Alþýðublaðið - 23.12.1980, Síða 17
JÓLABLAÐ
17
Fimm skammtar af frönskum
kartöflum og tólf pylsur með öllu
Sagan af Ara Fróðasyni
og Hugborgu konu hans.
Höf. Guðbergur Bergs-
son. útgefandi, Mál og
menning.
Þegar þessi ágæta bók er les-
in, detta manni i hug grisir, sem
leika sér i forinni. Þeir berjast
um allt, enginn annars bróbir,
og þau bandalög, sem gerö eru
eru skammæ og ótraust. Það er
ótrúlega gaman aö lesa þessa
bók og þó hún sé ekki lesin nema
sem einfaldur farsi er það hin
besta skemmtun. í bókinni er
aragrúi skemmtilega af-
myndaðra þersóna, sem manni
finnst þó að maður kannist viö
héöan og þaöan. Og þrátt fyrir
að atburðir séu ýmist hvers-
dagslegir eða fáránlegir, er all-
ur stillinn i frásögninni og sam-
tölunum, fáránlega i stil við
fornar hetjusögur.
t karakterasafni bókarinnar,
má til dæmis nefna Hugborgu,
konu Ara Fróðasonar, sem er
svo vel ættuö aö hún hlaut að
giftast niður fyrir sig. Hún er
svo óhamingjusöm, þvi hún
vildi vera skáld, en fæddist þvi
miður án andagiftar, enda slikt
ekki til i ættinni. Hún varð þvi
aö giftast, einhverjum góöum
skaffara og drekka.
Ari Fróðason, forstjóri var:
,,... mikill aö vallarsýn þótt
hann stæði sjaldan, þvi honum
þótti sætin svo góð. Hinn þrekni
maður þurfti á rúmgóðum bíl að
halda, svo hann kæmist I tæka
tið á skrifstofuna, til að bjarga
fyrirtækinu á morgnana, og búa
það undir daginn.
Gengið seig ætið
á nóttunni, og gjaldeyririnn
hækkaði, en veröbólgan var aö
langt fram eftir degi. Fyrirtæki
Ara Fróðasonar var eins konar
allrahandafyrirtæki og þess
vegna kom hvaöeina hart niður
á þvi. Þegar hann fór af skrif-
stofunni og smellti i lás á kvöld-
in hafði hann á tilfinningunni að
heilagur maður stigi inn i bil
sinn eftir að hann hefði unniö
sitt daglega kraftaverk.”
En þó manni liði eins og
kraftaverkamaður aö kvöldi,
kemur nýr dagur með óvissu
um framtiðina. Ari Fróöason er
að visu feitur, en þó eru til feit-
ari menn, sem éta meir en hann,
„Ósjálfrátt fékk hann minni-
máttarkennd og örlitið i mag-
ann yfir hvað istran á honum
sjálfum var óveruleg, borið
saman við bumbuna á for-
stjóranum.” En umfram allt
verður að bera sig karlmann-
lega þvi Ari Fróðason er það,
sem hann heldur að aðrir haldi
að hann sé.
BÆKIIR
Tveir drengir, Ari Arason
Fróðasonar, og Óli, sonur
leigjanda hjá Ara, læra auövit-
að af þvi, sem fyrir þeim er
haft. „Ari litli hafði þegar feng-
ið tvær undirhökur og hraust-
lega sþekoppa.” Hann hefur
lært græðgina af föður sinum,
enda kaupa þeir sér i matinn,
fimm skammta af frönskum
kartöflum og tólf pylsur meö
öllu.
Óli leigjendasonur hefur að
visu ekki efni á slikum innkaup-
um, en hann gerir sitt besta til
að ná af þeim pylsunum, með
brögöum. Það breytir þvi þó
ekki, að hann sér glögglega I
gegn um Ara Fróðason. Þegar
Ari I uppgeröar angist yfir
drykkjuskap konu sinnar hótar
að hengja sig, ef hún er full rétt
einu sinni, segir óli að honum sé
óhætt að gera það strax. Hug-
bort er nefnilega full út i bil-
skúr, með föður óla
Og sitthvað annað spilar inn i
söguna. Popparar, rokkarar og
pönkarar berjast af miklum
móö, en þó eins og út af engu. Þó
Ara Fróðasyni sé ekki sérlega
um þeirra músik gefið, þá sé
hann i þeim framtiðarvon
landsins menn, sem munu ná á
toppinn úti i heimi, og verða
vinsælir. Verðmætamatiö er
nefnilega það sama hjá báðum,
enda skepnurnar skyldar.
