Alþýðublaðið - 04.11.1976, Qupperneq 3
3KS" Fimmtudagur 4. nóvember 1976.
VETTVAIMGUR 3
W
Islenzkur piltur teiknaði 1388
tákn í bók fyrir heyrnardaufa
Hinn árlegi bazar og kaffisala
Foreldra- og styrktarfélags
heyrnardaufra verður haldinn i
Hallveigarstöðum á sunnudag-
innkemur,7. nóvember og hefst
klukkan 14.
Félagið hefur nú starfað i 10
ár, og orðið vel ágengt. Hér á
eftir verður stiklað á helztu
atriðunum i sögu þess:
1.
A fyrsta ári var hafist handa
umaöafla upplýsinga um mál-
efni heyrnalausra á Islandi til
að kynna þau mál fyrir al-
menningi. — Var fyrir tilstuðl-
an félagsins haldið útvarpser-
indi af Brandi Jónssyni skóla-
stjóra Heyrnleysingjaskólans.
Þá voru birtar greinar um þessi
mál i timaritinu Menntamál og
Heimili og Skóli. Ennfremur gaf
félagið út bækling sem Herdis
Haraldsdóttir heyrnleysingja-
kennari gerði fyrir félagiö og
ber hann heitið: Agrip af
þróunarsögu heyrnleysingja-
kennslunnar og hugleiðingar
um vandamál heyrnalausra
barna.
Hefur þessum bæklingi verið
dreift viða, meðal annars i
nokkrum skólum.
2.
þegar félagið var stofnað
1966 var bygging nýs Heyrn-
leysingjaskóla orðin mjög að-
kallandi og vann félagið ötul-
lega að þvl, ásamt skólastjóran-
um, að hrinda þvi máli i fram-
kvæmd. Félagið átti fulltrúa i
byggingarnefnd skólans.
Kennsluhúsnæðið er nú fullbúið
og allt hið vandaðasta. Félagið
hefur lagt nokkuð af mörkum
árlega til kaupa á tómstunda- og
iþróttatækjum til skólans.
3.
A vegum félagsins hefur verið
unnið að gerð orðabókar, sem
einkum á að vera sniðin við
þarfir heyrnadaufra. Hefur
félagið fengið nokkurn styrk frá
rikinu til þessa. Er það mál nú á
lokastigi.
4.
Félagið átti fulltrúa i nefnd,
sem skipuð var af menntamála-
ráðuneytinu til að fjalla um
skipulag kennslu heyrnar-
daufra. Nefndin sendi frá sér
nokkrar álitsgerðir til ráðu-
neytisins, og hefur lokið störfum
5.
Strax á þriðja ári félagsins
opnaði félagið skrifstofuog hef-
ur smam saman aukið starf-
semi sina með þvi að nú um
rúmlega eins og hálfs árs skeið
hefur félagið rekið þjónustu við
félagsmenn sina og heyrn-
leysingja.
Hefur þessi þjónusta mælst
mjög vel fyrir og hafa heyrna-
lausirnotfærtsérhana iæ rikari
mæli, erhér um að ræða félags-
ráðgjafastörf i þágu heyrn-
leysingja, sem vissulega var
brýn nauðsyn á.
6.
A 5. starfsári félagsins efndi
það til ráðstefnu með heyrnar-
daufu fólki viða að af landinu.
Fengust þar upplýsingar um
hagi þess og afkomu. Þetta var
liður i þeirri viðleitni félagsins
að efla kynni við heyrnardauft
fólk.
7.
A þessum árum hefur félagið
fengið marga fyrirlesara, bæði
islenska og erlenda, enda er
einn þáttur i starfi félagsins sá
að fræða félagsmenn um mál er
snerta heyrnardaufa.
8.
