Alþýðublaðið - 04.12.1976, Síða 10
14 LISTIR/MENNING
Laugardagur 4. desember 1976
Finnskir vísnasöngvarar í Norræna húsinu
TONLEIKAR FYRIR ALMENNING 5. DESEMBER
í tilefni af
þjóðhátiðardegi Finna,
6. desember, eru komnir
til landsins tveir þekktir
visnasöngvarar, annar
frá Álandseyjum og hinn
frá Abo i Finnlandi.
Börje L&ng er frá Mariehamn á
Alandseyjum og er hann i lands-
stjórninni þar. Hann hefur sungiö
i óperettum a Álandseyjum og
meö Brahe Djáknar-kórnum, sem
Islendingum er aö góöu kunnur,
siöan hann söng hér i Háskólabió i
april 1972.
Börjc Láng hefur veriö forstjóri
skemmtigarðsins Smedsgarden i
österbotten þar sem sænskumæl-
andi Finnar koma mikiö til að
skemmta sér.
Pia-Gunn Anckar er vinsæl
visnasöngkona frá Abo i
Finnlandi. Þau munu syngja
klassisk lög eftir Sibelius, Kuula
og Merikanto og einnig finnskar
þjóðvisur, sem þau hafa getið sér
miklar vinsældir fyrir.
Fyrir utan aö skemmta hjá
Finnlandsvinafélaginu Suomi á
Þjóðhátiðardegi Finna, halda þau
tónleika fyrir almenning á sunnu-
daginn 5. desember kl. 16.00 I
samkomusal Norræna hússins.
Undirleikari þeirra veröur Carl
Billich.
Nýjar bækur:
Almenna bókafélagið:
Þrjár nýjar Ijóða-
bækur -
Þrjár nýjar ljóðabækur.
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér þrjár ljóöabækur
ELFARNIÐ eftir Þórunni Elfu,
og tvær fyrstu bækur kornungra
höfunda, KOPAR Magneu
Matthiasdóttur og I SKUGGA
MANNSINS eftir Sveinbjörn
Baldvinsson.
Elfarniöur er aö visu fyrsta
ljóöabók ÞórunnarElfu, en mun
vera tuttugasta og önnur bókin
sem hún sendir frá sér, hinar
bækurnar eru eins og kunnugt
er skáldsögur og tvö
smásagnasöfn. Auk þess hefur
hún samiö leikrit fyrir útvarp og
ritað fjölda greina, sem birzt
hafa viðsvegar.
Ljóöin i Elfarnið eru frá
nokkuö löngum tima og i
margskonar formi, rimuö og
órimuð og mjög persónuleg.
Þórunn Elfa skiptir bók sinni i
fimm kafla, sem hún nefnir:
Vor, Ungt lif, Konan, Heitur
hyr, Marquis de Sade, 1 skugga
skálmaldar og Milli vonar og
ótta.
Alls eru 32 ljóð i bókinni, sem
er 76 bls. að stærð, prentuö i
prentverki Akraness.
Kopareftir Magneu Matthias-
dóttur. Höfundurinn hefur verið
við sálfræöinám i Kaupmanna-
höfn, en er nú kennari i
Grundarfiröi. Magnea hefur
áður birt eftir sig nokkur ljóð,
m.a. i Nýjum Gretti, Sam-
vinnunni og Lesbók Morgun-
blaðsins. Hún skiptir bókinni i
tvo hluta, Ný lif og gömul, alls
29 ljóð og ljóðaflokkinn Til
mannanna minna.
Bókin er kilja, 62 bls. að
stærð, prentuð i Alþýðuprent-
smiðjunni.
t skugga mannsins eftir
Sveinbjörn Baldvinsson. Höf-
undurinn er aðeins 19 ára að
aldri, Reykvikingur, nemandi i
siðasta bekk menntaskóla.
Hann hefur birt áður ljóð i Les-
bók Morgunblaösins og skóla-
blöðum. Ljóðin I bókinni eru alls
33 að tölu. Bókin er kilja, 64 bls.
að stærð, prentuð f Alþýðu-
prentsmiðjunni.
Sveinbjörn Baldursson.
Hörpubækur
um ástir,
örlög, líf og dauða
örlög og ástarþrá
Hjá Hörpuútgáfunni á
Akranesi er komin út ný ástar-
saga eftir hinn vinsæla höfund
Bodil Forsberg. Aður hefur
Hörpuútgáfan gefið út sjö bækur
eftir þennan höfund. Fjórar
fyrstu bækurnar eru algjörlega
uppseldar.
.... Cecilfa Walters elskaði
Hákon Borg, en hún óttaðist
hann samtimis. Hann var faöir
barnsins, sem hún hafði gefið
frá sér þegar þaö fæddist. — En
hver var dularfulli maðurinn i
svarta frakkanum? Hvernig
tengdist hann málum Cecilíu.
Þessum spurningum og öðrum
svarar Bodil Forsberg á
snilldarlegan hátt i nýju bókinni
örlög og ástarþrá:
Þetta er heillandi og spenn-
andi bók um dularfull örlög og
heitar ástriður.
Skúli Jensson þýddi bókina.
Ný bók eftir Francis Clifford.
Upp á lif og dauða.
Hörpuútgáfan á Akranesi
sendir frá sér nýja bók eftir hinn
þekkta höfund Francis Clifford.
Aður eru útkomnar á islenzku
átta bækur eftir sama höfund.
... Sjö fallhlifahermenn svifa
niður i frumskóga Burma, þar
sem Japanir höfðu búiö um sig.
