Alþýðublaðið - 29.10.1979, Page 18

Alþýðublaðið - 29.10.1979, Page 18
18 Alþýðublaðið 60 ára Verkamannasamband íslands Óskar Alþýðublaðinu til hamingju i tilefni 60 ára afmælis þess j Ora Óskar Alþýðublaðinu til hamingju i tilefni 60 ára afmælis þess B.M. Vallá óskar Alþýðublaðinu til hamingju i tilefni ” 60 ára afmæiis þess Hraðfrystistöðin Óskar Alþýðublaðinu til hamingju i tilefni 60 ára afmælis þess ÍSPAN h/f Kópavogi Óskar Aiþýðublaðinu til hamingju i tilefni 60 ára afmælis þess i I Rafha Hafnarfirði Verzl. Rafha Austurveri óskar Aiþýðublaðinu til hamingju i tilefni 60 ára afmæiis þess FINNBOGI RÚTUR INN- LEIÐIR NÚTIMANN í ÍSLENSKA BLAÐAMENNSKU Þess dags mun lengi verða minnst i sögu íslenskrar blaðamennsku> þegar Finnbogi Rútur Valdemarsson tók við ritstjórn Alþýðublaðsins. Þá hefst nýtt tímabil í ís- lenskum blaöaheimí, nútíminn heldur innreið sína. Blöð- in hætta að vera svo til eingöngu pólitísk málgögn og fréttaflutningur er settur í öndvegi. Fyrir þessi timamót voru blöö- in fyrst og fremst vigvöllur stjórnmálamanna. Fátt kallaðist tiðindi nema það hefði eitthvert gildi i hinum pólitiska hráskinna- leik. Fréttamennska skipaði óverulegt rúm i islenskum blöð- um, innlendar og erlendar fréttir voru ruglingslega raktar og sett- ar upp. Þessu breytti Finnbogi Rútur. Hann lagði bæði mikla áherslu á góöa fréttaöflun og góða uppsetningu fréttanna, þannig að þaer kæmust sem best til skila til lesendanna. Hér var Alþýðublað- ið i forystuhlutverkinu, en siðan fylgdu önnur blöð á eftir. Finnbogi Rútur kemur að utan Hinn nýi ritstjóri Alþýðublaðs- ins, Finnbogi Rútur Valdemars- son, var aðeins 26 ára að aldri, fæddur 1907, og Vestfiröingur. Hann hafði um skeið stundaö nám i alþjóðarétti i Paris og Genf á vegum Þjóöabandalagsins gamla, dvaldist hálft ár I Berlin og part úr ári i Róm. Lengst var Finnbogi Rútur i Genf, þar sem Þjóöabandalagið og ýmsar stofn- anir þess höfðu aðsetur. Rútur læröi við stofnun, sem mennta átti starfsmenn þessara nýju stofnana, og var siðast starfs- maður hennar. Finnbogi Rútur þekkti þegar til á Alþýðublaðinu, og var einnig vel heima í islenskum stjórnmál- um almennt, m.a. fyrir starf sitt sem þingskrifari, áður en hann fór út. Hann hitti oft Vilhjálm S. Vilhjálmsson, sem þá haföi verið blaðamaður á Alþýðublaöinu all- lengi og var mikill buröarás þar. Eftir að Finnbogi var kominn út, skrifaði hann Vilhjálmi stund- um um það sem var að gerast erlendis en einnig það sem var aö gerast heima á ís- landi á bak við tjöltin þvi hann hafði einnig góö sam- bönd hér heima. Vilhjálmur birti stundum kafla úr bréfum Finn- boga sem greinar i Alþýðublað- inu, undir dulnefni, m.a. um upp- gjör vegna gjaldsþrots Islands- banka. Bankinn varð gjaldþrota árið 1927, en uppgjör þrotabúsins varö ekki opinbert fyrr en árið 1932, er Vilhjálmur birti kafla úr bréfi Rúts til sin. Þar kom fram, hve gífurlegar.fjárhæöir bankinn hafði gefið upp ýmsum skuldu- nautum í hópi helstu útvegs- manna landsins. 