Vísir - 08.04.1969, Síða 2
V í S IR . Þriðjudagur 8. apríl 1969.
Frá skíðalandsmótinu um páskana, - þarna var sæmilegasta veður og biðröð myndaðist við skíðalyftuna.
Akureyringar í forystusætinu
— Unnu 4 gullverblaun af 6 i alpagreinunum
VÁLYND VEÐUR herjuðu á ísafjörð og skíða-
landsmótið þar um páskana. Fyrst í gærmorgun
gægðist sólin fram undan skýjahjúpnum að ein-
hverju gagni, — en það var um seinan, skíðafólkið
og hinir fjölmörgu gestir ísfirðinga voru að hugsa
til heimferðar, en ekki skíðaferðar upp til fjalla.
Þannig fór veðrið illa með
alpagreinamar og keppni í þeim
sem fór þó fram við hin kald-
ranalegu skilyrði. Akureyr-
ingar voru sannarlega sigursæl-
ir í þessum greinum, unnu 3
gull í svigi og stórsvigi og að
auki vann Reynir Brynjólfsson
alpatvíkeppnina, þ. e. fékk
beztu stigaútkomu 1 svigi og
stórsvigi, en í tilsvarandi
keppni kvenna vann Árdís Þórð
ardóttir í hnifjafnri keppni við
Barböra Geirsdóttur, Akureyri,
sem ógnaði nú verulega veldi
Árdísar sem skíðadrottningar
okkar. Þá var keppnin við þær
Hrafnhildi Helgadóttur, Reykja-
vik og Karólínu Guðmundsdótt-
ur, Akureyri, mjög jöfn.
Barbara Geirsdóttir, þessi
unga Akureyrarmær vann sinn
fyrsta íslandsmeistaratitil í stór
'viginu, fékk tímann 76,60 sek.
og „keyrði“ af miklu öryggi.
Árdis fékk 77.27 sek. og mjög
kom á óvart frammistaða ungr-
ar þingeyskrar blómarósar Sig-
rúnar Þórhallsdóttur, sem fékk
tímann 80,42, en Karólína varð
fjórða á 82,04.
í svigi kvenna vann Árdís aft-
ur á móti. Hún fékk lakari tíma
en Barbara í fyrri umferð, 50,9
gegn 50,2 sek. en í seinni ferð-
inni vora engin grið gefin, Ár-
dís „keyrði“ á bezta brautar-
tímanum, 47,9 sek. samanlagt
98.8 sek. Barbara á 50.7 sek.
eða samanlagt 100,9 sek. Hrafn-
hildur Helgadóttir úr Reykjavfk
varð önnur á 110 sek. og Karó-
lína fjórða á 112 sek.
En víkjum að hinni hnífjöfnu
keppni karlanna í stórsvigi.
Árni Óðinsson, Akureyri varð
þar sigurvegari á 76,74 sek., og
félagi hans Reynir Brynjólfsson
annar á 77 sek., eða 0,26 sek.
lakari tíma, sem er sannarlega
ekki stór munur, en tímataka
er mjög nákvæm eins og sjá
má. Tveir Húsvíkingar, Björn
Haraldsson og Héðinn Stefáns-
son komu í 3. og 4. sæti, jafnir
með tímann 77,76 sek. og Jó-
hann Vilbergsson, Reykjavík
varð fimmti með 78,45 sek.
I sviginu varð Reynir Brynj-
ólfsson, Akureyri meistari á
112,5 sek. samanlagt. Hann
hafði 3/10 úr sek. betri tíma í
fyrri ferð en helzti keppinautur
hans, Ámi Sigurðsson frá ísa-
firði, sem heimamenn treystu
mjög á að ynni gullið í þess-
ari eftirsóttu grein. í seinni um-
ferðinni fékk Árni tímann 58,0
en Reynir bætti sinn tíma í
56,1 sem var bezti brautartím-
inn. Sigur Reynis varð því glæsi
legur, tveir beztu brautartímar
keppninnar, samtals 112,5 en
Árni 114,7, ívar Sigmundsson,
Akureyri varð þriðji með tím-
ann 116,4, Guðmundur Jóhanns-
son ísafirði 120,4 og Viðar Garð
arsson, Akureyri með sama
tíma og jafn Guömundi.
Akureyringar, sem búa nú
við glæsilegustu skíðamannvirki
landsins í Hlíðarfjalli, virðast
því notfæra sér þau eins og
bezt verður á kosið. Á árum
áður sóttu Siglfirðingar að
venju megnið af verðlaunagrip-
um mótsins í „töðugjöldum"
mótsins, en nú er af sem áður
var. Sigramir skiptast meira og
Siglfirðingarnir unnu síður en
svo meira en aðrir, en líklega
verður að skipa Akureyringum
í forystu skíðamanna í dag.
• Mikið Iíf og fjör var f ensku
knattspymunni yfir hátíð-
ina. Úrslit urðu oft mjög óvænt.
