Alþýðublaðið - 10.12.1977, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 10.12.1977, Qupperneq 7
Laugardagur 10. desember 1977 Norræna húsid Fyrir- lestur um sænsk- an aðal Sænski listfræðingur- inn Allan Ellenius, pró- fessor i listasögu við Uppsala-háskóla, verð- ur gestur Norræna húss- ins 9.-15. desember, og flytur tvo fyrirlestra á sænsku um listfræðileg efni. Sunnudaginn 11. desember kl. 16:00segir hann frá hýbýlum aö- alsins á stdrveldistimum Sviþjóö- ar. Hér er um að ræöa sænska aö- alinn, sem komst til valda i Svi- þjóö i lok þrjátiu ára striösins. Hann komst yfir gifurleg auöæfi og auökenndi hina nýfengnu valdastöðu meö mikilli skraut- girni i háttum og hýbýlum. A stuttu timabili reis röð halla og slota umhverfis Malaren. Þau voru rikulega skreytt, og nokkur þeirra hafa varðveizt óbreytt fram á okkar dag, til dæmis Skok- loster. Allan Ellenius talar um þetta gnægðar-timabil i sænskri stilsögu, og sýnir litskyggnur frá höllunum. Miövikudaginn 14. desember kl. 20:30 talar Allan Ellenius um sænska málarann og myndhöggv- arann Torsten Renqvist, einn sér- stæðasta listamann Sviþjóðar um þessar mundir. Torsten Renqvist er fæddur 1924. Hann stundaöi listnám i Stokkhólmi, Kaup- mannahöfn og Lundúnum, og veittu um skeið forstöðu Valands listaskólanum við Gautaborg. Framan af fékkst hann einkum við að mála og teikna en á siðustu árum hefur hann nær eingöngu sniíið sér að höggmyndum og annarri myndmótun. Allan Ellenius skrifaði bók um Torsten Renqvist sem kom út hjá Bonniers 1964. Fyrirlestur sinn i Norræna húsinu nefnir hann: Torsten Renqvist humanist och konstnar. Kveikt á jóla- trénu á Aust- urvelli á sunnudag Sunnudaginn 11. desember verður kveikt á jólatrénu á Austurvelli. Tréð er að venju gjöf Oslóborgarbúa til Reyk- víkinga, en Oslóborg hef- ur i aldarfjórðung sýnt borgarbúum vinarhug með þessum hætti. Að þessu sinni hefst athöfnin við Austurvöll um kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar Reykjavikur. Forseti borgarstjórnar Oslo, Alberg Nordengen, mun afhenda tréð, en Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri, mun veita trénu viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Athöfninni lýkur með þvi, að Dómkórinn syngur jólasálma. Athygli er vakin á þvi, að eftir að kveikt hefur verið á jólatrénu verður barnaskemmtun við Austurvöll. Gestastjórnendur hafa veriö tiöir meö Lúörasveit Reykjavikur undanfarin tvö ár. Hér æfir Vestur- islendingurinn „Johnny” Asgeirsson sveitina fyrir hátiöartónleika i Þjóöleikhúsinu i fyrra. 27 ára Englending- ur ráðinn stjórnandi Lúðrasveitar R.vlkur Lúðrasveit Reykja- víkur boðaði til blaða- mannafundar að Hótel Borg í gær. Þar skýrði formaður sveitarinnar, Þorvaldur Steingrímsson frá þvi að nýr stjórnandi hefði verið ráðinn að sveitinni, Brian Carlile frá Englandi. Þessi nýi stjórnandi er aðeins 27 ára gamall en hefur langa reynslu að baki sem tónlistar- maður eigi að siður. Hann kom hingað til lands árið 1973 sem lágfiðluleikari i Sinfóniuhljóm- sveit Islands, en hafði áður farið viða um lönd til leiks með hljómsveitum, þ.á.m. til Sviss og Japan. Brian Garlile er, auk þess að strjúka strengi lágfiðl- unnar, afbragðs spilari á bassa- horn og auk þess alvanur lúðra- sveitarstjóri úr heimahögum sinum i Englandi, þar sem menn þeyta lúöra af hvað mestri list i heiminum. Þessi nýi stjórnandi hefur þegar tekið til við að æfa sveit- ina, en hún hafði verið stjórn- andalaus að mestu undanfarin tvö ár, utan hvaö gestastjórnendur komu aðhenni öðru hverju. A sunnudag verður leikið við tendrun jólatrésins á Austurvelli og um jólin við Landspitalann, en þar hefur Lúðrasveit Reykjavikur ekki látið sig vanta á þeirri hátið frá þvi spitalinn var byggður. Fyrstu útvarpstónleikar með Brian Carlile verða svo á gamlaársdag. A æfingum eru um 25—30 meðlima og lét Þorvaldur ósk i ljósi um að ungum mönnum tæki senn aðfjölga i röðum sveitarinnar. Elstur meðlima um þessar mundir er Magnús Sigurðsson, bassaleikari. Húsnæði LR, Hljómskálinn var endurbætt i sumar, þótt ekki væri fulllokið við allar nauðsyn- legar lagfæringar. AM LÁN Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands hefur . ákveðið að veita sjóðfélögum lán úr sjóðn- um i janúar n.k. Umsóknareyðublöð fást hjá formönnum aðildarfélaga sjóðsins og á skrifstofu hans að Egilsbraut 11, i Neskaupstað. Nauðsynlegt er að umsóknareyðublöðin séu fullkomlega fyllt út og að umbeðin gögn fylgi. Umsóknir um lán skulu hafa borist til skrifstofu sjóðsins fyrir 23. desember n.k. Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands. Margra grasa gætir meöal ieikfanganna i Völuskrini Sumargjöf tek- ur við rekstri Völuskríns i sumar festi Barna- vinafélagið Sumargjöf kaup á verzluninni Völu- skrín Laugavegi 27, sem hefur sérhæft sig í verzl- un með sérstaklega vaiin leikföng fyrir börn. For- stöðumaður verzlunar- innar er Margrét Páls- dóttir fóstra, og sér hún um innkaup og innflutn- ing og er til ráðuneytis i verzluninni. Það. sem verzlunin hefur á boðstólum eru valin leikföng fyriryngstu börnin, tréhringlur, mjúkir bangsar og dúkkur, bolt- ar, óróar og leikföng til að draga á eftir sér.Leikföng sem þjálfa formskyn og talnagildi, röðunarkubbar og púsluspil. Tréleikföng m.a. bilar, lestar, slagtré og formakassar, kritar- töflur, gönguhjól og gönguvagn- ar, rugguhestar, smiðaáhöld og vefstólar. Fyrir eldri börn fást leikföng til að gera tilraunir m.a. segul- og vatnstilraunir, minnisspil, athyglisspil, reikn- ingsspil og formaspil. Föndur- vörur fást og i verzluninni, svo sem leir, pappir, skæri, litir og litaduft og penslar. Með rekstri þessarar verzlunar vill Sumargjöf stuðla að þvi, að börn landsins fái i hendurnar góð leikföng, leik- föng sem þjóna uppeldislegum tilgangi og örva börnin til hollra leikja. ........... Kaupfélagsstjóri Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Hafnfirðinga er laust til umsóknar. Skrif- legar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist formanni félagsins Herði Zóphaniassyni eða Bald- vini Einarssyni starfsmannastjóra Sam- bandsins, sem gefa nánari upplýsingar, fyrir 20. þ. mánaðar. ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.