Alþýðublaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 5
immtudagur 14. október 1976 ÚTLÖWP 5 ________51 Þannis skemmta Rússarnir sér Seiðandi hljómfall Það sem við áttum sizt von á að sjá i rússnesk- um veitingastað: gó-gó stúlkur. Sjaldgæfur barna- sjúkdómur Tviburarnir á myndunum Werner og Ervin Rohringer fæddust árið 1969, með lltið þekktan og mjög óvenjulegan sjúkdóm. Strax frá fæðingu höfðu þeir ekkert mótstöðuafl gagnvart alls kyns veirum og sýklum, sem í álguðust þá. Þetta mótstöðu- aflsleysi gerði það að verkum, að búast: máttivið að þeir létu lifið hvenær sem var. Tviburarnir eyddu nær þremur árum á sjúkrahúsi, i sérstaklega hönnuðum tjöldum. Tvenns konar aðferðir voru reyndar við tviburana. Werner var gefinn beinmergur úr likama móður sinnar, meðan Erwin fékk kirtla úr fóstri. Erwin dó aðeins þriggja ára gamall, stuttu eftur að hann var sendur heim af sjúkrahúsinu með bróður sinum. Werner er nú eins og hver annar skóladrengur i Þýzkalandi. Ulm rannsóknarstööin i Þýzkalandi hefur nú á sinum snærum 15 börn með þennan sjaldgæfa og erfiða sjúkdóm, og þurfa þau öll að gangast undir margs konar rannsóknir. Sérfræðingar vona að I náinni framtið megi vísindunum takast að vinna bug á þessu böli. VIRPU - BltSKURSHURÐIM Lagerstæráir miðað við jmúrop: |Jæð;210 sm x breidd: 240 sm 2W) - x - 270 sm AÖrar stærðir. smitJadar eftir beiðnc GLuÍáAS MIÐJAN Kiðumúla 20, simi 58220 Hvernig skyldi sú al- varlega þjóð, Rússarnir skemmta sér? Ekki alls fyrir löngu voru nokkrir norskir blaða- menn staddir i Moskvu. Þeir höfðu ekki fyrr komið sér fyrir á hóteli sinu, en boð bárust um að þeir væru boðnir i hóf, sem haldið var á hótel Úkraniu, sem er ! miðri borginni. Þegar þangað kom, stóð þar yfir mikill gleðskapur, sem þeg- ar til kom reyndist vera brúð- kaupsveizla. Sigaunahljómsveit hóf að leika fyrr dansi, og fyrr en varði fylltist gólfið af hlæj- andi og syngjandi fólki. Voru blaðamennirnir sammála um, að þetta kvöld yrði lengi i minn- um haft. En það var ýmislegt fleira aö sjá i Moskvu, eins og eftirfar- andi frásögn sýnir. Það vekur strax athygli, að hinir svokölluöu skemmtistaðir ferðamanna, eru mikið sóttir af ibúum staðanna. Venjulega eru slikir staðir dýrari en svo, að hinn almenni borgari hætti sér þar inn með pyngju sina. En um Rússland gegnir öðru máli. Þar er hægt að skemmta sér hið bezta eina kvöldstund, fyrir ævintýralega upphæð. Maturinn sjálfur er kapituli út af fyrir sig. Eftir að borið hefur verið fram kalt kjöt, brauð, tómatar, agúrkur, rússneskur kaviar og gómsætar pylsur — þá fyrst kemur aö aðalréttinum. Yfirleitt samanstendur hann af ljúffengu kjöti, og alls kyns grænmeti. Drykkjarföng eru innifalin i verðinu, og standa þau tilbúin á borðinu, þegar gestinn ber að garði. Þeir sem þess óska, geta keypt heilflösku af vodka, og jafnvel haft hana með sér, ef huga á . frekari skemmtunum. En undir slikum kringumstæð- um kostar vinið meira en ella. Go-Go stúlkur Að sögn blaöamannanna léku hljómsveitirnar á skemmtistöð- unum einkum vestræn danslög. Þó mátti heyra rússneska söngva inn á milli, en i miklum minnihluta. Og svo var komið aðþvi, sem enginn hefði getað i- myndað sér að fyndist I Rúss- landi, gó-gó dansmeyjunum. Til að bæta gráu