Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.02.1978, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 16. febrúar 1978 „Það eru fleiri en ein Krafla í landinu” Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurðs- son. Aðsetur ritstjórnar er I Siðumúla 11, sfmi 81866. Kvöldsími fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötú 10 — slmi 14906. Askriftar- og kvartanaslmi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftaverð 1500krónur á mánuði og 80 krónur I lausasölu. i útvarpsumræðunum í fyrrakvöld benti Bene- dikt Gröndal, formaður Alþýðuf lokksins, á nokk- ur úrræði í efnahagsmál- um, sem nauðsynlegt væri að fara eftir ,,og því fyrr því betra." ,,Það verður að gera meiriháttar endurbætur á rikisf jármálunum. Það dugar ekki að safna skuldum hjá Seðlabank- anum, eins og ríkisstjórn- in hefur gert. Hún hefur látið bankann prenta 15 milljarða af verðlausum seðlum og notað til að greiða ríkisútgjöld", sagði Benedikt. Hann kvað þetta oliu á eld verð- bólgu. Það mætti draga saman með því að endur- skoða lögbundin ríkisút- gjöld, sem væru alltof mikil. Til dæmis væru lögboðnir stórfelldir styrkir til að auka land- búnaðarframleiðslu, þótt offramleiðsla væri fyrir. ,,Það verður að koma skattaumbótum í verk, afnema skattsvikin, skatthlunnindin og allt það misrétti. Og það á að taka upp núllgrunns f jár- lagagerð, spyrja hvort fjárveiting sé nauðsyn- leg, en ekki: hve miklu haf i verið veitttil málsins i fyrra." Benedikt sagði, að það yrði að koma fótunum undir verðjöf nunarsjóði útf lutningsatvinnuveg- anna og láta þá gegna hlutverki sínu, safna fé í góðæri til að nota mögru árin. Allt gengi þetta öf- ugt hjá núverandi stjórn. Þá sagði Benedikt Gröndal: „Þaðverður að koma skipan á fjár- festingarmálin. Við verð- um að hætta að moka milljörðum i óarðbæra fjárfestingu. Það eru f leiri en ein Kraf la í land- inu. Þær eru víða til, flestar þó á höfuðborgar- svæðinu. Það er til dæmis ein í Hlíðunum, stórt og mikið skrifstof uhús, sem tryggingaf élag hefur reist fyrir fé hinna tryggðu. Skammt frá er verið að hefja smiði á mesta háhýsi á landinu, Húsi verzlunarinnar, þar sem meðal annars eru festir peningar, sem lág- launafólkið í Verzlunar- mannafélaginu á í líf- eyrissjóði sínum. Það eru mýmörg dæmi um þetta, þótt meira en nóg verzlunar- og skrifstofu- húsnæði sé á svæðinu. I stað Kröf lustefnunnar verður að koma fastmót- uð heildarstef na um útlán og fjárfestingu til að fjariægja einn versta verðbólguvaldinn". Þá vék Benedikt Grön- dal að nauðsyn þess að koma á stéttasáttmála, föstu samstarfi og sam- komulagi ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins um launastefnu, mörk hennar og jöfnun tekna. Þessu hefði ríkisstjórnin nú forklúðrað um sinn og væri það mikið tjón. Benedikt sagði, að tími væri til þess kominn að endurskoða velferðar- kerf i þjóðarinnar, allt frá grunni. Hann bað menn taka eftir því, að það væri Alþýðuf lokkurinn, sem benti á þessa stað- reynd. Tryggingakerf ið byggðist á 40 ára gömlum aðstæðum, sjúkra- tryggingakerfið væri að sprengja af sér öll bönd. Takmark Alþýðuf lokks- ins á þessu sviði væri óbreytt: að hjálpa þeim sem væru hjálpar þurfi, veita öllum öryggi frá vöggu til grafar og flytja til tekjur í þjóðfélaginu. En aðferðirnar yrðu að fylgja tímanum. Að lokum sagði for- maður Alþýðuf lokksins, að hefja yrði markvissa baráttu til að styrkja sið- ferðiskennd þjóðarinnar, þurrka út ef nahagsaf brot frá skattsvikum til fjár- svika, þurrka út sér- réttindi og hygli kerf isins og gera allt þjóðfélag okkar réttlátara og mannlegra. Þetta væri veigamikill þáttur í bar- áttu okkar gegn efna- hagsvandanum. Þá sagði hann: ,,Ef okkur tekst sóknin gegn verðbólgunni eftir þess- um leiðum, er ég sann- f ærður um að ef tir 3—4 ár verður kominn tími til að skipta um mynt, leggja niður verðbólgukrónuna, sem flýtur á vatni, og taka upp nýja, verðmeiri og betri krónu." — AG— UB YWISUM attum____________ ...