Alþýðublaðið - 04.11.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.11.1976, Blaðsíða 2
2 STJÚRNMÁL Fimmtudagur 4. nóvember 1976. Ctgefandi: Alþýftuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgftarmaftur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson. Aftsetur ritstjórnar er i Sfftumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild, Alþýftuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaftaprent h.f. Askriftarverft: 1100 krónur á mánufti og 60 krónur i lausasölu. Bandarískt lýðræði hefur staðizt Það reyndust vera hrakspár, að Bandaríkja- menn mundu ekki hafa áhuga á forsetakosning- unum, eins og skoðana- kannanir gáfu til kynna. Að visu er þátttaka þar ekki svipuð því, sem við eigum að venjast í norð- anverðri Evrópu, en mik- il þó. Og niðurstaðan varð breyting — Carter kosinn forseti og Ford hafnað. Bandarísk stjórnmál lúta sínum eigin lögmál- um og getur verið var- hugavert að bera þau saman við stefnur og strauma annarra landa. Þó hefur verið greinilegt allt frá tímum Franklin Delano Roosvelts, að hinn frjálslyndari armur dem- ókrata sver sig í ætt við jafnaðarmenn Evrópu og hefur barizt fyrir við- horfum þeim, sem móta velferðarríkin, sem þekkt eru hérna megin hafsins. Allt bendir til þess, að Carter sé af því sama sauðahúsi, og að hann muni beita sér fyrir þjóð- félagsbreytingum eins og almennu sjúkrasamlagi, sem enn er ekki til nema fyrir gamla fólkið þar vestra. Það er sögulegur at- burður, að maður úr hjarta Suðurrik janna, sem töpuðu hinu mikla Þrælastríði fyrir rúmlega öld, er kosinn forseti. Hitt mun þó hafa ráðið meiru, að bandaríska þjóðin er þreytt og svekkt eftir Vietnamstríðið og Watergate og vildi fá nýja menn til þess að leiða hana til nýrra tíma. Heiðarleiki og trúhneigð Carters hafa án ef a ráðið miklu um, að honum tókst að vinna traust þjóðar- innar, þótt hann væri nær óþekktur fyrir tveim ár- um. Saga Bandarikjanna og þær hugsjónir, sem mót- að hafa þjóðfélag þeirra, eru á þá lund, að Vietnam og Watergate hljóta að teljast harmleikir, sení alls ekki hefðu átt að koma fyrir. Það verður fróðlegt að fylgjast með þróun næstu ára. Banda- ríkskt lýðræði hefur enn einu sinni staðizt, fólkið hefur hafnað hinum gömlu og oft spilltu leið- togum og snúið við blaði. 40 ára afmæli RAFHA Fyrr í þessum mánuði átti Raftækjaverksmiðj- an í' Hafnarfirði, RAFHA, f jörutíu ára af- mæli. Því fólki, sem sjálft er yngra en þessi verksmiðja við tjörnina í Hafnarfirði, finnst ef til vill ekki mikið til um þetta afmæli. Fyrirtæki eru alltaf að eiga einhver af mæli. Það er þó sérstök ástæða til þess að stað- næmast við afmæli RAFHA í Hafnarfirði. Það vita þeir bezt, sem eru nokkru eldri en verk- smiðjan sjálf,og þekkja til þeirra umbrotatíma, sem leiddu til stofnunar hennar. RAFHA er tímamóta- fyrirtæki í íslenzkum iðn- aði. Hún var stofnuð af bjartsýnum mönnum, sem töldu að íslendingar væru tæknilega jafnfætis grannþjóðum og þyrftu ekki að sækja allt til ann- arra landa. RAFHA var stofnuð f þeirri staðföstu trú, að Islendingar þyrftu ekki að standa að baki neinum um tæknilega kunnáttu og að þeir gætu það, sem grannþjóðir þeirra gátu í iðnaði. Fyrirtækið RAFHA hefur sannað þetta og þarmeð veitti það (slend- ingum það sjáfstraust, sem þeir þurftu á að halda í iðnvæðingu sinni. Síðan hefur enginn getað haldið því fram, að (slendingar ráði ekki við iðnað, þeir hafi ekki þekkingu til að koma upp iðnaði. Þegar fyrstu elda- vélarnar voru fluttar í hús frá RAFHA, þurfti ekki frekar vitnanna við. Og reynslan hefur sann- að, að íslenzkur iðnaður er um margt fremri hin- um erlenda. Það er því miður oft hreint snobberí, sem ræður því, að íslenzkar fjölskyldur kaupa erlenda vöru, þar sem jafn góð íslenzk er til og oft betri. Margt er það, sem stendur og fellur með ein- stökum mönnum í at- vinnugreinum okkar. Iðnsigurinn í RAFHA er þessu marki brenndur, og ber að þakka