Alþýðublaðið - 23.07.1977, Síða 3
bSaSfö* Laugardagur 23. júlí 1977.
3
BENZIN HEFUft SJOFALDAST FRA ARINU 1970:
Bróðurpartur hækkunarinnar til
almennrar ráðstöfunar ríkissjóðs
— opinbert skattrán segir FÍB
Frá árinu 1970 hafa
benzinverðhækkanir
hér á landi verið um
það bil 25% meiri en
hækkanir á almennu
verðlagi i landinu. Arið
1970 kostaði benzinlit-
erinn 12 krónur en er nd
kominn upp i 80 krónur
op á næstu dqgum mun
siðan koma til 8 krónu
verðhækkun og verða
bíleigendur að greiða
heilar 88 krónur fyrir
hvern litra. Þetta kem-
ur fram í frétt sem
Alþýðublaðinu hefur
borizt frá Félagi ís-
lenzkra Bifreiðaeig-
enda. Þar er fyrirhug-
aðri benzinverðhækk-
un harðlega mótmælt
og þess getið að hækk-
anir þær sem orðið
hafa á benzinverði á
undanförnum árum
stafi aðallega af inn-
lendum skattahækk-
unum, en einungis litill
hluti sé vegna erlendra
verðhækkana.
68 krónur á 7 árum
eða sjöföldun verðsins.
Frá árinu 1970 hefur benzínlít-
erinn þvi hækkaö um litlar 68
krdnur og hefur veröiö sjöfald-
ast á þessum tíma. FIB hefur
sundurliöaö þessa veröhækkun
meö tilliti til af hverju hún
stafar. Samkvæmt þe irri
sundurliöun hafa erlendar verö-
hækkanir og gengislækkun is-
lenzku krónunnar orsakaö 18
krónu h'óekkun á útsöluveröi
benzinlitra hérlendis. Allar inn-
lendar kostnaöarhækkanir þ/r
meö talinn launakostnaöur og
annar dreifingakostnaöur hafa
á þessum sjö árum valdiö hækk-
un sem nemur 13 krónum á
hvern Jitra. Hiö opinbera hefur
aftur á móti seilst heldur dýpra i
vasann og hefur á þessum sjö
árum valdiö hækkun, sem nem-
ur hvorki meira né minna en 37
krónum á hvern litra, sem er
meira en helmingur þeirrar 68
króna hækkunar sem oröiö
hefur frá árinu 1970.
Hærri skattar en af
annarrinauðsynjavöru.
1 frétt FIB kemur fram aö
rikisvaldiö hefur um margra
ára skeiö réttlætt auknar skatt-
tekjur af benzinsölu meö yfir-
lýsingum þess efnis aö stórátök
væru framundan i vegagerö.
Staöreyndin sé hins vegar sú aö
litill hluti tekna rikissjóös af
benzinsölu rennur til Vegasjóös
oe fer hann stööugt minnkandi.
1 upplýsingum FIB kemur
fram aö Vegagjald er markaöur
tekjustofn Vegasjóöa. Ariö 1970
var vegagjald 47% af útsöluverö
benzinlitra, en vegna þess að á
siöustu árum hefur stööugt
hærri hluti benzinskatts fariö til
almennrar ráöstöfunar hjá
rikissjóöi hefur þessi markaöi
tekjustofn rýrnað allmikiö og er
nú oröin innan viö 25% af útsölu-
verði hvers benzinlitra.
Verötollur, sem nemur 50% af
innflutningsveröi er innheimtur
af öllum benzíninnflutningi.
Þetta er sérskattur á bifreiöa-
eigendum, en leggst ekki á
annaö eldsneyti svo sem flug-
vélabenzin, þotueldsneyti,
svartoliu og hitaorku til húsa-
hitunar, sem eru sáralitiö toll-
aöir. FIB krefst þess aö tolla-
reglur bifreiöabenzins og ann-
ar.ra orkugjafa veröi sam-
ræmdar.
Söluskattur sem innheimtur
eraf benzingjaldi eftiraö öörum
sérsköttum hefur veriö bætt við.
Telur FIB aö söluskatturinn sé i
sjálfu sér ekki véfengjanlegum
en þær tekjur sem koma til af
þviaö innheimturerskattur af
öörum skatti séu óeölilegar og
ættu þvi frekar aö renna i Vega-
sjóö.
