Alþýðublaðið - 23.12.1977, Blaðsíða 11
blaÍM Föstudagur 23. desember 1977
jólablaðII
Hann haföi litiö upp úr bókinni,
þegar hún gekk fram, og komst
ekki niöur i þráöinn aftur. Hann
hugleiddi aö kveikja á útvarp-
inu, en hætti viö i sömu hugsun.
Liklega ekkert nema jólakveöj-
ur.
Hann horföi á fluguna I
gluggakistunni og fannst andóf
hennar mun merkilegra.
Þau höföu aldrei gifst, aldrei
þurft aö réttlæta sig og raunar
aldrei talaö um hjónaband. Þaö
var ekki fyrr en siöustu mánuöi
sem honum haföi flogiö þetta i
hug. Fannst þaö ef til vill ekki
óvitlaust aö halda upp á f jörutiu
ára sambúö — næsta vor — meö
þvi aö minnast á þaö. Auövitaö
gat ekki af þvi oröiö, en hann
gæti minnst á þaö.
Hann hugleiddi hvort dauöinn
væri ef til vill einnig réttlæting.
Hvort hann væri upplifun.
Hún haföi kveikt á jólatrénu
strax um hádegi. Undir þvi voru
engir bögglar. Aöeins bómull og
glit. Þau höföu ekki gefiö jóla-
gjafir I átján ár.
Cohen söng: ,,to be his one, to
be his only bride”.
Hún kom inn meö teiö hans og
lagöi bakkann á gluggakistuna.
Flugan settist á brauösneiöina,
en hraktist þaöan þegar hún
færöi bollann og diskinn yfir á
boröiö.
Hún settist ekki aftur i stólinn
sinn, heldur fór aö taka saman
prjónana. Þau myndu boröa
snemma i kvöld.
Hún var enn gronn og bein.
Ofurlitiö stórskorin og ýtti frá
sér meö framsettum mjöömum
þegar hún gekk um. Fas hennar
einkenndist oftast af kæru-
leysislegu öryggi. Háriö var
bundiö i hnút. Munnurinn stór
og nefiö breiöur, ögrandi fjall-
garöur. Augun oftast gulgrá, en
skiptu litum ört og mikiö.
Hún gekk frá prjónadótinu i
fataskápnum og þótt hann
fylgdi henni ekki eftir vissi hann
aö þaö færi hægra megin á hill-
una yfir henginu. Þeim megin
sem fötin hennar héngu.
Hann dró góöa fótinn upp
undir boröiö. Þaö glamraöi i
bollanum þegar hann kippti
hendinni undan sænginni, en
hún virtist ekki taka eftir þvi.
Þegar hún fór fram var
hitasnerpan úr teinu. Hann
sötraöi þaö og þurrkaöi á eftir
sykurleöjuna úr bollanum meö
siöasta brauöbitanum. Hann
langaöi aö gefa henni ilmvatn.
Gegn um regniö grillti i ljós
hinum megin viö götuna. Dauft
ljós i glugga á bláum vegg.
Stundum efaöist hann um guö-
leysi sitt.
Hann horföi á veggteppiö og
óskaöi þess aö hún gæti haft
stofu.
Þegar þau voru búin aö boröa
lét hún loga áfram á kertunum.
Hún tróö i pipuna hans og visi-
• fingurinn minnti hann á fugl i
■búri. Þegar hún hallaöi sér yfir
kertisloga'nn mýktust andíits-.
drættir hennar og hann Tann til
skömmustu vegna óstyrks sins.
Honum gekk illa aö ná dampi á
pípuna, sem var of þétt troöin.
Hún haföi alltaf veriö óræö og
flókin. Þegar fyrstu nóttina
hafði hann séð hana i mörgum
hlutverkum. Þaö var þegar
hann sættist viö sjálfan sig.
Herbergiö hennar var rautt.
Veggirnir, fataskápurinn
gluggatjöldin, rúmteppiö, stóll-
inn, allt rautt. Þó var þar allt I
jafnvægi, einnig hann.
Hann sat á rúminu hennar og
reykti. Hún sat i stólnum 1
siöum, röndóttum náttkjól, meö
fæturna dregna undir sig.
Sherryglas i annarri hendi,
sigarettu i hinni. Lengst af var
hún reisnarleg og stolt. Virti
fyrir sér þessa einkaveröld
gegn um reykjarhulu. Svo trygg
og örugg I fastri lifsmynd, að
hann fann til öfundar.
Þótt áfengisviman væri rok-
in úr honum fann hann ekki til
feimni. Hann horföi, hlustaði og
dáðist að. Var lausara um mál
sjálfum en vanda bar til. Fann
til sterkra hvata gagnvart
henni, en óhlutbundinna.
Stundum fór hún langt fram
fyrir hann. Teymdi hann og
krafðist þess aö hann fylgdi
meö, útskýnngaiaust. Svo var
hún vis til aö bæla sig. Dragast
saman og veröa hrædd eitt
augnablik. Þaö var þegar hún
skildi ekki eitthvaö. Alltaf rétti
hún þó viö og varö aftur gyöja.
Þegar dagurinn lasddist svo aö
þeim sátu þau enn og könnuöu
hvort annað. Hann var I jafn-
vægi og fannst veröldin geta
beöið. Hann haföi fundið löngun
til aö koma hugrenningum sin-
um i orö, en ekki gert þaö. Þá
vissi hann ekki hvorum megin I
baráttunni hann stóö. Hann
haföi enda gert rétt, þvi nóttin
bar engan skaöa og lifiö ekki
heldur.
Svo þurfti hún aö fara til
vinnu.
