Alþýðublaðið - 17.01.1978, Blaðsíða 3
3
Þriðjudagur 17. janúar 1978
Bflar lækkuðu um 610 millj. í fyrra
— vegna lækkunar á flutnings- og uppskipunargjöldum
A siðasta ári voru
fluttir hingað til lands
um 8000 bilar, 25% til
40% lækkun á fiutnings-
og uppskipunargjöldum
hafa lækkað verð
þessara bíla um 610
milljónir króna. Þessi
upphæð hefur runnið
beint til kaupenda
bifreiðanna. Þetta kom
fram i ávarpi, sem Þórir
Jónsson, forstjóri, flutti,
er bflaflutningaskipið
Bifröst var kynnt fyrir
nokkru.
Hann sagöi orBrétt: „Má þaö
kallast góöur árangur meö til-
komu eins skips, sem kostaöi þó
ekki meiraen 340 milljónir krónaí'
Liklega hefur Þórir Jónsson átt
viö þaö, aö vegna væntanlegrar
samkeppni Bifrastar hafi önnur
skipafélög lækkaö flutningskostn-
aö á Wlum.
Hann gat þess, aö meö þessu
skipi opnuöust margir nýir mögu-
leikar. Til dæmis væri hægt aö
taka vörur i flutningavagna og
skila þeim til kaupanda, án nokk-
urrar umhleöslu. t þessu sam-
bandi sagöi hann:
,,Á hafnarsvæöi Reykjavikur
biöa vörur fyrir milljaröa króna.
Þar geymast þær misjafnlega
vel. Þetta kostar þjóöina og
neytandann mikiö. Hvaö ætli
neytandinn greiöi endanlega mik-
iö fyrir geymslu, vexti og til-
færslu á þeim vörum, sem Uggja
vikum eíia mánuöum saman, eöa
hver veröur aö greiöa fyrir þau
dýru mannvirki, sem reist eru til
aö hýsa þúsundir tonna af vör-
um? Þaö hlýtur aö vera neytand-
inn, sem endanlega greiöir fyrir
slikt. Er ekki ástæöa fyrir hiö
opinbera aö gera sér grein fyrir
þvi, aö kannski er hér um einn
stóran liö i veröbólguvandanum
aö ræöa.”
Sfldarárið 1977
Saltað í 152
þús. tunnur
Áætlað er að heildart-
flutningur Suðurlands-
sildar til Sovétríkjanna,
Finnlands, Svíþjóðar og
V-Þýzkalands nemi
100.000 tunnum um næstu
mánaðamót, en stefnt er
að því að fylla sölusamn-
ingana í næsta mánuði. I
siðustu viku fóru 5.000
tunnur til V-Þýzkalands
og 11.000 tunnur til Sví-
þjóðar, en í þessari viku
hefst lestun á 12.500 tunn-
um til Finnlands og 12.500
tunnum til Sovétrikjanna.
Enn einn farmurinn,
11.000 tunnur, fer svo i
flutningaskip áleiðis til
Svíþjóöar um mánaða-
mótin.
Langmest saltað á
Hornafirði
Langmest sfldarsöltun á ver-
tiöinni var hjá Fiskimjölsverk-
smiöju Hornafjaröar, eöa 27.600
tunnur — allt reknetasild. Hjá
Stemmu h/f á Höfn i Hornafiröi
var saltaö i tæplega 9.000 tunn-
ur, hjá Vinnslustööinni h/f i
Vestmannaeyjum var saltaö i
8.600 tunnur og hjá Pólarsild h/f
á Fáskrúösfiröi var saltaö i
8.300 tunnur.
Samtals var saltaö i 152.086
tunnur á siöasta ári, þar af
hringnótasild i tæplega 92.000
tunnur. Þetta er mikil aukning i
söltun frá þvl árin áöur. 1976 var
saltaö i 124.000 tunnur og 1975 i
94.500 tunnur.
Sjálfstæðisflokkurinn
Ákvörðun tekin
um prófkjörsdag
vegna borgar-
sfjómarkosninga
í kvöld
I kvöld munu meðlimir
fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins koma saman á
fund og ákveða hvaða dag
prófkjör þeirra vegna
borgarstjórnarkosninga
mun fara fram, að sögn
Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar.
Akveöiö mun aö prófkjöriö fari
fram i mars, og senn mun von á
aö augiýst veröi eftir frambjóö-
endum.
Aöþýöublaöiö spuröi Vilhjálm
hvenær vænta mætti þess aö birt-
ur yröi framboöslisti flokksins I
Reykjavik, vegna alþingiskosn-
inga, og áleit Vilhjálmur aö þaö
yröi nú I byrjun febrúar, en fram-
boöslistinn þarf þó aö fara fyrir
almennan flokksráösfund, áöur
en hann veröur birtur.
— AM.
Rannsóknarstörf
Rannsóknastofnun iðnaðarins óskar að
ráða rannsóknamann við efnarannsóknir
o.fl.
Upplýsingar um starfið eru gefnar i sima
85400, umsóknir sendist Rannsóknastofn-
un iðnaðarins, Keldnaholti, 110, Reykja-
vik.
j 1» -
1 M
enskan
kemur sér víöa vel
í Bréfaskólanum getur þú lært ensku, bæöi ritmál og talmál, og fylgja þá
snældur (kassettur) námsefninu. Einnig getur þú lært dönsku, sænsku og
þýsku í rólegheitum heima hjá þér, auk frönsku, spænsku. ítölsku,
rússnesku og esperanto.
Þar fyrir utan býöst þér m.a. kennsla í bók -
færslu og vélritun, ásamt siglingafræði. Hún
dugar þér til prófs, sem veitir skipstjórnar -
réttindi á skip allt aö 30 tonnum aö stærö.
Hringdu í síma 81255 og láttu innrita þig strax.
Bréfaskólinn
Suóurlandsbraut 32. 105 Reykjavik. Simi 812 55.