Alþýðublaðið - 29.10.1979, Page 2

Alþýðublaðið - 29.10.1979, Page 2
2 Alþýðublaðið 60 ára Helgi Sæmundsson: ÓLAFUR FRIÐRIKSSON Fyrsti ritstjórinn, frumherjinn og baráttumaðurinn Alþýðublaðið minnist á afmæli sínu fyrsta rit- stjóra síns, frumherjans og baráttumannsins ólafs Friðrikssonar. Jafnvel fjöldasamtök munar um einkaframtak, og sannarlega átti ólafur öllum öðrum fremur frumkvæði að stofnun verkalýðshreyfingar- innar á islandi í árdögum hennar, þó að ýmsir legðu drengilega hönd að því verki. Ungur og djarfur geystist hann fram á orrustuvöllinn með merkið á lofti og réð þeim úrslitum, að nýr kafli hófst í sögu lands og þjóðar. Ólafur Friöriksson var menntamaöur, en sannfæröist um málstaö verkalýös- hreyfingarinnar og jafnaöar- stefnunnar úti i Danmörku. Heim kom hann i veraldar- striöinu fyrra og stofnaöi fýrsta islenska jafnaöarmannafélagiö noröur á Akureyri, en fluttist brátt til Reykjavikur og geröist postuli hugsjóna sinna i höfuö- borginni. Tók hann virkan þátt i stjórnmálabaráttu Alþýöu- flokksins og starfi verkalýös- samtakanna, en mátti sin mest sem málsvari jafnaöar&tefn- unnar i ræöu og riti. — Mun eldri kynslóöinni minnisstætt aö sjá hann og heyra I ræöustóli. Hann var fjölhæfur og snjall mælsku- garpur og svo aösópsmikill i framgöngu og viöbrögöum, aö einstakt þótti. Látinn fékk Ólaf- ur Friöriksson þann vitnisburö samherja og andstæöinga, aö hann heföi trúaö á málstaö sinn. Hæpiö telst þó aö kenna skoöan- ir hans viö trú, þrátt fyrir skap- rikiö og sannfæringarkraftinn. Fyrir honum vakti jafnan sú vissa, aö úrræöi jafnaöarstefn- unnar væru raunhæfust lausn á vanda samfélagsins og þess vegna þaö, sem koma skyldi. Þá skoöun boöaöi hann lslending- um og helgaöi henni starfs- krafta sina langa ævi. Um hann stóö löngum styrr. Andstæö- ingar hötuöust viö hann af þvi aö þeim blöskruöu skoöanir hans. Samherjar töldu hann oft fifldjarfan. ólafur Friöriksson sat aldrei i logni. Hann kom allt I einu eins og stormsveipur utan úr heimi og feykti til öllu gömlu og feysknu á Islandi, þó að hann elskaöi ættjöröina eins og barn móöur. Auövitaö varö slikur ofurhugi fyrir vonbrigöum, en þau sviptu hann aldrei þeirri skoöun, aö framtfö Islands myndi best borgiö I riki jafn- aöarstefnunnar. Og Ólafur haföi farsælli áhrif en margir þeir tignarmenn, er setiö hafa á valdastólum og fariö meö lands- stjórn. Hann kom fátækum og kúguöum stéttum á Islandi til þroska af þvi aö hann dirföist aö eiga sér hugsjón. Ólafur Friöriksson túlkaöi fyrirætlun sina og tilgang jafn- aöarstefnunnar þessum athyglisveröu oröum I fyrsta tölublaöi Alþýöublaösins: „Alþýöuflokkurinn berst fyrir málstaö alþýöunnar, en þaö er i raun og veru sama sem aö berj- ast fyrir málstaö islensku þjóöarinnar, þvi alþýöan og þjóöin er eitt, og sá, sem berst á móti alþýðunni, eöa i eiginhags- munaskyni, af afturhaldssemi eöa nýfælni, leggur stein i götu hennar móti betri lifskjörum, hann er óvinur islensku þjóöar- innar, hversu hátt, sem hann hrópar um ættjarðarást éöa verndun þjóöernisins.” En þvi fór viös fjarri, aö ólaf- ur Friöriksson væri einhæfur. Hann gaf sér tíma til margvis- legra hugöarefna auk stjórn- málabaráttunnar, las bækur á mörgum tungumálum, sat á tali viö unga og gamla á veitinga- stööum, geröi náttúrufræöilegar athuganir og fór viöa könnunar- feröir I þvi skyni. Gaman