Alþýðublaðið - 04.11.1976, Page 13
jFimmtudagur 4. nóvember 1976.
Útvarp
Fimmtudagur
4. nóvember
7.00 Morguntónleikar. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.Fréttir. kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr.dagbl.),9.00og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50. Morgun-
stundbarnannakl.8.00: Kristin
Sveinbjörnsdóttir les söguna
„Aróru og pabba” eftir Anne-
Cath. Vestly i þýðingu Stefáns
Sigurðssonar (4). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttirkl. 9.45. Létt
lög milli atriöa. Viö sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson tala
r við Guðjón Armann Eyjólfs-
son fyrrv. skólastjóra um al-
þjóðlegar siglingareglur. Tón-
leikar. Morguntónleikar kl.
11.00: Filharmoniusveit Berl-
inar leikur „Silkistigann”, for-
leik eftir Rossini, Ferenc
Fricsay stj. / Gérard Souzay
syngur óðeruariur eftir Bizet,
Massenet, Meyerbeer, Thomas
og Gounod. Lamoureux hljóm-
sveitin leikur með, Serge
Baudo stj. / Sinfóniuhljóm-
sveitin i Liege leikur
Rúmenskar rapsódiurnr. 1 og 2
eftirEnesco, Paul Strauss
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. A frivaktinni.
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Ljúkum verkinu!. Siðari
da gskrárhluti i tilefni af starfi
kirkjunnar til styrktar mál-
efnum vangefinna barna. Um-
sjónarmenn: Guðmundur
Einarsson og séra Þorvaldur
Karl Helgason.
15.00 Miðdegistónleikar. Nicanor
Zabaleta leikur tónlist fyrir
einleikshörpu eftir Caplet,
Prokofjeff og Hindemith. Fé-
lagar úr Laugs kvintettinum
leika Serenööu i G-dúr fyrir
flautu, fiðlu og viólu op. 141a
eftir Max Reger. Sinfóniu-
hljómsveitin i Birmingham
leikur Divertissement fyrir
kammerhljómsveit eftir
Jacques Ibert, Louis Fremaux
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
16.40 „Vindurinn þýtur”, smá-
saga eftir Katherine Mansfield.
Anna Maria Þórisdóttir þýddi.
Ingibjörg Jóhannsdóttir leik-
kona les.
16.55 Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög barna
innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Hall-
dórsson flytur þáttinn.
19.40 Þrjú Islenzk þjóðlög Í út-
setningu Hafliöa Hallgrimsson-
ar. Sigriður E. Magnúsdóttir
syngur.Hljóðfæraleikarar: Jón
H. Sigurbjörnsson, Gunnar
Egilson, Pétur Þorvaldsson og
Kristinn Gestsson.
19.50 Leikrit: „Betur má ef duga
skal” eftir Peter Ustinov.Þýð-
andi: Ævar R. Kvaran. Leik-
stjóri: Klemenz Jónsson. Per-
sónur og leikendur: Lafði Fitz-
nuttress/ Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir. Helga/ Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Sir Mallalieu/
Ævar R. Kvaran. Róbert/ Sig-
urður Skúlason. Lesley/ Sigrún
Björ-nsdóttir. Judy/ Margrét
Guðmundsdóttir. Tiny/ Róbert
Arnfinnsson. Sóknarprestur-
inn/ Rúrik Haraldsson. Basil/
Jón Júliusson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Kvöldsagan:
„Minningabók Þorvalds Thor-
oddsens”. Sveinn Skorri
Höskuldsson les (6).
22.40 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
„BETUR MA
EF DUGA
SKAL"
- leikrit eftir
Peter Ustinov
Fimmtudaginn 4. nóvember
kl. 19.50 verður flutt leikritið
„Betur má ef duga skal”,
gamanleikur eftir Peter
Ustinov. Þýðinguna gerði Ævar
R. Kvaran, en Klemenz Jónsson
er leikstjóri. Með hlutverkin
fara: Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Ævar R. Kvaran, Sig-
urður Skúlason, Sigrún Björns-
dóttir, Margrét Guðmundsdótt-
ir, Róbert Arnfinnsson, Rúrik
Hraldsson og Jón Júliusson.
Uppgjafahershöfðingi I
brezka hernum kemur heim til
sin eftir langa fjarveru.