Aörir tekjustofnar hins opin-
bera af benzini eru leyfisgjald,
vörugjald og landsútsvar og
þrátt fyrir aö hér sé aöeins um
1.7% af útsöluveröi hvers ben-
zinliters að ræöa voru heildar-
tekjur ríkissjóös á siöasta ári af
þessum tekjustofni rúmar 120
miiljónir króna.
Félag islenzkra bifreiöaeig-
enda mótmælir þvi að hlutfall
tekna vegasjóös af heildartekju
af benzinverði hafi rýrnaö
verulega, eöa úr 70% i 43% frá
árinu 1973-1976.
1 lokaorðum fréttar FIB er
mótmælt harölega yfirvofandi
benzinveröhækkunum, og þvi
opinbera skattráni sem rikis-
stjórnin fremur nú á bifreiöa-
eigendum. Ennfremur krefst
FÍB þess aö þær reglur sem
gilda um ákvöröun benzinverös
verði teknar til endurskoöunar
og þaö ranglæti, sem nú rikir i
þeim málum, upprætt.
ES
Pólýfónkórinn kominn frá Ítalíu
„Móttökurnar
með ólíkindum”
- segir Ingólfur Guðbrandsson,
sem sæmdur var riddaranafnbót
ítalska lýðveldisins í ferðinni
Pólýfónkórinn er kom-
inn heim úr ítalíuferð
sinni, eftir ,,stórkostlega
hljómleikaför", eins og
segir í frétt frá stjórn
kórsins.
Alls tóku 180 manns
þátt i ferðinni, söngvarar
og hljóðfæraleikarar og
fluttu Messías eftir
Handel, Gloria eftir Vi-
valdi ásamt f iðlukonsert-
inum og Magnificat eftir
Bach.
Fyrstu tónleikarnir
voru haldnir að kvöldi 25.
júní í dómkirkjunni í Si-
ena, að viðstöddum 2000
áheyrendum. Var kórn-
um mjög vel tekið og
hann beðinn að koma
f Ijótt aftur. Tveimur dög-
um siðar voru tónleikar í
Flórens í Santa Groche
kirkjunni, að viðstöddum
4000 áheyrendum, þar á
meðal mörgu tónlistar-
f ólki. Þar næst var sungið
á tónlistarhátíð í Vicenza
og Markúsarkirkjunni í
Feneyjum, þar sem kór-
inn hlaut frábærar mót-
tökur. Eftir það var sung-
ið á þrennum tónleikum í
Lignano og Aquileia.
— Móttökurnar sem viö feng-
um voru meö ólikindum, sagöi
Ingólfur Guöbrandsson, stjórn-
andi Pólýfónkórsins á fundi með
blaðamönnum i gær. — Ymsir
af flytjendunum, og þar á meöal
ég sjálfur, hafa sótt tónleika á
ftaiiu, og það er óhætt aö
segja aö það telst til stórviö-
burða ef fólk lætur i ljósi slika
hrifningu og þaö geröi á tónleik-
um okkar.
Mikið var skrifað um kórinn i
itölsk blöö og fékk kórinn alls
staöar mjög góöa dóma aö sögn
Ingólfs. Gagnrýnendur höföu
yfirleitt ekki mikið út á flutning-
inn að setja og var gagnrýnin
yfirleitt samfellt lof i öllum
blööum. Meðal þess sem Ingólf-
ur sagöi aö sagt heföi veriö i
itölskum blöðum, og kæmi is-
lenzkum gagnrýnendum
kannski spánskt fyrir sjónir,
var aö stjórnandinn kynni
greinilega sitt fag, þvi kórnum
heföi veriö stjórnaö mjög vel og
kórinn væri þjálfaöur i ná-
kvæmum vinnubrögöum. Einn-
ig fengu einsöngvarar mikið lof,
svo og hljóöfæraleikarar, sér-
staklega systurnar. Rut og
Maria Ingólfsdætur, og Lárus
Sveinsson trompetleikari.
— Ég kveið i upphafi svolitið
fyrir að fara meö Messias út,
þar sem verkið er svo langt. Þaö
er nefnilega oft á tónleikum á
Ný flugvélategund kynnt
á Reykjavíkurflugvelli
I gær gafst gestum kostur á aö
kynna sér nýja flugvél af gerö-
inni DASH 7Quiet Stol, sem hér
var stödd á vegum kanadisku
flugvélaverksmiöjanna De Hai-
villand, sem meöal annarseru
þekktar fyrir hinar ágætu Twin
Otter skrúfuþotur.
