Alþýðublaðið - 19.08.1977, Qupperneq 2
2
Föstudagur 19. ágúst 1977 bSaSiö1
Sýningin HEIMILIÐ 77 hefst 26. ágúst:
Sýnt flest sem við-
kemur heimilishaldi
Undirbúningur fyrir 10. sýn-
ingu Kaupstefnunnar h/f er
kominn vel af staö og eftir helg-
ina munu sýnendur taka við
þeim sýningarbásum og -svæð-
um sem þeim hefur verið út-
hlutað. „Sýning Kaupstefnunn-
ar, Heimilið '77, tekur svo að
segja til alls sem til heimilis-
nota getur talizt og þar sýna nær
200 innlendir og erlendir aðilar
framleiðslu og/eða söluvöru
sina”, sagði Halldór Guð-
mundsson, blaöafulltrúi sýning-
arinnar, við Aiþýðublaðið i gær.
Sýningarsvæðið i ár er alls um
6.000 fermetrar, bæði úti og inni
i Laugardalshöliinni. Úti verða
t.d. sýndar 13 tegundir bila,
hjólhýsi og fleira. Einnig verður
Landssamband hjálparsveita
skáta með útisvæði. Er framlag
þess óbeint tengt meginefni sýn-
ingarinnar og að sögn mest ætl-
að til að skapa lif á svæðinu.
Munu skátarnir sýna hjálp i við-
lögum, verða með björgunar-
sýningar o.fl.
Inni i Höllinni verða tizkusýn-
ingar tvisvar-þvisvar dag
hvern, en þar verða einnig
margvisleg önnur skemmtiatr-
iði og þar verður og veitinga-
sala. Þá gilda aðgöngumiðar
gesta sem happdrættismiðar og
eru vinningar sagðir afar glæsi-
legir, en frá þeim verður samt
ekki skýrt fyrr en i næstu viku.
„Við teljum þetta kjörið tæki-
færi til vöru- og verðsaman-
burðar fyrir verzlunarfólk og ein-
staklinga. Þarna verður t.d.
kynningarverð á sumum vöru-
tegundum og sumt verður hægt
að kaupa á staðnum”, sagði
Halldór Guðmundsson.
Sýningin Heimilið '77 verður
opnuð kl. 15 föstudaginn 26.
ágúst og er opin daglega kl.
Þóra Baldursdóltir, á leiknistofu Gfsia B. Björnssonar, vinnur að
gerð auglýsingaspjalds fyrir sýninguna.
15-22, en um heigar er opið frá
kl. 13-22. Sýningunni Iýkur
sunnudaginn 11. september.
I sýningarstjórn eru eftirtald-
ir: Gisli B. Björnsson, Ragnar
Kjartansson, Haukur Björns-
son, og Bjarni Ólafsson, sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
sýningarinnar.
— ARH
Samnorræn myndlistarsýning:
„Augliti til auglitis”
að Kjarvalsstöðum
— góð sýning, — eða norræn ringulreið
Dagana 10. — 25. september
verður á Kjarvalsstöðum Nor-
ræna myndlistarsýningin „Aug-
liti til auglitis”. Sýningin kemur
hingað til lands á vegum Nor-
ræna myndlistarbandalagsins
og Félags islenzkra myndlistar-
manna, sem er aðili að banda-
laginu.
Allt frá árinu 1946 hefur Nor-
ræna myndlistarbandalagið
staðið fyrir meiri háttar sam-
sýningum myndlistarmanna frá
Norðurlöndunum fimm. Fyrst i
stað voru sýningar þessar
haldnar á hverju ári i höfuð-
borgum landanna, en siðan ann-
að hvert á til dæmis Bergen,
Gautaborg og Óðinsvéum.
Siðasta stóra samsýningin
var á Kjarvalsstöðum i tengsl-
um við Listahátíð 1972. Að henni
lokinni var ákveðið að fresta
sliku sýningarhaldi um sinn og
leita nýrra leiða.
Árið 1974 var ákveðið að sett
yrði saman ný norræn samsýn-
ing af nýrri gerð. Verkið var fal-
ið Staffan Gullberg, listfræðingi
i Stokkhólmi. Þessi sýning var
lengi i mótun. Gullberg, sem
var algjörlega einráður um
skipulagningu hennar, val
verka og höfunda, ferðaðist
milli landannafimmárin 1975 og
76 kynnti sér liststefnur sýning-
ar og höfunda. Hingaö til lands
kom hann tvivegis i þessu skyni.
Arangur starfs Gullbergs er
sýningin Augliti til auglitis.
Gullberg vill með samsetn-
ingu sýningarinnar sýna áhorf-
andanum myndlist og formmót-
un i viðara samhengi en tiðkast
hefur og vikur hann þá gjarnan
frá hinum sérfræðilegum sjón-
armiðum.
Sýning þessi hefur hlotið mjög
misjafna dóma, en islenzku
þátttakendurir eru yfirleitt lof-
aðir. Liklegast hefur sýningin
vakið einna mesta hrifninu i
Sviþjóð, en Danir eru ekki eins
uppverðraðir og i Politiken er
sýningunni lýst sem norrænni
ringulreið.
Þeir Islendingar sem eiga
verk á sýningunni eru Ágúst
Petersen, Hildur Hákonardótt-
ir, Hringur Jóhannesson, Öskar
Magnússon og Blómey Stefáns-
dóttir. ES
----
Dönsk sýning
íslands
Laugardaginn 20. september
n.k. verður opnuð sýning á
verkum danska listamannsins
Roberts Jacobsen i Listasafni
Islands.
A sýningunni verða 13 högg-
myndir, vatnslitamyndir og
grafik, eða alls 52 verk. Hér er
ekki um farandsýningu að ræða,
í listasafni
heldur er hún sérstaklega feng-
in til landsins og sett upp fyrir
Listasafn Islands.
