Vísir - 16.01.1969, Blaðsíða 8

Vísir - 16.01.1969, Blaðsíða 8
V1S I R . Fimmtudagur 16. janúar 1969. s ca VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjvjri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfuiltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: AÖalstræti 8. Sími 11660 Ritstjorn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuöi innanlands 1 lausasölu kr. 10.00 eintakiö Prentsmiöja Vísis — Edda h.f. Þeir skilja ekki J>að er eins og Magnús Kjartansson, ritstjóri Þjóð- viljans, sé ekki öruggur um margfalt íslandsmet sitt í rangfærslum á prenti og honum finnist, að hann þurfi alltaf að vinna ný afrek á því sviði til þess að sanna yfirburði sína. Nú síðast fullyrti hann í Austra, að Vísir hefði lýst yfir stuðningi við kenningar Arons Guðbrandssonar um leigu Keflavíkurflugvallar. Þetta er alrangt. Vísir hefur ekki lýst yfir stuðningi við þessar kenningar og styður þær ekki. Líklega er samt ekki um vísvitandi rangfærslu að ræða hjá Magnúsi. Hann skilur bara ekki, að dag- blöð geti birt greinar, sem túlka ýmis sjónarmið önn- ur en ritstjórnarinnar og geta verið í beinni andstöðu við stefnu ritstjórnarinnar, þar á meðal kjallaragrein- ar. Lýðræðissinnuð blöð hafa ekki miklar áhyggjur af slíkri fjölbreytni í birtingu skoðana, því að mikil- vægur þáttur lýðræðisins er, að einstaklingar geti látið skoðanir sínar í ljós á prenti. Slíkt er náttúrlega óskiljanlegt ráðamönnum alræðissinnaðra blaða, sem aldrei birta neitt, sem ekki er í samræmi við hina einu, réttu línu. Sama vandamál er uppi á teningnum á framagosa- síðu Tímans. Forsvarsmenn hennar túlkuðu fyrr í vet- ur skoðun, er birtist í grein í Vísis undir höfundar- nafni, sem sjónarmið blaðsins sjálfs. Þessi þröngsýni lýsir félagslegum vanþroska og er ekki til fyrirmynd- ar í lýðræðisríki. Ekki alls fyrir löngu birtust í Vísi sama daginn tvenns konar gerólíkar skoðanir á eðli sósíalismans, önnur í leiðara blaðsins, en hin í grein undir höfund- arnafni. Þetta þótti Þjóðviljamönnum mikil firn og stórmerki, en lýðræðissinnum finnst aftur á móti ekk- ert eðlilegra. Brosleg mynd af þessu ritskoðunarhugarfari köm í ljós, þegar Vísir skýrði frá sjónarmiðum beggja að- ila í slagsmálum mótmælafólks og lögreglr rétt fyrir jólin. Einstakir stuðningsmenn beggja aðila urðu mjög harmi slegnir yfir því, að sjónarmið hins aðilans skyldi líka vera túlkað í blaðinu. Einkum var þetta afkára- legur harmur, þegar í hlut áttu menn, sem töldu sig vera lýðræðissinna, en sýndu við þetta tækifæri, að það var aðeins á yfirborðinu, en undir niðri voru þeir alræðissinnar. Nýlega fréttist frá Tékkóslóvakíu, að prentarar þar í landi hafi ákveðið að koma í veg fyrir birtingu skoð- ana, sem ekki séu í samræmi við umbótastefnuna frá því í janúar í fyrra. Þarna er enn á ferðinni gamla lögmálið um, að tilgangurinn helgi meðalið. Þetta er hættulegasta kenning, sem nokkru sinni hefur kom- izt á kieik í heiminum. Hún hefur gefið ofstækisfull- um og fordómafullum hugsjónamönnum lausan taum- inn og valdið mannkyninu ólýsanlegum þjáningum. Ein grein hennar