Alþýðublaðið - 05.04.1978, Síða 1
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL
65. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
Ritstjórn blaðsins er
til húsa í Sídumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91) 81976
. - -v
Snorri Jónsson segir
sig úr uppstillingar-
nefnd Alþýðubandalags-
ins f Weykjavík_
Vegna ólýd-
ræðislegra
vinnubragða
Snorri Jónsson,
s ta rf a ndi f orseti
Alþýðusambands ís-
lands, hefur sagt sig úr
uppstillingarnefnd
Alþýðubandalagsins til
alþingiskosninganna i
Reykjavik i vor.
Ástæðan mun vera ó-
ánægja með starfsað-
ferðir meirihluta
nefndarinnar.
Snorri Jónsson var
erlendis i gær og Al-
þýðublaðið gat þvi ekki
fengið hann til að stað-
ffesta fréttina. Blaðið
bar þessa frétt undir
Kjartan Ólafsson, rit-
stjóra Þjóðviljans, en
hann á einnig sæti i
nefndinni. Kjartan
sagði, að nefndin
myndi gera grein fyrir
störfum sinum á rétt-
um vettvangi og þvi sæi
hann ekki ástæðu til að
ræða þau á þessu stigi
málsins.
Alþýðublaðið hleraði
hins vegar hjá nokkr-
um Alþýðubandalags-
mönnum i gær, að óá-
nægju gætti innan
flokksins með störf
uppstillingarnefndar.
Fámennir klikufundir
raða mönnum á listann
og ákveða þannig
framboðið. Siðan er
listi klikunnar borinn
undir atkvæði i upp-
stillingarnefndinni án
umræðna.
Ágreiningur reis aðallega út
af skipun fyrsta sætis, klikan
hafði ætlað Svavari Gestssyni,
ritstjóra Þjóðviljans, sætið en
Snorri Jónsson stakk upp á As-
mundi Stefánssyni, hagfræðingi
ASl. Snorri fór fram á málefna-
legar umræður um mennina ‘og
samanburð, en klikan vildi
ganga til atkvæða þegar i stað.
Þessu vildi Snorri mótmæla og
sagði sig úr nefndinni.
Snorri mun einnig hafa verið
óánægður með það, að Eðvarð
Sigurðsson varallt að þviþving-
aður til að taka sæti á listanum
(annað sæti),enhannhafði áður
eindregið beiðst undan þvi, þar
sem hann af heilsufarsástæðum
treysti sér ekki til að sitja eitt
kjörtimabil til viðbótar á Al-
þingi.
Það segir sina sögu þegar
starfandi forseti ASt treystir sér
ekki til að starfa i nefnd innan
verkalýðsflokks vegna ólýðræð-
islegra vinnubragða nefndar-
innar.
—ATA
Skyndiverkfall flug-
manna hjá Loftleidum
Hátt á fimmta
hundrað „trans-
ist”-farþega gistu sl.
nótt á Hótel Esju og
Loftleiðum vegna
skyndiverkfalls flug-
manna Loftleiða i gær-
kvöldi. Verkfallið var
boðað mjög skyndi-
lega, eftir þvi sem AB
kemst næst og tók gildi
um kl. 19.
Kjarasamningur félags Loft-
leiðaflugmanna við Flugleiðir
hefur verið laus siðan fyrir ára-
mót og hafa staðið yfir viöræö-
ur, en þeim miðað hægt i sam-
komulagsátt, að sögn Sveins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa. 1
gær munu flugmenn hafa kraf-
ist greiðslu visitölu aftur i tim-
ann, en blaðinu tókst ekki að
Frh. á 10. siðu
Þegar Þjódviljinn
naut adstodar jaf n-
adarmanna í Noregi
t þeim deilum, sem
risið hafa milli Alþýðu-
blaðsins og Þjóðviljans
um svonefnt „krata-
gull”, hefur meðal ann-
ars verið frá þvi skýrt,
að þegar Blaðaprent hf.
var stofnað (þar sem
Alþýðublaðið, Timinn,
Þjóðviljinn og Visir eru
prentuð) hafi öll þessi
blöð notið verulegrar
aðstoðar frá samtökum
jafnaðarmannablaða i
Noregi, A-Pressen.
Svavar Gestsson, ritstjóri Þjóð-
viljans, hefur neitað þvi, að Þjóð-
viljinn hafi nokkru sinni notið
sliks stuðnings erlendis frá. Hann
hefur ennfremur sagt, að fyrr
yrði Þjóðviljinn lagður niður en
slikur stuöningur yrði þeginn.
Alþýðublaðið hefur nú aflað
margvislegra upplýsinga um þá
aðstoð, sem norska A-Pressen
veitti við undirbúning og stofnun
Blaðaprents hf. Eitt þeirra gagna,
sem blaðið hefur undir höndum er
skýrsla fimm fulltrúa blaðanna
fjögurra, sem fóru til Noregs og
skoðuðu þar prentsmiðjur á veg-
um A-Pressen, ræddu við fram-
kvæmdastjóra A-Pressen og
fengu margvislegar upplýsingar
og aðstoð hjá A-Pressen. Einn af
þátttakendum i þessari ferð var
framkvæmdastjóri Þjóðviljans.
Margvislega, dýrmæta aöstoð af
öðru tagi veitti A-Pressen, og
veröur greint nánar frá þessu
máli i blaöinu næstu daga.
Æ, hvaö eruö þiö aö f langsast þetta meö myndavél? (AB-mynd GEK)