hann að verulegu leyti Axel í Rafha, iðjuhöldi sem hef- ur stoltur fengið viður- nefni af fyrirtæki sinu, svo og iðnverkamönnum þeim, sem hafa staðið við steðjann í fyrirtækinu frá brautryðjendaárunum. Þeim ber heiður fyrir að hafa sannað, að íslend- ingar geta framleitt f lest eða öll venjuleg rafmagns-heimilistæki, og vafalaust f jöldamargt annað. Saga RAFHA er sigur- braut. Hún hvetur okkur til aukinnar bjartsýni um iðnað á íslandi, og hún ætti að sannfæra okkur um, að fslendingar geta búið til, hvað sem beir vilja. BGr. EIN- DALKURINN Lifandi leikföng. Dagblaðið segir i gær sögu af sjóferð islenzkra sjómanna til Nigeriu og nokkuð sérkennilegum leikföngum, sem þeir keyptu sér þar ytra og höfftu meft sér heim. Þetta eru apagrey, annað sex mánafta gamalt, hitt ársgamalt, og hingafteru þessi ,,börn” komin sem leikföng sjómannanna, en hvaft um þau verftur veit enginn, þvi ekki er heimilt aft taka slík dýr meft sér hingað til lands, enda eiga þau ekkert erindi hingaft og myndu hvort eft er aldrei dafna i þessu loftslagi. Blaðift skýrir þó frá þvi aft „apamálaráftuneyti” íslands hafi veitt þessum apaköttum land- gönguleyfi á sama tima og stranglega hefur verift — af sótt- varnarástæftum — bannaft aft hafa hingað inn i landift slátraða og meöhöndlaða kjúkiinga, nema til sendiráða. Trúlega endar þetta stundar- gaman sjómannanna meft þvi aö binda verftur endi á lif þessara apabarna, sem rifin hafa verift frá sinu eðlilega umhverfi. En endum þessar hugleiftingar meft beinni tilvitnun i viðtal blaðamanns DB viö sjómennina á m/s Sögu: Þá haffti ung og heillandi negrastúlka (ein af þessum sem fást fyrir 2-7 fiska) heimsótt þá um borft en þar sem þeim þótti hún frekar illa á sig komin, ákváftu þeir aft gefa henni dálitinn súrefnisskammt til aft hressa hana. En i misgripum tóku þeir gaskútinn og fréttu þeir ekkert af stúlkunni annaft en þaft, aft hún lægi illa haldin á sjúkrahúsi. Já, það endar ekki alltaf vel þegar „negrastelpa fer á rall”. Þarna er mannslifið ekki upp á marga fiska —BS. Lagerstæráir miðað v»3 ^núrop: ÍJæð; 210 sm x brekJd: 240 sm 3K> - x - 270 sm Aðrof stáarðir smSaðar eftir beiðni GLUCÍ^ASMIÐJAN „ Siftumúla 20, simi 38220 _J VIPPU - BltSKOSSHÓRSIN Alþýðuflokkurinn í borgarstjórn: Frystihúsin í Reykjavík tekin í gegn t dag mun Björgvin Guömunds- son, borgarfulltrúi Alþýöuflokksins flytja tillögu f borgarstjórn SSGNRYNÍTflÐBUNflÐ í FRYSTIHÚSUM B0RG- ARINNAR RÉTTMÆT - segir Árni Benediktsson forstjóri á Kirkjusandi Reykjavikur, þar sem vikiö er aö þvi alvarlega ástandi, sem nú rikir i frystihúsum borgarinnar. Tillaga Björgvins er á þessa leiö: Borgarstjórn Reykjavikur legg- ur áherzlu á nauösyn þess aö aöbúnaöur verkafólks i fisk- vinnslustöövum i borginni sé sem beztur. Borgarstjórn er ljóst aö mikið skortir á að svo sé i dag. T.d. er aðbúnaöur i fiskverkunarstöð og fiskiöjuveri BÚR ófullnægjandi, m.a. aö þvi er varöar matstofur og snyrtiaðstöðu. Einnig er aöstaöa verkafólks i vinnusölum slæm. Borgarstjórn samþykkir, aö beina þvi til Bæjarútgeröar Reykjavikur, að láta framkvæma hið fyrsta nauösynlegar endurbæt- ur i fiskvinnslustöðvum fyrirtækis- ins til þess að bæta aðbúnað verka- fólks. Jafnframt samþykkir borgar- stjórn að fela heilbrigöiseftirliti borgarinnar að framkvæma úttekt á hreinlætisaöstööu i öllum fisk- vinnslustöðvum i Reykjavik. Skulu niðurstööur þessarar úttektar lagö- ar fyrir heilbrigöismálaráö og borgarstjórn. Þessi tillaga Björgvins Guðmundssonar er fram borin I beinu framhaldi af miklum umræö- um, sem um þessi mál uröu, á kjördæmisþingi Alþýöuflokksins i Reykjavik nú fyrir stuttu. Þá hefur einnig komiö fram i viðtölum við Þórunni Valdimars- dóttur, formann Verkakvenna- félagsins Framsóknar og Árna Benediktsson forstjóra frysti- hússins á Kirkjusandi, að ástandiö i frystihúsunum þarfnast skjótra úrbóta. —BJ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.