Alþýðublaðið - 29.11.1977, Side 8
8
Þriðjudagur 29. nóvember 1977 iK£r
F’rábœr
jokiglaðnintmr !
jCuxor,
lUsjóttvavp
(á fœii) að verðmœli kr. SSS fnis.
HLJÓMDEILD
i n i PJfflBl
DregiÖ 2ú.des.
Enn einu sinni9
ein gréidd smáauglýsing
ogþú átt vinningsvon
sim
VÍSIR
smáaugljjsingaltappdrœlli
AUGLÝSIÐ I ALÞÝÐUBLAÐINU
AUGLÝSINGASÍMINN ER 14900
..
Saga og þróun
Barnamúsikskóli Reykjavikur
er aö hefja sitt 25. starfsár þetta
haust. Af þvi tilefni, er þetta
ritað, í þeim tilgangi að upplýsa
almenning um starfsemi skólans,
tilgang hans og markmið, skipu-
lagsform og inntak.
Það var sem sagt fyrir 25 árum
að dr. Heinz Edelstein stofnaði
skólann. Hann óx upp úr barna-
deildum sem starfræktar höfðu
verið i Tónlistarskólanum i
Reykjavik allt frá striðsl^um.
Þegar skólinn varð sjálfstæð
stofnun, var hann fyrst rekinn á
vegum Reykjavikurborgar, en
seinna tók rikið þátt i rekstri
hans. Nú er hann rekinn eins og
aðrir tónlistarskólar í landinu
skv. lögum um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla frá 23.
mai 1975.
í haust var ákveðið að breyta
nafni skólans i Tónmenntaskóli
Reykjavikur. Astæður til þess
voru ýmsar, m.a. að orðið barna-
músikskóli er villandi að þvi leyti
að fólk gæti haldið að hér væri
verið að kenna og iðka barna-
músik en ekki „alvörumúsik”.
Akveðið var að nota orðið tón-
menntir (sem fleirtöluorð, sbr.
bókmenntir) sem uppistöðu i
nýrri nafngift, enda er sú grein i
grunnskólanum, sem áður nefnd-
ist söngur, nú köluð tónmennt.
Heinz Edelstein var skólastjóri
skólans til vors 1956. Eftir þann
tima stjórnuðu ýmsir skólanum,
dr. Róbert A. Ottósson lengst af,
en einnig Ingólfur Guðbrandsson
og Jón G. Þórarinsson. Stefán
Edelstein tók við sem skólastjóri
haustið 1962.
Skóiinn hefur yfirleitt verið i
húsnæðishraki alla sina tið. Hann
hefur verið starfræktur á ýmsum
stöðum i borginni, t.d. uppi á lofti
i Austurbæjarskólanum, i Vals-
heimilinu, i húsi Jóns Loftssonar
við Hringbraut, og i u.þ.b. 20 ár i
Iðnskólanum við Skólavörðuholt,
uppi á 5. hæð. Frá og með þessu
hausti hefur loks tekist að koma
skólanum fyrir i þvi sem mætti
nefna viðunandi húsnæði, nefni-
lega i gamla gagnfræðaskólanum
við Lindargötu, sem áður var
nefnt Franski spitalinn. Vegna
breytinga á skólakerfinu og
uppbyggingar fjölbrautaskólans
losnaði þetta húsnæði, og sýndu
borgaryfirvöld þvi skilning að
Tónmenntaskólinn flytti hingað
inn. Leigir skólinn nú þettá hús-
næði hjá borginni. Við litum á
þetta sem skemmtilega
„afmælisgjöf” til handa skól-
anum. Þetta er ágætlega
skemmtilegt, virðulegt og gamalt
hús og mikil bót fyrir okkur að
vera komin hingað. Samt má
segja að það sé ekki að öllu leyti
heppilegt. Það er nokkuð hljóð-
bært og börnin sem sækja skólann
þurfa mörg að fara yfirhættulega
umferðargötu, Hverfisgötuna.
Þótt nú sé mun rýmra um okkur
en áður, þurfum við samt að tak-
marka inntöku nýrra nemenda,
m.ö.o. enn komast færri að en
vilja.
Fyrir utan starfsemina hér
rekum við útibú í Fellahelli i
Breiðholti sem þjónustu við ibúa
þess hverfis. Það sparar
börnunum löng ferðalög.
Hlutverk og tilgangur
1. Tónmenntaskóli ReykjavfKur
er tónlistarskóli fyrir börn og
unglinga á grunnskólaaldri (6-
15 ára). Hlutverk skólans er að
veita nemendum sinum alhliða
tónlistarmenntun og stuðla á
þann hátt að bæði tónlistar-
menntun einstaklingsins og
tónlistarmenningu sam-
félagsins i heild.
2. Það er hlutverk skólans að
reyna ýmsar nýjungar i tón-
menntum. Þetta geta verið
nýjungar hvað varðar náms-
efni eða kennsluaðferðir nema
hvorttveggja sé. 1 þessum
skilningi er tónmenntaskólinn
tilraunaskóli.
3. Tónmenntaskólinn er einnig
æfingaskóli (að takmörkuðu
leyti) fyrir kennaraefni í Tón-
menntakennaradeild Tón-
listarskólans. Hann hefur
reyndar gegnt þessu hlutverki
lengiá pappirnumen mjög tak-
markað i raun. Hafa þrengsli
og aðstöðuleysi komið i veg
fyrir það. Nú verður hafist
handa við að bæta úr þessu.
Munu kennaranemar fá
aöstöðu til aö framkvæmda til-
raunakennslu og reyna ýmsar
nýjungar á sviði tónmennta,
bæði með yngri nemendum og
lengra komnum. Fyrir utan
þetta fá kennaranemar svo
tækifæri til æfingakennslu i
hinum ýmsu grunnskólum
borgarinnar eins og verið
hefur. Er sú æfingakennsla
undir umsjón ýmissa starfandi
tónmenntakennara.
Barnamúsíki
„Vid tr
listarná
þáttur í
menntu
— skólinn hefu
Tónlistarskóli
— forráðamem
semi skólans,
V——
Almennar upplýsingar
og skipulag
Nemendur eru teknir í skólann
á aldrinum 6-9 ára inn i hinar
mismunandi forskóladeildir. 1
undantekningartilfellum tökum
við einnig við 10 ára byrjendum. I
forskólanum er eingöngu um hóp-
kennsluað ræða, 10-15nemendur í
einu, og fá nemendur 2 ti'ma viku-
lega kennslu. Eftir að forskóla-
námi lýkur velja nemendur sér
hljóðfæri og fá tvo hálftima á
viku einkakennslu á þetta hljóö-
færi. Jafnframtþessuheldur hóp-
kennslan áfram með einni
kennslustund á viku. Kennt er á
pianó, fiðlu, selló, gitar, blokk-
flautu, þverflautu, klarinett,
saxófón og ýmis málmblásturs-
hljóðfæri.
Þegar nemendur eru farnir aö
kunna svolitið meira á sin hljóð-
færi, gefst þeim kostur á að iðka
kammermúsik, þ.e. samspil á
ýmis hljóðfæri. Allfjölmenn
hljómsveit er starfrækt fyrir
strengjaleikara og tréblásara auk
samspils á málmblásturshljóð-
færi (lúðrasveit). Auk þess er
starfræktur kór.
I skólanum eru f vetur rúmlega
400nemendur að meðtöldu Breið-
holtsútibúinu. Þessir nemendur