Alþýðublaðið - 10.11.1976, Page 16
Stækkun hafnarinnar
forsenda uppbyggingar
segir Gunnar Markússon form. landshafnar í Þorlákshöfn
Landshöfnin i Þorlákshöfn
hefur verift stækkuft a 11 verulega
siftustu 2 árin.
Höfnin var formlega opnuft sl.
sunnudag af ráftherra aft vift-
stöddu margmenni.
Framkvæmdir vift höfnina
hafa staftift siftan i september
1974 og hafa þær staðizt alla
áætlun, hvaft varftar tima og
fjármagn.
1 Þorlákshöfn hefur verið
settur upp brimbrjótur, hinn
eini sinnar tegundar hér á landi.
Brimgarður þessi er um 24
metra hár þar sem hann er
hæstur og er hið mesta mann-
virki.
Siðastliöin ár hafa bátar i
Þorlákshöfn skemmst verulega*
þegar óveður hafa skollið á.
Með tilkomu brimgarðsins ætti
það nú að lagast, þar sem hann
varnar öldugangi aðgang að
bátunum.
A siðastliðnum tveimur árum
hafa verið sendir út tveir skip-
stjórar tvisvar sinnum til að
fylgjast með likangerð ' brim-
garðsins. Mun það vera i fyrsta
sinn sem slikar feröir eru farnar
hér á landi.
‘Að sögn Gunnars Magnússon-
ar formanns stjórnar lands-
hafnarinnar i Þorlákshöfn, hef-
ur samvinna verið eins og bezt
var á kosið, og á það við um
alla, frá verkamönnum til ráð-
herra.
Stækkun hafnarinnar i Þor-
lákshöfn hefur i för með sér
bætta aðstöðu fyrir Herjólf, þar
sem nú er hægt aö aka um borð i
skipið bæði i Vestmannaeyjum
og Þorlákshöfn.
Þar sem Herjólfur siglir ein-
göngu til Þorlákshafnar, hefur
það að sjálfsögðu i för með sér
aukna bilaumferð um Þorláks-
hafnarveginn. Sagði Gunnar
ómögulegt fyrir nokkurn veg að
standast til lengdar alla þá um-
ferð, og væri gatnagerð i Þor-
lákshöfn bágborin.
— En Róm var ekki byggð á
einni nóttu, þetta kemur, sagði
Gunnar Markússon formaður
stjórnar Landshafnarinnar i
gær.
Samræmd reglugerð
eyrissjóðanna tekin
Samband almennra Hfeyris-
sjófta hefur sett samræmda
reglugerft, sem gildir fyrir alla
liferyissjófti sem eiga aftiid aft
sambandinu.
Þá hefur sambandið lagt til að
reglugerðum aðildarsjóða SAL
verði breytt á þann veg, að sér-
stök ákvæði til bráöabirgöa komi
aftan við núgildandi bráðabirgða-
ákvæði. Skulu bráðabirgðar-
ákvæði þessi gilda árin 1976 og
1977. Er megininntak laganna á
þá leið, að sjóðfélagar, sem eiga
rétt á lifeyri skv. lögum um eftir-
laun aldraðra félaga i stéttar-
félögum,fái nú sérstakar lifeyris-
uppbætur skv. starfssamningi líf-
eyrissjóða stéttarfélaganna.
Einnig.að lifeyrisgreiöslur að-
ildarsjóða verði verðtryggðar að
hluta, og að þeir félagar sem ekki
njóti lifeyris skv. lögum nr. 63 frá
1971, en eiga rétt á lifeyri frá
sjóönum, fái greiddar sérstakar
lifeyrisuppbætur á árunum 1976
og '77
Eins og kunnugt er, þá er
Samband almennra lifeyrissjóöa
heildarsamtök þeirra lifeyris-
sjóða, sem hafa sett sér reglur á
grundvelli samkomulagsins frá
19. mai 1969 milli ASl og VSÍ um
stofnun lifeyrissjóöa, eða hafa
samið reglugerðir sinar eftir sér-
stakri reglugerðarfyrirmynd,
sem tók gildi 1. janúar 1970.
Nú hafa hins vegar verið gerðar
breytingar á reglugerðarfyrir-
myndinni og taka þær gildi 1. jan-
úar n.k. . Helztu breytingar eru
þær, aö sjóðstjórnum veröur
heimilt að leggja til grundvallar
fleiri ár aftur I timann og sleppa
líf-
upp
úr meðaltalinu þvi almanaksári,
sem lakast er, við útreikning á
örorku- og makalifeyri.