Fallhlifasveitin átti að sprengja
i loft upp þýðingarmikla brú.
Verkefnið reyndist erfiðara en
njósnadeildirnar höfðu gert ráð
fyrir. Þetta er hörkuspennandi
frásögn um ótrúlega hreysti og
karlmennsku.
Francis Clifford hlaut 1. ferð-
laun „Crime Writers
’Association” 1969 og siðan
fjölda af verðlaunum og viður-
kenningum fyrir bækur sinar:
Skúli Jensson þýddi bókina.
Örn og Örlygur:
Með báli og brandi
- Enginn veit hver
annars konu hlýtur
Með báli og brandi,
ævintýraskáldsaga eftir
metsöíuhöfundinn Joe Poyer
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefið út skáldsögu eftir
Joe Poyer, en hann hefur á sið-
ustu árum verið að ryðja sér til
rúms á erlendum skáldsagna-
markaði og má til marks um
þaö nefna sem dæmi, að hinn
kunni Alistair Maclean sagði
um fyrstu bók Poyers, North
Cape, að hún væri bezta ævin-
týráskáldsaga sem hann hefði
lesið um árabil.
Hin nýja bók Poyers nefnist
Með báli og brandi og segir frá
Kristófer nokkrum Boyd, fyrr-
verandi flugmanni I bandariska
flughernum, er rekur flutninga-
fyrirtæki i smáum stil. Hann
gerist aðstoöarmaður Interpool
og tekst að hafa upp á aðal-
tekjulind nýnazistanna I
Mið-Evrópu.
Atburðarásin kemur viða við,
hún hefst i Júgóslaviu og sveig-
ist siðar til Miö-Austurlanda.
Lokaátökin eiga sér stað I
Burma. Þar berst maður við
mann og Boyd veitir andstæðing
sinum grimmúðuga eftirför til
kinversku landamæranna. Það
er barist á láði og legi og þreytt
eftirför i lofti heimsálfa á milli.
Bókin er sett i Prentstofu G.
Benediktssonar, prentuö I
Prentsmiðjunni Viðey hf. og
bundin I Arnarfelli. Káputeikn-
ingu gerði Hilmar Þ. Hegason.
Enginn veit hver annars konu
hlýtur, fimmta bóf Snjólaugar
Bragadóittur frá Skáldalæk.
Bókautgáfan Orn og örlygur
hefur sent frá sér fimmtu bók
Snjólaugar Bragadóttur frá
Skáldalæk og ber hún titilinn:
Enginn veit hver annars konu
hlýtur.
1 bókinni segir frá ungri
stúlku sem er haldin alvarleg-
um sjúkdómi. Stallsystur henn-
ar ákveða að gera henni llfiö
sem léttast og flytja nokkrar
saman og skiptast á um að ann-
ast þá sjúku og heimilishaldiö.
Brátt hætast fleiri I hópinn,
karlar og konur, og fer ekki hjá
þvi að ástin birtist i margskonar
myndum. Ýmist er ástarfuninn
að brenna upp báða elskend-
urna svo annað kemst ekki aö I
lifi þeirra, eöa sundurleitar
hendur hafa leitað helzt til langt
útfyrir velsæmisrammann, svo
annar aðilinn lifir i stöðugri af-
brýði og örvæntingu. Snjólaug
hefur af næmni og náinni mann-
þekkingu ritað margslungið
verk um ást viö dauöans dyr,
þar sem návistin við manninn
með ljáinn skerpir tilfinn-
ingarnar, dýpkar lifsskilninginn
og dregur fram ýmsa þá eigin-
leika, sem fólk vissi ekki áður
að það byggi yfir.
Bókin er sett i Prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð 1
prentsmiðjunni Viöey og bundin
i Arnarfelli h.f. Káputeikningu
geröi Hilmar Þ. Heigason.
I.augard. 4/12 kl. 20
Tunglskinsganga-fjörubál.
Komið i kapellu heilagrar
Barböru á Barbörumessu siö-
an kveikt fjörubál og gengið
um Hvaleyri til Hafnarfjarö-
ar. Fararstj. Gisli Sigurðsson
og Jón I. Bjarnason verö kr.
500
Sunnud. 5/12
Kl. 11 Helgafell-Búrfell I fylgd
með Einari Þ. Guðjohnsen.
Verð kr. 600 kl. 13 Arnarbæli
og viðar með Sólveigu
Kristjánsdóttur. Verð 600 kr.
frltt f. börn m. fullorönum.
Fariö frá B.S.l vestanverðu I
Hafnarf. v. kirkjugarðinn.
Tækni/Vísindi
Liffræðiklukkur, sem háðar
eru árstiðasveiflum eru
greinilega til þess gerðar að
hjálpa dýrunum aö búa sig
undir breyttar ytri aðstæður,
áður en breytingarnar eiga
sér stað.
Árlegar sveiflur líffræðinnar 5.
Kanadiski ikorninn veröur aö
byrja að safna fitu áður en
vetur gengur i garð, — og aug-
ljóslega treysta þeir á liffræði-
klukku sina hvað það snertir
að vera timanlega á feröinni
meö forðasöfnunina.
787-S
I Það er mörgum umhugsunar-
!efni hvort maðurinn sé búinn
slikri liffræðiklukku sem háð
er árstíöasveiflum, eri eins og
fyrr er frá greint hefur hann
slika klukku sem háö er komu
dagsognætur.
SUkur liffræðilegur timagjafi
getur verið mikilvægur fyrir
geimfara,sem eru lengi úti i
geimnum.