Alþýðublaðið - 08.03.1977, Page 3
sssr Þriðjudagur 8. marz 1977
VETTVANGUR 3
SKÓLASTJORAR OG YFIR-
KENNARAR f EITT FÉLAG
A laugardaginn var haldinn i
Reykjavik fyrri stofnfundur
Félags skólastjóra og yfir-
kennara i grunnskólum. Þetta
félag á að hafa innan sinna vé-
banda alla skólastjóra og yfir-
kennara á grunnskólastigi á
landinu og leysir þvi af hólmi
Skólastjórafélag Islands,
Félag skólastjóra i Reykjavík,
Félag yfirkennara og Félag
skólastjóra i héraós- og gagn-
fræðaskólum.
Á fundinum á laugardaginn
voru mættir 65 skólastjórar og
yfirkennarar viða af landinu. í
upphafi fundarins varljorin upp
tillaga um stofnun félagsins og
hún samþykkt samhljóða og án
nokkurrar umræðu, og sýnir
það bezt hug fundarmanna til
félagsstofnunarinnar. Þó gætti
nokkurrar óánægju með fundar-
sókn, en skýringin mun vera sú
að einmitt þessa dagana fara
fram próf um land allt og skóla-
stjórnendur eiga þvi ekki alls
staðar heimangengt.
Á fundinum var kosin bráða-
birgðastjórn fyrir félagið og er
hún skipuð eftirtöldum mönn-
um: BöðvariStefánssyni og Vil-
Gunnar Hjartarson í
Félag fyrir
skólamenn
— Ég tel það mjög nauðsyn-
legt að stofna slikt félag fyrir
alla skólamenn á landinu,
kennarana lika, sagði Gunnar
Hjartarson skólastjóri Grunn-
skólans i Ólafsvik, þegar við
spurðum hann um nauösyn
þessa nýja félags. — Að visu er
þetta félag aðeins fyrir skóla-
stjóra og yfirkennara, en við
hljótum að stefna að þvi að allir
kennarar fái þar inngöngu þeg-
ar timar liða. Þetta er þó alltaf
byrjunin.
Ég geri mér vonir um að þess-
ar tvær stéttir skólamanna
veröi sterkari en áöur, þegar
þetta félag hefur verið stofnað
ogveitir sannarlega ekkiaf. Við
höfum verið ákaflega afskiptir
hingað til.
Þegar Gunnar var spurður
um álit hans á grunnskólalögun-
um og þeim vandamálum sem
virtust hafa komið upp vegna
prófafyrirkomulagsins, kvaðst
hann telja, að ef lögin kæmust
til framkvæmda væru þau til
mikilla bóta. — Þau verða auð-
vitað alltaf I endurskoðun meira
og minna, sagði hann, — enda
ekki hægt aö leggja fram full-
komin lög i einu vetfangi i
bergi Júliussyni frá Skóla-
stjórafélagi tslands, Asgeiri
Guðmundssyni frá Félagi skóla-
stjóra i Reykjavik. Frá Félagi
yfirkennara er Þorvaldur
Óskarsson og Pétur Orri
Þórðarson, Björn Jónsson og
Ólafur H. Óskarsson frá Félagi
skólastjóra I héraðs- og gagn-
fræðaskólum. í varastjórn voru
kjörnir þeir Hans Jörgensson,
Þráinn Guðmundsson og Har-
aldur Finnsson. Þessari stjórn
er eingöngu ætlað að starfa
fram að siöari stofnfundinum,
sem áætlað er aö verði haldinn í
haust, en með þeim fundi á að
leggja niður starf þeirra fjög-
urra félaga sem hingað tii hafa
verið stéttarfélög skólastjóra og
yfirkennara.
I kaffihléi á fundinum á
laugardaginn tóku blaðamenn
Alþýðublaðsins tali þrjá menn
sem þarna voru staddir. Það
voru þeir Ásgeir Guðmundsson
skólastjóri Hliðarskóla i
Reykjavik en hann hefur verið i
und irbúningsnefnd þessa
fundar, Böðvar Stefánsson
skólastjóri á Ljósafossi og
Gunnar Hjartarson skólastjóri
Grunnskólans i Ólafsvik. —nm
Ólafsvík:
alla
nauðsyn
Gunnar Hjartarsson, skólastjóri
I ólafsvik.
fræðslumálum tremur en öðrum
málum. En I heildina tei ég
grunnskólaiögin vera til mikilla
bóta.