Ef sjóðfélagi lætur ekki eftir sig
maka, en einstæð móðir hans,
ógift systir, eöa sambýliskona
hefur sannanlega annast heimili
hans um árabil, þá er sjóöstjórn
heimilt að greiða hlutaðeigandi
makalifeyri, eins og um ekkju
hafi verið að ræða.
Þá á sjóðfélagi, sem hverfur úr
sjóðnum, nú aöeins rétt á aö fá
endurgreiddan iðgjaldahluta
sinn, sem hann hefur greitt til
sjóðsins, ef hann hefur ekki greitt
til annars lifeyrissjóðs á þvi
almanakári, sem sótt er um
endurgreiðslu, né hinu næsta á
undan.
Hefur Fjármálaráöuneytið aö
undanförnu látið fara fram
athugun á ákvæðum fyrrgreindra
laga um starfskjör launþega og
eru ofangreindar breytingar i
samræmi við þá niðurstöðu, sem
nú liggur fyrir um efni laganna.
JSS
Skuldabréf fyrir 420
millj. frá áramótum
Frá áramótum og fram tíl 1. 1 fréttabréfi frá SAL kemur
nóvember hafa aftildarsjóftir fram, að ailar llkur séu á, að
Sambands almennra Hfeyris- aðildarsjóðirnir standi við
sjófta keypt verfttryggö skulda- skuldbindingar sinar i samræmi
bréf af Byggingasjófti rikisins við yfirlýsingu rikisstjórnarinn-
fyrir 420 milljónir króna. ar frá 28.febrúar, um húsnæöis-
Þaft fjármagn scm Sai-sjóft- mál, en sú yfirlýsing var gefin i
irnir munu hafa til ráftstöfunar trausti þess, að lifeyrissjóðir
á þessu ári er áætlaft nálægt stéttafélaganna verji 20% af
2.226milljónum króna. Sjóftirnir ráðstöfunarfé sinu til kaupa á
hafa þvi keypt skuldabréf fyrir verðtryggöum skuidabréfum
18,5% af ráftstöfunarfé sinu. Byggingarsjóðs rikisins. JSS
Bólusett í Reykjavík gegn
heilahimnubólgu
Ennþá hefur ekki orftift vart vift
fleiri heilahimnubólgutilfelli i
Reykjavik, en á undanförnum ár-
um segir i frétt frá borgarlækni.
Fjöigun hefur hins vegar orftift á
nokkrum svæftum á landinu og
hefur verift bólusett þar vift tveim
stofnum sýkla er valda heila-
himnubólgu.
1 samráöi við landlækni hefur
nú verið ákveðiö að undirbúa
bólusetningu i Reykjavik og mun
hún fara fram, þegar þeim undir-
búningi er lokiö og bóluefni hefur
verið fengiö til landsins.
Unnið er að þvi, að fá nægilegt
bóluefni, og mun það fást um leið
og framleiðendur geta annað
pöntunum. A næstu dögum verður
tilkynnt um nánari tilhögun bólu-
setningarinnar hér i Reykjavik.
Þá er það skýrt tekið fram, að
hvergihafi tiöni sjúkdómsins ver-
ið slik, að hann hafi komizt á
faraldurs stig og mjög litil hætta
er á beinni smitun frá einu tilfelli
til annars.
Heilahimnubólga getur stafað
bæði af sýklum og veirum og geta
margir mismunandi tegundir og
stofnar valdið henni. Arlega
koma upp tilfelli meöal barna i
Reykjavik og hefur mestur fjöldi
þeirra verið vegna sýkla, sem
ekki hefur tekizt að framleiða
bóluefni gegn.
Fjölgun tilfella á landinu hefur
stafað af tveim stofnum, þ.e. A og
B stofni, en bóluefnið sem fæst er
aðeins virkt gegn A og C stofni.
Það skai tekið fram, að til eru
virk lyf gegn heilahimnubólgu af
sýklauppruna, en fólk sem veikist
þarf að komast sem fyrst undir
læknishendur. —-jss.
67 óra og
eldri verði
undanþegnir
launaskatti
Tveir þingmenn Alþýftuflokks-
ins hafa lagt fram breytingatil-
lögu um breytingu á lögum um
launaskatt. Þar er gert ráft fyrir,
aft i frumvarpift bætist ný grein,
er orðist svo:
Undanþegin skattskyldu eru
laun eða þóknanir fyrir störf
fólks, sem er 67 ára og eldra, og
likamlega fatlaöra, vangefinna
og þroskaheftra, svo að metið sé
til 60% örorku eða meira af
Tryggingastofnun rikisins.