Robert Jacobsen er fæddur 4.
janúar 1912. Hann hefur haldið
fjöldamargar sýningar, og er nú
vel þekktur, einkum fyrir högg-
myndir sinar. Jacobsen verður
viðstaddur opnun sýningarinn-
ar, sem er kl. 2 n.k. laugardag.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
11. september. —JSS
Kínverskar þjóðsögur á
íslenzku
Systir siðlokka heitir
litil bók, sem okkur
barst i gær. í henni eru
fimm kinverskar þjóð-
sögur, sem Guðrún
Guðjónsdóttir hefur
þýtt úr ensku, en Letur
gefur út.
Sögur þessar eru úr þjóð-
sagnasöfnum ýmissa minni-
hlutahópa i Kina og fylgir örlitill
bókarauki þar sem hópar þessir
eru kynntir i stuttu máli.
Myndirnar við sögurnar eru
eftir Chang Kuang-yu, en kápu-
mynd bókarinnar er gerð eftir
ofinni mynd af stúlku með lótus-
SYSTIR SÍÐLOKKA
5 Kínverskar þjóðsögur
Bókin er f’kiljubroti og fjöl-
rituð i Letri.
Hagnýt bók fyrir Spánarfara
Bókaútgáfan Búkolla
hefur nú sent frá sér aöra
bókina í bókaflokki þeim
um Spán og Spánverja#
sem Örnólfur Arnason
hefur saman sett. Bók
þessi nefnist ##Costa
Brava — Costa Bianca —
Mallorka— Ibiza. I fyrra
kom út bók í sama flokki
og nefndist hún #.Costa
Del Sol — Andalusia". I
haust er svo von á þriðju
bókinni í þessum bóka-
flokki og nefnist hún
Kanaríeyjar.
Höfundur bókanna, örnólfur
Arnason, hefur árum saman
dvalizt á Spánarströndum og
starfað sem leiðsögumaður
ferðafólks, sem þangað sækir.
Hann veit þvi af reynslu hvaða
spurningar þaö eru sem menn
vilja helzt fá svör við. 1 bókinni
er fjallað um land og þjóö, stikl-
að á stóru i sögu Spánar og siðan
eru staðháttalýsingar frá þeim
stöðum sem bókin fjallar um.
Einnig er i bókinni kafli sem
ber nafnið Hagnýt ferðafræöi og
er þar að finna margvislegar
hagnýtar upplýsingar fyrir til-
vonandi sólarlandafara.
Þá er i bókinni litið og þægi-
legt orðasafn islenzkt-spánskt
og spánskt-Islenzkt.
Bókin er 148 blaðsiöur að
stærð og i mjög þægilegu broti.
Bókin fæst i helztu bókaverzlun-
um i Reykjavik en einnig i út-
sölustöðum sólarlandaferða.
i
Vetrarstarf TBR að hefjast
Haust og vetrarstarfsemi
Tennis og Badmintonfélags
Reykjavikur fer nú senn að
hefjast. Æfingar i húsi T.B.R.
byrja 1. september, og er tima-
leiga þar hafin. Þeir sem áttu
fasta tima i húsinu i fyrra, eiga
forgang að sömu timum i vetur,
ef þeir greiða timaleigu og fé-
lagsgjald fyrir 20. ágúst n.k.
Eftir þann tlma verða lausir
timar leigðir öðrum. Tekið er á
móti greiðslum og pöntunum i
T.B.R. —húsinu alla virka daga
frá kl. 20 til kl. 22.
A undanförnum árum hafa fé-
lagsmenn oftkvartaö yfir þvi að
þurfa að greiða alla vallarleig-
una í einu, enda var oft um stór-
ar upphæðir að ræða. Nú er
mönnum gefinn kostur á að
greiða félagsgjaldið og helming
timaleigunnar þegar völlurinn
er tekinn á leigu, en hinn helm-
inginn geta menn greitt með
vixli, sem fellur i gjalddaga rétt
eftir áramótin. Vextir verða
reiknaðir2% á mánuði.
Til að bæta nýtingu hússins
verða timará bilinu frá kl. 13.00
til 17.10 leigðir út með 20% af-
slætti, en unglingar innan
T.B.R. geta fengið þá með 50%
afslætti.
Fyrir þá sem keppa aö stað-
aldri fyrir T.B.R. mun félagið
hafa samæfingar tvo tima á
þriöjudgs- og fimmtudags-
kvöldum, og einnig um helgar,
ef ekki eru mót. Þess er vænzt
að Garðar Alfonsson þjálfi
keppnisfólkið i þessum timum.
Einnig er hugsanlegt, að i viöbót
við þetta veröi valinn ákveöinn
hópur manna tilfrekari þjálfun-
ar, og mun sú þjálfun þá verða á
miðvikudögum, svo og um helg-
ar, þegar ekki eru mót. Aö sjálf-
sögðu er stefnt að þvl að hafa út-
halds- og þrekæfingar með I
dagskránni, en eftir er að tíma-
setja þær.
Unglingastarfsemin mun
einnig byrja strax i september.
Samæfingatimar unglinga
verða að öllum lfkindum á svip-
uðum timum og I fyrra, en eins
og að framan segir, geta þeir
einnig fengið einkatima á dag-
inn með 50% afslætti.
Félagið mun fá nokkra tima I
Laugardalshöllinni i vetur. Þeir
hefjast mun seinna en i T.B.R.
—húsinu, og hefur verð á þeim
timum þvi ekki verið ákveðið
enn.
Að lokum skal þess getið, að
þeirGarðar Alfonsson og Sigfús
Ægir Arnason munu verða um-
sjónarmenn T.B.R.—hússins i
vetur.