Alþýðublaðið - 24.09.1976, Page 6
6 VETTVANGUR
Föstudagur 24. september 1976
££Sér
FÆREYJAFRÉTTIR:
Umtalsverðaukningfarþega með Smyrli
Færeyingar hafa veitt upp í síldveiði-
kvóta sinn -Ólöglegar áhafnir veiðiskipa
í undirhúningi að byggja nýtt útvarpshús
hinsvegar hefur skipið ekki nema
um 300 hvilur, svo margir verða
að sætta sig við lakari aðstæður.
Stjórnendur fyrirtækisins telja,
að furðu litið hafi verið um
óánægju meðal farþega um aðbúð
á skipinu, en vissulega ferðist
vmsir ..misiafnir sauöir i þvi
Þennan hátt telur Adolf Hansen
algera óhæfu, að vonum, og beitir
sér nú fyrir þvi bæði meðal
sjómanna og útvegsmanna að
sett verði á stofn skráningarstofa,
sem hafi eftirlit með þvi að fram-
hald verði ekki hér á.
útvarpsmál Færeyinga
Otvarpsstjóri Færeyja hefur
tilkynnt, að frá og með 20.
se ptember hefji útvarpiö
útsendingar á tónleikum á 4
rásum, jafnframt verði útvarps-
timi lengdur verulega á hverjum
degi og útvarpsefni gert stórum
fjölbreyttara. Mikill hugur er nú i
Færeyingum að reysa nýtt út-
varpshús og er nú svo langt
komið, að það hefur verið teiknað
og þvi ákveðinn staður. Eru menn
bjartsýnir á að þetta veglega hús
risi innan skamms tima.
(Til samanburðar við þetta
framtak Færeyinga, sakar ekki
að geta þess, að driftin I útvarps-
hússmálum okkar tslendinga er
slik, að til er ein skófla, sem
útvarpsmenn gáfu núverandi
menntamálaráðherra til
byggingarinnar, siðan hefur ekki
af henni heyrzt, og þvi siður að
hún væri tekin i notkun!!
Færeyjaferjan „Smyrill” við bryggju á Seyðisfirði i siðustu
tslandsferðinni i sutnar.
Smyrill:
Færeyska ferjan, Smyrill,
hefur nú lokið utanlandssigling-
um á þessu ári. Samkvæmt yfir-
liti stjórnar fyrirtækisins hefur
orðið umtalsverö aukning bæöi
farþega og bifreiða, sem flutt
hefur veriö milli landa. Þannig
hefur skipið flutt um 17000 far-
þega og 3200 bila i utanlands-
siglingum.
Ferjan hefurfluttsamtals til og
frá Seyðisfiröi rösklega fimm
þúsund farþega og 1200 bila.
Það kemur i ljós, að áætlunar-
leiðin milli Seyðisfjarðar og Þdrs-
hafnar er i öðru sæti um far-
þegafjölda. A leiðinni milli
Bergen og Þórshafnar var far-
þegafjöldi rösklega 8000 og fjöldi
bifreiöa 1274. Þetta er um 50%
aukning frá i fyrra, en aukningin i
Islandsferðum nemur rösklega
100% frá s.l. ári.
Leyfð farþegatala i einu var
aukin i ár úr 350 i 500 og á þeim
tima, sem ferðir urðu mann-
flestar, var fulláskipað i sumar,
einkum milli Isiands og Noregs,
Likan af fyrirhuguðu útvarpshúsi i Gundadali i Færeyjum.
marga te ', og verði aldrei komizt
hjá einhverjum smávegis
árekstrum.
Síldveiðar Færeyinga
Færeyska landsstjórnin hefur
sett löndunarbann i Færeyjum á
færeysk sildveiðiskip, sem hafa
nú veittum 14000 tonn i Norðursjó
og Skagerak, en Færeyingum var
úthiutað 9200 tonnum á þessum
slóðum. Hins vegar hefur Nor-
egur leyft að taka um 4000 tonn af
sinum kvóta til handa Færey-
ingum. Norski kvótinn var 23000
tonn.
Vegna megnar óánægju féllst
þó landsstjórnin á, að færeysk
skip mættu veiða allt aö 4000 tonn
vestan 4 gr. v.l., en það leyfi var
aðeins bundið við skip, sem ekki
höfðu náð meðalafla, miöað við
heildina.
ólöglegar áhafnir
veiðiskipa
Adolf Hansen formaöur
sjómannafélagsins i Færeyjum
hefur bent á, að það tiökist nú i
rikari mæli, aö veiðiskip séu
mönnuð með 15-16 ára drengjum,
jafnvel allt niður i 13 ára drengi.
