Alþýðublaðið - 02.03.1977, Side 5
VETTVANGUR 5
jjjjgjj1' Miðvikudagur 2. marz 1977
t biöstofunni aö Háaleitisbraut 13 er oft þröngt og eru þö tugir fólks
á biðlista til aö komast til nauösynlegra meöferöa
að Háaleitisbraut 13,1 tæp tvö ár,
eða þar til Reykjavlkurborg hóf
rekstur dagheimilis i næsta ná-
grenni stöðvarinnar. Tókst þá
samkomulag um að ætla 1/4 jluta
af húsrými þess fyrir lömuð og
fötluð börn. Leggur borgin þar til
húsnæði og fullkomna aðstöðu, en
Styrktarfelagið starfsfólk og
nauðsynleg hjálpartæki. Hús-
næðið sem þannig losnaði f æfing-
astöðinni hefur siðar verið notað
fyrir asthmasjúklinga að ósk fé-
lags þeirra.
Lögð hefur verið á það áherzla
innan félagsins að bæta þjónustu
við fatlaða að þvi er tekur til stoð-
tækja-, umbúða og skósmiði. 1 þvi
skyni hefur S.F.L. styrkt nokkra
einstaklinga til slikra verkefna.
Fjármál félagsins
Arið eftir stofnun félagsins, eða
1953, var mikið rætt um aö afla fé-
laginu fastra tekjustofna, þvi
ljóst var, að félagsgjöld og frjáls
framlög myndu duga skammt til
fyrirhugaös starfs. Var þá ákveð-
ið, að fengnu leyfi fjármálaráðu-
neytisins að merkja hluta af eld-
spýtustokkum, sem Tóbakseinka-
salan verzlaði með. Skyldu þeir
seldir á hærra verði, og hækkunin
renna óskipt til féiagsins. Segja
má að þetta hafi verið eini fasti
tekjustofn S.L.F. gegnum árin, en
hann hefur þó farið hlutfallslega
lækkandi og er nú innan við 2 milij
ónir króna á ári.
önnur meginfjáröflun félagsins
hefur verið ágóði af happdrætt-
um. Þegar til símahappdrættis
S.L.F. var stofnað á sinum tima
var það hugmynd forystumanna
félagsins að hagnaður þess rynni
til nauðsynlegrar fjárfestingar i
húsum og tækjum. Þrátt fyrir að
undirtektir aimennings viö happ-
drættið hafi ávallt verið góðar og
með þvi safnazt háar fjárhæöir,
hafa það ávallt orðið örlög þess
sjóðs að hverfa inn I rekstrarhalla
æfingarstöðvarinnar.
Enn er ógetið ýmissa gjafa og
áheita sem félaginu hafa borizt. á
25 ára starfsferli og styrkt hafa
mjög stöðu þess og ööru fremur
gert félaginu kleift að ráöast i
þær framkvæmdir sem orðið
hafa.
Kvennadeildin
Arið 1966 var stofnuð sérstök
kvennadeild við S.L.F. Deild
þessi hefur unnið að margs konar
fjáröflunarstarfsemi og fært æf-
ingastöðinni ýmsar gjafir. Eins
og gefur að skilja hefur þetta ver-
ið félaginu mikil lyftistöng.
Formaður kvennadeildar er Jón-
ina Þorfinnsdóttir.
Þá ber að geta þess að siðastlið-
in fimm ár hefur félagið fengið 1
milljón króna i byggingarstyrk
frá Alþingi.
Starfsemin
I æfingastöðinni að Háaleitis-
braut 13 starfa nú 10 sjúkraþjálf-
ar auk lækna og sérfræðinga, en
alls starfa þar 35 manns, þar af 20
i fullu starfi.
