Alþýðublaðið - 02.02.1977, Qupperneq 16
Alþýðuflokksmenn spyrjast fyrir um skipaviðgerðir:
Viðgerðir og viðhald
fyrir 6,3 milljarða '75
Innanlands var unnið fyrir 4,6
milljarða, erlendis fyrir 1,7 milljarða
Skömmu fyrir jóla-
leyfi Alþingismanna
bar Pétur Pétursson,
þingmaður Alþýðu-
flokksins, fram fyrir-
spurn á Alþingi um
skipaviðgerðir. Hann
spurðist fyrir um hve
mikið af viðhaldi og
viðgerðum islenzkra
skipa færi fram erlend-
is, og hvernig unnt yrði
að koma þvi svo fyrir,
að þessi verk yrðu unn-
in hér á landi.
Eggert G. Þorsteinsson,
alþingismaöur, fylgdi þessari
fyrirspurn úr hiaöi á þingi I gær.
Gunnar Thoroddsen, iönaðar-
ráöherra svaraöi henni. Hjá
ráðherra kom meöai annars
fram, aö áriö 1975 heföi veriö
unnið aö endurbötum og viö-
gerðum á islenzkum skipum
/yrir 6,3 milljarðar króna. Þar
af heföi verið unniö fyrir 4,6
miiljaröa innanlands og liölega
1,7 milljaröa erlendis.
Sagöi iönaöarráöhera, aö eöli-
legt væri aö beita öilum ráöum
svo þessar viögeröir gætu fariö
fram hér á landi. Til aö svo
mættiverða þyrfti aö jafna fjár-
hagslega f y r ir g r eiös lu
islenzkra skipasmiöastööva,
gera áætlanir um þarfir og getu
Islenzku stöðvanna. Hann sagöi,
aö nú væri unnið aö áætlun um
þessar viögeröir og viöhald.
Til máls tóku þeir Stefán
Jónsson, Karvel Pálmason og
Matthias Bjarnason.
Sáttafundur Landsvirkjunnar
og Energoprojekt:
Árangurslaus
Næsti fundur verður hér á landi
eftir tvær vikur
Eins og sagt hefur
verið frá i blaðinu fóru
fram viðræður milli
Landsvirkjunar og
Energoprojekt i siðustu
viku, vegna krafa jú-
góslavnesku verktak-
anna á hendur Lands-
virkjun. Töldu Jú-
góslavarnir að Lands-
virkjun ætti að greiða
þeim hundruð milljóna
vegna aukakostnaðar
sem þeir hefðu orðið
fyrir vegna alls kyns
tafa og aukakostnaðar
við Sigölduvirkjun. Við-
ræðurnar fóru fram i
Zurich i Sviss, á skrif-
stofu ráðunauts Lands-
virkjunar, Electrowatt
Engineering Services.
Ekkert samkomulag náöist á
þessum fundi, en aöilar hyggjast
halda viöræðum áfram með það
fyrir augum að ná samkomulagi,
annað hvort um kröfurnar i heild
eða hluta þeirra. Ef samkomulag
yrði gert um hluta þeirra er gert
ráð fyrir að um þær verði að öðru
leyti fjallað i gerðadómi. Hins
vegar ber verulega mikið á milli
aðilaiþessu máli, en meðan ekki
er séð fyrir endann á þessari deilu
er ekki unnt að segja opinberlega
frá gangi mála, eða gefa upp
nákvæma upphæð krafna, að sögn
Halldórs Jónatanssonar hjá
Landsvirkjun i gær. Halldór tók
þátt i viðræðunum I Zurich ásamt
tveim öðrum fulltrúum Lands-
virkjunar.
Landsvirkjun og Energoprojekt
hafa þegar skipað menn i gerðar-
dóm, prófessor Slavko Stojkovic
á þar sæti fyrir hönd Energo-
projekt, en Magnús Thoroddsen
borgardómari fyrir hönd Lands-
virkjunar. Þess hefur verið farið
á leit við Hæstarétt Islands að
hann skipi oddamann geröar-
dómsins.
Næsti viðræðufundur Lands-
virkjunar og Energoprojekt mun
fara fram hér á landi eftir tvær
vikur. —hm
TVEIR í
GÆZLU-
VARÐHALD
Siðdegis á mánudag úrskurðaði Fikniefna-
dómstóllinn tvo menn i allt að þrjátiu daga
gæzluvarðhald vegna rannsóknar á enn einu
fikniefnamáli. Er Alþýðublaðið ræddi við
Arnar Guðmundsson, fulltrúavið Fikniefna-
dómstólinn i gær sagðist hann ekki geta skýrt
nánar frá máli þessu, enda væri það á algjöru
byrjunarstigi.
I dag sitja þvi fjórir menn i gæzluvarðhaldi
vegna aðildar að þremur fikniefnamálum sem
Fikniefnadómstóllinn hefur nú til meðferðar.