Ennfremur laun eöa þóknanir
fyrir störf við landbúnað, jafnt
vinna bóndans sjálfs og þeirra,
em hann greiðir laun. Sama gildir
um vinnulaun vegna jaröræktar-
og byggingarframkvæmda á bú-
jörðum.
Flutningsmenn þessarar tillögu
eru þeir Bragi Sigurjónsson og
Jón Armann Héöinsson.
SOGUMALIÐ
Málflutningur hófst í gær
í gær hófst mál-
flutningur fyrir Sjó-
og verzlunardómi
Reykjavikur vegna
Sögumálsins svo-
nefnda, en þar á að
reyna að leiða i ljós
sannleikann i máli Ni-
geriumánnanna
tveggja sem voru í
áhöfn Sögu og borið
hafa yfirmenn skipsins
þungum ásökunum.
í gær mætti Sigurður
Markússon fyrir dóm-
inn og rakti söguna frá
sinu sjónarhorni, en
einnig var tekin
skýrsla af öðrum
Nigeriumanninum.
Landi hans mun segja
sina sögu i dag.
Að sögn Finns Torfa
Stefánssonar lögfræðings
Sjómannasambandsins, mun
verða reynt til þrautar að
leysa mál þetta á friðsaman
hátt, svo sem venja væri. Um
horfur á samkomulagi vildi
hann ekki segja, en kvað
sjónarmiö þarna stangast á eins
og alltaf vildi verða I tilfellum
sem þessum. —ARH
MIÐVIKUDAGUR
10. NÓVEMBER 1976
alþýðu
blaöiö
HEYRT,
SÉÐ 0G
HLERAÐ
Frétt: Að nú hafi Njörður
P. Njarðvik, lektor, ákveö-
ið að fylgja laxbróður sin-
um ólafi Ragnari Grims-
syni inn i Alþýöubandalag-
ið. Hafi hann gengið i flokk-
inn i fyrrakvöld. Þeir fél-
agar hafa nú verið i flest-
um stjórnmalaflokkum á
Islandi: Ólafur Ragnar I
Framsóknarflokknum,
Samtökunum og nú I
Alþýöubandalaginu og
Njörður P. Njarðvik i
Sjálfstæðisflokknum,
Alþýðuflokknum, viðloð-
andi Samtökin og nú i
Alþýðubandalaginu.
Lesift: 1 Dagblaðinu i gær,
að Ingvar Björnsson, fyrr-
um bæjarlögmaður I
Hafnarfiröi, hafi veriö
sýknaður af öllum kröfum
ákæruvaldsins I opinberu
máli, sem höfðað var gegn
honum fyrir það aö hafa
misnotað stöðu sina á þann
hátt að það varðaði við lög.
Tekift eftir: Aö Jón G.
Sólnes, alþingismaður,
flutti þáttinn „Um daginn
og veginn” á mánudags-
kvöld. Þar talaöi hann i
landsföðurlegum tón um
ýmis eftirtektarverð og
markverð mál. Hann lét
hins vegar fá orö falla um
Kröfluvirkjun, og er þá af
sem áður var. Engum dett-
ur i hug að væna Jón um
fávizku, enda mun hann
sem og aðrir gera sér grein
fyrir þvi hve vonlaus bar-
átta er nú háð á kjafti
Kröflu.
Tekift eftir: Að þaö hefur
tekið Leikfélag Reykjavik-
ur tugi ára að safna fé til að
geta byrjað framkvæmdir
við nýtt borgarleikhús.
Leikfélagið hefur eingöngu
leitað til stuöningsmanna,
sem eru býsna margir.
Hins vegar tók þaö Alþýöu-
bandalagiö ekki nema örfá
ár að safna fé i 40 milljón
króna hús. Kommar ættu
að kenna Leikfélagsmönn-
um aðferðina, ef hægt er að
opinbera hana.
Tekift eftir: Að þeir menn,
sem vilja taka leigugjald
fyrir varnarliðið, bendi nú
á, að betra sé að fá leigu-
tekjur og greiða með þeim
erlendar skuldir, en aö
Alþjóðabankinn sendi hing-
að fulltrúa sina til að
stjórna fjármálum lands-
ins vegna skulda þess viö
bankann. Þeir segja enn-
fremur, aö með leigugjald-
inu yröu islendingar ekkert
háðari Bandarikjamönnum
en þeir eru nú háðir Rúss-
um með kaup' á oliu og
benzini.