Alþýðublaðið - 23.07.1977, Qupperneq 12
Hvað er verkamaður lengi að vinna fyrir árslaunum
forstjóra ferðaskrifstofunnar Útsýnar?
LAUGARDAGUR
23. JÚLÍ 1977
Rúm 30 ár!
ef reiknað er með átta
tíma vinnu á dag!
Þegar skattskráin
kemur út verður fólk
ákaflega forvitið, eins
og allir vita. Blaða-
menn ekkert siður en
aðrir, enda hafa þeir
atvinnu sina af þvi að
forvitnast um það sem
er að gerast i kringum
þá. Oftast er reynt að
koma auga á þá sem
engan borga skattinn
þótt auðsjáanlega séu
nægir peningar fyrir
hendi hjá þeim og þeir
lifi mun hærra en þeir
sem greiða hundruð
þúsunda i opinber
gjöld. En það eru fleiri
hliðar á þessu máli.
Til dæmis geröi blaðamaður
Alþýöublaösins sér það að leik i
gær að reikna út mismuninn á
launum hæsta skattgreiðanda
einstaklinga i Reykjavik og
verkamanns á þriðja taxta
Dagsbrúnar. Þar kom margt
forvitnilegt i ljós. Til dæmis
þaö, að til þess að ná árstek jum
Ingólfs Guðbrandssonar for-
stjóra þarf verkamaöur að
vinna samkvæmt fyrrgreindum
þriöja taxta Dagsbrúnar i liö-
lega þrjátiu ár, ef miðað er við
átta stunda vinnu á dag.
Þetta kann einhverjum aö
þykja hressileg niðurstaða og
litt sennileg, en litum á stað-
reyndir:
Samkvæmt skattskrá er Ing-
ólfur Guðbrandsson meö
3.746.000 i útsvar. Þar sem út-
svarið er reiknað 11% af heild-
artekjum er dæmið tiltölulega
einfalt. Hann er meö 34 milljón-
ir 54 þúsund 545 krónur i árslaun
sem aftur þýða 2 milljónir 837
þús. 878 kr. á mán, ef miðað er
við 8 stunda vinnudag, 21 dag i
mánuöi. Þar með eru dagslaun-
in 135.137 krónur og timakaupið
16.892 krónur.
Verkamaöur á þriöja taxta
Dagsbrúnarer aftur á mótimeð
560krónurá timann, 4.480 krón-
ur ádag,94.080krónurá mánuði
og samkvæmt þvi 1.128.960 á
ári.
Þannig liggur þaö ljóst fyrir
að ef miöað er viö átta stunda
vinnu á dag, er verkamaðurinn
liðlega tvö ár að vinna fyrir
mánaðarkaupi forstjórans.
En nú er það nokkuð ljóst, að
það er ekki tekið út með átta
stunda vinnudegi 21 dag i mán-
uöi aö vera forstjóri einnar
stærstu feröaskrifstofu á land-
inu. Sennilega lætur nærri að
þaðsé sólarhringsstarf. Til þess
þá að vera sæmilega sanngjarn
reiknaði blaðamaðurinn einnig
út laun þessara tveggja manna
miðað viö 24 stunda vinnu 365
daga á ári. Slikt myndi að visu
flokkast undir þrældóm af lök-
ustu gerö hvað verkamanninn
snertir, en sennileg getur for-
stjórinn þó hallað sér á milli
annahriða.
Sé dæmið reiknað þannig, er
timakaup forstjórans ekki nema
5.630 krónur, dagkaupið 135.137
krónur, vikukaupið 945.959
krónurog mánaðartekjur þann-
ig 2.837.878 krónur.
