Alþýðublaðið - 02.02.1977, Qupperneq 7
VETTVANGUR 7
;!sa- AAiðvikudagur 2. febrúar 1977
Benedikt Gröndal, þingmaöur kjördæmisins ræðir við
Engilbert Guðjónsson.
Akraneskaupstaður, vaxandi bæjarfélag
—
Og svo settust menn niður og borðuðu.
?orramaturinn hjá þeim Skagamönnum var aldeilis ekki af verri endanum.
DAKirCI Alþýðublaðsins ræðir við nokkra Alþýðu-
KAIl to I flokksmenn á Þorrablóti á Akranesi 22. janúar s.l.
Guðmundur Vésteinsson, bæjarfulltrúi.
Blm.: „Hvað segirðu um Al-
þýðuflokkinn og stjórnmálin?”
Alþýðuflokkurinn er á
timamótum, ekki bara
á Akranesi, heldur á
öllu landinu.
RJ.: „Alþýðuflokkurinn hlýt-
ur að vera á timamótum. Ekki
aðeins á Akranesi, heldur á öllu
landinu. Flokkurinn hefur tekið
forystu á Alþingi i mörgum
stórmálum þjóðarinnar.
Það er einnig í imenn skoðun
þeirra, sem kaupa Alþýðublað-
ið, að þar hafi orðið á mikil og
góð breyting, sem vert sé að
vekja athygli á.”
Guðmundur Vésteinsson er
einnig fulltrúi Alþýðuflokksins i
bæjarstjórn Akraness. Blaða-
maður beindi nokkrum spurn-
ingum til Guðmundar, sem
undirstrikaði flest af þvi sem
Rikharður hafði sagt.
Guðmundur sagði að hita-
veitumálið væri mál málanna,
Hér er um að ræða hitaveitulögn
frá Deildartunguhver i samfloti
með Borgnesingum. Guðmund-
ur sagði að þeir heföu staðið i
tilraunaborunum uppi i Leirá
undanfarin þrjú ár. Niðurstöður
þessara borana hefðu ekki verið
hagkvæmar. „Það er þvi hita-
veitumálið, sem ég held, að eigi
eftir að valda mestum breyting-
um hér á Akranesi á næstu ár-
um ef rétt og skynsamlega er að
staðið,” sagði Guðmundur. Að
lokum var Guðmundur spurður
um stöðu flokksins. Hann sagði:
„Ég held að Alþýðuflokkurinn
eigi nú mjög góðan meðbyr,
bæði hér á Akranesi og annars
staðar á landinu,” sagði Guð-
mundur Vésteinsson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins á Akra-
nesi.
Við sitjum uppi með lé-
lega og máttlausa
rikisstjórn
Arni Kristinsson, vekamaður,
sagði það skoðun sina, að núver-
andi rikisstjórn væri bæði léleg
og máttlaus. „Rikisstjórn verð-
ur að vera sterk,” sagði Arni,
„Annars getur hún ekki stjórn-
að. Það er ekki nóg að rikis-
stjórnin hafi stóran þingmeiri-
hluta á bak við sig eða að hún sé
fjölmennari en aðrar rikis-
stjórnir sem setið hafa við völd
hér á landi. Hún þarf fyrst og
fremst að vera samhent. Það er
þessi rikisstjórn ekki, enda er
ástandið i öllum málum eins og
raun ber vitni.”
Arni sagði, að það væri mjög
slæmt þegar verkalýðs-
hreyfingin væri ekki nægilega
samstillt. Sér virtist mikið
skorta á, að svo væri nú.
Að lokum sagði Árni Kristins-
son: „Við þurfum að hafa i
huga, að við erum ekki bara að
kjósa þingmenn, við erum lika
að kjósa rikisstjórn.”
Skólamálin og æsku-
lýðsstarfið
Þá náði blaðamaður tali af
Þorvaldi Þorvaldssyni kennara,
formanni Alþýðuflokksfélags
Akraness. Þorvaldur vék strax
að höfuðáhugamáli sinu skóla-
málunum. „Mesta vandamálið
er það, að okkur vantar nýjan
barnaskóla, sem gert er ráð fyr-
ir að verði reistur á Garða-
grundum, en þar hefur mest
verið byggt undanfarið.”
Þorvaldur sagði að fyrsti
undirbúningur að byggingu
þessa skóla væri hafinn, en gert
er ráð fyrir að þar verði alls um
500 börn og unglingar á grunn-
skólastigi.
Þorvaldur sagði að gert væri
ráð fyrir að þetta skólahúsnæði
yrði jafnframt notað sem
félagsmiðstöð fyrir þetta nýja
bæjarhverfi, svipað þvi, sem
hefði verið gert i Fellahelli i
Reykjavik. Þorvaldur lagði
mikla áherzlu á, að nauðsynlegt
og eðlilegt væri að nýta þetta
mikla húsnæði sem bezt, ekki
aðeins til skólastarfsins, heldur
einnig til ýmissa félagsstarfa
unglinganna á kvöldin eftir að
kennslu er lokið.
„Svo er annað stórmál á döf-
inni hérna hjá okkur. Það er
fjölbrautaskólinn. Akranesbær
hefur sótt um, að komið verði
upp fjölbrautaskóla fyrir Akra-
nes og nágrenni . Þetta mál er
nú i athugun i ráðuneytinu, og
væntum við þess, að afgreiðsla
þess dragist ekki mjög mikið.
Áhrif járnblendiverk
smiðjunnar — aukin at-
vinna og fólksfjölgun á
Akranesi
Þá var Þorvaldur spurður um
byggingu járnblendiverksmiðj-
unnar i nágrenni bæjarins. Þor-
valdur sagði, að búið væri að
tala um þessi mál siðustu árin,
og menn gengju almennt út frá
þvi, að verksmiðjan yrði reist.
Þorvaldur sagði að augljóst
væri, að bygging verksmiðjunn-
ar þýddi 500-600 manna fjölgun
á Akranesi ^ næstu árum. Benti
hann á, að Norðmenn hefðu
markað þá stefnu, að ekki væri
eðlilegt eða heppilegt að byggja
upp sérstaka bæi i kring um
verksmiðjurnar, heldur stuðla
að þvi að verksmiðjurnar veittu
aukna atvinnu til þeirra bæja og
sveitarfélaga, sem fyrir væru.
„Það er þvi augljóst mál, að
hér verður mikil fólksfjölgun
næstu árin,” sagði Þorvaldur
Þorvaldsson.
Stefna Alþýðuflokksins
i hitaveitumálum verð-
ur að veruleika
Þorvaldur vék þá nokkuð að
hitaveituframkvæmdunum.
Sagði hann, að segja mætti, að
stefna sem Alþýðuflokkurinn
markaði i þessum málum á
Akranesi fyrir 5-6 árum væri nú
að verða að veruleika. Hita-
veitulógnin mun verða um 65
km löng. Þetta mun verða
kostnaðarsamt, en jafnframt
mjög hagkvæmt og á eftir að
valda byltingu i mörgu hér á
Akranesi.”
Þorvaldur var að lokum
spurður um flokksstarfið. Sagði
hann að það hefði nú ekki verið
mjög mikið, en þó væri alltaf
eitthvað að gerast. Hann sagði
að félagið mundi halda fund um
orkumál i næsta mánuði, og
i marz væri gert ráð fyrir fundi
um launa og kjaramál.
Þegar hér var komið sögu
þurfti Þorvaldur að snúa sér að
samkvæminu, enda veizlugestir
orðnir svangir i góðan mat og
tiibúnir að skemmta sér við
söng, dans og annað gaman i
góðum félagsskap. —BJ
i