Alþýðublaðið - 02.02.1977, Blaðsíða 9
SlSIfef Miðvikudagur 2.
febrúar 1977
FRÉTTIR 9
w
Oánægja með útreikning vaxta á hlaupareikningum
FYRIRTÆKI I SKÆRUHERNAÐ?
Alþýöublaöinu er kunnugt um
að megn óánægja ríki meðal
forstöðumanna fyrirtækja og
stofnana vegna gildandi reglna
um vaxtaútreikning á hlaupa-
reikningum.
Telja þessir aðilar brýnt að
reglurnar verði endurskoðaðar,
enda séu þær mjög ösanngjarn-
ar.
Til að knýja á um endur-
skoðun reglnanna hefur sú hug-
mynd verið rædd meðal for-
stöðumanna ýmissa fyrirtækja
aö þeir taki sig saman og hætti
að nota hlaupareikninga sinaog
færi viðskiptin yfir á sparisjóös-
bækur, en slikt myndi hafa i för
með sér gifurlega vinnuaukn-
ingu fyrir bankana.
Gildandi innlánavextir á
hlaupareikninga eru 3% og eru
þeir reiknaðir Ut á tiu daga
frestiaf lægstu innistæðu hverju
sinni. Verði hlaupareiknings-
hafa það á, að yfirdraga fær
hann aftur á móti á sig 30%
dráttarvexti af mestu skuld á
hverju tiu daga reikningstima-
bili.
bessmá geta.að innlánsvext-
iraf tékkareikningum hafa ekki
hækkað i samræmi við aðra
bankavexti á undanförnum ár-
um. Ein af ástæðum þess mun
vera sU, að tékkareiknings-
viöskiptin eru óhagstæö fyrir
bankanna sökum þess hve allur
tilkostnaður vegna þeirra hefur
aukizt án þess aö á móti hafi
komið tilsvarandi hækkun á
tékkaeyðublöðum.
Þar.nig er áætlaöur kostnaöur
við prentun og aðra vinnslu
hvers eyöublaðs nU 23 krónur,
en eftir siðustu hækkuner hvert
blað selt á 15 krónur.
—GEK
„Léttur vetur”
- hjá starfsmönnum Akureyrar-
bæjar segir Hilmar Gfslason
yfirverkstjóri
„Mér finnst þessi
snjór sem við höfum
fengið satt að segja
ósköp litill og sem skiða-
maður get ég ekki annað
en kvartað yfir snjó-
leysi!” sagði Hilmar
Gislason, yfirverkstjóri
hjá Akureyrarbæ i sam-
tali við blaðið i gær.
„Við vorum með 1 veghefil i
gangi á laugardaginn og 3 á
sunnudaginn, en siðan byrjuðum
við á fullum kraftimeð ruðnings-
tækin klukkan 6 á mánudags-
morguninn og unnum fram á
kvöld. 1 morgun byrjuðum við
lika kl. 6 og ætlum að vinna fram
á kv öld, og ég held að ég geti lof að
þvi að fært verði oröið um allan
bæinn þegar viðlœttum i kvöld.
Veðriö hérna er ágætt nUna: ná-
lægt frostmarki, þannig að það
mun ekki seinka fyrir okkur.”
Hilmar sagöi að yfirstandandi
vetur væri fremur „léttur” fyrir
bæjarstarfsmenn á Akureyri,
aðeins hefði komið snjóföl upp Ur
miðjum nóvember og svo nUna.
„Veturinn i fyrra var hins veg-
ar sá bezti sem hér hefur komið
siðan ég byrjaöi verkstjórn hjá
bænum og þá gátum við unnið
að endurbyggingu og nýbygg-
ingu gatna allan veturihn og var
þvi verki lokið þegar vorið kom. 1
vetur var unnið að endurbygg-
ingu gatna fram i desember, en
nUer unnið að nýbyggingu gatna i
nýja smáibúðahverfinu I norður-
hluta bæjarins og á Stiflutúni. Við
stefnum að þvi að vinna eins mik-
ið og unnt reynist við gatna-
gerðina i vetur, þvi reynslan
sýnir að svo framarlega sem ekki
snjóar, þá er mun auðveldara að
fást við þetta verk yfir veturinn.”
