Alþýðublaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 — 58. árg. Ef bladid berst ekki kvartió til Alþýðublaðsins í sfma (91) 14900 Umbrotin um garð gengin — segir Axel Björnsson edlisfræóingur, sem spáir endurtekningu umbrota um næstu áramót — Mér þykir likleg- ast að umbrotin séu um garð gengin að þessu sinni. Gosvirknin er hætt og skjálftavirknin er i rénun. Þá virðist landsigið hafa hægt á sér og vera um það bil að stöðvast. — sagði Axei Björnsson eðlis- fræðingur i viðtali við Alþýðublaðið i gær, en hann var þá staddur i Reynihiið i Mývatns- sveit. Taldi Axel likur benda til að nú færi land að risa enn á ný og þvimættibúastvið að jarðhrær- ingar á svæöinu ættu eftir að endurtaka sig innan ekki mjög langs tima. Landsigá Kröflusvæðinu varö minna að þessu sinni en f um- brotunum i aprilmánuði siðast liðnum og af þeim sökum má vænta umbrota á svæöinu 'fyrr enella. Taldi Axel aö ef rishraði lands yrði meö svipuðum hætti og i undangengnum landrisum- mætti búast viö umbrotum þar nyrðra um næstu áramót. — Við höfum oft bent á —■ sagði Axel — að sú þróun sem átt hefur sér stað á svæðinu undanfarin tvö ár er nauðalik þvi sem átti sér stað I Mývatns- eldum, reyndar óvenju lik i ýmsum smáatriöum. Þannig má ætla að þróun hér á Kröfhi- svæðinu eigi eftir aö veröa eins nú og i Mývatnseldum f heild sinni. Það er að segja eiga eftir að standa jafn lengi og verða svipuð að ööru leyti. —GEK Sigurður Helgason um Sjálfstæóisflokkinn: „Völdin í höndum sérhagsmunahópa” i Alþýðublaðinu á laugar- daginn var birtist fyrri hiuti viðtals, er Oddur Sigur- jónsson, blaðamaður, átti viö Sigurö Heigason, hæsta- réttarlögmann, sem verið hefur einn helzti oddamaður Sjálf- stæöisflokksins um iangt árabil. 1 biaðinu I dag birtist svo siðari hluti viðtalsins, þar sem Siguröur er ómyrkur i máli. Hann segir m.a. i viðtalinu, aö stefna Sjálfstæðisflokksins sé á undanhaldi og völdin að mestu hjá sérhagsmunahópum. Um nú- verandi rikisstjórn segir hann: ,,Ég tel okkur vera að stefna efnahagslegu sjálfstæði okkar I fullkomna tvisýnu með óhóflegri skuldasöfnun erlendis og Evrópumeti i verðbólgu. Bágt er að sjá að mikil alvara fylgi, þegar menn eru að hamast á móti verð- bólgunni i orði, en stuðla að henni á borði... Samfara þrifst allskonar fjár- málaspilling og siaukin átök milli stétta.” Viðtalið við Sigurð er á bls. 3 i sunnudagsblaðinu. * " < Ágreiningur en ekki óvild „Þegar Alþýðuflokkurinn setti ákvæði um opin prófkjör um frambjóðendur til Alþingis- og sveitarstjórnarkosninga i lög sin voru ekki aöeins mörkuð timamót i sögu flokksins, heldur og i lýðræðislegu stjórnmálastarfi á Isiandi.” „Þessi ákvörðun er tvimælalaust i samræmi viö nútima- sjónarmið, sem eiga vaxandi fylgi að fagna, um nauðsyn auk- inna áhrifa kjósenda á skipan framboðslista.” „Meira en mánuður er þangað til að þvi kemur að ákvörðun verður tekin um framboð i Reykjavik. A þessu stigi málsins tel ég ekki timabært að gefa neina yfirlýsingu um afstöðu mina.” „Það citt get ég sagt, aö athafnir minar veröa miðaöar við þaö eitt að efla málstað jafnaðarstefnunnar á islandi og auka