eina hætti sem fær er undir rikjandi kringum- stæðum, ef rikisstjórnin endur- skoðar ekki afstöðu sina og nem- ur þessi lög úr gildi nú þegar. Starfsfólk útvarps á fundi: Ákvarðanir tekn- ar í vikunni 1 fyrradag var haldinn fundur i Starfsmannafélagi Rikisút- varpsins og stóð hann i um það bil tvær klukkustundir. Blaðinu tókst aö ná tali af Dóru Ingvadóttur formanni starfsmannafélagsins að honum loknum, og sagði hún aö fundurinn heföi veriö mjög fjölmennur, enda mikill hiti i málunum. Ekki voru neinar ályktanir samþykktar aö þessu sinni, en fjölmargar tillögur voru bornar upp. Mun væntanlega veröa annar fundur hjá starfsmanna- félaginu, áöur en langt um liöur, og ekki siöar en á morgun. Veröa þá teknar ákvarðanir um, hvað gera skuli og siðan sendar út yfir- lýsingar. Aöspurö um hvort fleiri uppsagnir starfsmanna hefðu borist, sagði Dóra þaö ekki vera. Hins vegar væri hægt aö búast við þvi að fleiri gripu til þessa ráös, ef ekkert miðaöi, svo mikill urgur væri nú orðinn með mönnum vegna ófremdarástands þess er rikti i kjaramálum starfsmanna útvarpsins. —JSS

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.