Alþýðublaðið - 23.12.1980, Page 11

Alþýðublaðið - 23.12.1980, Page 11
JÓLABLAÐ 11 Ruwanveliseyja, Anuradhapura, á Sri-Lanka Katamaran-fiskibá tur dreginn á land viö Negombo á Sri Lanka Hreinsun fra'rennslisvatns og verksmiðjuúrgangs er enn varla þekkt i þessu framfara- landi, — Ferhyrndi nútima klukku- turninn er miðdepill, þar iða ýmis ökutæki og blandast háværum brosandi mannfjölda. Margvislegir minjagripir eru boðnirtil sölu og þess vænst, að kaupandi prútti niður verðið um allt að helmingi, það gerir verslunina fyrst ánægjulega. Annars eru verslanir smám- saman að taka upp vestræna söluhætti, festa verðmiða við nær allar vörur. — Vinur minn, sem er reykingarmaður mikill, virðist vera vel þekktur einnig á þessum slóðum. Hann lætur unglinga kaupa fyrir sig siga- rettur, sem þeir fá á verði hinna innfæddu, en vel vitandi þetta borgar vinur minn milliliðum túristaverðið og fær sá mis- muninn (15 til 20%). Þannig verða allir ánægðir — vinur minn, milligöngumaður og sölu- maður og það er gleði á alla vegu. Ég verð þess fljótlega var, að enskukunnátta vinar mins er afar bágborin, og er þetta ein ástæða þess, að hann hefur þá venju að greiða smá drykkju- peninga i allar áttir — nú, og þetta misskilst hvergi. Og er hann þö gjafmildur fyrir. En þetta málleysi hans er þá einnig ástæða fyrir þvi, að hann notar leigubifreið margsinnis á dag — hann er ekki fær um aö spyrja til vegar og biðja um upplýsingar ella. Ég uppgötvaði fljótt, að ýmsir útlendingar nota strætisvagna, þótt þeir séu oft fullir. Farmiðar eru m jög ódýrir. Yfirleitt er allt ódýrt, sem innfæddir þar þurfa sértillifsviðurværis, i samræmi við mjög lágar tekjur þeirra — svo sem strætisvagnaferðir og járnbrautir, matvæli — nema þau séu innflutt — skóla- og læknagjöld. — Eins og i Egypta- landi, Túnis og Gambiu eru skólanemendur klæddir e.k. einkennisklæðum— stelpur og strákar i æðri skólum meira að segja í snjóhvitum búningum. Landið reynir eins og flest aust- ræn riki að vera réttarriki. Alþýðulýðveldi og gimsteinar Heimsfræg var fyrir nokkrum árum forseti Ceylon, frú Band- aranaki, sem talin er vinstri sinnuð enda landið kallað „alþýðulýðveldi” enn i dag. Þegar ég nú talaði við áhang- endur ólikra stjómmálaflokka um þetta liðna timabil, er frúin að nokkru lofsungin fyrir að reyna að umbylta þjóðlifinu og færa það nær þjóðlegum lifs- háttum, en að öðru leyti for- dæmd fyrir hálfkák og mútu- þægni. Stjórn hennar var bráður endir búinn fyrir um það bil áratug, er vopnað lið skaut þús- undir manna, mest unga fylgdarmenn hennar i sann- kölluðu blóðbaði. Þetta er þáttur nútima „þróunarsögu” lands, sem menn vilja nú helst ekki ræða um. Að visu hefur ( veriökomið á þingræðisstjóm á ný, en slikt telst enn til undan- tekninga hjá nýfrjálsum þjóðum. Framfarir eru sýni- legar i iðnaði og verslun. Alit Sri Lanka fer sivaxandi, á alþjóða- vettvangi, enda koma sendi- nefndir — og þá ekki tómhentar — frá mörgum löndum heims- ins, allt frá Noregi, Brasiliu, Nýja Sjálandi, Japan og Búlgariu, að ógleymdum hjálparstofnunum Sameinuðu þjóðanna. ögn meiri kyrrð og virðing einkennir viðskiptin i bönkunum og hjá gimsteinasölum. Sri Lanka hefur frá alda ööli verið þekkt fyrir gimsteinanámur — og slipunarverkstæði Af fjölda svonefndra „hálfgimsteina” má hér nefna rúbina, safirar, ametysta, tópasar og zirkona. Mér var sýndur undurfagur rúbin, sem var þó i meðallagi dýr — 800 rúpiur, um hundraö vestur-þýsk mörk. Mér var sagt, að ýmsar gimsteinateg- undir megi nú framleiða með fyrsta flokks gerviefnum, sem hafa meira aö segja þann kost, að vera óaðfinnanlegir, fegurri en hinir „náttúrulegu” steinar. Nú er svo komið, að jafnvel reyndir gimsteinasalar geta ekki með tækjum sinum séð muninn. Til þess þarf að greina þá i rafeindasmásjá. Hippar á vergangi Er þrir mánuðir voru liðnir þurfti ég að fá framlengingu dvalarleyfis eins og allir út- lendingar. I biðtima hjá „út- lendingaeftirlitinu” gafst mér næði að virða fyrir mér nánar þá ungu menn og konur, sem kallast almennt „hippar”. Hefi ég á ferðalögum minum um mörg lönd svo sannarlega kynnst ólikum manngerðum og stundum furðulegum klæða- burði þeirra. Enda þótt fata- burður milljóna manna beri ótvirætt vitni um eymd og fátækt, man ég ekki eftir að hafa séð jafn lubbalega ung- linga. Margir þeirra virðast vera óþvegnir og ógreiddir, föt þeirra þar aö auki óhrein og stundum i tætlum. Er hér að ræða um grátlegt hirðuleysi og allsherjar úrkynjun, sem vekur ógeð. Vissulega getur enginn vænst þess, að þetta unga ferða- fólk — sem engan veginn er fátækt — beri sig eins og gestir á Interkontinental eða Hilton hóteli. A Sri Lanka fá þessi ung- menni — enn sem komið er — að dveljast og ferðast. Mér er samt kunnugt um það að mörg lönd þar suður frá neita þessari manntegund að komast þar „inn fyrir” — stundum er nægi- legt að karlmenn láti klippa sig. M.a. eru yfirvöld i Singapore mjög kröfuhörð, en oftast hljóðar reglugerð þessara landa á þessa leið: „Stjórnin getur neitað þeim ferðamönnum um aðgang, sem koma ekki fram á mannsæmandi hátt og eru i van- hirtum klæðum. T.d. má neita svonefndum hippum um að komast inn i landið”. Samt hefi ég mætt einstökum prúð- mennum meðal unga fólksins. Ferð til fjalla Járnbrautakerfi landsins er hundrað ára gamalt — og ber það með sér. Nær allir vagnar eru úr sér gengnir og gamal- dags. Fjöldi farþega er gifur- legur. Útlendingar nota þvi helst 1. farrými. Þótt fargjaidið sé tvisvar sinnum hærra, þykir þeim það afar ódýrt á þeirra mælikvarða. í fjalllendinu eru teinar lagðir mjög „ofarlega” og er útsýnið yfir skóglendiö og te-plantekrurnar dásamlegt. Iðnaður er viöast á frumstigi — einstök mjólkurbú og — helst uppi i fjöllunum — svo kallaðar te-verksmiðjur. (Te-runnar fá ekki að verða hærri en einn metri, og eru þung blöð þeirra skorin með stuttu millibili árið um kring). Farþegar hafa mat meðferðis, þvi að ferðin getur hæglega tekið 10 til 15 klukku- stundir — hraðinn er ekki meiri en svo. A flestum biöstöðvum er hægt að kaupa kokos-hnetur — hvikar ungar hendur höggva toppinn af hnetunum og rétta þær inn um opinn glugga til þyrstra ferðamanna sem fegnir drekka hálfan litra af þessari hreinu og hressandi „mjólk”. (Til er önnur tegund kokos- hneta, en „kjötið” er hæfara til að vinna úr feiti). Lifið i vögnunum er annars fjölbreytt og hávært: Fimm börn, tiu ára gömul, stelpur og strákar, sýna nokkurskonar kabarétt, slá kvikar byltur, dansa