—hm
Böðvar Stefánsson á Ljósafossi:
Óánægðir með þróun
kjaramálanna
— Þaö eru i rauninni grunn-
skólalögin sem leiða beint til
þessarar stofnunar, sagði Böðv-
ar Stefánsson skólastjóri á
Ljósafossi þegar við ræddum
við hann. — Auk þess eru skóla-
stjórar mjög óánægðir með þró-
unina i sinum launamálum. Þvi
vilja þeir breyta og til þess er
eitt félag betra en fjögur.
Til dæmis er augljóst, ef litið
er á útkomuna úr kjarasamn-
ingum siðustu ára, að skóla-
stjórum hefur fjölgað aö mun i
lægstu flokkunum, i stað þess aö
dreifast um launastigana eins
og eðlilegt væri.
Ég skal nefna þér sem dæmi,
að árið 1944 eru barnaskóla-
stjórar i tveim flokkum. Skóla-
stjórar i kaupstööum voru með
33% hærri laun en kennararnir,
en i sveitum voru þeir 23%
hærri. Nú er aftur á móti
minnsti munur á skólastjóra og
kennara 7%. Þetta sýnir hver
stefnan hefur verið.
Ásgeir Guðmundsson, Hlíðarskóla:
Guömundur Magnússon fundarstjóri f reöustóli. Viö hliö hans eru starfsmenn fundarins auk undirbún-
ingsnefndarinnar. (AB-myndir GEK)
Samþykkt aö stofna eitt félag fyrir y firkennara og skólast jóra.
UNDIRBÚNINGUR
SÍÐAN í HAUST
Viö spurðum Asgeir fyrst að
þvi, hver ástæðan hefði verið
fyrir stofnun þessa félags.
-Forsagan er sú, aö skóla-
stjórar hafa hingaö til veriö i
tveimur samtökum auk
kennarasamtakanna og yfir-
kennarar i einu félagi. Þessi
félög hafa starfað 115-17 ár og á
þeim tima hefur oft veriö reynt
að sameina þau i eitt félag en
ekki gengið til þessa.
A siðasta hausti skipuöu þessi
félög nefnd til að kanna hug
skólastjóra og yfirkennara til
sameiningar félaganna. Þessi
nefnd hefur starfað siöan og
sendi meðal annars bréf til
allra skólastjóra og yfirkennara
á landinu, 265 talsins. Svör bár-
ust frá 190 og af þeim voru að-
eins 6 á móti sameiningu. Þann-
ig er vilji þessara manna nokk-
uð auðsær.
Það sem rekur á eftir sam-
runa félaganna er einkum
tvennt. Fyrst og fremst eru þaö
kjaramálin og i öðru lagi al-
menn félagsmál og fagmál
skólastjórnarmanna.
Hvað kjaramálin snertir
teljum viö aö skólastjórar hafi
fariö mjög illa út úr slöustu
samningum og ætlum okkur aö
verða mjög virkiraðilar I næstu
kjarasamningum. Bilið milli
kennara og skólastjóra hefur
minnkað mjög og nú eru jafnvel
i gildi reglur um að laun skóla-
stjóra skuli lækka ef breyting
veröur á fjölda nemenda, til
fækkunar. Þetta er rökstutt
með þvi að með færri nemend-
um minnki starf skólastjóra, en
það fer alis ekki saman.
Inni i þessu dæmi er einnig
aðbúnaður skólanna og þar með
allra sem i skólunum starfa,
kennara og nemenda. 1 lögum
þeim sem lögö voru fram til af-
greiðslu á fundinum hér áðan er
einmitt tekiö fram aö félagið
skuli vinna aö fræösiumálum
félagsmanna, svo sem með
kynningu á breyttum viðhorfum
i skólamálum og stjórnunar-
málum skóla.
Einnig er ætlun okkar að ná
sambandi viö erlend félög
skólastjórnenda, en slik sam-
skipti hafa litil verið til þessa.
Grunnskólalögin hafa einnig
gert það að verkum að nauösyn-
legt var að stofna þetta félag.
Hingað tilhafa félög okkar veriö
á barna- og gagnfræöaskóla-
stigum, en sá stigamunur er
ekki lengur fyrir hendi i grunn-
skólalögunum, samkvæmt þeim
erum viö allir starfsmenn eins
stigs, grunnskólastigs. Þess
vegna væri fárániegt fyrir okk-
ur að vera i nema einu félagi.