Alþýðublaðið - 23.07.1977, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ
145. tbl. — 1977 — 58. árg.
Áskriftar-
síminn er
14-900
VERÐIÐ Á BENZINI:
Hefur sjöfaldast
á 7 árum
Árið 1970 kostaði ben-
zinlíterinn 12 krónur. i
dag kostar hann litlar 80
krónur. Verðið hef ur því
sjöfaldast á sjö árum.
Það er fróðlegt að velta
því fyrir sér hvert þess-
ar hækkanir hafa runn-
ið. Eins og allir vita
hefur olíukreppa hrjáð
heiminn að undanförnu,
og hefur það valdið
hluta þessarar hækk-
unar. En það er nokkuð
athyglisvert að mestur
hluti þessarar 68 króna
hækkunar, eða 37 krónur
hafa runnið i ríkissjóð,
til almennrar ráðstöf-
unar.
Benzínverðhækk-
anir eru oft réttlættar
með því að fyrir dyrum
standi stórátök í vega-
gerð. Sannleikurinn er
hins vegar sá að stöðugt
minni hluti tekna ríkis-
ins af benzíni rennur til
Vegasjóðs. Þetta kemur
fram í mótmælum FIB
gegn fyrirhugaðri ben-
zínhækkun, en með
henni hyggst rikis-
stjórnin seila$t enn
dýpra í vasa bíleigenda.
SJA NANAR A BLS. 3
Afengi
og tóbak
hækkar
Alþýöublaðið hleraði i gær
eftir áreiðanlegum heim-
ildum, að verð á áfengi og tó-
baki myndi hækka eftir
helgina og ný verðskrá tæki
gildiá mánudaginn. Hve mikil
þessi hækkun yrði vissi biaðið
ekki, en þegar það hafði sam-
band við Jón Kjartansson for-
stjóra Afengis- og tóbaks-
verzlunar rikisins i gær, vildi
hann engu til svara. Þó spurði
hann itrekaö eftir þvi, hver
hefði sagt blaðamanninum
þessi tiðindi, en þegar blaða-
maður var ófáanlegur til að
segja honum það, benti Jón
honum þykkjuþungur á að tala
við þessa heimild sina.
Seint i gær barst svo
blaðinu fréttatilkynning frá
fjármáiaráðuneytinu þar sem
þessar hækkanir eru tilkynnt-
ar. Hækkar vindlingapakkinn
um 70 krónur, fer i 325 krónur
en áfengi um 15% og liölega
20%. Kláravin þó um riíman
þriöjung kostar eftir hækkun
3.900 krónur i stað 2.900 áður.
Brennivin kostar eftir hækkun
3.500krónur, en vodka 4.600 og
skozkt viski 4.900 — Verð á
léttum vinum verður óbreytt.
Eftir þvi sem Jón Ás-
geirsson ritstjóri Lög-
bergs-Heimskringlu
segir, eru Islendingar
pennalatasta þjóð á
norðurhveli jarðar, — og
þótt viðar væri leitað.
Þessar myndir sýna þó,
að þeir landar eru til,
sem nenna að skrifast á
við útlendinga, ef þörf
kref ur. Að visu var biðin
eftir svari ekki löng, auk
þess sem póstþjónustan
er öldungis óþörf í svona
brófaskriftum. Stúlk-
urnar á myndinni voru
sem sé að skrifast á við
áhaf narmeðlimi rúss-
neska barksins Krusen-
stern sem lá hér við
bryggju fyrir nokkrum
dögum í gegnum lokuð
kýraugu skipsins. Það
var Ijósmyndari
Alþýðublaðsins KIE,
sem tók myndirnar.
—hm
Erfið heyskapartíð
— segir búnaðarmálastjóri
— Heyskaparhorfur i
sumar eru allsæmi-
legar, held ég, sagði
Halldór Pálsson bún-
aðarmálastjóri i viðtali
við Alþýðublaðið i gær.
— Það leit orðið illa
út á timabili vegna
stöðugra óþurrka, en
siðastliðinn þriðjudag
var þurrkur á öllu Suð-
vestur og Vesturlandi
og þá náðu bændur inn
all miklu af heyi. Fram
að siðasta mánudegi
leit þetta orðið ansi illa
út, en ég held að
ástandið sé ekki svo
voðalegt núna, sagði
Halldór.
Biinaöarniálastjóri sagöi enn-
fremur aö þar sem spretta i tún-
um hefði veriö fremur seint þá
væir máliö ekki eins alvarlegt.
Grassspretta væri þó viöast
hvar allgóð og tún óskemmd
eftir veturinn.
— Heyskapur ætti meö réttu
aö vera hálfnaöur núna, sagöi
hann, en þaö er ekki búiö nema
um 10-15% af honum. Ef þaö
veröur óþurrkur i allan júli,
veröur ástandiö oröið mjög
slæmt um verzlunarmanna-
helgina. Það er verst aö þaö
skyldi fara aö rigna i gær, þaö
geröi mikiö tjón á öllu landinu.
— Annars hefur þetta veriö
erfiö heyskapartiö og þess
vegna allt á seinni skipunum,
sagöi búnaöarmálastjóri aö
lokum.
—AB
140 BÁTAR
Á SÍLD?
Eigendur um það bii 150
báta hafa endurnýjað um-
sóknir sinar til Sjávarút-
vegsráöuneytisins um heim-
ild til veiða á sumargotssild.
Af þesum f jölda hyggjast um
það bil 90 bátar gera út á
hringnót, en um 60 á reknet.
Þetta kom fram i samtali
sem Alþýðublaðið átti við
Jón B. Jónasson hjá Sjávar-
útvegsráðuneytinu i gær.
Svo sem mönnum er kunn-
ugt er kvóti sá, sem Haf-
rannsóknarstofnunin hefur
mælt meö 25.000 tonn.
Aö sögn Jóns viröast
nokkrir útgeröarmenn
„hálfvolgir” i ákvöröun sinni
um sildveiðar og má þvi bú-
ast við þvi aö leyfisumsókn-
um fækkieitthvaö.og jafnvel
alit niöur f 140. Ef veiðikvót-
anum er deilt niður á þennan
bátafjölda koma um þaö bil
180 lestir hlut hvers og eins.
ES
Rltst|órn Sfdumúla II