Forráðamenn italska
kommúnistaflokksins
slita nú æ fleiri af þeim
böndum, sem tengja hann
við kommúnistaflokkana
í Austur-Evrópu.
Á 8 ára afmæli innrás-
arinnar í Tékkóslóvakíu
birti L'Unita, málgagn
flokksins leiðara, undir-
ritaðan af aðalritstjóran-
um Luca Pavolini.
Þar sagði m.a.: Fyrir 8 árum,
21. ágúst 1968, gerðu hermenn
frá 5 Varsjárbandalagsríkjum
innrás i Tékkóslóvakiu i þeim
tilgangi aö binda endi á tilraun
sem þar var gerð meö nýja teg-
und sósialisma, stefnu sem
vakti áhuga, vonir og ekki sizt
ákafar umræður innan alþjóða
verkalýðshreyfingarinnar. Er
innrásin var gerö lýsti flokkur
okkar yfir vanþóknun sinni,
vanþóknun sem hefur vaxið á
þessum átta árum. Þetta gerð-
um við ljóst á ráðstefnu
kommúnistaflokka sem haldin
var i Austur-Berlin.
Þá greindi leiöarinn meðal
annars frá valdatima Dubceks
og útlistaði þá lærdóma sem i-
talskir kommúnistar telja sig
geta dregiöaf innrásinni. „Hver
kommúnistaflokkur á kröfu til
þess að mega vinna að þróun
kommúnismans, á þann hátt
sem hann telur bezt henta.”
Þessi hreinskilni ritstjóra
L’Unita, þessi afstaða italskra
kommúnista, sem var mönnum
löngu kunnug fór mikið i taugar
leiðarahöfundar Rude Pravo
(eða þess sem gefur leiðarahöf-
undinum linuna).
Að sögn Rude Pravo gera
italskir kommúnistar sig brot-
lega við ákvæði þess samnings
sem gerður var á ráðstefnunni i
Austur-Beriin. Samningur þessi
kveður á um jafnstöðu flokk-
anna og aö þeir skuli ekki skipta
sér af innanflokksmálum hvors
annars.
Þá likir Rude Pravo skrifum
L’Unita við skrif blaða Axels
Springers. „Engan undrar þótt
Axel Springer felli tár vegna
þróunarinnar i Tékkóslóvakiu,
en þegar blað á borö viöL’Unita
gengur i lið með slikum niður-
rifsmönnum verður ekki orða
bundizt.” Siöar i greininni seg-
ir: L’Unita vill ráða hverjir eiga
aö vera, og hverjir ekki i tékk-
neska kommúnistaflokknum.
Nokkrum dögum siöar svar-
aði ritstjóri L’Unita þessum
orðum Rude Pravo eitthvað á
þessa leið: Þegar grannt er
skoðaö virðist það ekki sérlega
kænlegt að ásaka okkur um af-
skipti af innanflokksmálum
tékkneska flokksins. Slik af-
skipti eru alls ekki ætlun okkar.
Þessar orðahnippingar rit-
stjoranna sýna betur en margt
annaö aö ekki tókst á fundinum i
A-Berlin aö leysa ágreining
þann sem er milli kommúnista-
flokka Vestur-Evrópu annars
vegar og flokkanna I Austur-
Evrópu hinsvegar. Tékkar og
Búlgarir eru nú tryggustu
stuðningsmenn Kremlarbænda I
baráttunni við „undanvilling-
ana á Vesturlöndum.
Skrifin i Rude Pravo um i-
talska kommúnistaflokkinn
viröast vera upphafið aö harön-
andi stefnu Kremlar gegn þeim
flokkum sem vikið hafa út af
hinni „réttu” linu. Moskva virð-
ist undirbúa hugmyndafræði-
legt strið gegn flokki
Berlinguers. Það er margt sem
bendir til þess að áráa Rude
Pravo á L’Unita hafi verið
skipulögð annars staðar en á
ritstjórnarskrifstofunum I
Prag.
—ES
Aóalritari (talska kommúnistaflokksins, Berlinguer, undir merki
flokksins. Málgagn tékkneska kommúnistaflokksins Rude Pravo
hefur ráðizt harkalega gegn flokki Berlinguers vegna skrifa I
L’Unita um afmæli innrásar Varsjárbandalagsrikjanna I Tékkó-
slóvaklu.
RUDE PRAV0 LIKIR MALGAGNI ITALSKA
K0MMÚNISTAFL0KKSINS VIÐ BLÖÐ
K0MMÚNISTAFL0KKSINS
VIÐ BLÖÐ A. SPRINGERS