Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 3
stssr Fimmtudagur 16. febrúar 1978 3 Aukning í útflutningi ullar- og skinnavara: Sovét keypti ÍOO tonn af ullartreflum 1977! Útflutningur ullar- og skinnavara jókst á síðasta ári um 42%, miðað við fyrra ár> en i fyrra setdust vörur úr þessum flokki fyrir 4.577 milljónir króna. I verðmætum er þessi aukning 67%, en í magni um 30%. Aukning þessi er að mestu í tilbúnum fatn- aði. Samkvæmt upplýsingum frá tJtflutningsmiöstöö iönaöarins munar hér mest um söiu á ullar- treflum, sem var nýjung á árinu 1977, en þá keyptu Sovétmenn hvorki meira né minna en 90-100 tonn af íslenzkum treflum! Sovét- menn keyptu meira en helming útflutts fatnaöar áriö 1977, en á vestrænan markaö fór hins vegar dýrari, meira hönnuð og Iburöar- / meiri vara, þannig aö fyrir 61 tonn fæst svipaö verö á vestræn- um markaði og fyrir 112 tonn I Sovét, eöa rétt innan viö 400 millj. króna. Ef litiöer á útflutning ullarvara til einstakra landa kemur I ljós aö mesta aukningin hefur orðið til Bandarlkjanna. Af lopa og bandi var flutt til Bandarlkjanna 1977 80 tonn, en áriö 1976 var magniö 49 tonn. Verömætaaukningin milli ára er 54 millj. Bandarlkin keyptu einnig mun meira af prjónavör- um nú en i fyrra og nemur aukn- ingin 31.2 tonnum, en verömæta- aukningin er 293 millj. kr. Þá juku Kanadamenn innkaup sín á full- unnum prjónavörum á síöasta ári og tvöfaldaðist verömætiö miöaö við 1976. Slæmt útlit í Sovét Sæmkvæmt upplýsingum Otflutningsmiðstöövar iönaöar- ins er markaðsástand á yfir- standandi ári gott, a.m.k. hvaö varöar vestræna markaði. Hins vegar er markaösútlit I Sovétrlkj- unum ekki eins gott. Sovétmenn leggja áherzlu á samningagerö fyrir áramót, en af ástæöum sem getiö var hér á undan reyndist ekki unnt aö semja verð viö þá. Þannig hefur dýrmætur fram- leiöslutimi fariö forgöröum, en einmitt I janúar og febrúar hafa prjónastofur helzt óskaö aö fram- leiöa fyrir þennan markaö. Aö lokum skal þess getiö aö út- flutningur forsútaöra og loösút- aðra skinna drógst nokkuö saman áriö 1977, miöaö við fyrra ár. Aöalástæöa þess var sú aö miklar birgðir voru til I landinu af fram- leiðslunni 1975, sem gera töluna fyrir árið 1976 óeölilega háa. Sé miðað viö verömætaaukningu pr. kg., hefur hún orðið 19% á milli ára. Fundur til stuönmgs Málfrelsissjódi Næstkomandi sunnudag þ. 19. þ.m. mun efnt til fundar í Háskólabiói kl. 14, fundur þessi er haldinn til stuðnings Málfrelsissjóði. Markmið tilveru sjóðsins er að: „Standa vörð um rétt einstaklinga í þjóðfél- aginu til þess að ræða opin- berlega um þau mál sem varða almannaheill, og listræna tjáningu, án þess að þurfa að óttast f járútlát vegna málaferla. Þannig að þó menn þurfi að leggja út fé að uppkveðnum dómi, sé til sjóður sem viðkom- andi getur leitað til", sagði Guðrún Þorgrímsdóttir þá er blaðam. innti hana frétta i gær. Guðrún er starfsmaður sjóðsins, jafnframt þvi sem hún tekur þátt i starfi undir- búningsnefndar fundarins á sunnudag. A dagskrá fundarins veröa ávarp Thors Vilhjálmssonar, ræöa Siguröar A. Magnússonar og tónlist munu flytja Spilverk þjóöanna og Strokkvartetinn Reykjavik Ensamble. Auk þess er um að ræða leikþátt og hluta úr leikriti Svövu Jakobsdóttur, Æskuvinir. Leikþátturinn sem saminn er af Kjartani Gunnars- syni og stýrt af Stefáni Baldurs- syni,kallast 51. stjarnan. Guörún Þorgrlmsdóttir kvaö hér vafa- laust átt vib tengsl tslands og Bandarikjanna og hvaö gerzt gæti, yrðu þau tengsl of náin. Leikrit Svövu, Æskuvinir, sagði Guörún vera bráðsnjallt og marga hafa álitiö það beinast gegn Vörðu landi, þá er það var sýnt hjá Leikfélagi Reykjavikur i fyrravetur. Höfuðmarkmiö fundarins áleit Gurðrún aö sjálfsögðu vera fjár- söfnunina fyrir hönd sjóösins, nú þegar hafa safnast um tvær milljónir króna og gerðu menn sér vonir um að fundarmenn létu ekki á sér standa hvað söfnunina áhrærir, en bættu rtflega I sjóö- inn. Sjóðstjórn, en I henni sitja Jóhann Hannesson menntaskólá- kennari, Jónas Jónsson ritstjóri, Thor Vilhjálmsson forsetiBanda- lags Isl. listam., Páll Skúlason prófessor auk Silviu Aöalsteins- dóttur, hafa þegar borizt umsókn- ir um fjárveitingu úr sjóðnum. Stjórnin mun brátt taka ákvörðun um styrkveitingu til umsækjenda isamræmi viö reglur sjóðsins. Og mun nánari frétta að vænta af þvi á næstunni. Aö lokum sagöi Guðrún undir- búningsnefnd fundarins á sunnu- dag, en hana skipa ýmist áhuga- fólk um málefnið, leggja fram vinnu sina án endurgjalds mál- frelsi til stuönings, sem og þeir er fram koma á fundinum. 