Alþýðublaðið - 02.02.1977, Blaðsíða 11
alþýöu-
biaðíó Miðvikudagur 2. febrúar 1977
ÚTLÖND 1!
NÁMSMANNASKIPTI ERU BEZTA LEIÐIN
TIL ÞESS AÐ KOMA í VEG FYRIR STRÍÐ
Hér ræðir höfundur náms-
mannaskiptalaganna, sem hann
beitti sér fyrir 1946, um áhrif
þeirra, og telur þau áhrifa-
rikustu aðgerð, til þess að auka
á velvild og skilning milli þjóða.
Þannig megi afstýra ógnum
ófriðar á komandi timum.
„Það er skemmtileg tilviljun
að á þritugsafmæli laganna um
námsmannaskipti á bandariska
þjóðin einnig 200 ára afmæli.
Forfeður þjóðar okkar rekja
ættir sinar til fjölda landa. Og
þeir fluttu með sér úr heima-
högum siðvenjur og menningu,
sem bæði var viðfeðm og marg-
brotin. En þótt við séum —
sem riki — aðeins 200 ára, eig-
um við þakkir að gjalda fyrir
þjóöfélagsleg og stjórnmálaleg
verðmæti, sem hafa öldum
saman verið þróuð viða um i
þeirri baráttu að manna og
mennta hina áhugaverðu dýra-
tegund Homo sapiens.
Ég lit svo á, að lögin og áætl-
anirnar um námsmannaskipti
séu nú þýðingarmesta tækið, ef
svo mætti aö orði komast, til
þess að manna mannkynið og á
grunni þessa vonum við að unnt
verði að kenna þjóðunum að lifa
i friði.
Þá má ekki siður binda vonir
við að með samvinnu þjóðanna i
visinda- og öðrum menningar-
málum, fremur en meö kaldri
samkeppni, getum við i fram-
tiðinni stigið stærri skref þjóð-
um heims til framdráttar, i stað
þess að leggja alla alúh við
framleiðslu gereyðingarvopna.
Eftir að kjarnavopnin fund-
ust, getur beiting þeirra i
styrjöld aðeins leitt til algerrar
tortimingar.
Með þá staðreynd i huga,
verður ekki séð, að annað sé
nærtækara heldur en aö freista
að þjappa þjóöum heims saman
á grundvelli skilnings og vin-
áttu. Reynsla okkar i Banda-
rikjunum sýnir blátt áfram, aö
á þann hátt hefur tekizt, að
bræða saman ólikustu sjónar-
mið og nýta menningararf,
hvaðan sem hann kom, til þess
aö byggja þjóðfélag, sem hefur
heill allra þegna aö markmiði.
Frá upphafi vega hafa ein-
ungis verið notaðar tvær aðferð-
irtil að skapa frið og reglu f ein-
stökum rikjum.
Onnur, sem byggirá valdbeit-
ingu og allskonar hömlum, sem
haldið hefur verið uppi með
harðri hendi.
Við frumstæö skilyrði gat
þetta tekizt um hrið — já jafnvel
um nokkurn aldur — með þvi að
einskonar yfirstétt hélt fólkinu i
skefjum með valdi.
En þróun, sem hefur tekið
mörg þúsund ár, hefur smáttog
smátt breytzt i þá átt, að vald-
inu var beitt mannúölegar. Og
hömlurnar hafa i timanna rás
birzt I formi laga.
Árangurinn af þvi er svo
borgaralegur réttur, sem gilt
hefur á takmörkuðum svæðum
— rikjum — sem hafa svo hvert
um sig ástundað sinar aðferðir
tilað auka á öryggi þegnanna og
tiltekna réttargæzlu til handa
borgur.unum.
Frekari þróun — einnig með
auknum kynnum þjóða milli —
hefur svo hnikað lögum hinna
einstöku rikja saman, þó auð-
vitað sé fleiri hluta að gæta en
bókstafsins. Þar kemur fram-
kvæmdin ekki siður til, enda er
kunnugt, að mismunandi skiln-
ingur er lagður i sama hugtakið,
eftir þvi hver á heldur.
Eins og á stendur er aðeins
litill minnihluti þjóðanna sem
stjórnað er á lýðræðislegan
hátt, og hafa löggjöf, sem
byggir á þeim forsendum, að
minnsta kosti eftir þeim skiln-
ingi, sem við leggjum i hugtakið
lýðræði. Flestöllum þeirra er
það sameiginlegt, að stjórnun
þeirra er reist á sameiginlegu
mati þegnanna á stjórnlögum
hvers rikis, og þegnarnir hafna
ótimabærri valdbeitingu.
