Alþýðublaðið - 14.10.1976, Síða 3
immtudagur 14. október 1976
FRÉTTIR 3
Laun hækki um 3,11% 1. nóvember
Samkvæmt útreikningum
Kauplagsnefndar á visitölu
framfærslukostnaöar, á kaup á
almennum vinnumarkaði að
hækka um 3.11% um næstu
mánaðamót, en visitalan hefur
hækkað um 26 stig siðan 1. ágúst
s.l.
Svohljóðandi fréttatilkynmng
var gefin út um þetta af
Hagstofu Islands i gær:
1 3. grein rammasamnings
aðila vinnumarkaðarins 28.
febrúar 1976 segir meðal annars
svo:
„Ef visitala framfærslukostn-
aðar verður hærri en 586 stig 1.
október 1976 og minnst 5,2%
hærri en visitalan 1. júni 1976,
skulu laun samkvæmt
samkomulagi þessu hækka frá
1. nóvember 1976 i hlutfalli við
hækkun visitölunnar umfram
586 stig eða umfram þá visitölu,
er reiknuð var út 1. júni 1976 að
viðbættri 5,2% hækkun, hvort
sem hærra er.”
1 sömu grein nefnds ramma-
samnings segir og, að við um-
ræddan útreikning umfram-
hækkunar skuli miða við
framfærsluvisitölu, með tveim
aukastöfum, að frádreginni
þeirri hækkun hennar er leitt
hefur af hækkun á vinnulið
verðlagsgrundvallar búvöru,
svo og að frádreginni þeirri
hækkun visitölu, sem orðið hef-
ur vegna verðhækkunar á út-
söluverði áfengis og tóbaks.
Kaup1agsnefnd skal
samkvæmt rammasamningn-
um framkvæma útreikning
þennan og til kynna hækkun
launa frá 1. nóvember 1976, ef til
hennar kemur.
Niðurstaða þessa útreiknings
Kauplagsnefndar liggur nú fyrir
oger hún sú, að laun þau, er hér
um ræðir, skuli hækka um 3.11%
frá og meö 1. nóvember 1976.
Þetta tilkynnist hér með öll-
um, sem hlut eiga að máli.
GRÆNT LJÓS FRÁ ALMANNAVARNARÁÐI
Eins og fram kom í
Alþýðublaðinu í gær, lét
Almannavarna ráð frá
sér fara ályktun þar sem
ráðlagt var að fram-
kvæmdum við Kröflusvæð-
ið yrði frestað i bili.
Eftir að þessi yfirlýsing
Almannavarnaráðs var
gefin út í fyrrakvöld, var
haldinn fundur í ráðinu þar
sem mættir voru orku-
málastjóri auk sérfræð-
inga frá Orkustofnun,
Ra unvísindastof nun og
r.orrænu eldf jallarann-
sóknarstöðinni.
Á þessum fundi sem stóð
[Nefnd til að draga úr verðbólgu:
Verðum
en...!
Alþýðusamband ís-
lands og Alþýðuflokk-
urinn hafa nú svarað til-
mælum forsæfisráðherra
um að tilnefna fulltrúa í
nefnd, sem er ætlað það
hlutverk að huga að verð-
bólgumálum. Þessi til-
nefning er þó ekki án skil-
yrða.
1 svari ASt kemur fram eftir-
farandi bókun miðstjórnar: „1
sambandi við þátttöku Alþýðu-
sambands Islands i nefnd þessari,
vill miðstjórn þess taka skýrt
fram, að störf hennar og hugsan-
legar niðurstöður geta ekki á
neinn hátt bundið stefnumörkun
þess eða aðildarsamtaka þess
með,
Svör ASÍ og
Alþýðuflokks
varðandi baráttu samtakanna i
kjaramálum.”
1 svari þingflokks Alþýðu-
flokksins kemur þetta fram:
„Þingflokkurinn telur vanda
þann, sem við er að etja i efna-
hagsmálum vera stærri og alvar-
legri en svo, að það megi dragast
til febrúarmánaðar að taka af-
stöðu til þess, hvernig ráða eigi
fram úr honum. Afgreiðsla fjár-
laga og nýrra skattalaga hlýtur
t.d. að vera þáttur i lausn vand-
ans.
Þingflokkur Alþýðuflokksins er
engu að siður reiðubúinn til þess
að tilnefna fulltrúa i nefndina, en
tekur skýrt fram, að i þvi felst
engin skuldbinding um að móta
ekki sérstaka stefnu á þingi og ut-
an i efnahagsmálum og kjara-
málum, meðan nefndin starfar.”
Stefán Björnsson
forstjóri Mjólkursamsölunnar:
Engar
skyndilokanir
Það verður ekki gripið
til neinna harkalegra
aðgerða né neinar
lokanir gerðar
skyndilega. Engri
mjólkurbúð verður
lokað fyrr en önnur
verzlun er búin að yfir-
taka mjólkursöluna að
öllu leyti, og mjólkur-
búðin þvi orðin óþörf.