A þeim tuttugu árum sem liðin
eru frá þvi að Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra hóf fyrst rekstur
æfingastöðvar, aö Sjafnargötu 14,
hafa alls 7.555 sjúklingar feng-
ið 222.452 æfingameðferðir á veg-
um þess. Er þá ótalinn fjöldi æf-
ingameðferða sem fötluð börn
hafa fengið sumardvalarheimil-
inu i Reykjadal.
Til að gefa nokkra hugmynd
um, hvað þessi þáttur i starfi
félagsins hefur aukizt gifurlega
að umfangi þau tuttugu og fimm
ár, sem liðin eru frá stofnun þess,
má nefna að fyrsta árið sem æf-
ingastööin að Sjafnargötu var
starfrækt, komu þangaö 240
sjúklingar og fengu 4406 meðferð-
ir. A siðasta ári komu 779 sjúkl-
ingar I æfingastöðina að Háaleit-
isbraut 13 og fengu 22664 meö-
ferðir.
Félagið hefur sem fyrr segir
staöið fyrir rekstri sumardvalar-
heimilis fyrir fötluð börn. Alls
munu á sjöunda hundrað börn
hafa notið slikrar dvalar þau
átján sumur sem starfsemin hef-
ur verið rekin. Mörg barnanna
hafa dvalið þar oftar en einu
sinni, en þó mun ekki f jarri lagi
að áætla að fjöldi einstaklinga
sem notið hafa sumardvalar og
æfingameðferða þessi ár sé liö-
lega 400.
Stjórn félagsins og for-
stöðufólk
Fyrstu 20 árin var Svavar Páls-
son formaður og framkvæmda-
stjóri S.L.F. Siðastliðin 5 ár
hefur Friöfinnur Ólafsson verið
formaður, en áður hafði hann frá
upphafi verið varaformaöur.
Aörir i núverandi stjórn eru:
Guðný Danielsdóttir, Óli Pálsson,
Óttar Kjartansson og Björg
Stefánsdóttir. Forstöðukona er
Jónina Guðmundsdóttir og skrif-
stofustjóri Matthildur Þórðar-
dóttir. Núverandi framkvæmda-
stjóri er Eggert G. Þorsteinsson.
Markmið — breytt verk-
efni
1 annarri grein laga S.L.F. seg-
irsvoum markmið þess: ,,Mark-
miö félagsins er að greiöa fyrir
lömuðu og fötluðu fólki, einkum
börnum, á hvern þann hátt sem
félagið hefur tök á og stuðlað get-
ur að aukinni orku, starfshæfni og
velferð þess.”
Starfsemi Styrktarfélagsins
hefur á liðnum árum einkum
beinzt að endurhæfingu i þrengri
merkingu,þe.að gera hinn fatlaða
eins likamlega og andlega hæfan
og hægt er. Hjá flestu fötluðu fólki
eru þvi þó alltaf takmörk sett hve
langt má ná á þeirri braut og hef-
ur starfsemi félagsins þvi mikið
veriö miðuð við börn.
Svo sem ljóst er hafa verkefni
félagsins breytzt mjög frá þvi aö
það var stofnað árið 1952. Mjög fá
lömunarveikitilfelli hafa komiö
upp hér á landi frá þvi árið 1956.
Hins vegar hefur þvl fólki fjölgaö
mjög sem þarfnast hvers konar
endurhæfingar. Má þar ne na
börn með meöfæddar lamanir,
ellisjúklinga, taugasjúklinga og
siöast en ekki sizt hefur þvi fólki
Slappað af að æfingu lokinni
fjölgað stórlega sem þarfnast
endurhæfingar vegna umferöar-
slysa.
Af þessu má sjá aö þrátt fyrir
að mikiö hafi áunnizt á þeim tutt-
ugu og fimm árum sem liðin eru
frá stofnun félagsins eru verkefni
þess næg og þörfin fyrir starfsemi
æfingastöðvarinnar fer sizt
minnkandi.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra hefur þvi tvimælalaust unnið
mikið og gott starf.