Hin siðari ár hefur starf
félagsins i auknum mæli beinst
að þvi að auka samskipti við
Félag heyrnarlausra. Hefur
samstarfsnefnd verið stofnuð
sérstaklega i þvi skyni og hefur
þessi nefnd haft forgöngu um að
félag heyrnarlausra er nú full-
gildur aðili að Norðurlandaráði
heyrnarlausra og var siðasti
fundur ráðsins haldinn i
Reykjavik 15-17. október siðast-
liðinn.
1 júlimánuði siðastliðnum var
haldið norrænt æskulýðsmót
fyrir heyrnarlausa að Reykholti
i Borgarfirði, mótið tókst sér-
staklega vel og voru þátttake-
ndur 137, en það er fjölmennasta
mót sem haldið hefur verið af
þessu tagi.
Greinar i timaritum heyrnar-
lausra á norðurlöndum benda til
að almenn ánægja hafi verið
með mótið.
Fimm aldraðir heyrn-
leysingjar sóttu ráðstefnu i
Finnlandi siðastliðið sumar og
er nú ákveðið að næsta ráð-
stefna fyrir aldraða heyrn-
leysingja verði haldin hér á
landi næsta sumar.
Ennfremur fóru 2 piltar til
Noregs á námskeið i félagsmál-
um heyrnarlausra i ágústmán-
uði siöastliðnum. Þá tóku 5 is-
lenskir heyrnleysingjar þátt i
skákmótum erlendis á siðast-
liðnu sumri.
Má af þessu sjá að islenskir
heyrnleysingjar taka nú i æ rik-
ari mæli þátt i norrrænu sam-
starfi og hefur það vikkað sjón-
deildarhring þeirra.
Þessi þátttaka byggist á þvi
að heyrnalausir nota sitt eigið
mál, táknmálið, sem gerir það
að verkum, að þeir skilja auð-
veldlega hvorn annan þó þeir
séu af óliku þjóðerni.
9.
Sumarið 1975 gengust félögin
fyrir 5 daga námskeiði i tákn-
máli fyrir almenning i Norræna
húsinu. Sóttu það um 80 manns.
Vorið 1976 var gefin út i fjöl-
rituðu formi bókin Táknmál, en
hún er teiknuð af islenskum pilti
og i henni eru 1388 tákn. Hefur
bók þessi vakið verðskuldaða
athygli bæði hér á landi og er-
lendis. M.a. var hennar getið i
sérstökum þætti i danska sjón-
varpinu.
Sfðar i vetur verður haldið
námskeið fyrir almenning i
táknmáli.
10.
Gerð hefur verið skýrsla af
dönskum heyrnleysingjáráð-
gjafa um stöðu heyrnleysingja á
Islandi. Af henni má ráða að
brýn nauösyn er á að starfandi
sé félagsráðgjafi fyrir heyrnar-
lausa hér á landi eins og tiðkast
i öðrum löndum.
11.
( Allt starf félagsmanna er.sj-
alfboðavinna, en þó fer ekki hjá
þvi, að nokkurt fé þarf til starf-
seminnar. Drýgsta tekjulind
félagsins hefur verið bazar, sem
félagskonur gangast fyrir á
hverju hausti. Er þetta veiga-
mikill þáttur i félagsstarfinu.
NU hin siðari ár hefur félagið
gengist fyrir Happdrætti i sam-
vinnu viö Félag heyrnarlausra,
auk þess hefur félagið notið
nokkurra styrkja frá hinu opin-
bera.
Minningarkort félagsins fást i
Bókaverslun tsafoldar, Austur-
stræti.12.
Foreldra og styrktafélag
heyrnardaufra er aðili að
öryrkjabandalagi Islands.
13.
A aðalfundi félagsins sem
halfinn var 2. október siðastlið-
inn rikti mikill einhugur og voru
margar samþykktir gerðar
varðandi starf félagsins, stööu
þess og stefnu.
Skrifstofa félagsins er nú aö
Hátúni 10A simi 13240 og er hún
opin fyrir hádegi.