Raforkumál Norðlendinga
Byggðalínu
hraðað
Þar sem það þykir
nú nokkuð augljóst að
Krafia verður ekki sú
orkulind fyrir Norður-
land sem fyrirhugað
var, að minnsta kosti
ekki i bráð, hafa farið
fram viðræður um
það, hvernig bjarga
megi þessum málum
á komandi mánuðum
og árum.
Hjá Rafmagnsveitum ríkis-
sins hafa farið fram umræður
um aö hraða lagningu
byggðarlfnunnar fyrir Hval-
fjörð að Vatnshömrum i
Borgarfirði, en þar er suður-
endi byggðalinunnar nú.
Lagning linunnar frá Geithálsi
að Grundartanga er i höndum
Landsvirkjunar, en RARIK
mun sjá úm bútinn frá
Grundartanga að Vatnshömr-
um.
Að sögn Kristjáns Jónssonar
hjá RARIK er línan frá
Grundartanga að Vatns-
hömrum á framkvæmdaáætl-
uninni fyrir næsta ár, en
möguleikar fyrir að flýta
lagningu hennar eru þó fyrir
hendi. Sagði hann að ef henni
yrði flýtt um ár, eins og til
umræðu hefði verið, myndi
það kosta um 150 milljónir
króna. Það hefði hins vegar f
för með sér að rafmagn kæm-
ist norður á land, fyrr en ella.
—hm
Grjótjötunsmálið
til Sakadóms
Rikissaksóknari hefur
nýverið stefnt Grjót-
jötunsmálinu svokallaða
til dómsmeðferðar við
sakadóm Reykjavikur.
Var málið afgreitt frá
saksóknara siðastliðinn
föstudag og barst það
sakadómi siðdegis á
mánudag.
Er Alþýöublaöiö ræddi við
Halldór Þorbjörnsson yfirsaka-
dómara I gær, staðfesti hann að
málið hefði borizt þangað, en
sagöist ekki hafa komizt til að
kynna sér það efnislega.
Þar eð blaðinu tókst ekki að ná
tali af Þórði Björnssyni rikissak-
sóknara i gær, er þvi ekki kunn-
ugt um hvaða ákæruatriöi eru til-
greind i ákæruskjali hans.
Það var upphaflega að beiðni
Seðlabankans að rfkissaksóknari
krafðist þess, að sakadómur
rannsakaði hvort framin hefðu
verið gjaldeyrislagabrot er sand-
dæluskipið Grjótjötunn var á sin-
um tfma keypt til landsins frá
Noregi.
I byrjun ágúst lauk rannsókn
sakadóms og var málið þá sent
rikissaksóknara. Sfðar i sama
mánuði óskaöi ríkissaksóknari
eftir framhaldsrannsókn og lauk
þeirri rannsókn f byrjun nóvem-
ber og hefur hann sem fyrr segir
nú ákveðið að höfðað skuli mál.
—GEK
MIÐVIKUDAGUR
2. FEBRÚAR 1977
alþýðu
blaðið
Tekið eftir: Að forstjóri
Sölunefndar varnarliðs-
eigna hefur verið beðinn að
gegna starfinu áfram um
óákveðinn tima. Astæðan
mun vera sú, að svo margir
góðir Framsóknarmenn
sóttu um stöðuna að erfitt
er að gera upp á milli
þeirra, án þess að stofna til
innbyrðis deilna, og við þvi
má Framsóknarflokkurinn
sizt af öllu.
o
Frétt: Að Stefán
Valgeirsson, alþingis-
maður.hafi tekið sig til og
„ort” heilmikinn bálk um _
dómsmálin og „rógsiðju”
ýmissa manna. Bálkurinn
hefst á orðunum: „Þér
farisear!” Ein visan er á
þessa leið:
Lögreglumenn, sem i
fjölmiöla fara
með flest sem þeir halda,
en vita þó ekki
iafbrotamálum þá
ættiaðspara
erlendismunu þeir
settir i hlekki.
Þá vitum við það!
o
Lesið: 1 Frjálsri verzlun:
„Reynt er eftir megni að
hafa stjórn á opinberum
útgjöldum og eftirlit með
rekstri einstakra stofnana
rikisins hefur verið hert.
Nýlega bitnaði þetta á
Vegagerðinni, sem hefur
haft i hyggju að kaupa sér
tölvu vegna verkefna
sinna. Svo vildi nefnilega
til að Háskólinn var um
sama leyti búinn að auka
tölvukost sinn m.a. vegna
þess, að hann ætlaöi að
annast tölvuútreikninga
fyrir Vegagerðina.”
o
Til athugunar: Fyrir
Framsóknarmenn, sem
hneykslast á svokallaðri
„gulripressu”, og nefna þá
Dagblaðið Visi og Alþýöu-
blaðið, að þeir ættu að lesa
grein eftir Jón nokkurn
Sigurðsson, pólitiskan
ferðamann, i Tímanum i
fyrradag. Annar eins sóða-
skapur á islenzkum ritvelli
hefur ekki sézt i fjöldamörg
ár. Allir eru sammála um,
að ritsmið Jóns þessa verði
lengi i minnum höfð og not-
uð sem dæmi um mistök
ritstjóra að lita ekki getur
eftir efni blaðs sins.