Alþýðublaðið - 09.03.1978, Side 1

Alþýðublaðið - 09.03.1978, Side 1
 Alþýdusamband íslands: Laun skert umfram það sem kjaraskerdingarlögin til um! Kaupfyrir 49.6333 næturvinnutima (eða igildi þeirra) skv. sömu heimild: 49.6333x1.159= kr. 57.525. MANAÐARTEKJUR SAMTALS: K. 169.000. Þar af vegna verðbóta: Dagvinna: 1/3 ’78 skv. kaupgjaldsskrá VSt 111.475 kr. 1/12 ’77 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ. 105.840 kr. Mismunur 5.635 kr. Næturvinna: 1/3 ’78 skv. kaupgjaldsskrá VSl 1159 kr. 1/12 ’77 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ 1100 kr. Mismunur 59 kr. 59 x 49.6333 = kr. 2.928. VERÐBÆTUR SAMTALS KR: 8.563. Lágmarksverðbætur skv. 2. gr. kjaraskerðingarlaganna: 880 x 10.64 = kr. 9.363. SKERÐING UMFRAM LAGASKERÐINGU KR: 800 á mánuði. M I Ð A S T V I Ð HEILDARLAUN Samkvæmt lögunum og reglu- gerðinni miðast veröbæturnar við heildarlaun launafólks, m.ö.o. allar aðrar launatekjur en dag- vinnutekjur, t.d. yfirvinnu, næt- urvinnu, vaktaálag bónusgreiöslur, ákvæðisgreiðslur og hvers konar álög og kaupauka. Þetta þýðir það, að vikukaupsfólk verður að biða i heilan mánuö eftir verðbótaaukanum sinum, þegar búið er að reikna út t.d. yfirvinnu, vaktaálög o.s.frv. fyrir mánuðinn! I reglugeröinni eru birtar töflur yfir kaup og verðbótaauka, miðað við mánaöarkaup og vikukaup. Verðbótaauki til þeirra sem fengu krónutöluverðbætur á timabilinu 1. des. 1977 til 28. feb. 1978 eru kr. 5898 fyrir heildarmánaðarkaup kr. 78-78999 krónur. Fyrir hverjar þúsund kr. sem kaupið hækkar, lækkar verðbótaaukinn um 65 kr. og þegar kaupiö er komið i 137- 137.999 kr., er hann oröinn 65 kr. og siöan ekkert þar fyrir ofan. A sama hátt geta menn reiknað út frá vikukaupi: fyrir kr. 18-18249 er veröbótaaukinn kr. 1363 og lækkar siðan um 16 kr. þar til kaupið er komiö f 39-39249, þá er verðbótaaukinn 2 kr. og eftir þaö enginn. Þá er að lokum að telja verðbótaviðauka til þeirra sem fengu prósentuveröbætur á tíma- bilinu 1. des. 1977 til 28. feb. 1978, miðast við heildarmánaðarkaup 1. marz-31. mai 1978. Ef kaupiö er 89-89.999 kr., eru verðbætur 4867 kr., síðan lækka þær um 50 -51 kr. fyrir hvert þúsund sem kaup hækkar. ES/ARH — rikisstjómin seildist dýpra í vasa launafólks Ríkisstjórnin gerir það ekki endasleppt. Til viðbót- ar við kjaraskeröingarlög- in, sem samþykkt voru á dögunum hefur nú verið gefin út reglugerð um verðbótarviðauka, sem að sögn hagfræðings Alþýðu- sambands Islands gengur lengra í átt til kjaraskerð- ingar en lögin og er þvi brot á þeim. Samkvæmt frétt sem fylgdi reglugerðinni frá forsætisráðuneytinu, var þess getið að tilgangurinn með útgáfu hennar væri hvorki meiri né minni en sá, að tryggja þeim sem hafa lág laun, auknar verðbætur á kaup. Reglu- gerðin er samkvæmt frétt forsætisráðuneytisins sam- in á kontórum fjár- málaráðuneytisins í sam- ráði við aðra „sérfróða að- ila" eins og það er svo snyrtilega orðað. Snorri Jónsson, varafor- seti ASI, sagði í viðtali við blaðið í gær að talsmenn launafólks hefðu tjáð stjórnvöldum að þeir treystu sér ekki til að taka þótt í samningu reglugerð- arinnar, eins og til var mælzt. Snorri vísaði til 2. greinar kjaraskerðingar- laganna, sem hann sagði að væri svo botnlaus að ekkert sé hægt á henni að byggja. En nú hefur reglugerðin, afkvæmi f jármálaráðu- neytisins,sem sé litið dags- ins Ijós. Samkvæmt út- reikningum hagfræðings ASI skerðir hún laun lág- launafólks umfram það sem ákveðið var í kjara- skerðingarlögunum. Sem dæmi má nefna, að í 5. grein reglugerðarinnar segir að launþegi sem búi við verðbótakerfi ASI og nái 169 þúsund krónum i heildarmánaðarlaun eftir 1. marz 1978 fái ekki svo- kallaðan verðbótaviðauka. Launþegi sem var í lægsta launaflokki ASI fyrir 1. marz 1978 skaðast umfram það sem lögin gera ráð fyrir um 800 krónur á mán- uði, sé farið eftir þessu ákvæði reglugerðarinnar. Þessu til sönnunar hafa hagfræðingar ASI sett upp eftirfarandi dæmi: Dæmi: Lægsti taxti iönverkafólks 1. marz 1978. skv. kaupgjaldsskrá VSÍ nr. 35: Kr. 111.475. Málflutningur í Jörgensenmálinu eftir nokkrar vikur „Ég á von á að nokkrar vikur líði enn, áður en flutningur gæti hafist i Jörgensen-málinu," sagði Halldór Þorbjörns- son yfirsakadómari, í viðtali við blaðið i gær, en þó mun senn mega eiga von á að til einhverra tið- inda taki að draga í þessu eldforna máli. Blaðamaður spuröi Halldór hvort margar þær upphæöir, sem um hefði verið að ræöa I upphafi væru ekki orðnar harla litlar eftir svo langan tima og kvaðst Halldór aö visu ekki geta neitaöþvi. Hinsvegar væri á það að lita að þetta mál snerist minna um fjármuni, hér væri fyrst og fremst um refsimál að ræða, og sem slikt væri þaö jafn ungt og i upphafinu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.