1 annaö skipti skrifaði Rútur um forsetakosningarnar i Þýska- landi árið 1932, þar sem Hitler tapaöi fyrir Hindenburg. Vil- hjálmur birti skrif Finnboga i blaðinu sem frétt frá fréttaritara blaðsins i Berlin. Margir, þ.á.m. stórblaðiö New York Times, álitu, aö Hitler væri búinn aö vera eftir þennan ósigur. En Finnbogi Rút- ur vará annarri skoöun. Hann sá, að nasistar höfðu hreinan meiri- hluta i Prússlandi, sem var lang- stærsta og voldugasta sambands- rikið I Þýskalandi, og að þeim ætti að vera auðvelt að ná yfir- ráöum þar. Ef nasistar beittu fyrir sig lögreglunni þar, auk sinna eigin stormsveita, gæti ekk- ert stöövaö þá. Enda náöu nasist- ar völdum i Þýskalandi árið eftir. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson leitaði eftir þvi viö Finnboga Rút, að hann kæmi heim og tæki til starfa við blaðið. Rútur skrifaöi honum og tók lfklega i málaleitan hans Vilhjálmur ræddi þá viö for- ystumenn Alþýðuflokksins, þá Jón Baldvinsson og Héðin Valdi- marsson, en þeir voru þá formað- ur og varaformaður flokksins. Þeim Jðni og Héöni leist vel á skrif Finnboga, og sneru sér til hans, siðla árs 1932. Féllst hann á aö taka aö sér að vera ritstjóri Alþýðublaðsins. Hann setti þó það skilyrði, að blaðinu yrði breytt i nýtískulegra horf, og aö honum yröi gert kleift að reka blaöiö á þann hátt, sem hann teldi heppi- legastan til aö auka útbreiöslu þess. Hann setti mikið fyrir sig, hve prentsmiöja blaðsins var ófullkomin og vildi fá úr þvi bætt, en ekki fékk þó blaðið nýja prent- smiðju meðan hann var ritstjóri. Finnbogi Rútur hefur látiö svo um mælt, aö hann hafi alls ekki sérstaklega haft i hyggju aö leggja fyrir sig blaðamennsku, og pólitiskur framaferill freistaði hans ekki heldur. Hann var I þann mund að ljúka sinu námi ytra, og varmeödoktorsritgerð i smiðum, er hann hvarf heim til að taka við ritstjórn Alþýöublaðsins. Hann hafði og fengið tilboð um vinnu leggja fram krafta sina i barátt- unni við nasismann, þvi honum þótti einsýnt, að lika heima á Islandi yrðu menn að spyrna við fótum. Hann skildi til fulls, hvaða fyrirbæri nasisminn var, en þaö gekk ýmsum illa að skilja á þess- um tima. Hann sá glöggt, að nas- isminn stefndi að styrjöld og landvinningum. Hann lagöi megináherslu á það meðan hann var ritstjóri, að fletta ofan af nas- ismanum. Ekki gekk þaö átaka- laust fyrir sig, t.d. var þeim Þór- bergi eitt sinn stefnt fyrir meið- yrði um Hitler, eins og rakið er hér i blaöinu. Fréttir á forsíðu/ stækkun Finnbogi Rútur tók viö ritstjórn Alþýðublaösins á 14 ára afmælis- degi þess, 29. október 1933. þegar með þvi fyrsta blaði gerbreyttist Alþýðublaðið. Nú var öll aðal- áhersla lögö á fréttirnar. Forsið- an, sem