er ritskoðunarhugarfarið. Johnson ræddi mest um innanlandsmálin □ Johnson forseti varði tveimur þriðju hlutum ræðu sinnar til þess að ræða innanríkismálin. Hann ræddi hvað áunn- izt hefði, nauðsyn þess að halda áfram að sinna umbótum og auka þær, og gera sér grein fyrir, að til þess þyrfti fjár- magn. Til alls þessa þyrfti víðtæka lagasetn- ingu. Hann ræddi endur- byggingu 150 borga og að koma upp yfir hálfri milljón heimila fyrir hús næðislausar fjölskyldur, og að gert yrði ráð fyrir fjárveitingum til þessa á fjárlagafrumvarpinu fyr ir næsta fjárhagsár. Forsetinn bar fram nýja til- lögu um stofnun framfarabanka (Development Bank), sem ríki og einstaklingar ættu aöild aö, og yrði hlutverk bankans að greiöa fyrir fjárfestingu til um- bóta. Forsetinn boöaöi aukningu á al- mannatryggingum svo næmi 13 af hundraði aö minnsta kosti, m.a. auknar styrkveitingar til snauöra. „Vér verðum að sjá öll- um barnshafandi konum fyrir sómasamlegri læknishjálp og umönnun og góðri umönnun barna á fyrsta aldursári." Forsetinn mælti meö skrásetn- ingu skotvopna og frekari tak- mörkunum á söJu skotvopna og lagasetningu í þessu efni og kvað hana mundu verða til þess að drægi úr afbrotum. Hann ræddi lög þau, sem sett hafa veriö til aö sporna viö kyn- þáttamisrétti og m. a. húsnæöis- 1IÖgin frá .l968Tf’he Fair Housing Act), sem sett eru til verndar réttindum blökkufólks til hús- næöis. Framfylgja yrði þessum lögum röggsamlega. Forsetinn ræddi aukiö öryggi á almannafæri og kvaöst leggja til, að sambands- og sambands- rfkjastjórnarvöld fengju til um- ráða samtals 300 milljónir doll- ara til aukins eftirlits öryggis á götum, og til þess aö draga úr afbrotum. Allt kostaði þetta fé, en verði ur.: sömu þjóölífsgrósku að ræöa næstu 8 ár, sem þau 8 ár, sem eru aö baki, mun veröa fé fyrir hendi til þessara hluta og margs annars. Johnson forseti fer ekki dult með, að hann hyggi gott til dvalar sem oftast á búgarði sínum í Texas. Forsetinn kvaðst mundu leggja til, aö framlengd yrðu lögin um 10% viöbótartekjuskatt, en f yf- irlýsingu, sem birt var um sama leyti og Johnson flutti ræðuna, sagði Nixon, að þessi skattur yröi lagöur niður „undir eins og hans væri ekki lengur þörf vegna styrjaldarinnar í Víetnam, og undir eins og efnahagsástæð- ur yfirleitt leyfa. Forsetinn minntist allra, sem höföu stutt hann úr báöum flokkum, þeirra meðal fyrrver- andi forseta Eisenhowers og Trumans, — og ^^Vingin um John F. Kennedy hefði verið leiðarljós ... Verðandi forseti, Richard Nixon, þarf á skilningi þjóðþingsins og samúð að halda alveg eins og ég. Hann á rétt á þeim skilningi. Þær byrðar, sem lagöar verða á hans heröar eru byrðar, sem hann ber fyrir okk- ur öll. Enginn okkar má reyna að þyngja þær af persónulegri þröngsýni eða flokkshagsmuna vegna. Ég vona, að það verði sagt aö heilli öld liðinii. að við höfum revnt að koms á meira réttiæti fyrir alla, sem landið byggja — reynt að tryggja blessun frelsis fyrir velfarnað þjóðarinnar. Ég vona, að þaö verði sagt, aö við höfum reynt. Ég þakka ykkur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.