var aö heyra kappræöur hans I kunningjahópi. Andi hans var svo órólegur aö hann bast naumast stund eöa staö. Aldur- hniginn sótti hann og varöi mál sitt af ungæöislegu kappi og sýndi enga tillitssemi aö boöa þaö, sem honum virtist satt og rétt hverju sinni. Viömælendur hans töldu þetta stundum of- stopa, en svona var ólafur Friö- riksson. Hann talaöi eins og sá, sem valdiö hefur, aö fræöa og útskýra og marka stefnu. Samt gat hann verið einstaklega hýr I bragöi og þýöur I viömóti ef vel lá á honum. Þá ljómaði bros á skeggjuðu andliti þessa svip- mikla öldungs, scm minnti helst á spámann eöa postula. Mér varö ógleymanlegt aö sjá hann deila geöi viö unga drengi, sem á vegi hans urðu. Honum þótti vænt um æskuna i likingu viö séra Friörik Firöriksson og Sigurbjörn Sveinsson. Og nágrenni Reykjavlkur var Ólafi Friðrikssyni dýrlegur heimur. Til stóð eftir veraldar- striöiö seinna, aö hann ritaði ævisögu slna eöa endurminn- ingar, og var hann inntur eftir handriti, er fram liöu stundir. Ólafur kvaöst þá önnum kafinn viö náttúrskoöun og bætti viö: Fyrsta bindiö á aö vera um Esjuna. Ég sá Ölaf Friöriksson nokkru fyrir andlát sitt. — Hann var þá bilaöur á heilsu og dvaldist i sjúkrahúsi, en reyndi aö leyna mótlæti sinu, sat á stóli og fór sér óvenju hægt. Þóttist ég vita, að hann ætti skammt ólifað, þvi aö garpinum var augsýnilega brugöiö. Þegar fundi okkar lauk og ég gekk á bortt, rifjaðist upp fyrir mér mynd af Ólafi Friö rikssyni, meöan hann var og hét: Hann stóö keikur i ræðu stóli og ávarpaöi unga jafnaöar menn af sérstöku tilefni. Viö þaö tækifæri geröi hann rækilega grein fyrir hugsjón sinni, er hann sannfæröist um erindi jafnaöarstefnunnar viö íslend- inga og hóf gunnreifur merki hennar á loft foröum. Ólafi mæltist svo: „Þjóöfélag okkar skiptist I fá tæka og rika frá upphafi, en til- gangur jafnaðarstefnunnar er aö gera alla Islendinga aö höfö ingjum.” Forsíðumyndin er af ólafi Friðrikssyni. HALLBJÖRN HALLDÓRSSON Annar ritstjóri Alþýðublaðsins Hallbjörn Halldórsson, prentari, var ritstjóri Alþýðublaðsins í fimm ár, frá árinu 1922 og til ársloka 1927. Hann lést 31. maf 1969, skömmu fyrir hálfrar aldar afmæli blaðsins. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, sem var blaðamaður við Alþýðu- blaðið í ritstjórnartíð Hallbjarnar og lengi síðan, minntist hans í af- mælisblaðinu því, og kemur hér grein hans (inngangur Vilhjálms er þó felldur niður). Hallbjörn Halldórsson fæddist aö Vilborgarkoti f Mosfellssveít 3. júli 1888, sonur hjónanna Halldórs Jónssonar bónda aö Hrauni i ölfusi og sföan aö Bringum i Mosfellssveit og Vil- borgar Jónsdóttur frá Urriöa- koti. Stóöu miklar og góöar ættir aö Hallbirni og mátti ætiö kenna hinn sterka kjarna ættanna I fari hans, lund og framkomu allri. Ariö 1903 hóf Hallbjörn prentnám í Félagsprentsmiöj- unni, en þegar prentarar sjálfir stofnuöu prentsmiöjuna Guten- berg, áriö 1905, fékk hann sig leystan frá námssamningnum I Félagsprentsmiöjunni og hélt náminu áfram i hinni nýju prentsmiöju. Vann hann þar siöan f 17 ár og meðal annars sem verkstjóri. Það kom mjög snemma i ljós, aö Hallbjörn var afburða gáfum gæddur aö hann las allt, sem hann komst höndum undir, ekki aöeins þaö, sem snerti iön hans, sem hann leit alltaf á sem list- grein, heldur og um stjórnmál, hagfræöileg efni, þjóöfélagsmál og