ofan á svart, má nefna manninn, sem gekk um með ferðasegulbandstæki og frá þvi hljómaði: Viva Espania. Þá var heimsóknin á veitinga- húsið við Svartahafið ógleym- anleg. Þar lék sigaunahljóm- sveit fyrir dansi, en i hléum mátti heyra seiðandi fiðlutóna. Drykkjusiðir Drykkjusiðir Rússa eru væg- ast sagt athyglisverðir. Þjóðar- drykkurinn er vitaskuld vodka, og er hann reiddur fram á sér- stakan hátt. Þeir sem ekki eru vanir slikum drykkjusiðum, eiga i smávægilegum byrjunar- örðugleikum, en æfingin skapar meistarann. Vodkinn er borinn fram i staupum, og vitaniega eru þau barmafull. Ekki er ætlazt til að menn lepji drykkinn i rólegheit- um, heldur á að tæma hvert glas i botn. Ef gestkomandi getur einhverra hluta vegna ekki fylgt þessum sið, á hann á hættu að móðga gestgjafa sinn. Þegarglasiðertæmtibotn, er mönnum ráðlagt að hafa eitt- hvað matarkyns við höndina, og er sérstaklega mælt með vel söltuðum gúrkubita. Um aðra drykki gegnir allt ööru máli. Þá má drekka á hvern þann hátt sem viðkomandi þóknast, og ræður hann einnig nokkru um magnið sem hann innbyrðir. Þjóðdansar Eitt er það sem enginn ætti að láta fara fram hjá sér ef Rúss- land er sótt heim, en það eru þjóðdansarnir. 1 Tsaikovskij- leikhúsinu sýndi dansflokkur frá Volgu þjóðdansa. Leikin voru rússnesk þjóðlög, en dans- arar sungu undir hárri raust. Klæði karla sem kvenna voru afar skrautleg, og var unun að horfa á lipurð og mýkt fólksins. Rússar sækja mikið hring- leikahúsin, og hafa hina beztu skemmtun af. Þau hafa fast að- setur, en litið er um ferðaleik- hús. Þarna gefur að lita tamda asna, fjallageitur, búralega skógarbirni i fataleppum og margar aðrar tegundir dýra. Trúðarnir eru ómissandi og voru þeir heldur fyrirferðamikl- ir þegar þeir hentust upp á svið- ið. Leikhús, sirkusar, þjóðdans ar söngur og hljómlist eru stór þáttur i lifi Rússans. Leggja þeir sérstaka rækt við þessa þætti, svo mikla, að stofnaðir hafa verið sérstakir skólar, þar sem listamennirnir geta fengið sina þjálfun, áður en þeir taka til við að skemmta fólki. I borg- um og þorpum er fjöldinn allur af leikhúsum og hljómleikasöl- um. Er greinilega lögð mikil á- herzla á að auka áhuga manna á menningu og listum. Hljómlist Rússar hafa mikinn áhuga á sigildri hljómlist og úrval slikra hljómplatna i verzlununum er óaöfinnanlegt. Þá er mikiö úr val dægurlaga, og meðal annars mátti sjá allar nýjustu hljóm- plöturnar i rekkunum. Einnig bar mikið á plötum með Elvis Presley og The Beatles. ölið sem framleitt er i Rúss- landi, nefnist Pjivo. Drekka Rússar mjög mikið af þessum drykk, og má ekki á milli sjá, hvort hefur vinninginn, ölið eða vodkinn. Að sögn fróöra manna, bragðast það m jög vel, og er 4-6 prósent að styrkleika. Vodkinn er aftur á móti 40-60 prósent. Já, það verður ekki annað sagt, en að Rússarnir kunni að skemmta sér. En sú skemmtun fer yfirleitt mjög vel fram og betur fram en viöa annars staðar. Fkki er óalgengt aö sjá drukkið fólk á ferð um strætin, en þvi fer fjarri að það fari með háreysti og söng. Það er nefni lega mikil skömm fyrir Rússa ef iiann hegðar sér þannig, þegar hann er undir áhrifum, svo mik- il að slikt kemur örsjaldan eða aldrei fyrir. — JSS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.