Rauði þráðurinn i samheldni
núti'ma rikja yfirleitt er einmitt
þessi sameiginlegi skilningur,
auk frændsemi og viðtekinna
hefða, en alls ekki á grunni
lögregluvalds.
Þjóðrækni er mikilsverð og
varla þess að vænta, að ef hana
brestur, geti menn orðið neinir
heimsborgarar i viðu samhengi.
Að visu erum við yfirleittkomin
af frumskógastiginu, en einkum
þó i tækniefnum. Þvi miður hef-
ur mannkyninu yfirsézt i þvi að
treysta á sama hátt sanna
menningu i samskiptum milli
þjóða, og færa þjóðir heims á
þann hátt saman.
Á þessari öld hafa verið gerð-
artvær athyglisverðar tilraunir
til að skakka leikinn milli
þjóða, sem löngum gátu ekki
setið á sátts höfði. Sumirlita svo
á, að Þjóðabandalagið og
Samtök sameinuöu þjóðanna
hafi verið og séu reist um of á
óraunhæfum hugsjónum og
hefði orðið betur ágengt ef
fremurheföi verið byggt á gam-
alli reynslu.
En bezt er að hafa það hug-
fast, að hvortveggja þessi sam-
tök hafa risið upp af heims-
ástandi, sem eftir gömlu aöferð-
unum höfðu leitt þjóðirnar út 1
hryllilegt blóðbað þar sem tug-
mílljónir manna týndu lifi, að
ekki sé talaö um hina geypilegu
verðmætasóun aðra. Ef litið er á
brýna þörf mannkynsins, verð-
ur ekki sagt að hvorki Þjóða-
bandalagiö sé Samtök sam-
einuðu þjóðanna byggðu á
óraunhæfum hugsjónagrunni.
Markmiö þeirra var og er aö
gera hófsamlegar tilraunir til
að koma á alþjóðlegum sam-
skiptum og skilningi i þessari
veröld stjórnleysis og valdbeit-
ingar.
Hér er ekki aðeins um að ræða
brýna þörf, heldur og vaxandi
skilning á alþjóðlegum samtök-
um, sem hafa orsakað þessar
tvær tilraunir, þó önnur mis-
heppnaðist að visu.
Aðalspurningin um Samein-
uðu þjóðirnar, eða réttara sagt
um mátt þeirra til að koma á
alþjóölegu öryggiskerfi, er ekki
hvort við þurfum, heldur hvort
við verðum þess umkomin að
fylgja eftir þeim hugsjónum,
sem liggja að baki sáttmála
þeirra.
Vandinn er sá, hvort okkur
tekst að hemja tilhneigingar til
valdbeitingar með alþjóðlegum
skilningi þjóða milli, sem eru
nógu áhrifarikar, til þess að af-
stýra gjöreyðingarstyrjöld, en
hafa þann sveigjanleika, að
geta leitt til samþykkis deiluað-
ila svo viðhlitandi sé.
Engin „patentlausn” er i
sjónmáli, en við eigum að hafa
leyfi til að vona, sem byggist
fyrst og fremst á aukinni
menntun, sem ein getur brúað
bilið, ef hún er nægilega
viðfeðm, til þess að þjóðunum
skiljist að við erum öll i reynd á
sama báti.
Ef við kappkostum að
tryggja sómasamlegt öryggi
allra og getum gert nokkurn
árangur ljósan sem flestum, af
þvi starfi, hlýtur það að leiða til
frekara samþykkis og færa
þjóðir heims nær hverja ann-
arri. Þetta gildir ekki aðeins um
stórþjóðirnar, heldur og hinar
smærri ekki siður.
Tilgangslaust er aö reyna að
útbreiða menntun og menningu
með valdi. Menningin er hæg-
fara, en hún er samt mikill
máttur. Vera má, að hún sé of
hægfara til að forða okkur frá
slysum. En hún er samt eina
aflið, sem á að vera þess um-
komið. Og þar er alþjóðlegur
skilningur og vinátta það sem
allt verður að snúast um.
Það skal fram tekið, að ég lit
ekki svo á, að það eitt sé nægi-
legt, þó gagnlegt sé, að dreifa
visindalegri kunnáttu þjóöa
milli.Það er hin huglæga sam-
staða, sem ein er þess megnug
að forða mannkyninu frá ógnun
styrjalda, svo vitnað sé i orð
Alberts Einsteins.
