Alþýðublaðið - 09.03.1978, Page 6
6
Fimmtudagur 9. marz 1978
Það eru til fjöldamargar tnyndir af fljúgandi furðuhlutum. Þessi „diskur” var myndaður yfir Chalk
Mountain i Colorado i Bandarikjunum i marz 1967.
Til skamms
tíma var
hlegid að
öllum þeim,
er héldu sig
sjá fljúgandi
furðuhluti:
Af hverju hlær fólk þeg-
ar minnst er á ,/fljúgandi
diska"?
— Hlátur hefur áratug-
um saman veriö notaöur
sem markvisst vopn gegn
fyrirbærinu „fljúgandi
diskar", segir Arne
Börcke, norskur visinda-
maður, sem vinnur aö því
að safna saman norskum
FFH skýrslum, í samtali
viö norska blaöiö Arbeid-
erbladet.
Þetta hefur fallið stjórn-
völdum margra landa ein-
staklega vel. I Bandaríkj-
unum var upphaflega gert
grín aö fyrirbærinu, vegna
þess aö menn vissu ekki
hvað þaö var.
Hlátrinum hefur veriö
beitt sem vopni, þar til nú.
i spéhræöslu sinni þorðu
vísindamenn ekki aö koma
fram opinberlega og segja,
aö þetta væru fyrirbæri
sem vert væri að rannsaka.
Rannsóknir á FFH fyrir
opnum tjöldum hófust ekki
fyrr en upp úr 1970.
Eru FFH teknir alvarlega i
dag?
— Já, margir taka þetta alvar-
lega. Þetta er allt á réttri leið. Til
dæmis um það má nefna, að innan
frönsku geimferðaáætlunarinnar
er sérdeild, sem sér um rann-
sóknir á fljúgandi furðuhlutum
(FFH). Þaö, sem við þurfum að
gera núna er að beina hlátrinum i
rétta átt, frá þeim sem gefur
skýrsluna og að þeim, sem eyðir
málinu án þess að koma með aðra
skýringu á þvi.
En hvað er þetta þá?
— Þessi spurning kemur alltaf
aftur og aftur og það er alltaf jafn
erfittað svara henni. Ég veit ekki
hvaö þetta er. Ég veit aðeins, að
Nú hlæja
menn ekki
lengur
þetta er fyrirbæri, sem er þess
virði að það sé rannsakað nánar.
Hvernig fékkst þú áhuga á
FFH?
— Ahugann fékk ég þegar ég
var hermaður i Noregi 1965. Þá
gengu margar FFH sögur. Ég las
sögu i blaði um börn, sem höfðu
verið að leika sér á skautasvelli i
Fleknes nóvember-kvöld eitt.
Þau sögðu skelfingu lostin frá lýs-
andi hlut. Hann hafði stöðvast
yfir skautasvellinu og ljósið frá
honum var svo sterkt, að dag-
bjart varð á svellinu. Og á nó-
vember-kvöldi i Fleknes er eins
dimmt og i kolanámu. Ég fékk
strax áhuga og athugaði hvort
hægt væri að komast yfir lesefni,
sem byggt væri á staðreyndum,
um þessi mál. 1 fyrstunni var það
ekki auðvelt, en smám saman
komst ég að þvi, að það hefur
verið skrifað svo mikið um þetta
efni að ég verð að vinza úr það,
sem er þess virði að það sé lesið.
En hvað heidurðu að þetta sé?
— Til að byrja með var auðvelt
að leggja trúnað á skemmtileg-
ustu kenninguna, þ.e. geimfars-
kenninguna. Hún er svo nærtæk.
En núna veit ég ekki hverju ég á
að trúa. Kennirigarnar eru feiki-
margar. Talað hefur verið um að
þetta séu hreyfingar eða truflanir
i gufuhvolfinu. Aðrir segja að
þetta séu fjórðu eða fimmtu vidd-
ar fyrirbæri. Enn aðrir halda þvi
fram, að jörðin sé hola og þetta
séu áður óþekktar vitibornar ver-
ur, sem búa dýpra i þessari al-
heimsholu. Þessi siðasta kenning
jafnast að minu viti á við þá kenn-
ingu, að jöröin sé flöt.
— Það skiptir'annars litlu máli
hvað FFH-áhugamenn álita.
Fyrirframákveðið álit þeirra get-
ur lika afvegaleitt rannsóknir.
Aður en það verður verulega at-
hyglisvert og spennandi að ræða
hinar ýmsu kenningar, þurfum
við að sanna, að fyrirbrigðið sé
örugglega fyrir hendi. Það er
heldur ekki spurningin, hvort við
trúum þvi, að FFH séu til, heldur
hvort við trúum þeim sem
skýrsluna gefur.
Trúir þú þeim sem gefa skýrsl-
urnar?