þeir fornir ritstjórar Tímans Hvaða hlutverki á leiðari dag- blaðs að gegna? Þessi spurning áreitti mig eftir að hafa lesið leiðara Timans 14. feb. s.l. A leiðarinn að vera upplýs- andi eða villandi? Fræðandi eða ruglandi? Hvetjandi eða lýj- andi? Sannur eða loginn? Draumsýn eða veruleiki? Það fyrsta sem „snart” mig i leiðara Timans var þessi setn- ing: Það er vissulega öðruvlsi umhorfs á íslandi um þessar mundir en fyrir hálfri annarri öld (!). Þetta haföi mig reyndar lengi grunað, en ekki fyrr haft spurn- ir af manni islenzkum á lifi i dag sem uppi var á þeim tima, en sizt ber að rengja þá gamla rit- stjóra Timans i þessu tilliti, þvi þeir eru vissulega af léttasta skeiöi. Timaritstjórinn heldur áfram: Islendingar búa um þessar mundir við betri kjör en langflestar aðrar þjóðir. Slðustu árin hafa þeir verið I hópi ör- fárra þjóða, sem ekki hafa búið við stórfellt atvinnuleysi. Þessi „siðustu ár” eru nokkuð á reiki. Þegar svo gamlir menn sem ritstjórar Timans eiga i hlut, getur hæglega veriö um að ræða timabilið frá 1828 — 1833. En það væri sannanlega fengur að þvi, ef ritstjórar Timans vildu draga upp kistla sina þá gömlu frá þessum árum og vita hvort ekki mætti grafa fram heimildir frá þvi er þeir vóru á léttasta skeiði. Vera má að rit- stjórar hafi borið ofan i skinn sér til hægri vika og upp á seinni timann tölur um atvinnu- leysi i Sauðlauksdal á þvi harða ári átján hundruð þrjú og þrjá- tiu? Er bert ef fyndist hversu fengur það væri i dag „frá fyrstu hendi”. Mætti skoða sér i lagi frá þvi vonda ári átján hundruð þrjú og þrjátiu hvorir burtköliuðust fleiri af atvinnu- leysi ellegar fitu á búkinn. Talnameistari gæti svo saman borið ár nitján hundruð átta og sjötiu, en fita á búkinn er á þvi ári hvað skæðastur vægestur. Afram upplýsa þeir fornu rit- stjórar Timans: Framfarir i landbúnaði hafa orðið miklar! Sannlega er það trú min að hér megi þeir gamlir ritstjórar Timans gerst um kenna. Og vist er um það að nú eru komnar til þágu landbúnaðar stórvirkar sláttumaskinur á borð við það sem notaðar eru við erlendar lántökur. Eins hefur nú á „sið- ustu árum” verið horfið frá þvi ráði að hlaða múr úr grjóti og svita er um lúki tún bænda. Væri gaman ef þeir fornir rit- stjórar Timans myndu hvenær sá siður varð almennur á þvisa landi. Þá segja aldnir ritbelgir Tim- ans: Sú mynd sem hér hefur verið dregin upp hefði ekki getað orð- ið veruleiki, ef tslandi heföi ekki á margan hátt verið vel stjórnaö á þeim tima sem liðinn er siðan Jónas Hallgrimsson orti hið fagra kvæði sitt. „Unguiri’ mönnum til skemmtunar væri rétt að þeir gamlir ritstjórar Timans lýstu Jónasi þá hannt orti kvæði var hann vel saddur og við skál, kannski? Eða aura- laus? Það getur verið, Jónas var stundum auralaus. Enn segja þeir fróðir ritstjór- ar Timans: Langsamlega mestar hafa framfarirnar oröið siðustu ára- tugina og þá aldrei meiri en á áttunda árarugi aldarinnar, sem er að liða. Þarna erum við komnir yfir á tuttugustu öldina. Það var alveg kominn timi til þess að drepa litillega á þá öld þótt óöld hafi verið. Sá galli er þó á þeim fögn- uði að i þann mund er leiðari Timans svo gott sem búinn, en þess þó getið að stjórn lands- mála á tuttugustu öld hafi lengst af verið sæmileg. Og eru þær eftirtekjur ekki nema sæmileg- ar og varla það. Undir leiðaranum er svo einn stafur tvitekinn forn og islenzk- ur eins og von er til hjá þeim traustum og margreyndum rit- stjórum Timans. Úr verður þvi skammstöfunin Þ.Þ. Það er sannarlega skiljanlegt að mál- gagn Framsóknarflokksins i Reykjavik skuli 'heita „Tim- inn”. örn Bjarnason. ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.