Alþýðublaðið - 12.04.1978, Blaðsíða 10
10
Miðvikudagur 12. apríl 1978 SSSST'
Veidi leyfð á 35.000
tonnum af síld í ár
Sjávarútvegsráöuneytið hefur,
aö tillögu Hafrannsóknastofnun-
arinnar, ákveðið að leyfa veiðar á
35 þúsund lestum af sild á hausti
komanda. Jafnframt hefur verið
ákveðið, að hringnótabátar fái að
veiða á timabilinu 20. september
— 20. nóvember, en gert er ráð
fyrir að reknetabátarnir fái að
veiða á timabilinu 20. ágúst til 20.
nóvember 1978. Skipting heildar-
aflamagns milli hringnótabáta
annars vegar og reknetabáta hins
vegar hefur ekki verið ákveðin.
Veiðar með reknetum verða á-
fram leyfisbundnar, og veiöar
með hringnót verða einnig háöar
sérstökum leyfum ráðuneytisins
eins og verið hefur siðan sild-
veiðar i hringnót hófust aftur hér
við land haustið 1975. Verða veiði-
leyfin háð skilyrðum um fram-
kvæmd veiðanna og um meðferð
afla.
Við úthlutun leyfa til hringnóta-
veiða gilda eftirfarandi reglur:
1. Þeir bátar, sem fengu leyfi til
hringnótaveiða s.l. ár og nýttu
þau, sitja i fyrirrúmi um leyfi á
næstu vertið.
2. Bátar 105 rúmlestir og minni og
350 rúmlestir og stærri fá ekki
hringnótaleyfi.
3. Bátar þeir, sem leyfi fá til
humarveiða á næstu vertið, fá
ekki leyfi til hringnótaveiða.
4. Enginn bátur fær leyfi til bæði
rekneta- og hringnótaveiða á
sama ári.
Umsóknarfrestur um leyfi til
sildveiða i hringnót og reknet er
til 1. mai n.k. og verða umsóknir,
sem berast eftir þann tima eigi
teknar til greina.
Bann 1
hverra bragða Vinnuveitenda-
sambandið gripi og gæti þá stað-
an breytzt að þvi leyti. Vist mundi
yfirvinna minnka meðan á bann-
inu stendur, en það ætti að vinn-
ast upp, þegar tekið verður að
vinna að nýju af fullum kröftum,
þegar banninu lýkur.
AM
Flest félög 1
kvæmdin ekki bitna á nema fáum
mönnum, i samræmi við þá
stefnu alþýðusamtakanna, að
sem fæstir launþegar missi i hvað
vinnu snertir, meðan bannið
stendur. Enn er ekki útséð um
hver viðbrögð VSl verða, en for-
svarsmenn Verkamannasam -
bandsins segjast eiga sér alls ills
von úr þeirri átt.
AM
Nýsköpun 1
bandalags og Sjálfstæðisflokks.
Þessi tillaga hugmyndafræðings-
ins hlýtur að koma eins og köld
vatnsgusa framan i þá verkalýðs-
leiðtoga Alþýðubandalagsins,
sem nú þurfa að heyja varnar-
strið gegn kjaraskerðingu rikis-
stjórnar sem er óvinveittari
verkalýðshreyfingunni en flestar
aðrar, sem hér hafa setið að völd-
um.
Einnig er eftirtektarvert, að
hugmyndafræðingurinn vill skera
niður fiskveiðiflotann, sem Lúö-
vik Jósefsson barðist fyrir að
kaupa til landsins.
HRINGAR
Fljót afgreiðsla
jSendum gegn póstkröfu
Guðmundur Þorsteinsson
gullsmiður
^Bankastræti 12, Reykjavik. j
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða
hjúkrunarfræðinga nú þegar, einnig i
sumarafleysingar. Allar uppl. veita
hjúkrunarforstjóri i sima 96-41333 og
framkvæmdastjóri i sima 96-41433.
Sjúkrahúsið í Húsavik s.f.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði,
Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi og í
Kjósarsýslu í apríl og maí 1978
Skoðun fer fram sem hér segir:
Seltjarnarnes:
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Þriðjudagur
26. april
27. april
2. mal
16. mai G-1 til G-150
17. mai G-151 til G-300
18. mai G-301 til G-450
19. mai G-451 til G-600
22. mai G-601 til G-750
23. mai G-751 til G-900
24. mai G-901 til G-1050
25. mai G-1051 til G-1200
26 .mai G-1201 til G-1350
29. mai G-1351 til G-1500
30. mai G-1501 til G-1650
31. mal G-1651 til G-1800
Skoðun fer fram við iþróttahúsið.
Mosfells- Kjalarnes- og Kjósarhreppur:
Miðvikudagur 3. mai
Mánudagur 8. mai
Þriðjudagur 9. mai
Miðvikudagur 10. mai
Skoðun fer fram viö Hlégarð i Mosfellshreppi.
Hafnarfjörður, Garðakaupstaður og
Bessastaðahreppur:
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Skoðun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnar-
firði.
Skoðun fer fram frá kl. 8.15—12, og
13—16.00 á öllum skoðunarstöðum. Festi-
vagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við
skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skil-
riki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga
,að máli.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði, Garðakaup-
stað og á Seltjarnarnesi.
sýslumaðurinn i Kjósarsýslu, 10. apríl
1978.
Einar Ingimundarson.
8. bókin um Morgan Kane
komin út þeim er komu honum i fangelsi.
Sögurnar um Morgan Kane eru
Út er komin 8. bókin i bókaröð- þekktar og vinsælar viða um lönd
inni um Morgan Kane. Heitir sú og skiptir upplag bókanna um
Ófreskjan frá Yuma. Segir i bók- hann milljónum eintaka.
inni frá þvi er Kane er fengið það Höfundurinn Louis Masterson
hlutverk að stöðva flóttafanga, er norskur, en þykir einkar fróður
sem er á leið til að hefna sin á um villta vestrið.
Útboð
Bæjarsjóður Njarðvikur óskar eftir til-
boðum i að gera fokhelda viðbyggingu við
iþróttahús Njarðvikur. útboðsgögn fást á
skrifstofu bæjarverkfræðings Fitjum gegn
20. þús kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 2. mai kl. 16.
Bæjarverkfræðingur.
Laus staða
Staða lögreglumanns á Raufarhöfn er laus
til umsóknar frá og með 16. mai n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknarfrestur er til 1. mai 1978.
Sýslumaður ' Þingeyjarsýsiu
Bæjarfógeti Húsavikur.
PÓST- OG SÍMA
MÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Loftskeytamann/
simritara
að loftskeytastöðinni i Neskaupstað.
Nánari upplýsingar verða veittar hjí
starfsmannadeild og stöðvarstjóra i Nes
kaupstað.
Barnavinafélagið Sumargjöf
Höfum flutt verslun vora
VÖLUSKRÍN
að Klapparstíg 26
og bjóðum viðskiptavinum úrval góðra
leikfanga i rúmgóðri verslun.