Alþýðublaðið - 02.02.1977, Side 5
SKxr Miðvikudagur 2. febrúar 1977
FRÉTTIR 5
Borgin fær
listasafn
Ásmundar eftir hans dag
Vinnustofa, heimiliog listasafn Ásmundar að Kirkjumýrarbletti 10.
Ásmundur Sveinsson
myndhöggvari hefur
gefið Reykjavikurborg
iistasafn sitt og vinnu-
stofu, eftir sinn dag.
Ásmundur er einn
fremstu listamanna
þjóðarinnar og löngu
landsþekktur fyrir
myndir sinar, sem
komið hefur verið upp
viðs vegar um borgina.
Ásmundur nam högg-
myndalist i Frakklandi
og hefur list hans vakið
athygli allra sem séð
hafa, jafnt innlendra
sem erlendra.
Gjöf Asmundar er sem fyrr
segir dánargjöf og er hún hdð
ákveðnum skilyrðum af hálfu
gefanda. Eru þær helztar, að
Reykjavikurborg taki að séf að
annast viðgerðir og viðhald
húseignanna að Kirkjumýrar-
bletti 10, þar sem vinnustofa og
safn listamannsins eru til húsa,
svo og viðhald á listavei kunum
eftir þvi sem nauðsyn krefur.
Höfundaréttur skal samkvæmt
lögum vera hjá niðjum höfund-
ar og geti þeir einir annazt
stækkanir og gerð afsteypa af
verkunum. Þá skal verða sett
stjórn að safninu og samin
reglugerö og skal i stjórn þess-
ari eiga sæti einn fulltrúi af-
komenda Asmundar.
1 viðtali við Alþýöublaöið i
gærsagði Páll Lindal þetta hafa
verið kynnt borgarráði fyrir all
löngu en gjöfin fékk stað-
festingu fyrir ráðinu siöast-
liðinn föstudag.
Reykjavikurborg hefur um
nokkurra ára skeið veitt lista-
manninum aöstoð við áð halda
safni sinu og starfsemi gang-
andi, meðal annars séð um við-
gerð og viöhald húsanna að
Kirkjumýrarbletti.
—AB
Bæklingar tilbúnir á skrifstofunni (sendum).
Bókið snemma!
r
bjóðum við viðskiptavinum okkar
möguleika til að heimsækja
ÞRJÚ LÖND
í EINNI FERÐ
Sumarið 1977 verður sumarparadísin
PORTOROZ í Júgóslavíu helsti
áfangastaður Landsýnar
Þaðan verða
skipulagðar
skoðunarferðir m.a.
til Feneyja,
Austurrísku
Alpanna o.fl.
Hér er um einstakt
tækifæri að ræða til
að njóta í senn
veðurblíðu,
náttúrufegurðar og
víðfrægra sögustaða
BROTTFÖR
31/05 19 dagar
17/06 19 dagar
5/07 18 dagar
22/07 18 dagar
8/08 19 dagar
26/08 19 dagar
13/09 19 dagar
Ferðaskrifstofan
LANDSÝN h.f. lahdsyn-aíþýhuqrijOF
Skólavörðustíg 16 — sími 28899