Viðtöl við forystumenn
Svavar Pálsson:
Svavar Pálsson sem var
formaður félagsins i tuttugu ár og
framkvæmdastjóri þess flest þau
ár, lét eftirfarandi orö falla i til-
efni tuttugu og fimm ára afmælis
félagsins: „1 tilefni þessara tima-
móta tel ég rétt að það komi
fram, að án lifandi áhuga manna
innan læknastéttarinnar hefði fé-
lag þetta aldrei orðið að þvi sem
nú er. Vil ég i þvi sambandi sér-
staklega geta þeirra prófessors
Jóhanns heitins Sæmundssonar
og dr. Snorra Hallgrímssonar. En
þeir og reyndar fleiri læknar sem
siðar tengdust starfi félagsins
voru forráðamönnum þess ávallt
til ráðgjafar þegar teknar voru
stefnumarkandi ákvarðanir.
Haukur Kristjánsson, yfirlækn-
ir, einn af stofnendum félagsins,
hefur unnið mikið starf við æf-
ingastöðina i gegnum árin sem
læknir stöðvarinnar frá þvl um
vorið 1956 þar til um siðustu ára-
mót. Er hann var eftir þvi inntur,
hvað hann teldi að gera þyrfti i
málefnum fatlaðra hér á landi á
næstu árum, sagði hann: ,,Ég tel
mjög brýnt að starfsemi S.L.F.
veröi haldiö áfram, enda er fjöldi
þess fólks sem þarfnast endur-
hæfingar ávallt mikill. Þá er ég
sannfærður um, aö ef hægt væri
að koma á skipulögðum flutning-
um á sjúklingum að og frá endur-
hæfingastöðvum, væri hægt að
bjarga ótrúlega mörgum frá þvi
að lokast inni á stofnunum, en þvi
miður hefur heilsugæzlan hér-
lendis einkennzt um of af þvi, að
safna sjúklingum á spitalana.
Framtíðarverkefni
Friðfinnur ólafsson:
Þó að Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra hafi látiö ýmislegt gott af
sér leiða, siöan þaö var stofnað
fyrir 25 árum, til þess að létta
undir með fötluðu og lömuðu
fólki, er langur vegur frá þvi að
nóg sé að gert. Framtiðarverk-
efni félagsins eru vissulega mörg
og stór. *
Ég nefni aðeins örfá. Það þarf
ennþá að gera mikið til þess i okk-
ar þjóðfélagi að gera fötluðu fólki,
kleift að komast leiðar sinnar á
sem eðlilegastan hátt. Gildir
þetta bæöi utanhúss og innan_.
Þaö þarf að kenna þessu fólki
að vinna sem flest störf og
skapa þvi möguleika til þess.
Það þarf að gefa þessu fólki
kostá að skemmta sér, að ferðast
utanlands og innan og yfirleitt aö
lifa eins eðlilegu lifi og þeir lifa,
sem ekki þurfa að bera kross
fötlunarinnar.
Og svo fyrst og siðast verður að
leggja allt kapp á endurhæfingu,
bæði að hún geti byrjað nógu fljótt
og öllum tiltækum ráðum sé beitt
til þess að hún beri sem mestan
árangur. Þar má einskis láta
ófreistað, hvorki að þvi er snertir
húsakost, hjálpartæki eöa vel-
menntað starfsfólk.
Félagið vill vinna að öllum
þessum efnum eftir fremstu getu
i framtiðinni og heitir á alla vini
sina að duga þvi vel, um leið og
það þakkar þeim fjölmörgu, sem
hafa á liðnum árum lagt þvi liö.
Við eigum að gera lif allra eins
eðlilegt og bærilegt og hægt er —
þaö er meginmarkmið þessa fé-
lags.
Stjórn S.L.F. frá vinstri: Björg Stefánsdóttir, Óttar Kjartansson,
varaformaður, Friöfinnur ólafsson, formaður, B. óli Pálsson og
Guðný Danielsdóttir ritari.