Hann sofnaði meöan hún bar
fram diskana. Vaknaöi viö
skerandi sársauka i brjóstinu,
• leit upp, en sortnaöi fyrir aug-
um. Þegar aftur rofaöi til synti
herbergiö i rauöri móöu. Hann |
lokaöi laugunum.
Þaö var ekki fyrr en hann
fann kaldan krefjandi hnút I
náranum, aö hann áttaöi sig.
Hann fann til undrunar.
Sársaukinn haföi hjaðnaö nokk-
uö og hann fann ekki fyrir
þyngslunum i lömuðu hl nni.
En hann sá og heyröi.
Skyndilega var hann g
skelfingu. Gat skynjun veiio
bundin likamanum áfram?
Myndi hann sjá þar til honum
væru veittar nábjargirnar?
Heyra áfram eftir þaö. Heyra
þegar kistulokiö væri skrúfaö á
og þegar moldin skylli á þvi?
Hvar var hún? Hún varö aö
koma.
Hann reyndi aö kalla. Hann
fann kuldann breiðast um lik-
ama sinn og verkurinn ágeröist
aö nýju. Herbergiö fjarlægöist
og hann hrapaði hægt frá þvi.
Drottinn minn, hvaö honum
var kalt.
Drottinn? Guö var ekki til og
þá ekki Drottinn.
Hver var hún þá þessi vofa,
sem grúföi sig yfirhann? „Striö
er friður, frelsi þrældómur, fá-
fræöi styrkur”, sagöi hún. Þeir
byggöu vald sitt á sama grunni,
Guö og Stóri bróöir.
Skipti þaö máli? Hvaö gætu
þeir gert?
Honum létti og hann langaöi
til aö hlæja aö hugsunum sinum.
Hann var eins og barn sem spyr
hvernig hægt sé aö búa til guö og
svarar sér sjálft. Eyöileggur
Hfsmynd á einu veikleikaandar-
taki.
Hann varö aö finna lifsvilja.
Tregöu. Draga þetta þar til hún
kæmi. Þaö þurfti aö snúa plöt-
unni viö. Hann þurfti aö biöjast
afsökunar og var hræddur viö
að fara fram dimman ganginn.
Hún var hjá honum rétt áöur.
Aö troöa I pipuna hans.
Haföi hann sagt eitthvað og
sært hana? Eitthvaö um pipuna
sem var oft fast troöin. Eöa um
bollann sem ekki var hrært I?
Nei, hann mundi ekki til þess.
Hann haföi ekkert sagt.
Hann var ekki hræddur viö
dauöann. Hann þurfti ekki aö
biðjast afsökunar. Þaö var eitt-
hvaö sem hann þurfti að segja.
Þarna kom hún.
Af hverju sleppti hún bakkan-
um? Var þetta ekki hún?
Hún var komin i gamlan,
stuttan kjól. Hann sá teiö slett-
ast um hana meðan bakkinn
sveif hægt til gólfs. Bollinn fór i
boga frá henni og brotnaöi
hljóölaust. Hún var hrædd. Eins
og hún skildi ekki eitthvaö.
Hún bar barn á handleggnum.
Ungabarn. Barnið sem þau
höföu ekki eignast. Honum létti
viö að sjá barnið.
Hún kom alveg að rúminu.
Eins nálægt og hún komst. Hann
hrapaði áfram.
Hún teygöi handlegginn yfir
og tók um fingur hans. Hún var
köld. Kuidinn var aö fylla hann.
Sársaukinn lika.
Hann reyndi aö tala. Varö aö
segja eitthvaö. En þegar þaö
tókst var hann hrapaöur of langt
til aö hún heyrði.
Hann fann vonbrigöin ná tök-
um á sér. Andartak horföi hann
á tárvott andlit sem hann kom
ekki fyrir sig. Svo var ekkert
eftir nema undrunin.
Dauðinn var köld kynhvöt.
Um leið og Alþýðubankinn sendir lesendum blaðsins
jólakveðju vill hann minna á markmið sitt sem er að ef la
menningarlega og félagslega starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar og treysta atvinnuöryggi verkafólks.
Gleðileg jól.
At Alþýðubankinn hf.
Laugaveg 31 sími 28 700
SA«
V ... V
> r
WS
X (?) lcHb f£\\ (?)
t ^
*•> v
' > 't' r'
t f j
.V c
.C Kr$
: (?) I
.C ^y<t <
\ (
(I) í
.V í
.v ía c
r ws# c
fcv^ c
(?) \
c
> '*• r: \
c
(?):
^ <
?'\r$ c
(?) í
^A« C
■> r' \
Wv-i C
(?) \
C
?Arí c
c // / f
(|) |
y yí < / /' . /1111 .V
(?) i ' Óskam
11 saiwvircrcafólki
|\ f airc larcð allt
(|) | og öörairc
íl | Iarcðsircörcrcairc
i| Öíeöilegra jóla,
(?) ; ÓPS
Ji | oö friðap.
\r& c
^ ^ SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
4 (?)
) >"■■<-
> ?>\r<*
Í (?)
j WW
: >;•.<
3 >'•'<■
) ?>\r<$
l (?)
) $A<<
-v v v
) >V rr
) ?'\r<*
l (?)
j vyj
) 'r'\r<$
l (?)
\ f>\r^
$ (?)
| (?)
/
)
; >'*• fz
> m
' 'S V w
(?)
)
(?)
} ww
1(1)
)
) V/'X
f (?)
I ^A«
1 >i'*V
> '*' r'
-(*)
•» j 1 w » w w w w » w » w w w w w w w w w 1
yí o o /'■> yjv* /'-n «a« /'■—>
^ %Af<&- ?Af<£ 'sÁfSi ^Af^ /Af^