Alþýðublaðið - 02.02.1977, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 2. febrúar 1977 ffi£-
Agúst Pétursson, lagasmiöur þenur nikkuna meöan Þorvaldur Þorvaidsson,
stjórnandi Þorrablótsins syngur fullum hálsi Internationalinn.
Hún Dórótea Erlendsdóttir er himin-lifandi meO bingó vinninginn.
Bragi Nielsson læknir stjórnar bingói, en Hallbera Leósdóttir fylgist meö þvl
aO allt fari rétt fram og ekkert svindl.
Svala tvarsdóttir og Rannveig Edda Hálfdánardóttir skemmtu blótgestum
meO söng og gitarleik.
Á ÞORRABLÓTI HJÁ KRÖTUM Á AK
Blaöamaöur Alþýöublaösins
skrapp upp á Skaga um siöustu
helgi og tók þar þátt i
Þorrablóti, sem Alþýöuflokks-
menn staöarins efndu til i sam-
komuhúsi sinu, Félagsheimilinu
Röst.
Þetta er mjög vistlegur staöur
og aöiaöandi, sem Alþýöu-
flokksmenn hafa komiö sér upp
á Akranesi. Andinn og stemn-
ingin i þessari blótveizlu var
lika eins góöur og bezt gerist,
enda skemmtu menn sér kon-
unglega viö dans, ýmisskonr
skemmtiatriði og gleöskap.
dansi lék sá ágæti tónsmiður og
harmonikuieikari Agúst Péturs-
son.
Hér verður ekki frekar rætt
um þá mörgu ágætu skemmti-
krafta og stjórnendur, sem
þarna lögðu sitt af mörkum til
að gera þessa kvöldstund jafn
ágæta og eftirminnilega, sem
raun varð á. Og svo var þaö
maturinn. Maður talar nú ekki
um þaö, enda voru flestir sam-
mála um, að betri Þorramatur
hefði ekki áður verið á borðum
þeirra.
Nú, það var ekki meiningin að
blaðamaðurinn væri þarna að-
eins til að skemmta sér og kýla
vömbina af gómsúrum þorra-
mat. Það var þvi ekki annað að
gera en að reyna aö draga ein-
hverja pólitikusa inn á skrifstof-
una og fá þá til að tala.
Þetta reyndist nú ekki eins
auðvelt og menn skyldu halda,
enda voru allir komnir I hátiða-
skap og þvi minna gefnir fyrir
alvarlegar hugleiðingar um
vandamál þjóðarinnar og kaup-
staðarins.
Annar tveggja bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins var þarna á
spani um gólfið. Þetta var Rik-
harður Jónsson, sá hinn nafn-
frægi knattspyrnumaður Akur-
nesinga. Eftir að blaðamanni
hafði tekizt að króa hann af i
vinstra horni og fá hann siðan
með sér inn á skrifstofuna, fór
útlitið strax heldur að batna.
Rikharður Jónsson hef-
ur brennandi áhuga á
bæjarmálunum.
Blm.: „Hvað segirðu um
bæjarmálin Rikharður?”
RJ.: ,,Það er mjög mikið búið
að gera undanfarið. Framvinda
mála, það sem af er þessu kjör-
timabili, hefur verið mjög i þá
átt, sem við Alþýðuflokksmenn
höfum stefnt að, og viljum að
nái fram að ganga.”
Blm.: „Hvaða málaflokkar
eru helzt i sviðsljósinu hjá ykk-
ur?”
RJ.: „Persónulega hafa
iþróttamálin og æskulýðsstarf-
ið alltaf verið efst i minum
huga. Þessi mál hafa þvi miður
ekki alltaf gengið eins vel og
skyldi. Bygging iþróttahússins
var illa skipulögð algert áfanga-
leysi i 10 ár án markandi spora.
A þessu hefur oröið mikil
breyting og við höfum gert
verulegt átak, eiginlega bylt-
ingu með tilkomu nýja iþrótta-
hússins.
Svo eru það heilbrigðismálin.
Þorvaldur Þorvaldsson for-
maður Alþýðuflokksfélagsins
stjórnaði Þorrablótinu af mikl-
um skörungsskáp, en fyrir
LMeö þorramatnum þykir viö hæfi aö drekka brennivln. Ólafur
Arnórsson I lúgunni.
Þetta er mikill og vandasamur
málaflokkur. Gert hafði verið
ráð fyrir að byggingu sjúkra-
hússins lyki fyrir 1970. Staðan
þá var hinsvegar sú, að sjúkra-
húsið var rétt fokhelt.
Siðan hafa þessi mál þróast á
þann veg, að við höfum nú á
hverju ári tekið i notkun stóra
áfanga. Lyflækningadeildin,
með 30 rúm, var tekin i notkun
nú fyrir áramótin. Þá er stefnt
aö þvi að ljúka Skurðlæknisdeild
á þessu ári.
Málefni aldraðra hafa einnig
veriöstðrt mál hérna hjá okkur.
Dvalarheimili aldraðra verður
væntanlega tekið i notkun fyrir
næstu áramót, en alls munu um
40 miljónir fara i Dvalarheimil-
ið á þessu ári.
í gatnagerðarmálum hefur
verulegur áfangi náðst á hverju
ári við lagningu varanlegs slit-
lags og nýrra gatna. Um 70
milljónir fara i lagningu gatna
með varanlegu slitlagi á þessu
ári.
Þá má nefna að lokum áætlun
um byggingu leiguibúða. Þar er
áreiðanlega um að ræða stórt
hagsmunamál fyrir bæjarbúa,
sem á eftir að vaxa á næstu ár-
um.”
Rlkaröur Jónsson, bæjarfulltrúi.