Flugvélin sem hér haföi viö-
dvöl veröur aö teljast all merki-
leg þar eö hún varfyrstaeintak-
iö, sem verksmiöjurnar fram-
leiddu og hóf hún sig til flugs i
fyrsta skipti fyrir um tveimur
árum.
Siöan þá hafa verksmiðjurnar
sifellt veriö aö endurbæta vélina
og var hún sýnd ekki alls fyrir
löngu á mikilli flugvélasýningu i
Frakklandi.
Siöan þeirri flugsýningu lauk
hefur vélin veriö á sifelldu sýn-
ingarferöalagi um Evrópu og
héöan fer vélin til Grænlands.
Á stuttum kynningarfundi,
sem haldinn var áöur en gestum
var boöiö i flugferö, kynntu for-
svarsmenn verksmiöjunnar
helztu kosti vélarinnar fram yf-
ir aðrar flugvélar af sambæri-
legri stærö. Meöal annars full-
yrtu þeir aö þessi vél væri sú
hljöðlátasta sem framleidd
hefði veriö til þessa dags.
Helztu kostir DASH 7, sem
gera það aö verkum aö hún
virðist henta einkar vel viö Is-
lenzkar aöstæöur eru þó hve
stutta flugbraut hún þarf til
lendingar og flugtaks. Þá er vél-
in einnig mjög sparneytin,
þannig aö þrátt fyrir aö hún sé
knúin tveimur hreyflum um-
fram þá tvo sem prýöa Fokker
Friendship skrúfuþotur Flug-
leiöa, þá er benzineyösla þess-
arar vélar litlu meiri.
Svo haldið sé áfram aö tíunda
kosti þessarar Kanadisku vélar
þá má geta þess aö hún er gædd
frábærri hæfni til lendinga i
sterkum hliöarvindi. Siöast
taldi eiginleikinn kom skýrt i
ljós á Reykjavfkurflugvelli i
gær þegar flugmenn vélarinnar
léku þaö hvaö eftir annaö aö
fljúga henni til lendingar i
sterkum hliöarvindi og stöðva
hana síöan nánast á punktinum.
— GEK
Italiu og fólk er búiö aö fá nóg i
hléinu og helmingur áheyrenda
fer heim. En viö sáum ekki bet-
ur en allir sætu út tónleikana
okkar og oftast mikiö lengur. A
þessa leiö sagði Ingólfur um
tónleika kórsins á tónlistarhá-
tiðinni I Licenza.
I lokahófi Pólýfónkórsins i
Lignano var Ingólfur sæmdur
riddarakrossi og nafnbót hins
ítalska lýðveldis, „fyrir tviþætt
starf hans i þágu lista- og feröa-
mála, Italiu til heilla”.
Ferðin til ítaliu var aö vonum
mjög dýr, og gizkaöi Ingólfur á
aö eftir feröina skuldaöi kórinn
á milli 5 og 6 milljónir. Aö sögn
kórstjórnarinnar má rekja þaö
aö mestu til þess að aðsóknin aö
siöustu tónleikum kórsins hér
heima brást. Heföi oröiö hús-
fyllir I þau tvö skipti sem kórinn
söng áöur en hann hélt út, heföi
það farið langt meö aö jafna þá
upphæð sem hann skuldar núna,
en miðarnir á þá tónleika kost-
uöu tvö og þrjú þúsund krónur.
Þó sagöist stjórnin þakklát fyrir
þær undirtektir sem kórinn fékk
hér heima.
Um áframhald á starfsemi
Pólýfónkórsins, kvaö stjórnin
allt óákveðiö ennþá, þar sem
ekki væru alveg allir kórmeö-
limir komnir heim aftur, og
máliö þvi ekki verið rætt. Ing-
ólfur Guöbrandsson hefur sem
kunnugt er lýst þvi yfir aö hann
væri hættur stjórn kórsins, eftir
þessa utanför.
Þessa dagana gefst fólki kost-
ur á aö skoöa myndir úr Italiu-
feröinni og umsagnir um kórinn
úr itölskum blöðum. Sýningin er
i skrifstofu Útsýnar og er öllum
heimill aögangur á venjulegum
skrifstofutima. — AB