Alþýðublaðið - 24.09.1976, Síða 10
10
ÍÞRÚTTIR
Föstudagur 24. september 1976 sœ,-
*
&
*
&
*
Lærið _ ^ i
% fað f
& * aansa
Eðlilegur þáttur í almennri mennt-
un hvers einstaklings ætti að vera
að læra að dansa.
Ath.: Afsláttur ef 3 systkini eða
fleiri eru í dansi.
Auka-afsláttur ef foreldrar eru
lika.
Innritun
stendur.
ytir
Dansskóli
Heiðars
Ástvaldssonar
Reykjavík: 20-345,
2-49-59 og 7-44-44
Seltjarnarnes: 3-81-26
Kópavogur: 3-81-26
Hafnarf jörður: 3-81-26
Dansskóli
Hermanns Ragnars
Reykjavík: 3-61-41
Dansskóli Sigvalda
Reykjavík: 8-47-50
Hafnarf jörður: 8-47-50
Akranes: 1630
Borgarnes: 72§7
Dansskóli
yu Sigurðar
^ Hókonarsonar
Sími: 4-15-57
\
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
TRYGQING fyrlr réttrl tilsögn í dansi
Námsflokkar Kópavogs
Innritun á haustnámskeið fer fram i sim-
um 40655 og 41040 dagana 24., 27. og 28.
september kl. 17-19.
Haldin verða námskeið i erlendum tungu-
málum, vélritun, bókfærslu, framsögn og
leiklist, útskurði, málmsmiði, barnafata-
saum, hnýtingum, matreiðslu og sniðtöku.
Nánari upplýsingar liggja frammi í bóka-
verzluninni Vedu við Álfhólsveg.
Forstöðumaður
Volkswageneigendur
Höfam fyritliggjandi: BreUi — Huröir -• Vélarlok —
Geytnsbilok á Wolkswagen f allflestum litum. Skipium á
einum degi meö ilagsfyrirvara fyrir ákveöiö verö.
Keyniö viöskiptin.
Bflasprautun Garðars Sigmundssonar.
Sfcipholti 25 Simar 19099 og 20988.
íþróttahús skólanna
verði tekin í þágu
íþróttafélaga!
53.1ÞR6TTAÞING IS var haldiö á Akranesi 4.-5. sept. s.l. og sóttu paö
105 fulltrúar af 110 sem rétt áttu til þingsetu. Var þingiö haldiö á Akra-
nesi i tilefni 30 ára afmælis t.A. Meöal gesta þingsins, sem viöstaddir
voru þingsetninguna, voru Daniel Agústinusson, forseti bæjarstjórnar
Akraness, Asgeir E. Gunnarsson, bæjarritari, Valdimar örnólfsson,
form. tþróttanefndar Rikisins, Þorsteinn Einarsson fþr. fulltr, Reynir
G. Karlsson, æskuiýösfulltrúi og Hafsteinn Þorvaldsson form. U.M.F.t.
Fluttu þessir aöilar þinginu kveöjur og árnaöaróskir.
Minnzt látinna félaga
t upphafi Iþróttaþings minntist
forseti 1S1 eftirtalinna aöila, er
látizt höfðu frá þvi Iþróttaþing
kom saman siöast: Hermanns
Jónassonar, fyrrv. forsætisráð-
herra, Þorgils Guðmundssonar,
iþr. kennara, Halldórs Hansen
yfirlæknis og Birgis Kjaran, alþ.
manns. — Rakti hann i stuttu
máli þátt þessara mann i vexti og
viðgangi iþróttahreyfingarinnar,
en þingfulltrúar risu úr sætum i
virðingaskyni við minningu hinna
látnu.
Jafnframt þvi að lögð var fram
skýrsla, og reikningar tSt fyrir
tvö s.l. ár, flutti forseti ISt itar-
lega setningarræöu, þar sem
m.a. kom fram eftirfarandi:
1. Að á s.l. tveimur árum hefði
iþróttaiökendum fjölgað um 15%
og væru nú um 58 þús. manns
skráðir iþróttaiökendur i 18
iþróttagreinum.
2. Að þrátt fyrir mikia fjölgun
iðkenda á siöustu árum, héfði
iþróttafélögum ekki fjölgað eins
og búast mætti viö.
3. Aö fjárhagur fþrótta-
hreyfingarinnar er stööugt
vandamál. — Ctlagöur kostnaöur
ásamt hluta af sjáifboöaiiös-
kennslu nam um 280 miilj. króna
1975.
4. Aö fjárstuöningur rlkisins
vegna iþróttakennslu á s.l. ári
hafi numiö um 2.6% af heildar-
kostnaöi og aðeins 1% ef öll vinna
félagsmanna væri metin til fjár.
5. Aö ferðakostnaöur utanlands
og innan væri hraövaxandi vegna
aukinna iþróttasamskipta og aö
tSt og UMFt heföu gert hagstæöa
samninga s.l. sumar um Noröur-
landaferöir viö Fiugieiöir h/f og
Feröamiöstööina.