Aðkoman er heldur óskemmti-
leg. Sonurinn er orðinn hippi, og
dóttirin er ófrisk og veit ekkert,
hver barnsfaðirinn er. Hers-
höföinginn verður hneykslaöur i
fyrstu, en svo hugkvæmist hon-
um að ganga fram af fjölskyldu
sinni, og það er ekkert hálfverk
á þvi hjá honum.
Peter Ustinov fæddist i Lond-
on 1921, af rússneskum ættum.
Faöir hans var rithöfundur, en
móðir hans teiknaöi leikmyndir.
Ustinov byrjaði snemma aö
skrifa leikrit. Hann var um
tvitugt, þegar fyrsta verk hans,
„House of Regret”, var sýnt á
sviði. Siðan hefur hann samið
um eða yfir 20 leikrit. Af þeim
þekktari má nefna „Love of four
Colonels” 1951, sem hlaut mikla
viðurkenningu og verðlaun,
„Romanoff and Juliet”, sem
Þjóðleikhúsið sýndi 1957 og
Photo Finish (Endasprettur!,
sýnt I Þjóðleikhúsinu 1965-66.
„Betur má ef duga skal” var
frumsýnt I London I nóvember
1967, en Þjóöleikhúsiö flutti þaö
veturinn 1969-70 og var höfundir
viðstaddur frumsýninguna.
Auk þess að vera leikritahöf-
undur er Peter Ustinov þekktur
leikari, bæði á sviði, sjónvarpi
og kvikmyndum. Hann leikur
m.a. i myndinni „Spartacus”,
sem hér hefur verið sýnd að
undanförnu. Auk þess hefur
hann getið sér gott orð sem leik-
stjóri.
Þetta er fyrsta leikrit
Ustinovs, sem útvarpið flytur.
■.■ TIL KVðLDSl
Nazistaböðull í líki
heiðvirðrar húsmóður
Hin 57 ára gamla Hermine
Braunsteiner Ryan bjó I fjölda
ára sem húsmóöir i New York,
en dag einn var hulunni svipt af
fortið hennar. Það voru nazista-
veiðarar, sem halda uppi stöð-
.ugri leit að striðsglæpa-
mönnum, sem þar voru að
verki.
Ekki verður sagt að fortið
frúarinnar hafi verið glæsileg. 1
heimsstyrj. sfðari var hún
yfirmaður i útrýmingarbúðum
nazista i Majdanek i Lublin i
Póllandi.
Frúin var þegar i stað hand-
tekin og send áleiðis til Vestur-
Þýzkalands. Hún er nú fyrir
rétti i Diisseldorf, og svarar
þar, ásamt fjórum öðrum, fyrir
morð á 250.000 Gyðingum, sem
teknir voru af lífi i búðum þess-
um á árunum 1941-1944.
Hin 57 ára gamla Hermine
Braunsteiner Ryan, sem I mörg
ár lifði undir föisku nafni i New
York, en hefur nú verið afhjúpuð
sem nazistaböðull af verstu gerð.
v ______________
Unga fólkið hér á myndinni er
af eftirstríðskynslóðinni og þekk-
ir þvi ekki til styrjaldarinnar af
eigin raun, en samt sem áður hef-
ur það áhuga á að vita hvað það
var sem átti sér stað i útrýminga-
búðum nazista. Myndin er tekin
fyrir utan dómshúsið i Diissel-
dorf, þar sem fram fara réttar-
höld yfir Hermine Braunsteiner
Ryan og fjórum öðrum, vegna
morða á 250.000 Gyðingum.
__________________________________/
Dæmd til þess að spila á
píanó í 100 klukkutíma
Fyrir skömmu var ensk kona,
Phyllis Mary Fishwick, dæmd
fyrir búðarþjófnað. Frúin hafði
farið i búö I West-end og stungið
á sig vörum fyrir sem svarar
5000 krónum.
Refsingin sem hún hlaut var
sú að henni var gert skylt aö
spila á pianó fyrir gamalt fólk á
elliheimilum i minnst 100
klukkutima. Frúin er áhuga-
pianisti.
Herra og
frú Bernstein
skilja
Herra Leonard Bernstein, h'.in
frægi tónlistarhöfundur og hljóm-
sveitarstjórnandi er skilinn við
ektamaka sinn, hina 25 ára
chileönsku Felicia Montealegre.
Herra Bernstein hefur nú flutt úr
húsi þeirra hjóna i New York og
að sögn kunnugra heldur hann nú
til i Vinarborg.