Alþýðublaðið - 10.12.1977, Síða 1

Alþýðublaðið - 10.12.1977, Síða 1
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 4. TBL. — 1977 — 5$. ARG. Ritstjórn blaðsins er til húsa í Sfðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 Hjalteyrareignir Landsbankans: Gengid að til- boðum ábúenda í jarðirnar ■■ — Ollum tilboðum í einstakar eignir hafnað Á fundi bankaráös Landsbankans# sem hald- inn var föstudaginn 2. des- ember síðastliöinn# var tekin afstaða til tilboöa sem gerö voru í jarðir Landsbankans við Hjatt- eyri. Á fundinum var ákveðið að ganga að tilboð- um sem núverandi ábú- endur jarðanna gerðu í þær. Þetta Staðfesti Stefán Pétursson lögfræðingur Landsbankans í viðtali við Alþýðublaðið í gær. Jarðir þær sem hér um ræðir nefnast Ytri-Bakki, Skriðuland og Bragholt og voru á sínum tima i eigu hlutaf élagsirts Kveldúlfs, en Seðlabankinn yfirtók þær fyrir nokkrum árum, svo sem frægt er orðið. Stefán Pétursson vildi ekki gefa upp hvert hefði verið söluverð jarðanna og vitnaði i þvi sam- bandi til þagnarskyldu sinnar gagnvart viðskiptavinum bank- ans. Ekki er blaðinu kunnugt um hvernig Landsbankinn hyggst standa að sölu þeirra eigna sem á jörðum þessum standa, en hins vegar hefur blaðið sannfrétt að öllum tilboðum i einstakar eignir hafi verið hafnað og munu bréf þar að lútandi sem óðast vera aö berast þeim er tilboð gerðu. Þar á meðal mun vera tilboð sem sveitarfélagið gerði i eignirnar i heild sinni, þvi mun einnig hafa verið hafnað. —GEK t gær voru rétt 10 ár liöin frá láti Haraldar Björnssonar, leikara, og af þvi tilefni var afhjúpuö brjóstmynd eftir Sigurjón Ólafsson, myndhöggvara, af Haraidi i Þjóðleikhúsinu. Ættingjar Har- aldar Björnssonar færöu Þjóöleikhúsinu styttuna til varöveizlu, en barnabarn hans afhjúpaöi hana. Vilhjálmur Þ. Gislason tók viö myndinni fyrir hönd Þjóöleikhússins. (Mynd: —ARH) Albert Guðmundsson um gjaldeyriseign sína í Frakklandi: Adeins vanalegar Mkommissjónir” — eins og gerast hlýtur hjá hverju fyrlrtæki ,,Mér fannst spurningin ástæðulaus og varla við- urkvæmileg," sagði Al- bert Guðmundsson í gær, þegar við spurðum hann nánar út i þau svör hans i þættinum „Spurt í þaula" í fyrrakvöld, að hann vildi hvorki játa né neita að hann ætti inni- stæður á frönskum banka. Albert Guðmundsson sagöi að hér ræddi einvörðungu um vanalegar kommissjónir, slikar sem hvert vanalegt fyrirtæki, sem i viðskiptum við útlönd ætti, hlyti að eiga þar. Hér ræddi þvi um fullkomlega eðli- lega viðskiptahætti og spurning- ar sem þessi hlytu að skoðast sem hnýsni um öörum óviðkom- andi einkamál, og tilraun til að gera sig og sin viöskipti eitthvað tortryggileg. „Ég er hreinskilinn maður,” sagði Albert, „og þessi háttur á viðskiptum tiðkast um allan heim. Hvað upphæðina varðar veit ég ekki einu sinni hver hún er, slikt brevtist sem eðlilegt er frá degi til 'dags.” — AM Hradfrystihúsanna Mótmælir tilllögum idnrekenda um frestun tolladgerda samkvæmt EFTA samningi Alþýðublaðinu hefur borist eftirfarandi frétta- tilkynning frá Sölumiðstöð Hraðf rystihúsanna: Fram hefur komið í fréttum að Félag íslenzkra iðnrekenda haf i gert tillög- ur til stjórnvalda um að- gerðir, sem m.a. fela í sér frestun tollahækkanna samkvæmt Eftasamningi, álagningu launaskatts á fiskveiðar og álagningu söluskatts á olíu til fiski- skipa o.ffl. Stjórn S.H. leyfir sér að mót- mæla framangreindum tillögum og öðrum er stefna i þá átt að iþyngja sjávarútvegi og fiskiðn aði. Þessar atvinnugreinar eiga nú við erfiðleika að striða og ber ■brýna nauðsyn til að treysta rekstrargrundvöll hraðfrysti- iðnaðarins i hvivetna. 3% hækkun Hækkun sú á land- búnaðarvörum, sem til framkvæmda kom fyrr i vikunni, var að meðaltali um 18%, að sögn Ásmundar Stefánssonar hagfræðings hjá Alþýðu- sambandi Islands. Þessi Þá varar fundurinn sérstaklega við þeirri hugmynd að reynt verði að fá frestun á tollalækkunum samkvæmt Efta-samningum, er Island er aðili að, þar sem að það hækkun þýðir sem næst 3% hækkun framfærslu- kostnaðar. Að sögn Ásmundar verður mestur hluti þessarar hækkunar ekki rakinn til kjarasamning- anna frá i sumar og kauphækk- ana samkvæmt þeim, heldur koma til utanaðkomandi hækk- gæti skaðað útflutningshagsmuni þjóðarinnar á veigamiklum mörkuðum i Evrópu, ef aðildar- riki EBE OG EFTA gripu til gagnráðstafana. anir á ýmsum rekstrarliðum bænda. Þetta þýðir, að sögn Asmundar, að um tveir þriðju landbúnaðarvöruhækkunar- innar verða bættir i visitöluút- reikningi sem kemur til fram- kvæmda 1. febrúar n.k., eða 2% af 3%. —hm Hafrannsókn- arstofnun: Skyndilokun á svædinu við utanvert Stranda- grunn Hafrannsóknarstofn- un hefur notað heimild sína til skyndilokunar fiskveiðisvæða, og var ein slík framkvæmd fyrir skömmu á svæðinu á utanverðu Stranda- grunni. Leiðangursmenn á r.s. Bjarna Sæmundssyni könnuðu þetta svæði nú fyrr i vikunni, og kom þá í Ijós, að hluti aflans var mjög smár fiskur. 1 gær gaf þvi Sjávarútvegs- ráðuneytiö út reglugerö sem bannar veiðar meö botn- og flotvörpu á þessu svæði sem afmarkast af eftirgreindum linum: Að norðan 67 26 N aðsunnan 67 07 N aðaustan 20 00 V aðvestan 20 40 V Gildir bannið til 15. janúar n.k. en Hafrannsóknarstofnun mun á þessu timabili kanna svæðið aftur og verður þá tek- in ákvörðun um hvort bannið verði framlengt, eða það num- ið úr gildi. —JSS ndbúnaðarafurða framfærslukostnaðar

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.