En i raun og veru eru persón-
urnar i þessari bók auövitað
aumkunarveröar, þó ekki beri
mikið á meðaumkvun hjá þeim,
frekar en öðrum kristilegum
dyggðum. t raun og veru verður
að fyrirgefa þessu fólki, þvi þaö
veit ekki hvað þaö gerir. Þaö
ræöur engu um framtið sina eða
lif. Tilburöir þess eru broslegir
á sama hátt og tilburðir fisksins
eru broslegir, þegar hann hefur
látiö ginnast af agninu, bitið sig
fastan á öngulinn og berst um,til
að losna aftur.
Frelsið er ekki meira fyrir
Ara Fróðason og vini hans og
óvini, en frelsi fisksins á önglin-
um. Að visu er svo látið heita að
maður fái að velja hvern öngul-
inn maöur vill, en allt eru
þetta önglar: „Sumir vilja
poppara, aörir vilja rokkara, og
enn aörir vilja bitla, sagöi Óli
litli. Þannig á þetta að vera.
Maður á að fá aö velja, án þess
að tónlistinni sé troðið upp á
mann.
Eflaust samsinnti móðir hans.
Þetta er frelsiö að hver maöur
fái aö velja af hinum tuttugu
tökkum á öllum tækjum! Guö er
ekki lengur einn á himnum, ein-
gyöistrúin er dauö, og þvi eru
ekki lengur framleidd tæki meö
einum takka til aö kveikja og
slökkva, hækka og lækka. Hins-
vegarer boðorðiö „þú skalt ekki
aðra guði hafa” enn þá i fullu
gildi. Þvi nóg er ofstækiö. En
óskin er I engum tengslum við
tppkj |*j 1 *
Það er þvi fáránlegt fyrir Ara
Fróðason að leita út i sveit eftir
friöi og frelsi langt frá ys og þys
borgarinnar. Enda allt feröa-
lagið hlálegt, frá þvi, aö Ari
kaupir lax I búö, áður en þau
fara úr bænum. En ævintýri
þeirra i sveitinni eru margvis-
leg.
Ari reynist auðvitað vera kol-
brjálaöur ökumaður, óþolin-
móöur og taugaveiklaður. Hann
má ekki sjá bil á undan sér, svo
hann verði ekki að komast
framíir.
Ofan á allt saman, verður bill-
inn bensinlaus áður en þau kom-
ast á leiðarenda. Og þá lenda
þau i skemmtilegasta og hláleg-
asta ævintýrinu af öllum ævin-
týrum bókarinnar.
Alþýöubandalagskona,- sem
var þannig á svipinn, „að þaö
gat ekki farið fram hjá neinum
að hún sat einnig i borgar-
stjórn”, kemur keyrandi á
Trabant, hvers eldsneyti er Ara
gagnslaust. 1 krafti sinna and-
legu yfirburða segir konar, að
fleiri séu bensinlausir en Ari og
kompani glaðhlakkalega ”eins
og einhver sem getur leyst
vanda, en vill að sá sem i hann
ratar læri af reynslunni”.
En flokksforystan er skammt
á eftir konunni, i svipuöum bil
Ara, enda er forystan á leiðinni
til að vigja nýja verksmiöju
fjölþjóðafyrirtækis, þvi „loksins
rættist draumur hins visinda-
lega sósialisma um þungaiðnaö
i námulausu landi”. 1 bil foryst-
unnar er eldsneyti sem gagnast
á bil Ara og þvi er sett slanga á
milli, og notaður sogpipukraft-
urinn.
A meöan beðiö er eftir að
bensiniö leki á milli, deilir Ari
viö einn kennimanninn i flokks-
forystunni, og lætur sér hvergi
bregða við torskilin slagorða-
þvætting kennimannsins. „Þú
slærö engu ryki i min augu,
sagði Ari Fróöason sigri
hrósandi. Mér er sama þótt ryk-
blandan sé hljómþýtt rugl úr
Karli Marx og Keynes”.