6. Aö húsnæðisaðstaða tþrótta-
kennaraskóla tslands aö Laugar-
vatni og starfsaöstaöa væri óviö-
unandi og fyrirsjáanleg væri
stöönun og skortur á fþrótta-
kennurum.
7. Aö Grunnskóli ISt ynni nú
markvisst aö þvi aö mennta
væntanlega leiöbeinendur
iþrótta- og ungmennafélaga og
mundi m.a. leita samstarfs viö
tþróttakennaraskólann.
8. Aö koma þyrfti á föstu skipu-
lagi skólaiþrótta og tengja þær
iþróttahreyfingunni.
9. Aö enda þótt Iþróttafrétta-
ritarar hafi oft skrifað ágætlega
um iþróttir og iþróUastarfiö,
vanti stundum á aö þeir skýri rétt
frá staðreyndum.
Gunnl. J. Briem gjaldkeri
sambandsins lagði fram endur-
skoðaða reikninga og skýrði þá.
— Niðurstööutölur reikstrar-
reiknings 1975 námu kr.
28.229.987.00.
Fyrir tþróttaþingi lágu töluvert
viðámiklar bréytingar á lögum
tSl og dóms- og refsiákvæðum
ÍSI, er unnið hafði verið að af
milliþinganefnd. Voru tillögur
milliþinganefndar samþykktar i
flestum tilvikum og ein þýðingar-
mesta breytingin var sú, að skip-
an Sambandsráðsstjórnar var
breytt á þann veg, að nú eiga þar
sjálfkrafa sæti formenn héraðs-
sambanda og formenn sérsam^
banda innan ÍSÍ, auk fram-
kvæmdastjórnár sambandsins,
eða samtals u.þ.b. 50 manns.
Sambandsstjórnin heldur fundi
sina árlega aö vori til. Fram-
kvæmdastjórnina skipa hins
vegar 5 menn eins og áður.
Að venju voru miklar umræður
á tþróttaþingi, fastanefndir
störfuðu og m.a. voru eftirtaldar
samþykktir gerðar:
l.lþróttaþing tSl 1976, samþykkir
aö skattur sambandsfélaganna
fyrir árið 1977 og 1978 verði kr.
20.- á hvern félagsmann 16 ára og
eldri.
2. Iþróttaþing tSt haldið á Akra-
nesi 4.-5. sept. 1976, skorar á
hæstvirtan fjármálaráðherra, að
hann beiti sér fyrir lækkun tolla á
ibróttavörum þannig að tollurinn
verði ekki hærri en 35% af C.I.F.-
verði.
3. tþróttaþing tSI haldið á Akra-
nesi 4. og 5. sept. 1976 skorar á
fjármálaráðherra og Alþingi að
breyta grundvelli þess gjalds,
sem tSl hefur notiö af sölu vindl-
inga til þessa. 1 það horf aö i stað
ákveðinnar upphæðar af hverjum
vindlingapakka, komi 1/2
hundraðshluti af andvirði hvers
pakka.
4. tþróttaþing tSl haldið á Akra-
nesi 4. og 5. sept. 1976, telur það
mjög miður, að rfkissjón og Al-
þingi skuli enn eigi hafa sinnt
kröfum íþróttahreyfingarinnar
um aukið fjármagn i neinu sam-
ræmi við hækkandi verölag og si-
vaxandi starf og þátttöku lands-
manna i iþróttum. Fyrir þvi skor-
ar tþróttaþing á þessa aðila að
verða við umsókn tþróttasam-
bands tslands um verulega aukna
fjárveitingu á fjárlögum 1977.
5. tþróttaþing ISl haldið á Akra-
nesi 4. og 5. sept. 1976 skorar á
hæstvirtan menntamálaráðherra
að hlutast til um að tillögur ISl
um viðmiðunárstærðir iþrótta-
mannvirkja skóla verði lagðar til
grundvallar við ákvörðun á þátt-
töku rikissjóðs i kostnaöi viö
byggingu iþróttahúsa, sundlauga
og leikvalla.
6. tþróttaþing lSt haldið á Akra-
nesi 4. og 5. sept. 1976, fagnar að-
gerðum margra sambandsaðila
til eflingar iþróttum og útilifi
meðal almennings, en telur að
gera þurfi efin betur á þessu sviði.
Þingið samþykkir að kjósa 3ja
manna nefnd er móti framtiðar-
stefnu i TRIMM-málum á tslandi.
Nefndin skili áliti til sambands-
stjórnarfundar tSt vorið 1977.
Nefndinni verði tryggt nægilegt
fjármagn af þvi fé sem varið er tii
TRIMM-mála á fjárhagsáætlun
ISt 1976 og 1977.
7. Iþróttaþing ISl haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976, beinir
þvi til hæstvirts menntamálaráð-
herra, að hann hlutist til um að
iþróttasalir rikisskólanna verði
látnir iþróttabandalögum og hér-
aössamböndum i té til afnota að
lokinni kennslu, það er á kvöldin,
um helgar og i leyfum, og að fylgt
verði ákvæðum 25. gr. iþróttalaga
um afnot iþróttafélaganna af
iþróttamannvirkjum rikisskól-
anna og skóla i sameign rikis og
bæjarfélags eða sveitarfélags..