áður var lögö undir aug- lýsingar, varö nú aðalfréttasiða blaðsins. Fyrirsagnir voru stórar og uppsetning öll miðuö, að fá fólk tii að lesa fréttirnar og auðvelda þvi það. Forsenda þessara breyt- inga var stækkun blaösins. Þótt blaöiö væri áfram 4 siður, var dálkunum fjölgað þennan dag, úr 4 I 5, og brotið lengt að sama skapi. ALÞTÐUBLABIÐ *»' tt *AitítMÁVSSU* OAOBLAO OO VIKUHLAO rnmmmmm ALÞVÐUBLAÐIÐ ER 14 ÁRA í DAG pað stwkkar um (iriöjung og oerOur besta fréttabluö landxins TIL I.ESENDA AI.PVDUBLAÐSINS f-HA ALPÝOOSAMBANDI ISLANDS ttkur i>ii rit. Valritnríiftfiin M>f5 ti ttHtl’ivtt.: e> <>tð « »>/■■<> J/jýðtif&fiktffxtnna. smffamr tfiéfri kni.lttn&' !>f fr'i vtrfi biuDJm «,'j< 2 (<H tnnS Qímmbtim/t&uíH •» ÁtPj/öutumtm/ui* Ulstuit BfiBYTÍNCAHNAfí Á AlÞÝ&UBLAÐJMJ ■jvt.Xfcs 1 iiMS\ nMt’&t So » 5 »*!> fk* Stórslgur enskra sósiallsta. * •*••*•/*! »n» Ýrótts.HM* 1 U*««* t S*>*:Á-li *»n< ».»* «'*■« >»* » *«.*- t*í**i*xr vóS t >>:i< 4»M-1»%:»: ■ ef »***« •\.v,ír9.ítKAW tíé. ft*i*w* t»W' ~ *> »•>.>;<■>«»»* »» M:<,t59 yipy,■,-:'>■< !«>*» ; ÍKí-i ftíi>'(8 M fcANSM* tOUMt, I «*«»**• AHAArTANW tucmuu i m**- VANUI tnk k-n Hotf «xn(A KmV Im* i »»x* xm •tkmr rt«*«f iKi.’Kkfi ti ForsiBa Alþýðublaðaim 2*. október 1*33, en þ*ö var fyrsta Ulublaðið, sem Finnbogi Rútur ritstýrði. Blaðið var stækkað úr 4 dálkum upp I 5, og fréttir settar á forsiöu I stað auglýsinga. hjá Þjóðabandalaginu og Vinnu- málastofnuninni. En Finnbogi Rútur skildi manna best, hvaö var aö gerast i Evrópu, og sá fyrir uppgang nas- ismans. Hann hafði kynnt sér ná- ið stjórnmálaástandið i Evrópu, ekki síst i Þýskalandi, enda tengdist það námi hans. Hann fylgdist og ákaflega vel meö blaöaskrifum. Hann var einnig svo aðsegja við hjarta heimsmál- anna, I tengslum við Þjóðabanda- lagiö í Genf, þar sem haldnar voru alþjóðlegar ráöstefnur og þing. Hann umgekkst þar og tal- aði við menn sem stóðu i hringiðu stjórnmálanna meö stórþjóöun- um. Þaö var þannig fyrst og fremst uppkoma nazismans, sem varð til þess að Finnbogi Rútur fór heim. Hann vildi gjarnan Finnbogi Rútur gekk þess aldrei dulinn, aö AlþýBublaðiB ætti aö vera skeleggt pólitiskt málgagn. En honum var einnig ljóst, að það yröi aldrei gott baráttutæki fyrir jafnaöarstefn- una nema það væri læsilegt blaö, flytti glöggar fréttir og bæri allan svip nútima viðhorfa i blaöa- mennsku. Alþýöublaöiö átti helst aö vera blað fyrir alla meö hlut- lausum fréttum, og meginreglan var að hafa allar almennar fréttir ólitaðar i fyrirsögnum. Lesendur áttu aö fá allar fréttir, sem þeir þurftu i Alþýðublaöinu, þannig að óþarfi væri aö kaupa annað blað. Finnbogi Rútur hafði aflaö Alþýðublaöinu erlendra frétta- sambanda til að gera það að göðu fréttablaði. Blaðiö haföi ekki að- eins samband við allar fréttastof-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.