Vísir - 04.03.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 04.03.1969, Blaðsíða 4
Maximllian Schell sem Hamlet Danaprins. Einn reyndasti brúögumi í heimi mun vera Bandaríkjamað- urinn séra Glvnn Wolfe (eða Úlf- ur), en hann er nú giftur i nítjánda skipti. Séra Úlfur er auðugur hótel- eigandi í Hollywood og fyrrver- andi prestur. Nú síðast kvæntist hann nítján ára stúlku, Gloríu að nafni. Séra Úlfur kvæntist í fyrsta sinn árið 1930. Allar konur hans hafa verið ungar og fallegar. Það hjónaband, sem entist lengst, stóð í fimm ár, það sem entist stytzt síöð í fimm daga. Eftir þessi hjónabönd mun Úlfur vera 32 bama faðir, og ef til vill á hann einhver utan hjónabanda. Hann hefur gengið að eiga 17 konur, því að tveimur konum hef- ur hann kvænzt tvisvar, og ekki er vitað til þess að aðrir menn hafi kvænzt oftar. Þeir dagar eru nú liðnir hjá þeim á slysavarðstofunni í Lud- wigshafen f Rínarhéraði, þegar sjúklingurinn þurfti að líða ó- þægindi vegna þess að hann lá alltaf hreyfingarlaus í rúminu sínu I sömu stellingum. Myndin héma sýnir nýtt sjúkra rúm, sem þeir hafa nýlega tekiö þar í notkun. Eins og á mynd- inni sést er hægur vandinn að snúa rúminu á ýmsa vegu, svo sjúklingar, sem vegna alvarlegra meiðsla hefðu annars þurft að liggja grafkyrrir í vissum stell- ingum, geta nú valið hvemig þeir helzt vilja liggja, meöan þeir borða eða lest. — Það Nýtt Disney-land 17 verkafélög byggingariðnað- armanna og framleiðslufyrirtæki Walt Disneys hafa nýlega gert með sér samning um vinnufrið við eitthvert stærsta einkafram- tak, sem sögur fara af. Fyrirtækið Walt Disneys, sem haldið hefur áfram að blómstra. þrátt fyrir fráfall hins vinsæla teiknimyndahöfundar, hefur nefni lega tekið að sér að byggja „ferða mannagildru" nærri Orlando, en kostnaður verksins er áætlaður munu nema um 500 millj. dollara. Staðurinn hefur verið valinn og .1 ætlunin er að reisa þar upp sam bland af tívolí og Disney-landi, líku því sem Disney gerði í Kali- forníu. Orlando-yfirvöld gera sér miklar vonir um, að staöurinn komi til með að njóta vinsælda meðal ferðamanna. Verk þetta verður fimm sinn- um stærra í sniöum en Disney- land í Kaliforníu. Engir ^inkaað- ilar hafa staðið í slíkum stórræð- um fyrr, og eina verkið, sem þol- ir einhvern samjöfnuð, er upp- bygging Kennedy-höfða á sínum tíma, en það var á vegum stjórn- arvaldanna. er rafmagnsmótor, sem snýr rúminu. Reyndar er ekki ýkja langt síð an lokið var við smíði þessa sjúkrahúss, sem eingöngu veitir móttöku slösuðu fólki. Sjúkrahús ið þykir eitthvert það nýtízkuleg asta sinnar tegundar, en smíði þess kostaðj 38 milljónir marka. Þar eru rúm fyrir 300 sjúklinga. STIGAR ÁN STIGAÞREPA A listaverkauppboðum, þar sem hlutir skiptá um eigéndur fyrir svimandi upphæðir, mun einnig vera hægt að gera all góð kaup. Bandaríski sjónvarps- maðurinn Dick Cavett kveðst hafa verið hundheppinn, er hon- um var slegin teikning eftir Rem brandt fyrir aðeins 150 pund. „Þetta er ekki aðeins gjafverð fyr ir teikninguna", segir hann „held ur er hún einstök vegna þess að þetta er eina teikningin. sem Rem brandt gerði með kúlupenna." Ringo Starr á nú í deilum við húseiganda, sem hann leigir hjá í London. Ringo var svo greiðvik inn, að hann lánaði vini sínum John Lennon og ástkonu hans Yoko Ono afnot af íbúðinni um fcíma, og nú hefur húseigandinn farið í mál og krefst skaöabóta, því að hann segir, að það sem fram hafi farið í húsinu, hafi ver ið „ólöglegt, ósiðlegt og óviðeig andi.“ Hinn frægi svissneski leikari Maximilian Schell vakti miklar deilur og hnevkslan. þegar hann lék í Hamlet-sýningu í Miinchen á dögunum. Þar birtist Schell í gervi Hamlets með eldrauðan hár lubba, og hikaði hvergi við að breyta frá hinum hefðbundna leik texta. Meðal anaars sagði hann: „Að lifa eða ekki“ I stað þess að segja eins og frumtextinn gerir ráð fyrir: „Að vera eða ekki.“ „Mér fannst gamla setningin of lágkúruleg og væmin", sagði Schell. „Shakespeare mundi ekki skrifa þannig ef hann væri nú uppi* I nýtízku elliheimili í Garath, skammt frá Diisseldorf, finnast engin stigaþrep. Prófessor Böhm, arkitektinn, sem teiknaSi húsið, kom öllum stigum og tröppum þannig fyrir í húsinu, að þeir lágu f mjúkum bogum upp á efri hæð- imar, svo hvergi er bratt upp að ganga. Manni dettur í hug völundar- hús, þegar maður virðir fyrir sér meðfylgjandi mynd af húsakynn- um gamla fólksins. Hér og þar er komið fyrir rauf- um í veggina og bekkjum við „stiga“handriðið, svo öldungarnir geti setzt og hvílt sig á leiðinni upp á hanabjálkaloft. Húsið er innréttaö með múr- steinum, en þeir kostuöu 4,5 millj ónir marka. Hefur sá þáttur byggingarkostnaðarins vakiðmjög fjörugar umræður og jafnvel deil- ur í héraðinu. Aldraða fólkið, sem þarna eyðir stundum sínum, þykir þrífast vel, en heimilið rúmar 105dvalargesti. Endurgoldin gömul skuld Dave Kunde, bóndi í Iowa í Bandaríkjunum, heldur þvl fram, að kýrin hans, hún Beauty hafi bjargað lífi hans, þegar hann eitt sinn hafði misst meðvitund vegna kolsýringseitrunar. Kusa opnaði hlöðudyrnar, svo inn streymdi hreint loft. og vakti hann til lífsins með því aö sleikja á honum andlitið. I janúarmánuði kjálkabrotnaðj Beauty, en Kunde þvertók fyrir það, að henni yrði lógað. I stað- inn fór hann með hana til dýra- læknis, sem nam í burtu bemflís ina og tók fjórar tennur úr neðri kjálka hennar. Kunde tók hana síðan heim til sín og hjúkraði henni, enda hafði þessi úrvals- gripur eitt sinn unnið t?l verð- launa sem fyrsta flokks mjólkur kýr. En nú hefur hún sem sagt jafn að metin. NÝTlZKU SJÚKRARÚM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.