Ef verkamaðurinn vinnur
svona þarf að taka með i reikn
inginn að eftir átta tima vinnu
koma tveir timar I eftirvinnu og
það sem eftir er sdlarhrjngsins
greiðist með nætur- og helgi-
dagakaupi. Þegar dæmið er
reiknað á þann hátt hefur
verkamaðurinn 4.480 krónur
fyrirdagvinnuna, 1.568 fyrireft-
irvinnuna (784 kr. pr. tima) og
14.112 fyrir nætur-og helgidaga-
vinnu (1.008 kr. pr. tima). Þetta
gera 20.160 krónur á sólarhring,
141.120 kr. á viku, 564.480 i mán-
aðarkaup og 6 milljónir 773 þús-
und 760 krónur á ári. Þannig er-
verkamaöurinn rúm fimm ár aö
vinna fyrir árslaunum Ingólfs
Guöbrandssonar ef hann vinnur
24 tíma á sólarhring 365 daga
ársins. Hér er aö vfsu reiknað
með 30 dögum f hverjum mán-
uði og ekki tekið tillit til löggilts
hvildartfma verkamannsins.
Það er þvi sannarlega margt
forvitnilegt sern f ljós.kemur,
þegar maður flettir skatt-
skránni. — hm
Ljótt að sjá
Þetta hús hefur verið ómálað
og lóðin vanhirt í 13 ár
Á sama tima og flestir
húseigendur i höfuð-
borginni eru önnum
kafnir við að snyrta hús
sin og umhverfi þeirra,
mála og dytta að görð-
um, eru aðrir, sem virð-
ast ekki hafa minnsta
áhuga á að eignir þeirra
verði þeim ekki til
skammar. Einn slikra
er eigandi hússins að
Hátúni 6 i Reykjavik, en
það hús er i einkaeign og
ibúðir þess leigðar út.
Myndin með fréttinni
var tekin i fyrradag, en
hefði i raun getað verið
tekin siðla árs 1964, þeg-
ar byggingu hússins
lauk. Á þessum þrettán
árum hefur nefnilega
litið sem ekkert verið
gert til að gæða húsið
einhverju lifi. Það hefur
ekki verið málað öll
þessi ár, og lóðin um-
hverfis það er i sama
ásigkomulagi og þegar
byggingu þess lauk.
mynd — GEK
Þegar Alþýðublaðið haföi sam-
band við skrifstofu borgarverk-
fræöings og spurði hvað ylli þvi,
að húseigendum einstakra húsa
leyföist að hafa hús sín dfrágeng-
in árum saman, meöan þeir sem
ný hús byggja eru skyldaðir til að
mála og ganga frá lóöum inr.an
ákveðins tima,var þvi svarað til,
aö fegrunarnefnd hefði ítrekað
skrifað eiganda hússins að Hátúni
6bréf og farið þess á leit, að hann
lagfærði húsiö og fegraði um-
hverfi þess. Þvi hefði hins vegar
ekki verið sinnt. Sá kostur væri að
visu fyrir hendi að borgin gerði
þetta á eigin kostnað og innheimti
það siöan, en borgaryfirvöld væru
ekkert hrifin af þvi að lenda i
sliku.
Hins vegar var blaðamanni
sagt, að liklega yrði bráðlega ráð-
in bót á þessu máli. Eigandi húss-
ins hefði sótt um leyfi til breyt-
inga á efstu hæðinni, og fengiö
það með þvi skilyrði, að hann
gengi fyrst frá húsi og lóð. Þannig
gæti fariö svo að þetta háhýsi
hætti að stinga vegfarendur eins i
augu og þaö hefur gert undanfar-
in ár.
— hm
Málsókn Sædýrasafnsins:
Skrifin hafa skaðað safnið
— segir Hörður Zophaníasson stjórnarformaður
Eins og blaðiö hefur skýrt frá
áöur, hefur Sædýrasafnið i
Hafnarfirði stefnt þeim Jórunni
Sörensen og Borgþóri Kærme-
sted fyrir niörandi og meiðandi
ummæli um safnið I skrifum
sinum, Borgþór sem frétta-
manni erlendra fjölmiöla á ts-
landi og Jórunni sem formanni
Sambands dýraverndunarfé-
laga á tslandi.