—ARH
1 Shipaskrá 1977 komin út:
Skipastóllinn
er nú 987 skip
- elzta skip á skrá frá 1905
Siglingamálastofnun
rikisins hefur nú gefið út
Skrá yfir islenzk skip
árið 1977 og er bókin
miðuð við siðustu ára-
mót. Skráin er 278 siður
að stærð og flytur eins
og nafnið bendir til skrá
yfir öll skip sem skráð
voru hér á landi um
siðustu áramót, auk
margs konar fróðleiks
annars.
Ljósmyndir eru af öllum nýjum
skipum islenzkum yfir 100 brúttó-
lestum að stærð og gerður
samanburður á fiskiskipastóli
helztu fiskveiðiþjóða, stærð og
fjölda skipa yfir 100 brl. Þar eru
Islendingar 19. i röðinni og er það
sama sæti og i fyrra. Eru Is-
lendingar nú með tæpt eitt
prósent af fiskveiðiflota þjóða
heims, ef miðað er við rúmlesta-
tölu.
Fram kemur i skrá þessari að
siðutogurum hefur fækkað i flbtan-
um um einn, en það er togarinn
JUpiter (áöur Gerpir) sem seldur
var úr landi i fyrra. Eftir eru 8
siðutogarar, en hins vegar eru
skuttogarar 61 um áramót og er
það fjölgun um tvo. Þannig hefur
togaraflotinn i raun stækkað sem
nemur einu skipi og 320 brl. frá
þvi siðasta ár.
Samkvæmt töflum virðast is-
lenzk skip vera á ollum aldri. Það
elzta er frá árinu 1905 og er eitt I
þeim aldurflokki. Þetta er 3 brl.
þilfarsbátur. Jafnaldri hans,
Frægur frá Isafirði var hins veg-
ar strikaður Ut af skrá daginn
fyrir Þorláksmessu siðastliðna.
Skip sem byggð eru fyrir árið
1945 eru nú aðeins 93 að tölu sam-
tals 3.279 brl. en samtals er
skipastóllinn 987 skip, samtals
178.066 brl. Af þeim eru 640
smiðuð árið 1960 og siðar og af
þeim 288 smiðuð á siðustu 7 árum.
Um siðustu áramót voru átta
skip I smiðum fyrir Islendinga er-
lendis samtals 2.885 brl. Hér er
um að ræða 3 skuttogara sem
smiðaðir eru I Noregi, 3 sem
smiðaðir eru I Póllandi og trollbát
og fiskibát Ur trefjaplasti sem eru
I smfðum I Bretlandi.
Hér á landi voru aftur á móti 17
skip Ismiðum um siðustu áramót,
þar af 8 stálfiskiskip (minni en
500 brl.), 1 sementsflutningaskip,
8 litil fiskiskip og eitt fiskiskip er i
smiöum á Skagaströnd Ur trefja-
plasti.
—hm
Þessi mynd var tekin á Alþjóðlegu Vorusýningunni 1975.
'Xm-. HEIMILIÐ 77
1 sumar verður næsta stór-
sýning Kaupstefnunnar —
Reykjavik haldin og nefnist hún
Heimilið ’77. Eins og nafniö ber
með sér, er hér um að ræöa sýn-
ingu á hvers konar búnaði og
tækjum, sem varða heimiliö og
lif fjölskyldunnar. Verður
sýningin haldin i Laugardals-
höll dagana 26. ágúst til 11.
september.
Heimilið ’77 verður fimmta
stórsýning Kaupstefnunnar á
þessum áratug. Mikil aðsókn
hefur verið að sýningunum
fram til þessa og hafa um 250
þúsund gestir sótt þær.
