Alþýðublaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 7
œsr Fimmtudagur 9. marz 1978 7' i deyr fólk í eldsvoda? glugga — hann gerði hvorugt. Hann hafði fengið kolomonxyd eitrun og gat ekki hugsað rökrétt. Bólstruð húsgögn, rúmfatnaður o.þ.h. brenna hægt og ,,ófull- komnum” bruna. f fullkomnum bruna myndast koldioxyd, en við ófullkominn bruna kolmonoxyd, sem er eiturgas. Brunahætta af raf- inagni. Það er ekki eingöngu eldur sem getur orsakað brunasár, heldur lika rafmagn. Þvi miður eru það börn sem oftast verða fyrir slik- um slysum. Nokkur dæmi, geta sýnt fram á þetta: Maður einn ætlaði að hita vatn i hraðsuðu- katli. Istungan var fyrir ofan eld- hús vinnuborð og snúran á katlin- um varrúmlega einsmeterslöng. Þegar vatnið sauð, tók hann ketil- inn i burtu og lét snúruna, sem var ennþá i sambandi hanga. Litla barnið hans setti snúruna i munninn og brenndi sig illa. Eins og mynd númer 1 sýnir hefði verið nægilegt að hafa snúr- una 40 centimetra langa. Það er áriðandi að kenna öllum, börnum og fullorðnum, að aldrei má láta snúruna hanga meðan hún er i sambandi. Það er nauðsynlegt að taka snúrur strax úr sambandi eftir notkun og leggja þær þar sem börn ná ekki til. Til að taka annað dæmi getum við bentá að margar istungur eru nálægt gólfi og auðvelt fyrir börn ketilsnúrur og ratmagnssnúrur fyrir heimíiistæki eru óþarflega >m þegar vel er hægt að komast að með 60 sm langar snúrur. Ef irur myndi það vafalaust geta komið i veg fyrir mörg hver slys- i eða hluta snúra er hanga niður af eldhúsborðum. hans og rúllaði inn á milli baks og sætis. Þegar maðurinn vaknaði fann hann brunalykt og sá að reykur kom úr sófanum. Reyndi hann að kæfa eldinn. Hélt hann að honum hefði tekist að slökkva eldinn og fór þvi inn i svefnher- bergi sem var innangengt i frá stofunni og lagði sig til svefns. Seinna vaknaði hann og fann brunalykt. Sófinn var aftur byrjaður að brenna i stofunni. Maðurinn hefði getað komist út, en gat ekki ákveðið hvað hann skyldi gera, hlaupa út gegnum brennandi stofuna, eða brjóta Þessi mynd sýnir hvernig öryggishlff hefur verið komið fyrir i innstungu. Með þvi að nota öryggishlif má koma f veg fyrir að smá- börn fari sér að voða með þvi t.d. að pota rafmagnsleiðandi hlutum i innstungur. aðsetja vir eða annað þviumlikt i samband. Til þess að koma i veg fyrir slikt gerist er hægt að fá fyrir litinn pening öryggislok fyr- ir innstungur eins og myndir okk- ar númer 2 og 3 sýna. Þá er lokað fyrir rafmagnið með plast klóm sem ekkert barn getur losað eða tekið út. öryggislok eru til i tveimur gerðum fyrir istungur með jarðtengingu, eða án. Húsbyggjendur ættu að hafa i huga að það er hægt að fá istung- ur með innbyggðu loki, sem ekki er hægt að nota nema með til þess gerðri kló. Frá Félagi gæzlumanna: Gæzlumenn á ferðamanna stöðum vilja samningsrétt — fjarri sarmgirni að atvinnurekandi geti ákvarðað kjör starfsfólks einhliða Hinn 12. febr. sl. birtist i dagblöðum auglýsing frá Ferðafélagi Islands og Nátturuverndarráði. Þar er óskað eftir um- sóknum um gæslustörf á nokkrum stöðum utan byggða. Fjöldi gæslu- manna mun hafa sótt um þessi störf, nær 100 manns. Félagi gæslu- manna þykir ástæða til að kynna öllu þessu fólki og öðrum sem áhuga hafa á, sitthvað er varðar gæslu- störfin og einnig starf- semi félagsins, einkum það sem að kjaramálum lýtur. Hér verður þó að stikla á stóru, og er fyllsta ástæða til að æskja þess að þeir sem ætla að ráða sig sem nýliðar í gæslustörf hafi samband við forustumenn Félags gæslumanna til að fá nánari upplýsingar. Félag gæslumanna var stofnað 9. nóv. 1976. I þvi eru nær undantekningalaust allir þeir sem gegndu gæslustörfum fyrir Náttúruverndarráð eða Ferðafélag Islands sl. sumar, auk fáeinna stofnfélaga sem ekki störfuðu að gæslu i fyrra. Hér er um aö ræða gæslumenn á eftirtöldum stöðum: Hveravöll- um, Kerlingafjöllum, Veiði- vötnum, Nýjadal, Landmanna- laugum, Þórsmörk, Skaftafelli, Herðubreiðarlindum, Mývatns- sveit og Jökulsárgljúfrum. Fé- lagsmenn eru nú 20. Aðild að fé- laginu er samkvæmt lögum þess ekki bundin starfi á vegum F.I. eða Náttúruverndarráðs, og væri æskilegt að þeir sem vinna svipuð störf á vegum annarra aðila gangi i það, eða a.m.k. kynni sér hvort þeir eiga þar ekki heima. Það er m.a. tilgangur Félags gæslumanna og hefur verið frá stofnun þess, að vinna að hags- munum félagsmanna, vera for- svarsaðili þeirra út á við, þ.