Alþýðublaðið - 17.01.1978, Side 1

Alþýðublaðið - 17.01.1978, Side 1
i ÞRIÐJUDAGUR 17JJANÚAR 13. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. I^H^EHIHIHHflSEIBHHHHI^HEHfllHaGHHHHHHMniHHBHI^KflHBHHMÍ^^M Jtitstjórn bladsins er til húsaí Sfdumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (9i) 81979 VIAa rekast menn á húsbóndalaus dýr sem annað hvort hafa víllzt frá forráða- mðnnum sínum/ eöa hreinlega verið hrakin út í hina miskunnarlausu veröld. Ljósmyndari blaðsins frétti af þessum hvolpum fyrir nokkrum dögum. Þeir eiga sér engan húsbónda. Ef einhver dýravinur vill taka þá að sér þá getur hann haft samband viðokkur hérna í ritstjórninni. AB — mynd KIE Samband málm- og skipasmidja: Fagnar málshöfdun á hendur sér! //Framhaldsþing Sam- bands málm- og skipa- smiðja fagnar þeirri ákvörðun ríkissaksóknara að höfða mál á hendur samtökunum fyrir útgáfu útsölutaxta fyrir timabilið júli-desember 1977", segir í ályktun framhaldsþingsins sem haldið var sl. laugar- dag 14. jan. Þess er getið að með málshöfðun þessari gefist samtökunum loksins tæki- færi til þess að fá hlutlaust mat dómsvalda á meðferð verðlagsyf irvalda á verð- ákvörðun útseldrar vinnu samkvæmt verðlagslögum og áðurgerðum kjara- samningum, svo og loforð- um stjórnvalda að taka til- lit til rekstrarkostnaðar fyrirtækjamálmiðnaðarins með hliðsjón af könnun sem gerð var að tilhlutan stjórnvalda árið 1976. 8-20% haekkun á brauðum — flugfargjöld og niðursoðnar fiskafurðir hækka einnig verulega Kristján Andrésson á skrifstofu verðlagsstjóra tjáði blaðinu í gær að tekið hefðu gildi nýjar verð- hækkanir á brauði og nið- ursoðnum fiskafurðum/ auk þess sem flutnings og fargjöld i innanlandsflugi hækkuðu nú um 10%. Þær hækkanir á niðursoönum fiskafurðum, sem hér um ræðir eiga við eins kilós dósir af fisk- bollum og fiskbúðingi, en bollurn- ar hækka úr 346 kr. dósin i 394 og búöingurinn úr 502 í 572 kr. Rúgbrauð hækkar (1500 gr.) úr 175 kr. i 190 kr. og maltbrauð (675 gr.) úr 85 kr. i 84 kr. Franskbrauð og heilhveitibrauð hækka loks úr 79 kr. i 96 kr. Þá hefur orðið 10% hækkun á flugfargjöldum og farmgjöldum með flugvélum og tók hún gildi i gær. Þessi hækkun á aðeins við innanlandsflug, en millilandaflug fylgir ákvæðum IATA. — AM. Nú geta allir talid rétt fram til skatts i dag eru i blaðinu leiðbeiningar rikisskatt- stjóra fyrir útfyllingu skattframtals. Leiðbein- ingar þessar eru mjög itarlegar, nálægt 4 sið- um i lesmáli, og ætti því engum að verða skota- skuld úr þvi að telja rétt fram i þetta sinn. Sjá bls. 7,8,9 og 10. Verkalýdsfélögin í Hafnarfirdi: Mótmæla afkastaskrán ingu hjá BÚH — framleiðslueftirlit segja forráöamenn BÚH ,/Nú hefur verið tekin upp sú tilhögun í fiskiðju- veri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, að skrá afköst starfsmanna og hafa verkalýðsfélögin her á staðnum mótmælt þeirri skráningu harð- lega", sagði Hallgrimur Pétursson, formaður verkamannafélagsins Hlifar í viðtali við AB í gær. Forsögu þessa máls kvað Hallgrimur þá að forráðamenn útgerðarinnar hafa verið þess mjög fýsandi að svokallaö á- kvæðisvinnufyrirkomulag, eða „bónuskerfi” yrði tekið upp i fiskiðjuverinu. Þegar frystihúsið rar opnað. eftir endurbætur uj fyrir jólin varð mestur hluti starfsmanna að sækja þar um vinnu á ný. Til þess fengu þeir þar til gerð eyðublöð. A blöðum þessum var meðal annars spurt um hvort menn vildu ákvæðisvinnufyrir- komulagið, eða ekki. Verka- lýösfélögih mótmæltu þessu og hvöttu félagsmenn sina til að svara ekki þessari spurningu. Forráðamenn félaganna álitu að þaö væri i verkahring félag- anna en ekki fyrirtækisins að kanna hugi verkafólks til vinnu- fyrirkomulagsins. 1 þvi skyni var haldin kynningarfundur um ákvæðisvinnu 3 janúar sl. A fundinum fór einnig fram at- kvæðagreiðsla meðal starfs- fólks fiskiðjuversins um hvort taká ætti upp hina nýju skipan. Að sögn Hallgrims greiddi mestur hluti verkafólks i fisk- iðjuverinu atkvæði. 43 sögðu nei, en 28 já, tveir seðlar voru auðir og einn ógildur. Hallgrimur sagði að forráða- menn bæjarútgerðarinnar hefðu enn fullan hug á þvi að koma ákvæðisvinnunni á. Teldi hann aö afkastaskráning sú er nú fer fram i fiskiðjuverinu sé til þess gerð að geta sýnt verkafólkinu hvað það hugsanlega hefði haft mikið upp hefði ákvæðisvinnan komið til. „Sráning þessi kemur harðast niöur á kvenfólkinu”, sagði Hallgrimur, „þvi það er auð- veldast að fylgjast með hverju þær afkasta. Hann sagði að verkalýðsfélögin i bænum stæðu einhuga saman i þessu máli og hefðu mótmælt sameiginlega. Aðspurður kvaðst hann ekki geta um það sagt til hvaða að- gerða verkalýðsfélögin kynnu að gripa önsuðu forráðamenn útgerðarinnar mótmælum i engu, ,,.... en maöur getur ekki endalaust staðið og mótmælt”, sagöi Hallgrimur að lokum. Framleiöslueftirlit segja forráðamenn BÚH „Þessi skráning er fram- leiðslueftirlit og stjórntæki af okkar hálfu, sem við teljum að rúmist innan marka samning- anna, sagði Guömundur Ingvarsson hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar i viðtali við AB. Aðspurður kvaðst Guð- mundur ekki álita að skráningu þessari hefði verið mótmælt viö sig. „Það hafa veriö gerðar um þetta fyrirspurnir”, sagði hann „en formleg mótmæli hafa ekki borist”. Guðmundur kvað þá forráða- menn útgerðarinnar ávallt hafa lýst þvi yfir, að þeirra skoðun væri aö fiskiðjuverið yrði rekið með ákvæðisvinnufy rir- komulagi, „en viö getum náttúrulega ekki haft áhfir á úr- slit atkvæðagreiðslunnar sem fór fram um daginn sagði hann aö lokum”. ES

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.