Alþýðublaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 11
biaÍSPð1' Fimmtudagur 23. september 1976
11
Tónlist úr Carmen hljómaOi um aila byggingu skipasmiöastöOvarinnar.
Getrauna-
spá Alþýðu-
blaðsins
Fyrsti leikur seöilsins er
leikur Aston Villa og Leicester.
Villa-menn eru erfiðir heim að
sækja, og hef ég trú á þvi, að nú
fari þeir að fikra sig upp
töfluna, eftir nokkra tapleiki i
röð.
Coventry hefur gengið nokkuð
vel á móti Birminghám á
heimavelli. Annars er leikur
þessi nokkuð erfiður.
Derby hgfur gengið illa það
sem af er þessu keppnistima-
bili. Þeir virðast ekki hafa
fundið sig ennþá, og meðan svo
er, vinna þeir tæpast marga
leiki.
Bristol City er eitt þeirra liða,
sem hvað mest hafa komið á
óvart i haust. Voru þeir um tima
i efsta sæti en hafa heldur dalað
i siðustu leikjum. Everton hefur
heldur sótt sig undanfarið, þrátt
fyrir tapið gegn Arsenal á dög-
unum.
Arsenal sækir jafnt og þétt á
brattann á töflúnni, núna komið
i þriðja sæti. Koma McDonalds i
liðið viröist hafa verið liðinu til
góðs, Arsenal ætti að sigra
auðveldlega.
Leikir Man. City og United
eru alltaf spennandi og jafnir.
Tæplega er hægt að tala um
heima- eða útivöll þegar þau
eigast við. Barátta verður
örugglega mikil og gæti leik-
urinn farið á hvaöa veg sem er.
Middlesbro hefur gengið vel i
haust. Þeir eru ekki auðunnir á
heimavelli og i siöustu þrjú
skipti, sem Middlesbro og Leeds
hafa keppt á heimavelli
Middlesbro, hafa heimamenn
sigrað.
Liverpool-liðið er i banastuði
um þessar mundir, I efsta sæti
sem stendur. Newcastle geta
hins vegar átt stjörnuleiki, og
sérstaklega á heimavelli,
þannig að allt getur gerzt.
Þetta er einn af erfiðu leikj-
unum á seðlinum þessa vikuna.
Einu stigi munar á félögunum
en markamunurinn svipaður.
Spáin er þvi, að QPR og Stoke
geri jafntefli.
Norwich er í miklum öldudal,
hefur unniö einn leik, gert eitt
jafntefli en tapað fjórum. Það.
sem verra er, þeir hafa aöeins
gert tvö mörk i sex leikjum.
Tottenham liðið dettur hins
vegar oft á góða leiki og er þá til
alls vist.
West Ham og Sunderland er i
öðru og þriðja neðsta sætinu i 1.
deild. Merkilegt, hvað West
Ham hefur dottið niður. Ég spái
þvi þó, að þeir eigi eftir að
spjara sig, og byrji með þvi að
sigra Sunderland á laugar-
daginn.
Þetta er einnig einn af erfiðu
leikjunum á seölinum þessa
vikuna. Chelsea og Blackpool
eru bæði i toppbaráttunni i
annari deild. Það er ekki óeðli-
legt að spá jafntefli, þvi bæði
liðin leika örugglega með
öryggiö sem fyrsta boöorð.
—ATA
Einn með
tólf rétta
í fjórOu leikviku kom fram
einn seöill meO 12 réttum.
Reyndist eigandi hans vera 14
ára Borgnesingur, sem var meö
tveggja raöa seöil. A annarri
rööinni var allt rétt, en á hinni
aðeins tveir réttir. Vinningur
hans veröur kr. 244.500.
Þar sem enginn seöill reynd-
ist meö 11 réttum, var annar
vinningur greiddur fyrir 10
rétta, og voru vinningshafar
þrir, allir frá Reykjavik. Vinn-
ingur hvers veröur kr. 34.900.
Sjónhverfingar í myndlist:
VILHJÁLMUR BERGSS0N SÝNIR
Vilhjálmur Bergsson, sem nú
sýnir i Norræna húsinu, nefnir
sýningu sina „Ljós og iifrænar
viddir.” Sýning þessi mun
standa yfirtil októberog verður
opin frá klukkan 15 til 22 dag-
lega.
A sýningunni eru 46 málverk,
allt oliumálverk og er verð
þeirra frá um 60 þúsund til 450
þúsund krónur.
Vilhjálmur stundaði mynd-
listarnám i Kaupmannahöfn frá
1958 til 1960 og i Paris frá 1960 til
1962. Hann hefur haldið margar
sýningar bæði hér heima og
erlendis, þar á meðal i Banda-
rikjunum, Hollandi, Finnlandi
og hinum Norðurlöndunum.
Sýningin er mjög sérstök og
hlýtur að vekja allmikla at-
hygli, enda er hér um að ræða
listform eða stil, sem litið eða
ekkert hefur borið á hér á landi.
Um sýningu sina segir Vil-
hjálmur á þessa leið:
„Fólk mun sjálfsagt fyrst
taka eftir þvi, að þessi list er
talsvert frábrugðin abstrakt og
popplist undanfarinna ára-
tuga.” Bendir hann á að birta og
skuggi ráði miklu i myndbygg-
ingunni og að litirnir spanni allt
frá hinu mesta ljósflæði til
dýpsta myrkurs. Um formin og
litina segir hann: „Þau eru á
viðtækan hátt tengd móður nátt-
I N0RRÆNA HUSINU
Vilhjálmur viö eitt verka sinna
úru i nánd og frið, en eru jafn-
framt sprottin úr hugarheimi
listamannsins.”
Sýningin er mjög vel þess
virði aö menn liti þar inn og ef
til vill munu einhverjir telja aö
þarna sé upprennandi stjarna
að fæðast á himni myndlistar-
innar. —BJ
0PERAN „CARMEN” VAKTI
HRIFNINGU í SKIPASMÍÐASTÖÐ
BURMEISTER & WEIN
Hvenær skyldi
verkamönnum við Sig-
öldu bjóðast að hlýða á
Carmen yfir morgun-
verðarborðinu? Trú-
lega verður nú einhver
bið á þvi.
En það er einmitt það, sem
"verkamönnum við dönsku
skipasmiðastöðina Burmester
og Wein bauðst, ekki alls fyrir
löngu. Meðlimir Konunglegu
dönsku óperunnar lögðu upp i
söngför til verksmiöjunnar,
gagngert til að syngja fyrir
verkamennina.
Ferðin hófst snemma morg
uns, er eitt af skipum B&W, sótti
einsöngvara og karlakór til Ny-
havn. Farþegar þökkuðu fyrir
sig með, að syngja lag eftir
Edvard Grieg, á meðan skipið
sigldi hægt út úr höfninni. Vakti
söngurinn að vonum ánægju hjá
árrisulu verkafólkinu á leið til
vinnu. Sami söngur hljómaði er
skipið sigldi inn höfnina i Refs-
haleöen, þar sem verkamenn-
irnir tóku á móti kórfélögum
með pomp og prakt.
Sem vonlégt er, gerði söng-
skemmtunin stormandi lukku,
og söng kórinn i liðlega hálfa
klukkustund fyrir u.þ.b. 2200
verkamenn. AB
c
Meðlimir konunglegu óperuni
ar sigla út höfnina á Nyhavi
syngjandi söng eftir Grieg.
I Í1 I ■■ '<Í »1 M ' '** ....