Bókin hefur vakið mikla athygli, m.a.
getið í þætti i danska sjónvarpinu.
1BRENNIDEPLI
Skólinn
og samfélagið
Málefni skólanna eru
nú mjög i sviðsljósinu og
það að vonum. Nú siðast
sú ákvörðun mikils hluta
kennara i grunnskólum
að fella niður kennslu
mánudaginn8 nóv. n.k.,
en ræða þess i stað
starfskjör sin og starfs-
aðstöðu.
Af mörgu er að taka i
þeim efnum, en hér
skulu nefnd tvö þau at-
riði sem valda hvað
mestri óánægju meðal
þeirra grunnskólakenn-
ara er heyra til Sam-
bandi isl. barnakennara
(S.Í.B.).
Þessi atriði eru ekki eingöngu
spurning um launakjör, heldur
miklu fremur um mannréttindi
og jafnrétti.
Fyrra atriðið er hinn mikli
munur á skyldukennslu kennara
á grunnskólastigi. Kennarar i 6-12
ára bekkjum hafa frá og meö 1.
des. n.k. 3ja stunda kennslu-
skyldu á viku umfram kennara
eldri bekkjanna.
Hér sitja menn ekki við sama
borð þótt þeir i mörgum tilfellum
hafi sömu menntun, álika starfs-
reynslu, séu i sömu stofnun og
vinni sams konar störf.
Það er íráleit og hættuleg skoð-
un að miða eigi laun grunnskóla-
kennara eftir aldri nemenda.
Fylgir þvi minni vandi og minni
ábyrgð að leggja undirstöðurnar
enbyggja viö og ofan á? Eða þarf
ekki grunnur hússins aö vera
traustur til þess aö þaö standi?
Siðara atriðið er hið misjafna
mat sem lagt er á almennt
kennarapróf eftir þvi á hvaða
tima það er tekið.
Réttindin eru þau sömu,
skyldurnar einnig og starfið er
þaö sama. Hvers vegna er þá
niðst á þeim sem hafa þessa hluti
alla I fullkomnu lagi miðað við
þær kröfur og þau lög sem i gildi
voru er prófið var tekið? Þekkist
sliict i öðrum stéttum?
Hér eins og oft áður er rikis-
valdið seinheppið i gerðum sin-
um, beinlinis býr til óþarfa
vandamál.
Eins og áður sagði er hér ekki
eingöngu um launa- og kjaramál i
venjulegum skilningi að ræða.
Hér eru sjálfsögðu mannréttindi i
húfi og jafnrétti að engu haft.
Hvað segja lög um sömu laun
fyrir sömu vinnu?
Eru þessi atriði ekki brot á
jafnréttislögunum?
Með harkalegum og ósann-
gjörnum ákvæðum hefur rétt-
lætistilfinningu mikils meiri hluta
kennarastéttarinnar verið mis-
boðið og metnaður hennar særð-
ur. Viðbrögð hennar verður að
skoða i ljósi þeirrar staðreyndar.
Ég leyfi mér hér með að skora á
hæstvirtan menntamálaráðherra
aö beita sér nú þegar fyrir þvi að
þessi mál verði tekin til gaum-
gæfilegrar athugunar með viðun-
andi úrlausn i huga.
Grunnskólinn stendur nú
frammi fyrir miklum vanda i
fjölmörgum efnum. Til hans eru
gerðar margvislegar kröfur i
margbrotnu samfélagi nútimans
og er það út af fyrir sig eðlilegt.
En hann hlýtur að gera sinar
kröfur á móti á jafnréttisgrund-
velli.
Skólinn stendur og fellur með
starfi kennarans.
Hróplegt misrétti, lág laun og
sifelldar deilur um kaup og kjör
starfsmanna skólans eru hættu-
merki á vegferð hans sem verður
aðsneiða hjá ef ekki á illa að fara.
Guðmundur Magnússon.