á m. að semja um kaup og kjör. Þessu hlutverki hefur félagið reynt að gegna af fremsta megni. Leiddi sú viðleitni til þess á sl. ári að nokkrar leið- réttingar fengust á kjörum gæslumanna (greiðslur i lifeyr- issjóð, fæðispeningar, yfir- vinnugreiðslur að nokkru) án þess þó að nokkrir kjarasamn- ingar fengjust gerðir. Nú i vetur hefur Félag gæslu- manna gert drög að starfslýs- ingu fyrir gæslumenn, og fylgir kafli úr þvi plaggi með þessari greinargerð til þess að menn geti áttað sig á þvi i hverju störf gæslumanna eru fólgin. Astæð- ur eru til að ætla að sumir þeir sem eftir þessum störfum sækj- ast, haldi að þar sé um að ræða hálfgildings sumarfri. Reynslan mundi þó fljótt sanna þeim annaö. Tilgangur félagsins með starfslýsingunni var m.a. sá að leggja grundvöll að sanngjörn- um kjarabótum. Félagið hefur óskað eftir þvi bæði við fulltrúa F.I. og framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs að ná sam- komulagi um starfslýsinguna. Nokkrar viðræður hafa farið fram, en er enn ólokið. Hinn 28. febr. sl. áttu fulltrúar Félags gæslumanna viðræðu- fund með deildarstjóra i launa- deild fjármálaráðuneytisins og framkvæmdastjórum Náttúru- verndarráðs og F.I. um kjör gæslumanna. Aður hafði F.g. sett fram kröfur sinar, m.a. um hækkun fastra launa, um hækk- un á yfirvinnugreiðslum (m.a. vegna vinnu um helgar) og um viðurkenningu á bakvakt. Af hálfu ráðuneytisins var lýst yfir þvi að á engan hátt yrði samiö eða gert samkomulag við félag- ið, einungis hlustað á kröfur og rök, siðan mundi ráðuneytið ákvarða kjörin einhliða. Ekki var ljóst hvort ráðuneytið vildi i nokkru atriði ganga til móts við Vinnuaðstaða og vinnuálag Þó að unnt sé að koma við nokkurri vaktaskiptingu á flestum gæslustöðvum, verða allir gæslumenn að vera við þvi búnir að taka til starfa hvenær sem er sólarhringsins. Matar- og kaffitimar eru óreglulegir, svo og allar fri- stundir. Fastir fridagar eru engir. Einka- og fjölskyldulif þeirra truflast mjög af starfserli og gestanauð. Iveruherbergi þeirra eða bústaðir eru i miðri hringiðu ferðamannastraums- ins. Aðstaðan er þó að þessu leyti mun betri i þjóðgörðunum en í skálum F.I. Menntun hæfileikar, starfsþjálfun Gæslumaður þarf að hafa samskipti við mikinn fjölda kröfur gæslumanna. Að sjálfsögðu eru gæslu- menn ekki ánægðir með þessi úrslit, þvi að enginn annar aðili en félag þeirra er eða telur sér skylt að semja fyrir þeirra hönd. Og fjarri sanngirni er það að atvinnurek- andi geti ákvarðað kjör starfs- fólks sins einhliða, þar sem stéttarfélag er starfandi. Fyrr eða siðar munu gæslumenn fá þau sjálfsögðu mannréttindi sem samningsrétturinn er. Flestir þeirra gæslumanna sem að störfum voru i fyrra fólks af margvislegum toga. Reynir það á mannþekkingu, lipurð i umgengni, reglufestu og hæfileika til að taka skjótar ákvarðanir við ólikar kringum- stæður. Hann verður iðulega að hafa afskipti af reglugerðar- og laga- brotum og vera viðbúinn að stilla til friðar meðal óróa- seggja fjarri lögregluaðstoð. Almennt má segja að gæslu- maður þurfi að vera vel á sig kominn andlega og likamlega. Starfsmenntun hans hlýtur að fela i sér eftirfarandi þætti: 1. Að vera vel mæltur og sæmi- lega ritfær á islenska tungu. 2. Að vera sæmilega talandi og skrifandi á eitt norðurlanda- mál og ensku. 3. Að hafa aflað sér þekkingar um land og þjóð, sem ferða- mönnum gæti verið til upp- fyrir Náttúruverndarráð og F.l. hafa nú sótt sameiginlega um sömu störf með þeim fyrirvara ,,að samkomulag verði að hafa náðst um kaup og kjör milli Fé- lags gæslumanna annars vegar og Ferðafélags Islands og Náttúruverndarráðs hins vegar, áður en við ráðum okkur i störf.” i stjórn Félags gæslumanna: Finnur Torfi Hjörleifsson (form.). s. 40281, Sigriður lngólfsdóttir, s. 32855, Tryggvi Jakobsson, s. 19972. byggingar og leiðbeiningar. 1 þessu felst m.a. að kynna góð- ar ferðavenjur og vara viö hættum. Aherslu ber að leggja á að gæslumaður hafi staðgóða þekkingu á náttúru- fari i umhverfi gæslustaðar, jarðsögu, dýra- og plöntulifi. 4. Að kunna skil á lögum og reglugerðum um náttúru- vernd. 5. Að hafa fengið þjálfun i hjálp i viðlögum- 6. Að geta skipulagt og stjórnað leit' að týndum mönnum; kunna að fara með ýmis öryggistæki, s.s. áttavita, landabréf, talstöðvar o.fl. 7. Að kunna undirstöðuatriði bókhalds. 8. Að kunna að stjórna bifreið og gera við einföldustu bilanir á henni. 9. Að hafa hlotið nokkra þjálfun i þvottum og ræstingu, mat- seld og húshaldi almennt. Úr starfslýsingu og starfsmati gæzlumanna

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.