Þannig fórust Stefáni
Björnssyni forstjóra Mjólkur-
samsölunnar orö er Alþbl. ræddi
við hann um lokun
mjólkurbúðanna. Þess mis-
skilnings virðist hafa gætt hjá
amenningi að öllum mjólkur-
búðum höfuðborgarinnar yrði
lokað á einum og sama deginum,
þ.e. 1. febrúar.
Það eru um það ákvæði i
lögum, að búið veröi að loka
öllum mjólkurbúðum 1. febrúar,
en þær lokanir verða ekki gerðar
allar í einu. Fólk getur þess vegna
verið alveg rólegt.
Aö sögn Stefáns mun verða
reynt að haga lokununum sem
bezt fyrir kaupandann, og ætti þvi
enginn að þurfa aö óttast neitt.
Um þessar mundir eru aö
hefjast breytingar á þá leið aö
fæytja mjólkursöluna til
kaupmanna, og verða mjólkur-
búðirnar þvi sem fyrr segir
lagðar niður ein og ein i senn.
—AB
fram á nótt reyndu aöilar
aö gera sér enn gleggri
grein fyrir þvi hvaða
áhætta væri því samfara
að leyfa áframhaldandi
framkvæmdir á svæöinu,
aöallega hvað varðaði
mannslif.
1 gærmorgun var siðan enn einn
fundur þessara sömu aðila um
málið, en að honum loknum fund-
aði Almannavarnaráð um málið
eitt sér. Út frá þeim umræðum
sem áttu sér stað i fyrrakvöld og i
gærmorgun var gefin út ný álykt-
un frá Almannavarnairáði sem
hljóðar svo:
Alyktun Almannavarna -
ráðs (i3.io)
1 gærkvöldi og i morgun voru
haldnir fundir i Almannavarna -
ráði með orkustjóra og sérfræð-
ingum frá Orkustofnun, Raunvis-
indastofnun Háskólans og
norrænu eldfjallarannsóknastöð-
inni, til að ræða öryggismál og
jarðfræðilega þróun á Kröflu-
svæðinu með sérstöku tilliti til
þeirra atburða sem gerðust þar i
gærmorgun. Eftir þeim upplýs-
ingum sem nú liggja fyrir virðist
goshver sá sem myndaðist i gær-
morgun ekki vera sé'rstakur
fyrirboði eldgoss. Heldur aðeins
liður i þeirri heildarþróun sem að
mati margra visindamanna, en
þó ekki ailra bendir til vaxandi
goshættu á umræddu svæði. Með
hliðsjón af framangreindu, telur
Almannavarnaráð ekki ástæðu
til að leggjast gegn áframhald-
andi vinnu á Kröflusvæðinu, en it-
rekar fyrri ábendingar sinar frá
3. september um auknar öryggis-
ráðstafanir þar.”
Ákveðnar úrbætur
verði gerðar
Alþýðublaðið spurði Guðjón
Petersen hverjar þær öryggisráð-
stafanir væru sem ráðið vildi að
gerðar yrðu.
Guðjón sagði. að i byrjun sept-
ember hefði Kröflumálið verið
rætt hjá ráðinu, sérstaklega með
tilliti til þess að nú færi vetur i
hönd með versnandi færð og
skyggni. Að sögn Guðjóns var það
þá samdóma áiit að leggja ein-
dregið til að gerðar yrðu úrbætur
i þremur meginatriðum.
1 fyrsta lagi, að viðvörunarkerfi
það sem er við Kröflu yrði bætt til
muna, til dæmis með þvi að auka
við það sirenum og gera þær
sjálfvirkar.
1 öðru lagi.: að takmörkuð yrði
öll umferð óviðkomandi manna
um svæðið.
1 þriðja lagi að takmörkuð yrði
vera manna á svæðinu á hverjum
tima svo sem unnt væri. — Það er
að segja að menn yrðu ekki látnir
sofa þarna og matast nema brýna
nauðsyn bæri til. Sem sagt að
menn yrðu aðeins við vinnu á
svæðinu, en héldu til utan þess.
Ennremur sagði Guðjón
Petersen, að ákveðið hefði verið
að skipa nefnd með aðilum frá
Orkustofnun, iðnaðararáðuneyti
og Kröflunefnd til þess að vera
samstarfsaðili Almannavarna
ráðs um þessar úrbætur.
—GEK
ERT ÞÚ
• • •
ekki þreyttur,
ungi maður, á því
að ganga í fötum,
sem eru alveg
eins og allur
fjöldinn klœðist.
Um slíka fram-
leiðslu er stund-
um haft að orð-
taki, að þar séu
13 í dúsíninu. Því
ekki að koma og
velja úr 100 fata-
efnum og 100
sniðum — allt
eftir þínum sér-
staka smekk.
llltínta
K ORGARÐI