Undirbúningur fyrirhugaðrar
sýningar hófst fyrir rúmu ári.
Þá voru kynningargögn send
um það bil 2000 aðilum semætla
mátti að hefðu áhuga á þátt-
töku. Var þar um að ræða bæði
innlend og erlend fyrirtæki.
Undirtektir voru mjög góðar og
er nú um 85% af sýningarsvæði
ráðstafað.
Talsverðra nýjunga er að
vænta á sýningunni, og verður
hun að likindum fjölbreyttari en
fyrri sýningar af þessu tagi. Þá
verður skipulag sýningarsvæðis
með öðrum hætti, en tiðkast hef-
ur. Ný skipan sýningadeildar
felur m.a. i sér, að mynduð
verður einskonar eyja i miöju
húsinu, þar sem nokkur fyrir-
tæki múnu standa að sam-
sýningu, trúlega á tveim
hæðum. Lofthæð verður gefin
frjáls.
Aðstaða fyrir tizkusýningar
verður flutt Ur veitingasal og
byggðuppá áhorfendapöllunum
að þessu sinni. Einnig verður
útisvæði breytt nokkuð, en þar
verða sýnd sumarhús, hjólhýsi
bátar og fleira.
Loks hefur Kaupstefnan —
Reykjavik hf gefið út
leiðbeiningabækling fyrir þátt-
takendur i vörysýningum. Er
þar fjallað um þætti sem
reynslan hefur sýnt, að vert sé
fyrir þá sem standa að slikum
sýningum, að ihuga. Er
lögð áherzla á mikilvægi þess,
að leitast við að skapa lif og til-
breytingu i sýningardeildum.
—JSS
„Hlýtt veður bjargaði miklu á Breiðdalsvík"
RAFMAGNSLAUST í
16 KLUKKUSTUNDIR
Rafmagnsleysið
hrjáði Austfirðinga enn
einu sinni um siðustu
helgi. Sífelldar
rafmagnsbilanir ollu
því að grípa varð til
rafmagnsskömmtunar
á öllum fjörðum. Er
Alþýðublaðið hafði
samband við rafveitu-
stjóra Austurlands,
Erling Garðar Jónas-
son á fimmta timanum
i gær var skömmtun
lokið og engin skömmt-
un hafði verið þann
daginn.
Um heigina var ástand allt
mun verra. A Breiðdalsvik var
ástandið verst að sögn Erlings.
Þar var rafmagnsskömmtun
stanzlaust i 16 tíma. „Það
bjargaði þvi hvað hlýtt var i
veðri, veðrið hefur verið gott
hérna siðustu daga og það
hjálpaði fólkinu að lifa þetta
af,” sagði Erling.
Viðgerðá þeim linum sem bil-
uðu var ekki að fullu lokið I gær,
en rafmagnsskömmtun þó eng-
in, sem fyrr segir.
Reynt hefur veriö aö halda
loönubræðslunum inni, þrátt
fyrir takmarkað rafmagn, og
sagði Erling Garðar
rafmagnsleysið hafa komið
verst niður á almenningi.
Ný rafstöð á Djúpavogi er ný-
komin i gang, sem kunnugt er.
Ekki gekk þó átakalaust að
koma henni inn, þar sem verk-
smiðjubilun var i stjórntæki
vélarinnar og varð að fá varð-
skip frá Fáskrúðsfirði með
varahluti. Var viðgerðin þvi
„heimatilbúin” á Djúpavogi, en
að sögn Erlings er þó vonast til
að unnt verði að notast við hana
i framtiðinni.
„Rafmagnið mun áfram
hanga á bláþræði hjá okkur.
Það er of mikið álag á vélunum
og þar af leiðir að vandamálið
verður stærra, ef einhver bilun
verður,” sagði Erling Garðar.
„En nú er að birta til i veðri,
og útlit fyrir að svo sé i
rafmagnsmálum lika,” sagði
hann að lokum. AB.