Vísir - 18.03.1969, Page 2
VISIR . Þriðjudagur 18. marz 1969.
JG ER ÓFÚS AÐ AFSALA MER
ÁHUGAMANNARÉTTINDUNUM
segir Reynir Oskarsson, markvörður Keflavikur,
sem boðið er að gerast atvinnumaður hjá
Arsenal \
0 í Keflavík er ekki
lengur talað einung-
is um innan- og utan-
hússæfingar knattspyrnu
manna, heldur alveg
eins utanlandsæfingar
þeirra. Kemur það til af
því að þeir hafa gert víð-
reist í vetur. Sex úr
þeirra hópi hafa stundað
æfingar með þýzkum og
enskum liðum og eru
fjórir þeirra komnir
heim og léku allir með
ÍBK gegn KR um helg-
ina, en leiknum lauk
með sigri heimamanna,
2:1, eftir mjög jafnan og
tvísýnan leik, sem sjá
má af því að Keflvíking-
sumar verða Harlem Globe
Trotters á ferð um Noröurlönd. Lið
þetta er skipaö eintómum lista-
mönnum í meðferð' á körfubolta.
Byrja þeir næstu daga Evrópuferð
og voru Finnland, Danmörk oy.
ar skoruðu sigurmarkið
á síðustu sekúndum
leiksins.
Allmargir áhorfendur voru aö
leiknum, þótt aðstæður væru
hinar verstu, rok og rigning og
völlurinn eitt forarsvað, en
nokkuð mun hafa ráðið að menn
fýsti að sjá þá pilta leika, sem
æft höfðu með Arsenal, eða
„nallana", eins og þeir eru kall-
aðir í gamni.
En einum þeirra Reyni Ósk-
arssyni stendur til boða að ger-
ast leikmaður hjá Arsenal e'f
nauðsynleg leyfi fást. Frétta-
maður Vísis náði tali af Reyni
eftir leikinn til að forvitnast um
Englandsförina.
— Hve lengi æfðirðu hjá
Arsenal?
,,í tæpa tvo mánuði. Ég fór
meö Gunnari Sigtryggssyni 17.
jan s.l. og kom heim í fyrra-
dag“.
— Hvar dvölduð þið ytra?
„Á gistihúsi nálægt High-
bury. Gisting og morgunveröur
kostaði/l% pund, gistihúsiö er
ekki éign Arsenal en félagið
hefur samið við það.“
— Hvar og hvemig æfðuð
þiö?
„I æfingastöðvum félags rétt
fyrir utan London. Ég með
varaliðinu en Gunnar meö ungl-
ingaliöinu. Petta er gríðarstórt
svæði meö 6 grasvöllum."
— Hve lengi var æft daglega?
„Klukkan 9 þurftum viö að
vera mættir 1 farþegavagninn
út á æ'fingasvæðið, þannig að
æfingin hófst um kl. 10 og stóð
til 4 eftir hádegi, en matarhlé
var á milli.“
— Hvernig var æfingum hag-
að?
„Fram að hádegi voru upphit-
unar og úthaldsæfingar, siðan
var tekinn léttur leikur, að lok-
um voru leikaðferðir og stað-
setningar æfðar sérstaklega."
— En fengu markverðir þá
enga sérþjálfun?
„Jú, að loknu þessu, þá voru
markverðir teknir í klukku-
stundar séræfingu, og það var
án miskunnar".
— Var það e.t.v. þaö erfið-
asta?
„Nei, tvisvar f viku eru menn
látnir hlaupa 5—6 km i forar-
leðju. Við skelltum okkur í
hlaupið, strax fyrstu vikuna,
æfingarlitlir. Ég kom 11. í mark
og skaut ref fyrir rass fullþjálf-
m—> 10. síöa
Froflnkvæmdastióri
KSÍ jafnframt
fréttamaður
Morgunblaðsins?
Þetta skemmtUega viðtal Magn-
úsar Gíslasonar, fréttaritara Vísis
í Garði, Gerðum, hefði án efa birt
fyrstu fréttir af þeim ánægjulega
atburði, þegar Arsenalmenn fóru
þess á leit við Reyni Óskarsson að
hann gerðist atvinnumaður með
liðinu, EF framkvæmdastjóri
Knattspyrnusambands ísiands væri
ekki jafnframt dulbúinn fréttamað-
ur Morgunblaðsins.