Alþýðublaðið náði I gær sam-
bandi við Hörö Zophaniasson
skólastjóra, stjórnarformann
Sædýrasafnsins, og spurði hann
nánar út i forsendu stefnanna.
Skaðlegt og ódrengi-
legt.
Höröur hefur verið á feröalagi
ogþvf ekkihægtað ná sambandi
viö hann fyrr.
Hörður sagði, aö stjórnin
heföitekiöákvörðun um aöleita
álits lögfræðings sins á greinum
Borgþórs I erlendum blöðum og
bréfum Jórunnar til erlendra
dýraverndunarsambands, og
stefna siöan ef lögfræðingnum
þætti það ráðlegt. Það sem gert
heföi útslagið á þetta heföi verið
frétt Borgþórs til Ritzau frétta-
stofunnar urrr, að þegar siðustú
ljónin komu til safnsins hefðu
þau verið veik, og bar Borgþór
þar fyrir sig Guöbrand Hliðar,
dýralækni, sem aftur á móti
kveöst aldrei hafa rætt við
Framhald á bls, 8.
alþýðu
blaðið
Seð: Smápistill, sem Græn-
jaxl laumaði að okkur, og
er á þessa leið: „Núna i
vikunni, þegar sólin gyllti
haf og hauöur heldur svona
myndarlega, varö mér
reikað meðfram Tjörninni.
Sá ég þá verkin tala,
hversu Reykvikingar eiga
sanna borgarstjórn. Það er
ekki einasta að staðið sé við
gefin loforð um grænu bylt-
inguna á þurrlendingu,
heldur er hún lika fram-
kvæmd i Tjörninni, — og
var nú slikt óþarfi fyrr en
þá réttfyrir næstu kosning-
ar, eða hafa það framtak á
næsta loforðalista. Varð ég
svo hrifinn af allri dásemd-
inni, að ég klúöraði saman
lofsöng á þessa leið:
Alltaf reynist ihaldið oss
vænt,
enda segist veröldina
laga.
Svo jörð og vatn, nú allt
erorðið grænt,
ólikt þvi er var I fyrri
daga.
*
Tekiö eftir: Albert Guð-
mundsson hefur sagt sig úr
stjórn Innkaupastofnunar
Reykjavikurborgar, og af
þvi tilefni gagnrýnt- ýmis
innkaup Bæjarútgeröar-
innar. A siöasta
borgarráðsfundi lét Alfreð
Þorsteinsson bóka eftirfar-
andi: „Vegna fundargerð-
ar BOR frá 13. júli, þar sem
rætter um væntanleg kaup
á 15 þúsund fiskikössum,
vil ég mótmæla þeim
vinnubrögðum BOR að
sniðganga reglur Inn-
kaupastofnunar Reykja-
vikurborgar, sem kveða á
um að stjórn Innkaupa-
stofnunarinnar taki á-
kvarðanir um kaup á vör-
um og þjónustu fyrir stofn-
anir og fyrirtæki Reykja-
víkurborgar. BOR er ekki
undanþegin reglum Inn-
kaupastofnunarinnar og
verður að vænta þess að
fyrirtækið lúti reglugerö
hennar, meðan ekki hefur
verið tekin ákvörðun um
annað.”
*
Tekið eftir: Að einhver
deila er risin vegna ráðn-
ingar f stöðu yfirlæknis lyf-
lækningadeildar Borgar-
spitalans. 1 siöustu fundar-
gerð borgarráös Reykja-
vlkur má lesa eftirfarandi:
„Lagt fram bréf Birgis
Guöjónssonar, læknis,
dags. 9. mai s.l., en mótt. i
dag, um meinta ólögmæta
ráðningu i stöðu yfirlæknis
lyflækningadeildar Borg-
arspitalans og kröfu um, að
ráðningin veröi felld úr
gildi. Visað til umsagnar
borgarlögmanns.”
wsm iim* j——