— Sumir eru trúverðugri en
aðrir. Nokkrir sækjast eftir að
auglýsa sjálfa sig og aðrir segja
aldrei neinum neitt. Við verðum
að skilja hismið frá hveitinu. Við
fengum t.d. skýrslu frá Ringerike
f fyrra, sem ég myndi skilgreina
sem trúverðuga. Tveir heyrnar-
lausir 14 ára gamlir drengir sáu
ljósgrænan FFH. Þeir sáu mann-
veru fyrir innan einn gluggann.
Kennari nokkur sá ljósið frá
hlutnum, en sá ekki hlutinn sjálf-
an. Það fundust einnig för eftir
hlutinn. I Bandarikjunum hafa
margar frásagnir verið sann-
reyndar með dáleiðslu. Þannig er
hægt að sanna, að fólkið hefur
ekki vísvitandi logið. En við höf-
um ekki svarað spurningunni, þvi
enn vitum við ekki nema um sé að
ræða imyndanir.
Hefur þú séð FFH sjálfur?
— Nei, það hef ég ekki.
Hvernig litur fljúgandi furðu-
hlutur út?
— Skýrslurnar eru allar ótrú-
lega likar, Lýsingarnar eru sam-
hljóða. Skiptir þá ekki máli hvort
sá, sem sá fyrirbærið býr i
Bandarikjunum, Sovétrikjunum
eða Madagaskar, hvort hann er
flugstjóri, prófessor, verkamaður
eða húsmóðir. Allir sjá svipaða
hluti.
Hvað sjá þeir?
— Hluturinn er kringlulaga eða
i laginu eins og vindill. Oft er
hvolfþak á efri hlutanum. Allar
eru hreyfingar snöggar og hraðar
og hluturinn kemst á ótrúlega
mikinn hraða. Auk þess eru
hraðabreytingarnar svo stórkost-
legar, að það brýtur i bága viö öll
þekkt náttúrulögmál.
Hversu hratt fara hlutirnir?
— A radarskermum hefur verið
skráður hraði allt að 40.000 km á
klukkustund, og það mjög nálægt
yfirborði jarðar.
Einhver fleiri einkenni?
— Það er oft sagt frá ljósa-
breytingum. Litirnir breytast úr
bláu i rautt i gult i grænt. Oftast
eru hlutirnir hljóðlausir en
stundum er skýrt frá suðandi
hljóði.
Af hverji
Á síðustu árum voru
gerðar rannsóknir, á
slysum í heimahúsum í
fjölmörgum löndum og
mörg lönd vinna saman
og skiptast á upplýsing-
um um slysaorsök
Rannsóknir eru gerðar i
Japan i austri og Banda-
rikjunum i vestri, i
Evrópulöndum, sérstak-
lega á NorðurlÖndum.
ísland hefur tekið þátt i
rannsóknum og hefur
aðgang að upplýsingum
frá öllum löndum. Eru
eftirfarandi dæmi tekin
frá ýmsum þeirra.
Þegar talað er um
dauða i eldsvoða hugsa
menn fyrst um að við-
komandi hafi orðið inn-
lyksa i húsum sem
brunnu til kaldra kola á
svipstundu. Þetta getur
verið rétt, sérstaklega í
háhýsum þegar eldurinn
kemur upp og útilokar
að fólk komist niður á
götu. í Bandarikjunum
er tekið tillit til hættu við
eldsvoða og eru járn-
brunastigar utan á hús-
um, eða sérstaklegar
þrunatröppur innan-
húss, sem aðgreindar
eru frá húsinu með eld-
Þvi miöur mun þaö harla oft svo aö
langar. Algeng lengd mun vera 120 !
fólk almennt tæki i notkun styttri sni
in. Börn ná þá ekki i lausa snúruend:
varnarveggjum. Á ís-
landi eru þessvegna
svalir á flestum ibúðum.
Enhættan getur verið allt önn-
ur. Eldurinn eyðir upp súrefni i
loftinu. Menn geta eWci andað og
deyja þvi af reykeitrun. En það er
einnig önnur hætta sem litið er
talað um: kolmonoxyd eitrun.
Kolmonoxyd er gas sem er
lyktarlaust og litarlaust. Hvernig
myndastþað? Viðskulum athuga
eitt dæmi sem gerðist erlendis.
Eldri maður kom Ur vinnu heldur
þreyttur, borðaði kvöldmat og
drakk nokkur glös af bjór án þess
þó að verða drukkinn, aðeins
þreyttur. Hann settist á sófa með
sigarettu i hendinni og sofnaði
sitjandi. Sigarettan féll úr hendi
A myndinni má sjá möppur nokkrar en 1 þeim mun fyrirkomiö skýrsl-
um er allar fjalla um heimilisslys hérlendis. Slys á heimilum eru
reyndar mjög algeng, t.d. munu fleiri húsmæður biöa bana viö störf
sin i New York en bæöi leigubilstjórar og lögreglumenn.
Hér hefur öryggishlifin veriö tekin út úr innstungunni, einfaldlega
meö aöstoö klóarinnar.