Magnús átti leið til KSÍ á laug-
ardagsmorgun, sagði Áma í granda-
leysi söguna. Árni tók þegar sfmann
og hringdi í Morgunblaðið með
þessa sögu sína, og tók ekki
minnsta tillit til útskýringa Magn-
úsar á því að hann væri fréttamað-
ur Vísis og vildi sjá söguna í sínu
blaði fyrst.
En þama fengu blaðamenn stað-
fest þaö sem þá hafði lengi grunað
og hefur hvaö eftir annað oröið til-
efni til væringa milli þeirra og
KSf. — Ámi Ágústsson er óheill í
starfi sínu, þrátt fyrir að hann hafi
svarið og sárt við lagt að ekki væri
fótur fyrir neinu slíku.
Verður vart séð að knattspymu-
sambandiö nái langt með slíkum
starfsmanni. Fjölmiðlarnir veröa að
'fá sömu meðferð hjá KSf, en að-
feröir eins og þær sem Ámi notar
eru óheiðarlegar í fyllsta máta.
Óheiöarlegur maður hefur ekkert
að gera í starfi framkvæmdastjóra.
Við heimtum skýringar! — jbp —
Stúdentar náðu í 2 dýrmæt stig
Á sunnudagskvöldið voru leiknir
tveir leikii- í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi. Fyrri leikurinn var i
1. flokki milli KR og ÍR en sá seinni
var 1. deildar leikur milli ÍS og
KFR.
1. fl. KR:ÍR, 48:32.
KR náði forustunni strax í upp-
hafi meö 12:6. Síðan varð leikur-
itin nokkuð jafnari og stóð 24:20
íyrir KR í hálfleik.
f seinni hálfleik var barizt af
•miklu kappi og greip talsverður
æsingur bæöi liðin. Sóknarlotur
beggja urðu því nokkuð fálmkennd-
ar og dómararnir létu margar lög-
leysur viðgangast.
KR-ingar vom alltaf yfir og
tryggðu sér sigurinn með góðum
endaspretti. Lauk leiknum með
48:35, KR í vil.
Stigahæstur KR-inganna var Ól-
afur Finsen með 25 stig og ógn-
uöu langskot hans ÍR-ingunum
mjög.
ÍS : KFR 56:53.
Þessi leikur var talsvert þýðing-
armikill, þar sem bæði liðin eru í
fallhættu. Ekki virtist það þó hafa
áhrif á áhorfendafjöldann frekar en
vant er. Má teljast furðulegt hve
lítinn áhuga háskólastúdentar sýna
félögum sínum á þessum erfiðu tím
um hjá liðinu.
Bæði liðin léku varnarkerfið mað-
ur á mann allan leikinn út. Um
miðjan fyrri hálfleik náðu stúdentar
litlu forskoti, sem þeir héldu upp
frá því. Staðan í leikhléi var 30:26
fyrir ÍS.
Seinni hálfleikur var svipaður
þeim fyrri nema að harkan varð
meiri. Þegar nokkrar sekúndur voru
til leiksloka fær Þórir Magnússon
tvö vítaköst. Staöan var 56:52 fyr-
ir ÍS og var því ógemingur fyrir
KFR aö jafna. Þórir skoraði úr öðru <
skotinu og leiknum lauk 56:53 fyrir .
stúdenta. Hjá þeim var Birgir Þor-
kelsson beztur og skoraði 26 stig.
Einnig átti Bjarni Gunnar prýöis
góðan leik og skoraði 15 stig.
Að venju var Þórir Magnússon
beztur í KFR-liöinu, hirti mörg frá-
köst og skoraði flest stig. í KFR eru
margir efnilegir, ungir körfubolta-
menn og getur þaö því orðið skeinu-
hætt hvaða 1. deildarliði sem er í
framtíðinni.
TILKYNNÍNG
Nýtt símanúmer Sementsverksmiðjunnar í Ártúnshöfða verður
8-34-00
frá og með miðvikudeginum 19. marz.
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
Nýtízku veitingahús — AUSTURVER — Háaíeitisþraut 68
— Sendum — Sími 82455
Svíþjóð á dagskrá, — en ekki er
talið líklegt að úr Danmerkursýn-
ingum véK >' að þessu sinni, heldur
síðar í sumar og þá e.t.v. aftur á
hinum Norðurlöndunum.
ELDHUSINNRETTINGAR
SKEIFAN 7
SÖLUUMBOÐ:
ÓOINSTORG HF.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16