Þegar við litum á hina
ómælanlegu eyðileggingu
tveggja stórstyrjalda á þessari
öld, og höfum þaö einnig hug-
fast, að stórþjóðirnar eyða
árlega um 250 þúsundum
milljóna dollara, af takmark-
aðri getu sinni, I hamslausan
undirbúning undir styrjöld, er
hvorki rökrétt og þaðan af siður
skynsamlegt að verja ekki — þó
ekki væri nema svo sem einum
hundraðshluta — til friðsam-
legra samskipta og kynningar
milli þjóðanna i menningarefn-
um.
Hugsum okkur t.d. að Banda-
rikin, sem verja um 50 miilj.
dollara i þessu skyni árlega,
ykjuframlög sinum þaö fé, sem
nú er eytt i tilraunirnar með og
byggingu á einum Trident kaf-
báti, og þannig væri unnt að
veita tugþúsundum fólks tæki-
færi til heimsókna og náms i
framandi löndum!
Væri þetta gert á skipulegan
hátt, eins og hérhefur verið gert
um hrið, hvert myndi hljóta aö
verða svar annarra þjóða við
þvi, jafnvel þeirra, sem ekki eru
neitt fiknar i að sleppa höndum
af þegnum sinum i þessum til-
gangi?
Það er sannfæring min, að
þau riki sæju einnig fljótlega, að
þær gætu ekki til lengdar staöið
utanvið umfangs miklar til-
raunir til að eyða á þann hátt
grunsemdum, hatri og fordóm-
um, sem hafa lengst af þjáð
mannkynið. Ég trúi þvi að
þrýstingurinn af slikri starf-
semi yrði fljótlega of mikill til
þess aö viö hann yrði ráöið.
Ég trúi þvi einnig að sérhver
þjóð, sem hefði i senn til aö bera
þjóðlegan metnað og traust á
erfðamenningu sinni myndi
ekki skerast úr leik um þátttöku
islikrihreyfingu, og á þann hátt
vera viðurkennt sem verðug
þess að leggja til heimsmenn-
ingarinnar sinn skeVf.
Engin þjóð myndi i reynd
viðurkenna, að lifshættir henn-
ar, félagslegir, stjórnmálalegir
og f járhagslegir gætu ekki stað-
izt slikt sameiginlegt próf, né
heldur að hún hefði ekkert til að
selja i sumblið.
Sannleikurinn er sá, að öll
þjóðfélög hafa eitthvert
verðmæti, andlega séö, og geta
þvi verið hlutgeng i að leggja
nokkuð af mörkum i sameigin-
legan sjóð heimsins.
Þetta er, að minu viti, eina
svarið sem við eigum við ör-
þrifatilburðum þeirra, sem þeg-
ar hafa komið okkur fram á
fremstu nöf með sinu ótrúlega
valdi á gjöreyöingaröflum.
Athyglisvert er, að hvert ein-
asta riki, jafnvel þó það sé ekki
hrifið af framgangi Sameinuðu
þjóðanna, vill vera þar áfram,
hvað sem öðru liður.
Rétt er að ótti margra þjóða
við endurtekningu styrjalda
hefur hamlað þeim frá að leyfa
veruleg samskipti námsfólks,
eða annarra þegna. En meðan
menn hika ekki við að selja hver
öðrum skaðræðisvopn-ger-
eyðingarvopn jafnvel — sýnast
slikar hömlur vera bæði fávis-
legar og tilgangslausar.
Fariallt i bái og brand, skiptir
annað engu máli. Sannleikurinn
ersá að samskipti fólksi stórum
stil i nútið og framtið, mun
koma mönnum i skilning um, að
hugarfarsbreytingar, sem af
þeim gætu stafað, i viðhorfi til
erfðavenja, er stórum
þýðingarminni en þörfin fyrir
að geta lifað i friði og öryggi.
Með hliðsjón af núverandi
lággengi Sameinuðu þjóðanna
hlýtur sú spurning að vakna.
Eigum við að láta arka að auðnu
um hvort til gereyðingarstriðs
kemur., eða eigum við að reyna
að afstýra þvi?
Ef við föllumst ekki á
menningarsamskipti, t.d. með
námsmannaskiptum, hvaða ráð
eru þá haldbær, til að koma i
veg fyrir ógæfuna?
Getur nokkuð frekar haft
áhrif á viðhorf manna en aukin
kynniog gagnkvæmur skilning-
ur í þessum striðshrjáða heimi,
sem á einni öld, öldinni okkar,
hefur tvivegis verið sundurtætt
af ógnvekjandi styrjöldum,?”
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Siini 7 1200 — 7 1201
®-C
P0STSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
Joli.nmts Umsson
í.,ma,iurgi 30
áé’imi 10 200
i nuLi
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Oðmstoig
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
malarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul husgögn