Alþýðublaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 17. marz 1978 sær alþýðu- (Jtgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rékstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurðs- son. Aðsetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, slmi 818G6. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu 11 verfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftaverð 1500krónur á mánuði og 80 krónur i lausasölu. staðan var sammála um þá leið, en efnahags- málahugmyndir Lúðviks eiga erfitt uppdráttar í Alþýðubandalaginu, og niðurfærsluleiðin engin f rambúðarlausn. Á þessu taflborði er komið upp þrátefli. Flest ráðin hafa verið reynd áður. Engin töfraformúla er til, og stjórnmála- mennirnir taka ekkert mark á hagspekingunum og þeir ekki á stjórnmála- mönnunum. Erþá nokkuð undarlegt þótt þjóðin hræðist allt þetta ráða- leysi. Rekstrarfjárskort- ur fyrirtækja er orðinn alvarlegur, atvinnuleysi er við sjóndeildarhring. Verðbólgan æðir áfram. Á meðan er deilt og beð- ið kosninga. Hver vill svo taka við búinu? Og hvert er f ramlag Al- þýðuflokksins fil þessara mála? Hann mun á næst- unni leggja fram ákveðn- ar hugmyndir og tillögur, sem hann telur grundvöll þess, að hægt sé að ráðast gegn verðbólgunni með einhverjum árangri. Þetta eru engar krafta- verkalausnir og hvorki er lofað gulli né grænum skógum. Þarna er á ferð- inni áætlun til langs tima og framgangur hennar krefst fórna og styrkrar stjórnar, hver sem um stjórnvölinn heldur. Þessar tillögur verða framlag Alþýðuflokksins til lausnar á vandanum og kjósendur munu dæma um þær. —ÁG ÚR ýMSUM ATTUWI Sjónvarp af Alþingi Dagblaðið flutti okkur í gær fregnir af sjónvarps- útsendingum, frá fund- um kanadiska þingsins, sem þingið stendur sjálft fyrir. Kanadamönnum gefst þar kostur á að kynnast betur en áður því sem fram fer í þinginu og fá betra sýnishorn af málflutningi þingmanna. Að sögn blaðsins eru þættir þessir einkar vin- sælir og slá jafnvel út kvikmyndir og óperur. Sérstaklega þykir mönnum fengur að fyrir- spurnátímum þar sem þingmenn verða að spreyta sig, oft undirbún- ingslitið, og verða um- ræður þá oft snarpar. Það væri ef til vill ekki svo vitlaust að gefa islenzkum sjón- varpsáhorfendum kost á að fylgjast örlitið betur með störf- um þingsamkundunnar. Þing- fundir eru yfirleitt á þeim tima sem flestir eru við vinnu sina og eiga óhægt um vik að komast á þingpalla. Auk þess á fólk utan af landsbyggðinni ekki kost á þingpallasetum og stendur að þvi leyti ver að vigi en ibúar höfuðborgarinriar. Ekki er að efa að sjónvarpsútsendingar frá þinginu kæmu til með að veita þingmönnum nokkurt aðhald, þeir myndu vart leyfa sér að vaða upp með moðreyk ef hið alltsjándi auga kvikmyndavél- arinnar stæði á þeim, og þar á bak við vökul augu sjónvarpsá- horfenda. Tilkostnaður við þetta uppá- tæki þyrfti vart að verða óvið- ráðanlegur, og sérstaklega ekki þegar litið er til þess hve vinsælt efni útsendingar af þingfundum eru. Tækjakostur sem til þarf kostar jú sitt, en ekki er að efa að „leikararnir” kæmu fram endurgjaldslaust og vart þyrfti að greiða miklar upphæðir fyrir sviðsmyndina. Sjónvarpið er tæki lifandi myndar og hljóðs. Það er ekki mikið gaman að horfa á sjón- varpsþul lesa i belg og biðu þær fyrirspurnir sem lagðar hafa verið fram á Alþingi þennan og þennan daginn og siðan úrdrátt úr þeim svörum sem bárust. Þessar rullur eru i mesta lagi skreyttar einni og einni gamalli ljósmynd úr sölum þingsins. Þessi mál vektu eflaust meiri áhuga ef þjóðinni gæfist kostur á að sjá þann sem spyrði bera fram spurninguna sina og þann sem fyrir svörum yrði koma orðum aö þvi er hann vildi sagt hafa. Sem sagt bæði fróðleg og skemmtileg dagskrá. niðurstöðum nefndarinn- ar var gert ráð fyrir því, að litið yrði til lengri tima en fram yfir kosningar. Sú hugmynd kom stjórn- arflokkunum i erfiða að- stöðu, og því var valinn sá kostur, að fleyta skútunni eitthvað fram í júní. Að öðru leyti hafa ráð Sjálf- stæðismanna verið æði fábrotin. Alþýðubandalagið hef- ur í gagnrýni sinni á efnahagsmálin að- eins bent á eina úrlausn, þ.e. íslenzka atvinnu- stefnu. Þar er á ferðinni hugmyndaf ræðileg drullukaka, nánast ó- meltanleg. Með miklum lagfæringum væri unnt að nýta einhvern hluta hennar. Lúðvík Jósefsson benti réttilega á niður- færsluleiðina í verðbólgu- nefndinni. Stjórnarand- Þrátefli Sú undarlega staða er nú að koma upp á tafl- borði íslenzkra stjórn- mála, að nánast enginn getur eða þorir að takast á við efnahagsvandann. Úrræðin eru ekki mörg, þau geta orðið sársauka- f ull fyrir allan almenning í landinu, og ekki er um neina skammtímalausn að ræða .Landsfeðurnir stagast á þvi í tima og ó- tíma að vinna þurf i bug á verðbólgunni. Siðan er deilt um hvaða stjórn gerði hvað hér fyrr á ár- um, og í Ijós kemur, að flestir flokkar hafa ein- hverntímann átt hlut að nær öllum þeim aðgerð- um, sem rifizt er um. Þingi Framsóknar- manna er lokið. Þar f lutti Ólafur Jóhannesson, for- maður flokksins, langa ræðu um efnahagsmálin, ástand og horfur. Ekkert nýtt kom f ram í ræðu for- mannsins, aðeins góðar óskir, sem allir geta skrifað undir. Þingið lagði ekki fram neinar á- ætlanir um hvernig skipulega skuli barizt gegn þegar orðnum og aðsteðjandi vanda. Og ekki bólar á tilraun til þess að segja þjóðinni all- an sannleikann, þótt nú kreppi víða að. Forsætisráðherra setti á laggirnar svokallaða verðbólgunef nd, sem skilaði vönduðu og ítar- legu áliti. Niðurstaða hennar var að engu höfð, heldur notuð einhver und- arleg blanda af ráðum Framsóknar og Ihalds. I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.