heimspeki. Las hann og skáldskap og kunni skil á helztu stórvirkjum heimsbókmennt- anna. Þannig varð hann snemma fjölmenntaöur maöur þó aö lftt væri hann skólageng- inn. Þá kom þaö og fljótt fram, aö hann var islenskumaöur meö afbrigöum, vandaöi mái sitt svo, aö næstum náígaöist nost- ur, og lagði jafnan áherslu á rit- mál sitt og ræðumennsku, en hann varö snemma mjög góöur ræöumaöur. — Þessir miklu hæfileikar Hall- bjarnar uröu til þess, aö hann var ráöinn ritstjfi Alþýöu- blaösins áriö 1922. Hann tók strax til óspilltra málanna. Hann ritaöi sjálfur næstum allt blaöið hin fyrstu þrjú ár rit- stjórnartíðar sinnar — og sleit sér út. Þetta stafaöi af þvi meöal annars, aö þaö var erfitt aö gera Hallbirni til hæfis i rit- uöu máli, svo nákvæm var vandvirkni hans — og eftir aö hann réöi sér starfsmenn, enda var annaö óhugsandi svo viða- mikiö var starfiö fyrir hann einan, vakti hann yfir hverri setningu, sem i blaöinu kom, og gekk þetta svo langt, að hann vildi jafnvel fá aö ráöa oröalagi auglýsinga, sem i blaöinu áttu aö koma. Eg geröist starfsmaöur viö ritstjórn Alþýöublaðsins, sumariö 1926. Ekki gat ég fengiö betri lærimeistara. Hann kenndi mér flest af þvl, sem ég læröi á þeim árum I islensku og man ég aö oftkastaöist I kekki milli mfn og hans þegar ég vildi flýta rnér sem mest meö fréttir og útkomu blaðsins, en Hallbjörn tók greinar mfnar til lagfæringar og fór aö snúa viö setning- um.„Betra aö gefa út gott blaö og vandaö, en flýta útkomunni”, sagöi hann oft. Hallbjörn var orðinn þreyttur maöur, þegar ég kom til blaösins, en hann sló þó ekki af. Hann var alltaf i rit- stjórnarskrifstofunni og fylgdist meö hverri setningu. En skapiö var alltaf jafn hlýtt og bjart. Aldrei kom þaö fyrir, aö hann reiddist, og þó gat hann átt þaö til aö sýna manni, aö þaö var hann, sem var húsbóndinn. En þetta geröi hann alltaf á þann hátt, aö þaö dró ekki úr áhuga minum, hann lagðist aldrei ofan á mig, ef svo má aö oröi komast, en leyföi mér að sprikla, aö minnsta kosti aö vissu marki,. Loks var svo komið, aö svo virt- ist sem hann gæti ekki skrifað, aö hann þjáöist af ofnæmi gagn- vart penna. Ég man þaö, aö hann gat setið langtimum viö skrifboröiö með opinn líndar- pennann á boröinu og hvfta ó- skrifaða pappfrsörk fyrir fram- an sig, án þess aö koma nokkru á hana. Mér fannst þetta undar- legt ástand. Síðan skildi ég þaö, aö hann var orðinn sjúkur maö- ur af ofþreytu vegna fórnfýsi sinnar, skyldurækni og allt aö þvi of mikillar samviskusemi. Ritstjórn blaösins var heldur ekki hiö eina starf, sem Hall- ’ björn leysti af hendi fyrir sam- tökin. Hann sótti nær alla fundi flokksfélaganna, sat i fjölmörg- um nefndum og siöast en ekki sist átti hann sæti i bæjarstjórn fyrir flokkinn árum saman. Viö þetta bættist svo þaö, sem alltaf hefur hvilt þungt á heröum for- ystumanna flokksins, fjárskort- ur blaðsins og samtakanna. Þarna vann Hallbjörn og mikiö starf. Hann fann snemma til þess, hve erfitt þaö var og óhag- kvæmt, aö blaöiö skyldi ekki vera prentaö f eigin prent- smiöju. Þess vegna átti hann frumkvæðiö aö þvi, aö ráöist var í stofnun Alþýöuprent- smiöjunnar áriö 1926 Man ég þaö vel, aö þegar stofnun prent- smiöjunnar var I undirbúningi, svo og þegar hún var að taka til starfa, þá unni Hallbjörn sér engrar hvfldar og lagöi nótt viö dag. Atti hann stundum erf- itt