Og hinn róttæki sósíalista-
flokkur, sverð og skjöldur
verkalýöshreyfingar og þjóö-
frelsis, fær skammir frá for-
stjóranum og kraftaverka-
manninum Ara Fróðasyni, fyrir
þaö, aö vera i baráttu sinni
oröinn borgaralegri I oröi, fasi
og geröum, en nokkur borgara-
flokkur myndi þora, af ótta við
aö veröa að athlægi.
„Mér finnst kommar ekki
vera jafn oröheppnir og þeir
voru i eina tiö, þegar spakmæli,
máltæki, málshættir og orös-
kviðir.úr ritningunni eða rót-
tækum dularfræöum léku þeim
á tungu og lögðu andstæðinginn
að velli á augabragöi og engdist
hann, sem aumingi i rykinu eða
ánamaðkur. 1 flokk ykkar hafa
gengið of margir angurgapar.
Fratiö úr Framsókn og hratið
hefur hrannast i flokkinn og
þeytir nú froðu.
Aá, sagöi maðurinn og
nálgaðist Ara Fróðason svo
ákafur og afskræmdur i fram-
an. að hann var auösæilega ný-
kominn i flokkinn úr Framsókn.
í ákafanum varð mittið á hon-
um sem dæmigerð miöflókka-
samsteypa, þvi bumban engdist
undir beltinu, en ekkert braust
fram annaöen reiöilegur ropi og
einhver ólga sem endaöi I löngu
eymdarlegu ýlfri, likt og garn-
irnar grétu og kölluðu á eitthvað
kvalastillandi og róandi.”
Að visu skal það tekið fram til
skýringar, aö Ari Fróðason
hleypti upp kennimanninum, til
þess að allt bensinið úr flokks-
forystubilnum rynni yfir I sinn
bil, án þess að menn tækju eftir
þvi. Siðan skilur Ari forystuna
eftir með litla Trabantinn einan
ökutækja.
En utan þessa litla sigurs Ara
yfir auðvirðilegum andstæðing-
um, gengurekkert vell feröinni.
Ekkert veiðist, og meir aö segja
laxinn, sem var keyptur I bæn-
um, sleppur i ána, svo ekkert er
að boröa og nátturan reynist
ekkert skjól fyrir hrakin og
svöng borgarbörn. Þau halda
þvi heim á leiö, brennandi
bensini flokksforystunnar, og
hugsa sér gott til glóðarinnar,
að hesthúsa fimm skömmtum af
frönskum kartöflum og tólf
pylsum með öllu, þegar heim
kemur.
Þaö má hverjum manni vera
augljóst, að réttirnir þeir eru
löngu orðnir kaldir. En það er jú
einmitt þaö, sem allt snýst um.
Ekkert hefur gerst, ekkert hefur
breyst. Lifiö er I engu ööruvisi
en áöur.
Einstaklingsframtakið blívur
Fyrir rétt rúmum tveimur ár-
um sfðan sendi ólafur Haukur
Simonarson frá sér siðustu bók
sina. Þetta var bókin „Vatn á
myliu Kölska”. Þetta var býsna
góö og skemmtiieg bók, þótt
ekki ynni hún til verölauna i
skáldsagnasamkeppni eða hlyti
aimenna opinbera viðurkenn-
ingu, enda bækur ekki aðallega
metnar af gæðunum heldur þvi
hvursu söiuvænlegar þær eru i
augum forleggjara. Þannig var
það og þannig verður það sifelit
greiniiegra eftir þvi sem harön-
ar á dalnum i bókabransanum.
Astæöurnar fyrir þvi aö bókin
„Vatn á myllu Kölska” er gerð
að umtalsefni hér er annars
vegar spurningin um það hvort
ný bók höfundar, GALEIÐAN,
muni lika, svo að segja, falla i
skuggann, eöa gleymast og svo
hins vegar vegna þess að bein
tengsl eru milli GALEIÐUNN-
AR og „Vatn á myllu Kölska”. 1
nýju bókinni koma fyrir nokkr-
ar þeirra persóna sem kynntar
voru i fyrrnefndu bókinni og full
ástæða fyrir menn að dusta ryk-
ið af henni nú og skoða þessar
tvær sem eina heild, eða hluta af
heild.
