Alþýðublaðið - 28.06.1977, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNi
7 7 —— S ^
:.............
siminn er
14-900
Fagnaðarfundir
A sunnudaginn komu til
landsins um eitt hundrað konur
úr kvennasamtökum jafnaðar-
mannaflokkanna i Noregi, Svi-
þjöð og Finnlandi. Samband
Alþýðuflokkskvenna sérum alla
fyrirgreiðslu vegna ferðar-
innar, en það eru einu pölitisku
kvennasamtökin hér á landi.
Konurnar föru beint frá
Keflavikurflugvelli austur að
Laugarvatni. Siðan fara þær i
Skálholt, að Gullfossi og Geysi
og yfir Kjöl. Á Akureyri verða
þær smátima^ fara i Mývatns-
sveit og i Reykholt á leiðinni til
Reykjavikur. 1. júli skoða þær
Reykjavik og um kvöldið verða
þær gestir á heimilum Alþýðu-
flokksmanna i Reykjavik.
I hópi kvennanna eru konur,
sem mjög hafa komið við sögu
stjórnmála i heimalöndum
sinum. Á myndunum sjást kon-
urnar við komuna til Kefla-
vikur. Á efri myndinni til
vinstri er Kristin Guðmunds-
dóttir, formaður Bandalags
Alþýðuflokkskvenna. Eins og
sjá má uröu fagnaðarfundir,
enda islenzku konurnar starfað
með flokkssystrum sinum á
ýmsum vettvangi.
(Ljósm. ATA).
handrit á
I dag verða boðin upp hjá
Sotheby i London 4 fornrit is-
lenzk, þrjú Skarðsbókarhand-
rit frá fjórtándu öld og auk
þess eina handritið sem til er
af óprentuðum rannsóknum á
guðum heiðinna norrænna
manna i samantekt Eggerts
Ólafssonar.
Talið er að handrit þetta
hafi verið i fórum Jóns, yngri
bróður Eggerts, en Stein-
greinum Jónsson biskup vitn-
aði i ritgerðina og er handrit
biskups til i Landbókasafni.
En handrit Eggerts gufaði
hins vegarupp og var lengi vel
talið að það væri að eilifu
glatað, eöa þar til að það birt-
ist skyndilega á uppboðslista
hjá Sotheby 12. ágúst 1831.
Kom þaö þá úr bókasafni sem
var i eigu sænsks ambassa-
dors. En nú er handrit Eggerts
sem sagt á uppboðslista
Sotheby i a.m.k. annað sinn.
Sotheby, við New Bond Street i
London er virt uppboðsfyrir-
tæki og vel þekkt viða um
lönd. Geirfuglinn sæli, sem
sleginn var tslendingum við
mikinn fögnuö hér um árið var
einmitt boðinn upp hjá Sothe-
by. —ARH
Sérkennileg deila leigubifreidastjóra í Keflavík
Kauphækkun
hafnað!
— Það er liklega heimsmet að
menn kæri sig ekki um kaup-
hækkun!, sagði bilstjóri einn á
ökuleiðum i Keflavik i samtali
við blaðið, en tilefnið var frétt i
Suðurnesjatiðindum á föstudag-
inn. Þar segir frá sérstæðu far-
gjaldastriði leigubifreiðastöð-
anna i Keflavík, ökuleiða og
Aðalstöðvarinnar. Eins og
kunnugt er hækkaði ökutaxti
leigubifreiða um 10.8% i siðasta
mánuði. Bifreiðastjórar Aðal-
stöðvarinnarhafa enn ekki tekið
gjaldsamkvæmtnýja taxtanum
innan Keflavikurflugvallar og
er það trúlega gert til þess að
skapa sér betri aðstöðu i sam-
keppninni um kúnnana á Vell-
inum ökuleiðamenn eru þvi til
neyddirað aka undir leyfilegum
taxta. Að þvi er ökuleiðabil-
stjórinn sagði i gær er ekki ekið
samkvæmt gjaldmæli á Vell-
inum, heldur eftirákveðnu jafn-
aðargjaldi.
Suöurnesjatiðindi hafa eftir
Aðalstöðvarmönnum, að þeir
séu ekki andvigir nýja ökutaxt-
anum sem slikum, en segja
samkomulag ekki hafa tekizt
vegna langvarandi deilu um
auglýsingar á flugveliinum.
Hafi þeir boðið ökuleiða-
mönnum upp á sameiginlega
auglýsingastarfsemi, en þeir
ekki fallizt á það. ökuleiðabil-
stjórinn sagði hins vegar i sam-
tali við Alþýðublaðið, að
reynslan hafi sýnt að litt sé að
treysta orðum þeirra á Aðal-
stöðinni. ökuleiðir hafi lengi
barizt fyrir sameiningu stöðv-
anna, en þar hafi ætið strandað
á nokkrum mönnum á Aðalstöð-
inni.
Bilstjórarnir af ökuleiðum og
Aðalstöðinni hafa með sér sam-
eiginlegt hagsmunafélag, Bif-
: h’ramhald á bls. 10
45.000 tunnur af
sfld til Rússlands
Nýlega voru undirritaðir i
Moskvu fyrirframsamningar
um sölu á 45.000 tunnum af salt-
aðri Suðurlandssild til Sovét-
ríkjanna. Þar af eiga 35.000
tunnur að vera hausskorin og
slógdregin sérverkuð sild eða
svokölluð „specialsild” og
10.000 tunnur heilsöltuð sild.
Heildarsöluverðmæti sildar-
innar nemur um 900 millj.
króna, og til þess að framleiða
þetta magn þarf rúmlega6200
smálestir af fersksild. Gert er
ráð fyrir að siðar verði teknar
upp viðræður um viðbótarmagn
til afgreiðslu á fyrsta ársfjórð-
ungi næsta árs.
A sl. ári þegar fyrirfram-
samningar við Sovétrikin voru
undirritaðir i Moskvu, var ein-
ungis samið um sölu á heilsalt-
aðri sild af minnsta stærðar-
flokki, en núverandi samningur
gerir ráð fyrir sölu á sild af
öllum stærðarflokkum.
Þá hafa einnig verið undirrit-
aðir samningar um sölu á 20.000
tunnum af sykur- og kryddsalt-
aðri sild til Finnlands og var
einnig samið um nokkra hækk-
un á söluverði þangað. Heildar- fc
söluverðmæti þess sildar-
magns, sem fer til Finnlands,
nemurum 500 milljónum krðna
og þarf tæplega 3.000 smálestir
af fersksild, til að framleiða
umsamið söíumagn.
Er gert ráð fyrir að undirbún-
ingsviðræður um sölu á saltaðri
sild til Sviþjóðar hefjist i næsta
mánuði. —JSS
Tillögur um
„heimilisuppbót
á Iffeyri
99
1 yfirlýsingu rikisstjórnar-
innar, varðandi nýgerða kjara-
samninga, sagði meðal annars
að rikisstjórnin myndi beita sér
fyrir þvi aö tekin yrði upp sér-
stök „heimilisuppbót á lifeyri”
allra einhleypra einstaklinga
sem búa einir á eigin vegum.
Myndi uppbót þessi nema kr.
10.000 á mánuði.
1 samræmi við þessa yfirlýs-
ingu hefur heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið, falið
tryggingaráði að gera tillögur
um úthlutun slikra bóta og mun
rikisstjórnin að þeim tillögum
fengnum beita sér fyrir setn-
ingu bráðabirgöalaga þar um.
íslenzk
uppbod
í London