meö aö þola þaö, ef einhver ætlaöi aö gripa fram fyrir hend- ur hans i uppbyggingu og skipu- lagi prentsmiöjunnar. Hann varö og forstjóri hennar meö- fram ritstjórninni, en tók alveg viö henni, þegar hann hætti rit- stjórn sinni áriö 1927. Og þvi starfi gegndi hann til ársins 1935, aö hann hvarf aftur til Gutenberg og gerðist þar aöal- verkstjóri. Fannst mér þá, aö Hallbjörn heföi fengiö starf, sem betur ætti viö hann, en starfiö i Alþýöuprentsmiöjunni. Gutenberg prentaði bækur, en Alþýöuprentsmiðjan prentaöi dagblaö. Sannleikurinn var nefnilega sá, aö afstaöa hans til prentlistarinnar var þannig aö þaö átti ekki viö hann aö starfa þar sem allt var miöaö viö hraöa. Prentverkiö var list fyrir honum — og þaö skal um leiö fullyrt hér, aö I sveit hermanna hinnar svörtu listar var Hall- björn Halldórsson fremstur listamanna. Eins og gefur aö skilja var Hallbjörn þegar frá upphafi einn af helstu leiðtogum Hins Islenska prentarafélags, enda hef ég aldrei hitt fyrir prentara, sem ekki hefur litiö upp til Hall- bjarnar og boriö viröingu fyrir honum. Hann var um skeiö for- maöur Reykjavikurdeildar- innar, varaformaöur, og gegndi öörum trúnaöarstörfum. Hann var lengi ritstjóri Prentarans og enn lengur bar hann veg og vanda af þvi blaöi ásamt öðrum. Hann ritaöi fjölmargar greinar I blaöiö, sem prentarar telja stór- merkilegar. Fáir voru kunnugri en hann sögu prentlistarinnar, og þeir voru ekki margir, sem fylgdust betur meö nýjungum i iöninni en hann. Ég held að mér sé óhætt aö fullyröa þaö, aö prentarar litu á Hallbjörn um langan aldur sem sinn fremsta mann og skipti þá engu, hver var formaöur félags þeirra. Fólu þeir honum og mjög oft aö sækja alþjóöaráö- stefnur prentara, enda sómdi hann sér alltaf vel á slikum stórfundum. A þetta bendir einnig sú staðreynd, aö prent- arar fengu honum ibúö i húsi sinu viö Hverfisgötu 21 og þar bjó hann árum saman ásamt hinni ágætu konu sinni, Kristinu Guðmundsdóttur.— Þau höföu eignast einn son, Eiö, en hann lést á unga aldri og var þá mikill harmur kveöinn aö þeim hjón- um. Prentarar gáfu Hallbirni heiöursnafnbót i sinum hóp. Þeir kölluöu hann: Meistara Hallibjörn og tók hann nafnbót- inni alltaf vel. Hann hafði og á sextugsafmæli sinu veriö kjör- inn heiöursfélagi Prentara- félagsins. Hallbjörn Halldórsson hélt áfram aö vera kennari minn og leiöbeinandi löngu eftir að hann fór frá Alþýöublaöinu. Hann hringdi þá til min, glaður og reifur, stuttoröur og gagnoröur og ræddi viö mig um ýmislegt, sem ég haföi skrifaö I blaöiö. Hann talaöi um efni þess, en hann ræddi ekki siður fram- setninguna. Það kom fyrir, aö hann bar lof á mig en oftar var þaö, aö hann hringdi til aö finna aö. Ég Ieit alltaf á hann sem kennara. Enn i dag finnst mér þaö, sem Hallbjörn sagöi mér um islenskt mál, vera hæsta- réttardómur — og ég tek ekki neinum sönsum, ef einhver dregur þann dóm I efa. Hallbjörn Halldórsson starf- aöi fyrir alþýöusamtökin og Al- þýöublaöið á sköpunartlmum þeirra. Þá var starfiö erfiöara en þaö er nú. Hann fórnaöi sjálf- um sér I þessu starfi, svo aö hann beið tjón á heilsu sinni. Og þó aö maöur yröi ekki var viö þaö i dagfari hans hin siðari ár, þá bar hann menjar stritsins og erfiöleikanna. Hann var alltaf stritmaöur, en um leiö var hann andlegur leiötogi. VSV.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.