„Vatn á myllu Kölska” er eins
konar feröalag um tilveru betri
borgarana á tslandi. Lýsing á
lifsháttum þeirra og fjölskyldna
þeirra. Kannski fyrst og fremst
reynslusaga Gunnars Hansson-
ar, borgarabarnsins, sem fetar
ekki i fótspor feðranna heldur
er ráðinn hjá Sjónvarpinu,
mestan part fyrir það aö fjöl-
skyldan taldi hann ekki standa
undir meiru..
Skoðandi þessar tvær bækur
sem heild, eða hluta af heild.er
þaö þvi óþarfi fyrir höfundinn,
að þvæla vandmálum millihóp-
anna inn i þessa nýju bók sina,
eða gera grein fyrir þeirra stööu
sérstaklega miðaö við iðnverka-
fólk, enda koma þeir hópar ekki
við sögu i GALEIÐUNNI.
GALEIÐAN fjallar um iön-
verkafólk, en i leiðinni er brugð-
ið upp myndum af yfirstéttinni á
sama hátt og I bókinni „Vatn á
myllu Kölska”. Reyndar gætu
margar lýsingar Galeiöunnar
verið klipptar beint út úr þeirri
fyrrnefndu.
Sagan spannar ekki langt
timabil. Hún hefst á föstudegþ
nær yfir helgina og fram i miðja
næstu viku og gefur anzi trú-
veröuga mynd af lifi verka-
manna, sérstaklega verka-
kvenna,sem selja vinnuafl sitt á
BÆKUR
lægsta taxta iðnverkafólks. Það
einasta sem er óvenjulegt viö
söguþráðinn er það að verka-
konurnar skuli taka upp á þvi aö
fara i verkfall til að knýja fram
umbætur á vinnustaö, og þaö án
vitundar eða vilja heildarsam-
takanna. Slikt gerist yfirleitt
ekki. Svo sterkar eru heljar-
greipar heildarsamtakanna!
Sagan lýsir þannig i stuttu, en
hnitmiðuðu(máli þvi helzta sem
gerist 1 lifi verkafólks. Það er
kjarni málsins. Ekki verður
annaö séð en höfundur hafi
flennigóð tök á viðfangsefninu.
Lýsingarnar eru hvor tveggja i
senn, trúverðugar og um-
hugsunarverðar. Trúverðugar
vegna þeirrar miklu nákvæmni
sem felst I lýsingunni, vegna
næms skilnings á þvi hvaö
skiptir máli og hvaö ekki I þessu
sambandi, vegna þess að lýs-
ingarnar eru lausar við
málskrúð og væmni. Og um-
hugsunarverðar vegna þess að
textinn sjálfur ber uppi ákveðna
skoðun á þvi af hverju lif og
starf verkakvenna er meö þeim
hætti sem lýst er.
Höfundur lýsir ekki bara hlut-
unum, hann skýrir leggur mat
á, framreiðir og tekur sjálfur
afstöðu til þess af hverju þessi
heimur er svona skrúfaður
saman, — hann setur meira aö
segja fram tillögu til lausnar
vandamálinu, en það er meira
en höfundar almennt telja sig
hafa umboð til þess að gera i
dag. Að vlsu er hér um aö ræða
tillögu til lausnar, en engu að
síöur fer Ólafur Haukur hér út
fyrir þaö sem höfundar gera
venjulega og það er gott. Þvi
auðvitaö veröa þeir lika að taka
afstöðu til þess sem er að gerast
i kringum þá. Það er hins vegar
rétt að taka það fram, aö þessi
afstaða höfundar er ekki sett
fram sem krafa um eina leiö
heldur er möguleikinn settur
pent fram, sem hugsanlegur.
Hvort þetta er svo eini mögu-
leikinn verður hver og einn að
gera úpp við sjálfan sig.
Höfundurinn ætlar sér ekki þá
dul, að lýsa hugarheimi kvenn-
anna i bókinni, enda hafa karl-
kyns rithöfundar farið flatir á
slikum tilraunum^ Þess eru
dæmi. Hann tekur þann kost, að
lýsa, eða sýna stúlkurnar utan
frá, en lætur lesandanum það
eftir að spá i það sem hrærist
innra með þeim. Aö þessu leyti
fer höfundur langt út fyrir það
sem oft er kallaö raunsæisbók-
menntir, en er natúralismi.