styrk Alþýðuflokksins.” Sjá viðtal við Gylfa Þ. Gfslason á BAKSIÐU Þá segir Sigurður á einum stað iviötalinu: „Aöur fyrr var lands- fundur Sjálfstæöisflokksins hald- inn til að marka stefnu og sam- ræma hin ýmsu sjónarmiö. Mér er ógleymanlegt hvernig þeir ólafur Thors og Bjarni Bene- diktsson náöu oft árangri i þvi, og gátu beinlinis lyft flokknum yfir ófrjótt dægurþras. Við fráfall þeirra hefur orðið mikil breyting til hins verra i flokknum”. Skemmdir á Kísiliðjunni svipadar og í apríl — segir framkvæmdastjóri verksmiðjunnar — I stuttu máli má segja að skemmdirnar hér í Kísiliðjunni séu mjög svipaðar þeim sem urðu í jarðhræringunum í aprílmánuði— sagði Þor- steinn óiafsson annar tveggja framkvæmda- stjóra Kísiliðjunnar í Mý- vatnssveit í samtali við Alþýðublaðið í gær. — 1 fyrsta lagi — sagði Þor- steinn — hefur ein þró verk- smiðjunnar skemmst, i öðru lagi hafa orðiö einhverjar minni háttar skemmdir á verk- smiðjunni sjálfri og i þriðja lagi hafa oröiö skemmdir á skrif- stofuhúsnæði talsvert umfram það sem varð I vor. Eins og þá, fóru I sundur vatnsleiðslur, simasamband rofnaöi, rafmagn i skrifstofuhúsnæöi rofnaði, auk þess sem taka varð niöur raf- magnslinuna til verksmiðjunn- ar, vegna þess hve hún var oröin strekkt. Siðast en ekki sizt missti fyrirtækið gufu frá Bjarnarflagsstöðinni. — Ekki sagðist Þorsteinn geta sagt til um með neinni ná- kvæmni hvenær reynt yrði aö hefja starfrækslu Kisiliðjunnar, en kapp yrði lagt á að það yrði sem fyrst. Ekki sagöist hann heldur geta gert sér grein fyrir hvað tjón Kisiliðjunnar væri mikið, enda væri vart hægt að áætla það fyrr en ljóst væri hvort þessi atburður komi til með að hafa truflandi áhrif á reksturinn i vetur. —GEK Lá vid sprengigosi í Bjarnarf lagi — Gjall kom upp úr einni borholunni Allar likur benda til, að Bjarnarflag hafi verið á mörkum þess að gjósa i umbrotum þeim sem urðu norður i Mývatnssveit i fyrri- nótt. I samtali við Valgarð Stefáns- son hjá Orkustofnun kom fram að ein borholan i Námafjalli hefur fallið saman og upp úr annari hefur likast til komið gjall. Að visu var þaö ekki endan- lega staöfest er blaðið ræddi við Valgarð siðdegis i gær, en allar likur bentu til að svo væri. Sagði Valgaröur aö ef það reyndist réttværienginn vafiá að svæðiö hefði verið á mörkum eldgoss. Og það sem meira væri, likast til hefði þar orðið sprengigos, en upp Ur þeirri holu sem hér um ræðir streymdi logandi gas á timabili i fyrrinótt. Holurnar i Námafjalli eru að sögn Valgarðs Stefánssonar um 1000 metra djúpar. GEK. Samið í Kópavogi I gærmorgun tókst sam- komulag milli bæjar- starfsmanna i Kópavogi og viðsemjenda þeirra um öll atriði aðal kjarasamnings fyrir utan launastigann sjálfan, en umræðum um laun var frestað. I gær- kvöldi átti siðan að skrifa undir samninginn. Eftir þvi sem Alþýðublaöiö hef- ur komizt næst eru þaö einkum tvö atriði sem þungt vega i þess- um nýja samningi, en það er ann- ars vegar, aö allir laugardagar eru teknir Ut úr sumarfrium og hins vegar að vaktaálag bæjar- starfsmanna hækkar úr 33.3% i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.