léttfætt og syngja singhaleskar þjóðvisur — og safna siðan aurum hjá far- þegunum, hlæjandi og kátum. Bandarawela er smáborg I fjöllunum innar i landinu, um 250 km frá höfuðborginni Colombo. Veðráttan þar er talin heilnæmust allra staða i landinu. Þangað flýr efnað fólk hvaðanæva að, þegar hitabeltis- hitinn er kominn yfir 40 stig. En nú var napurt desemberveður og kalt um nætur og enginn út- búnaður til að hita upp her- bergin. Gamaldags eldstóin i eldhúsinu hafði verið máluð ljósrauðum lit — Evrópu- mönnunum til „heiðurs” var mér sagt. Efst i útveggjunum voru i lofthæð handleggjalöng op með stuttu millibili til að hleypa út sumarhita, en þau urðu nú til þess að gera þessar vistarverur enn kaldari en ella. Fyrstu hæturnar voru notuð mörg ullarteppi til að halda á sér hita, siðar fengum við okkur steinoliu- eða rafmagnsofna. Rúmgóða og nýtiskulega húsið var þó bara hið ytra glæsilegt. Innfæddir búast við, að gest- komandinn veröi hrifinn af hinu milda útsýni, fögrum hús- gögnum, teppum og blómum i vösum, en að öðru leyti er gengiðút frá, að hann forvitnist ekkert um innbúið eða 'jafnvel hreinlætið, þvi að undir yfir- borðinu er nær allt sóðalegt og i óreglu, gildir þetta með fáum undantekningum um heimkynni yfirstéttarfólks, sem ég átti eftir að kynnast. — Húsiö var leigt okkur „i góðu ásigkomu- lagi” — en við aðra sýn leyndu gömul óhreinindi sér ekki. Þar við bættist, að bæði rennandi vatn og rafmagn fór af fyrir- varalaust, og reyndist skipu- lagið vera í megnasta ólagi. Það tók þvi nærri tvo mánuði aö koma öllu i viðunandi hórf. Vinnuafl var að visu ódýrt, en að sama skapi ólært og óreynt. Urðum við ekki einungis að skýra hvað átti að gera, heldur og að sýna verkafólkinu hvert einasta handtak, æ ofan i æ. Ekki vantaði þó góðan vilja og kraft.Varþar m.a. eldri maöur sem stundaði hreingerningar (hann haföi áratugum saman verið yfirþjónn á stærsta hóteli þar i borg). Gólfin voru úr finni steypu en óhrein mjög. Var honum sagt að nota vatn, grófa sápu og þétta klúta. A hnjám renndi hann sér yfir gólfið, sem hann hreinsaði með snöggum og aflmiklum hreyfingum — og með þvi að nota handfylli af vatni, svo sparsamur var hann. Hann gat og vildi ekki skilja, að nota þurfti mikið vatn og að skola gólfið vel á eftir, og var nærri skelfingu lostinn, er hann sá að ég tók fleiri vatnsfötur fullar af vatni, hellti yfir stein- gólfið og þurrkaði það sfðan. — Seinna komu nágrannar i heim- sókn til að sjá, hvernig „útlend- ingarnir” fóru að öllu og hvern- ig herrahúsið breyttist I höll með veggklæðum, glugga- tjöldum, skrautvösum og hljómlistarþáttum. Vinnmenn- irnir jafnt og gestirnir fengu kaffi og kökur, eða brauð- sneiðarmeðfinu áleggi og spæl- eggjnm, eöa ákavitisglas með hunangi og vitanlega sigarettur. Fleiri borgarbúar buðust til að vinna á svo glæsilegum kjörum, jfóiÆfákJi * % sr4**'-* *** '*'■»:Va Teblöö vaxa frá 100 metra hæö yfir sjávarmáli á Sri Lanka. Besta tegras fæst samt Veiöiferö þessi, aö veiöa á stöng frá stultum, er algeng á Sri-Lanka. úr blööum sem vaxa 1 1000-2000 metra hæö. Þaö er hárfin samsetning raka, regns og sólarljóss, sem gefur teblööum hiö „rétta bragö”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.