5 í próf kjör á ísafirdi I fyrradag rann út fram- boðsfrestur vegna próf- kjörs Alþýðuflokksins fyr- ir bæjarstjórnarkosningar á isafirði, sem fer fram 26. þessa mánaðar. Fimm gáfu kost á sér í prófkjör- ið, 3 í 1. sæti, 1 í 2. sæti og 1 i 3. sæti. Prófkjör fer þvi fram um skip- an efsta sætis listans. Þar verða I framboði Marias Þ. Guömunds- son, framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóös Vestfjarða, Kjartan Frh. á 10. slöu 40 ára afmælishátíð Alþýðuflokks- félags Reykjavíkur Alþýðuflokksfélag Reykjavikur efnir til afmælishátiðar i tilefni af 40 ára afmæli félagsins. Alþýðu- fiokksfólk i Reykjavik er hvatt til að fjölmenna á þessa hátiðar- samkomu, sem haldin verður i Þórscafé sunnudaginn 26. febrúar n.k. og hefst kl. 3.15 e.h. Fjöl- breytt skemmtiatriði — kaffi- drykkja. Miðar verða seldir á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, sima 2-92-44. Miðaverð 1.000.- krónur. Stjórn AlþýðufIokksféIags Reykjavíkur Fjölmennur baráttu- fundur Alþýðuf lokks- ins á Eyrarbakka Frambjóðendur Alþýðu- flokksins í Suðurlandskjör- dæmi efndu til fundar á Eyrarbakka í fyrrakvöld. Þar töluðu efstu menn listans, þeir Magnús Magnússon, Ágúst Einars- son, Erlingur Ævar Jóns- son og Hreinn Erlendsson. Auk þeirra töluðu Kjartan Jóhannsson og Árni Gunn- arsson. Fundarstjóri var Vigfús Jónsson. Þrátt fyrir þaö, aö hinir visu landsfeður deildu i útvarpi á fundartima, er langt slöan að svo fjölmennur stjórnmálafundur hefur verið haldinn á Eyrar- bakka. Til dæmis var eftirtektar- vert hve margt ungt fólk sótti fundinn. Að framsöguræðum loknum voru bornar fram fjölmargar fyr- irspurnir, og ræddu menn hér- aðsmál og landsmál. Vikið var að rafmagnsmálum, skólamálúm, útgerö, en áhugi manna beindist þó einkum aö brú yfir Olfusárósa, sem einu brýnasta hagsmuna- máli byggðarinnar. - Fundurinn stóö I nær þrjár klukkustundir og var ljóst, aö mikill baráttuhugur er i Alþýöu- flokksmönnum á Suðurlandi og að fjölmargir nýir liðsmenn eru komnir I raöir þeirra. Rekstri vörubifreiða stef nt í tvísýnu Landssamband vörubifreiöa- stjóra hefur sent frá sér yfirlýs- ingu þar sem mótmælt er hækkun diselskatts af bifreiöum sem og hækkun mælagjalds, hækkunin nemur 82,6%. Landssambandið fer þess eindregið á leit viö fjár- málaráðuneytið aö hækkanir þessar veröi teknar til endurskoö- unar þar eð þær ógni starfsgrund- velli vörubilstjóra. Hér sé um aö ræöa óhóflega skattlagningu sem lendi meö fullum þunga á vöru- bifreiðastjórum. I rauninni megi segja að vörubifreiðaeigendur séu lagöir I einelti af hálfu rikis- valdsins meö óhóflegum gjald- tökum og þvíngunaraðgerðum i formi vaxtalausra vinnulána, um sömu mundir og atvinnuleysis gæti i æ rikara mæli meðal þeirra. Þaö er vert athygli aö hækkun ofangreindra gjalda sé rlflega tvöfalt meiri en almennar verð- hækkanir á siöasta ári. Aðför ríkisstjórnarinnar að verkalýðshreyfingunni Verkalýðsmálanefnd Alþýðuf lokksins boðar til ráð- stefnu um verkalýðsmál i Iðnó, uppi, klukkan 10 f.h. laugardaginn 18. þessa mánaðar. Björn Jónsson, forseti ASI og ritari Alþýðuflokks- ins, og Haukur Helgason, skólastjóri, f jalla um að- för rikisstjórnarinnar að verkalýðshreyfingunni. Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, og Kjartan Jóhannsson, varaformaður f lokksins, ræða stefnu Alþýðuflokksins i efnahagsmálurti. Allir, sem áhuga hafa á verkalýðsmálum, eru vel- komnir á þessa ráðstefnu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.