Alþýðublaðið - 17.01.1978, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 17.01.1978, Blaðsíða 16
alþýöu- blaöíó Útgefandi Alþýðuflokkurinn Kit§tjórn Alþýðublaösins er að Sfðumúla 11, sfmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Áskriftarsimi 14900. ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1978 í- Umbrotin í Mývatnssveit: Kvikuhlaupið um 50 millj. rúmmetrar — næst mesta landssig sem orðið hefur síðan 1975 i landsskjálftum þeim sem átt hafa sér staö norður í Mývatnssveit undanfarna sólarhringa hafa hvorki meira né minna en 50 milljón rúm- metrar af neöanjarðar- hraunkviku verið að siga til norðurs og er talið full- víst að kvikan hafi náð allt norður í Kelduhverfi. Þetta kom fram i við- tali við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing i gær, en hann var þá staddur á skjálftavaktinni í Mý- vatnssveit. Sagði Páll að þessi tala sem reiknuð er út frá heildar land- sigi á svæðinu væri ekki hárná- kvæm, en taldi hana gefa nokk- uð góða hugmynd um hve mikið magn væri að ræða. Stórum landskjálftum hefur fækkað mikið i Kelduhverfi og eru þeir nú trúlega hjáliðnir, en siðasti verulegi skjálftinn sem þar kom var um klukkan 1 aðfararnótt s.l. sunnudags. Sið- an þá hefur verið nokkur skjálftavirkni fyrir sunnan byggðina i Kelduhverfi, eru það allt litlir skjálftar en margir. Ekki kvaðst Páll geta sagt til um hvort goshætta væri liðin hjá að þessu sinni þar nyrðra, enda væri kvikuhlaupið ekki fyllilega afstaðið. Taldi hann landsigið geta haldið áfram nokkra daga til viðbótar, en hvað þá tæki við væri ógerlegt að segja um með neinni vissu. Ekki væri þó óliklegt að eftir jafn mikið sig og nú hefur átt sér stað kæmi nokkuð langt rólegt timabil. — Landsigið sem staðið hefur yfir undanfarið, sagði Páll, brú- ar bæði i eiginlegri og óeigin- legri merkingu, bil, sem hefur verið á milli fyrsta landsigsins sem hér varð um áramótin 1975- 76 og þeirra sem siðar urðu. Fyrsta landsigið mældist „mest” að vöxtum og mátti þá rekja upptök skjálfta allt norður i Axarfjörð. Skjálftar sem komu i kjölfar siðari umbrota, áttu hins vegar upptök sin miklu sunnar. — — Landsigið sem nú virðist i rénun er skv. mælingum næst „mesta” sigið sem hér hefur oröið og eru upptök skjálfta að þessu sinni sunnar en upptök skjálfta sem fylgdu i kjölfar fyrsta sigsins, en norðar en upp- tök skjálfta sem fylgdu siðari umbrotum. — GEK. Dropa-menn segjast ekki hafa talað við Þjóðviljamenn Alþýðublaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýs- ing: Vegna greinar i 3. tbl. Þjóðviljans, á öftustu siðu, frá 5. janúar 1978 með yf ir- skriftinni „Ég er svo ARRÍ", svo og i sambandi við grein Svarthöfða í 5. tbl. Visis, á bls. 2, frá 6. janúar 1978, viljum við undirritaðir hluthafar i Dropa hf. taka fram að enginn okkar hefur átt samtal við Þjóðviljann um málefni fyrirtækisins. •Reykjavik 13. janúar 1978. Guðmundur Gíslason, Emanúel Morthens, Alfreð Eliasson, Þórhallur Þorláksson, Sigurður Árnason. Haukur Heiðar er stjórnarformaóur Dropans h.f. lÆs er svo ARRÍ sagði meðeigandi hans, sem hringdi i Þióðyiliann í gœr mót tugtunarhúsi sakaður um i fjármálamisferli. Fiskirækt og byggií skrá [Mótfframboð í Pagsbrún: Brytur í bága við lög félagsins - frambjóðendum veittur frestur til að kippa hlutunum í lag í ljós hefur komið að mótframboðið til stjórn- arkjörs i Verkamanna- félaginu Dagsbrún er ekki samkvæmt lögum félagsins og hefur kjör- stjórn veitt aðstandend- um framboðslistans frest til kl. 5 i dag til að gera nauðsynlega bragarbót á listanum. t framboðið vantar upp- stillingu i 100 manna trúnaðarmannaráð, auk 20 varamanna og þvi til viðbótar tilnefningu í stjórnir sjóða Dags- brúnar. Kjörstjórn, sem ákvaðá sunnu- daginn að veita „sprengi-listan- um” frest til þess að ganga frá framboðsmálunum, kannaði það áður hvort stjórn Dagsbrúnar og trúnaðarmannaráð heföi eitthvað við frestinn að athuga. Mun svo ekki hafa veriö. Kosningin um nýja stjórn í Dagsbrún verður n.k. laugardag og sunnudag, 21. og 22. janáar. Guðmundur Oddsson. Pálmi Stelngrimsson. ElnarLong Slguroddsson. Steingrlmnr Steingrlmsson. Rannveig Guðmundsdóttir. Bælarstjómarkosningarnar í Kópavogi Frambod til prófkjörs Alþýduflokksins Kjörstjórn við framboð til prófkjörs Alþýðuf lokks- ins í næstkomandi bæjar- stjórnarkosningum í Kópa- vogi, lagði fram á félags- fundi í fyrradag staðfest- an kjörlista. Kosið verður um f jögur efstu sæti á list- anum dagana 28. og 29. janúar. Þessi gefa kost á sér 1 prófkjör- ið: Guðmundur Oddsson, yfirkennari i 1. sæti. Pálmi Steingrimsson, verkamað- ur, i 1. og 2. sæti. Rannveig Guðmundsdóttir, hús- móðir i 2. sæti. Steingrimur Steingrimsson, iðn- verkamaður i 2. og 3. sæti. Einar Long Siguroddsson, kenn- ari, i 4. sæti. Siöar veröur auglýst hér i blað- inu um kjörstaði og tima hvern kjördag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.