Imyndunarafl lesandans setur
höfundur með á þessi á fleygu
ferð, en þreytir hann ekki meö
lýsingum innanstokkmuna eöa
þesssem minna máli skiptir. Að
þessu leyti er framsetningin
brilliant.
Þegar lesandinn byrjar aö
fylgjast með lifi cg stárfi verká-
mannanna I dósaverksmiðju
Más Blöndals, sem stendur und-
ir lúxuslifi hans og fjölskyldu
hans i Arnarnesinu,- þá er
greinilega einhver órói farinn
aö gera vart við sig meöal
Styrkur galeiðuþræla liggur i
þvi að þeir róa ekki einir, og
þeir harðna viö átökin...
starfsfólksins. Konurnar eru
farnar aö rifa stólpakjaft viö
Lárus Björnsson, verkstjórann,
sem Már Blöndal, eigandi verk-
smiðjunnar, beitir fyrir sig i
sjálfri framleiösunni, enda
kemur hann eðli málsins sam-
kvæmt, hvergi nærri daglegum
rekstri. Hann sér um markað-
inn og auglýsingar vöru sinnar,
i sjálfum sér, m.a. i sjónvarpi
og öðrum fjölmiðlum.
Verkakonurnar gagnrýna lág
laun,sin á milli og slælegan út-
búnað verksmiöjunnar við
Lárus Björnsson, verkstjórann.
Leiða má getum að þvi að véla-
kosturinn sé járnarusl frá tlma
föður Más Blöndals, sem ekki
hefur veriö hugsaö um, að ööru
leyti en þvi,aö vélarnar eru
smurðar reglulega, enda kemur
þaö I ljós að Már Blöndal hygg-
ur á stórframkvæmdir varöandi
reksturinn. Hann ætlar að
skípta verkafólkinu út, aöallega
konunum, meö nýjum vélum,
sem geta framleitt kattamat I
fimm kilóa dósum með þrem
botnum! Verkakonurnar hafa
auövitað ekki ástæðu til að
gagnrýna laun verkafólks yfir-
leitt, enda verkamenn þeir sem
karlkyns eru yfirborgaðir i
samræmi við það sem gerist i
raunveruleikanum.
Þaö er hins vegar sjálfgefiö,
að stúlkurnar komast ekki
lengra en að rifa kjaft um laun-
in, enda samningar um þau á
einni hendi heildarsamtakanna.
Þegar hins vegar ein kvennanna
slasast viö vinnu sina þá gripa
þær til sinna ráða, vitandi það
aö allur útbúnaöur verksmiöu-
unnar er langt frá þvi að vera
löglegur skv. ákvæðum um
öryggisbúnaö á vinnustöðum.
Með þessa staðreynd aö vopni
leita þær hjálpar á skrifstofu
verkalýðssamtakanna, en er
kurteislega visað á bug með lof-
orði um aö málið skuli athugaö.
Eftir að hafa haldiö fund i fri-
tima sinum og fengið þessa út-
reiö hjá stéttarsamtökunum
fara þær einfaldlega I verkfall.
Með þvi má segja að bókinni
ljúki. Auðvitað er atburöarásin
ekki svona einföld heldur marg-
slungin i einfaldleika sinum og
vissulega skýrir atvikið milli
Más Blöndals, eiganda verk-
smiöjunnar, og Lárusar Björns-
sonar verkstjóra, mikið um þaö
hvaöa afstöðu höfundur tekur,
en þaö er óþarfi að fara fleiri
oröum um efnisþráöinn.
Athyglisverðara er að skoða
þá þætti, sem svo aö segja bera
frásögnina uppi. Þá þætti sem
liggja I sjálfum textanum og
ákvaða með hvaöa hætti frá-
sögnin skriður áfram. Akvaröar
svo aö segja hvaö gerist næst.
Þvi sé þetta ekki gert er hætt við
þvi aö menn einfaldi söguna um
of, komist jafnvel að þvi, við
lestur bókarinnar, að það séu
karlmennirnir sem kúgi kon-
una, bara si svona, eöa að þaö sé
vegna áhugaleysis aö verka-
lýðshreyfingin er ekki virk,sem
samtök og baráttuvettvangur
verkafólks. Vissulega l
má til sanns vegar færa [w
að karlmenn L