Hér á eftir fylgja úrslitin í 1.
og 2. deild:
Miðvikudagur 2. apríl
1. deild:
Ungur Siglfirðingur vann skíðastökkið
Skíðastökkið, svipmesta og glæsi
iegasta grein skíðaíþróttarinnar er
alltaf meö á landsmótum, en er því
miður allt f lítið stundað bæði á
æfingum og keppnum hérlendis og
kemur margt til að svo er.
Ungur Siglfiröingur vann sigur
á skíöalandsmótinu um páskana í
þessari grein, en í verðlaunasæti
röðuðu Siglfirðingar sér reyndar.
Haukur Jónsson átti bæði lengsta
stökkiö, 33 metra stökk í síðari
tilraun en 32.5 í því fyrra, og fékk
216.5 stig þegar búið var að taka
stíl hans með í dæmið.
Birgir Guðlaugsson stökk 31
metra og 29.5 metra og fékk 205.3
stig en Sigurjón Erlendsson stökk
31.5 metra og 29.5 metra en hlaut
stigatöluna 200.5 stig. í fjóröa sæti
kom Svanberg Þóröarson, Ólafs-
firði.
Ólafsfirðingur vann flokk 17—19
ára, hann heitir Guðmundur Ólafs-
Göngugullin til Fljótamanna
— en í boðgöngunni brást „stjarnan" á siðasta sprettinum
Mesti göngugarpur landsins á
skíðum er án efa Trausti Sveinsson
Fljótamaður, en hann vann meö yf-
’rbu. ðum 15 og 30 km göngukeppni
4 skíðaiandsmótinu um páskana.
Trausti hreinlega ,,flaug“ áfram
miðað við aðra keppendur, og vann
hann m.a. grænlenzkan gest. Peter
Brandt (ekki þó son þýzka vara-
kanslarans, sem er alnafnj þess
"r^nlenzka).
í 15 ten gekk Trausti á 53 mín
33 sek, en Kristján Rafn Guðm.,
ísafirði var næstur á 56. 32. Frí-
mann Fljótamaður Ásmundsson
var á 56. 33, munaði aðeins sek-
úndu á honum og ísfirðingnum og
Gunnar Guðmundsson, fyrrum ís-
landsmeistari fyrir Siglufjörð og
landsliðsmaður f göngu, varð að
láta sér nægja 4. sætiö.
í Iöngu göngunni fékk Trausti
tímann 119 mín 34 sek, Brandt 125
mín og 10 sek, Gunnar 126 mín '3
sek og Kristján 126 mín 34 sek.
í
Nú skyldu menn ætla að Fljóta-
menn væru sigurstranglegir í 4x10
km göngunni, — en svo bregðast
krosstré sem önnur tré, Trausta
Sveinssyni mistókst í síðasta sprett
inum, — Fljótamenn höfðu 6 mín.
yfir eftir 2 fyrstu sprettina og
m->- 10. síða.
son og fékk 191,3 stig, stökk lengst
27,5 metra, en Grænlendingurinn
Kurt Titusen var með í þessum
flokki, sem gestur, stökk lengst 30
metra og fékk 214 stig.
Manch. United — W.B.A. 2 1
Tottenham — Newcastle 1 1
2. dcild:
Fullham — Derby 0 1
Föstudagur 4. apríl 1. deild:
Chelsea — Newcastle 1 1
Ipwich — Sunderland 1 0
Manch. City — Leicester City 2 0
Queens Park — Leeds 0 1
Tottenham — Coventry 2 0
2. deild:
Charlton — Cardiff 4 1
Crystal — Middlesbrough 0 0
Milwall — Aston Villa 0 1
Oxford — Blackburn Rovers 2 1
Laugardagur 5. apríl 1. desld:
Chelsea — Burnley 2 3
Leeds — Manchester City 1 0
Liverpool — Wolverhampton 1 0
Manch. Unit. — Nottingham 3 1
Sheffield Wed. — West Ham 1 1
Southampton — Queens Park 3 2
Stoke City — Ipswich 2 1
Sunderland — Arsenal 0 0
West Bromwich — Everton 1 1
2. deild:
Birmingham Carlisle 3 0
Blackburn Rovers — Fulham 2 2
Blackpool — Sheffield Unit. 1 1
Bury — Huddersfield 1 1
Charlton — Middlesbrough 2 0
Crystal — Portsmouth 3 1
Derby — Bolton 5 1
Hull — Millwall 2 0
Norwich — Preston North E. 1 1
Oxford — Aston Villa 1 0
Mánudagur 7. apríl Úrslit í gær urðu þessi: 1. deild:
Arsenal—Wolves 3 1
Sheff. Wed.—Notth. Forest 0 1
Southampton—Bumley 5 1
Stoke City—Liverpool 0 0
Sunderland—Q.P.R. 0 0
West Brom.—Tottenham 4 3
2. deild:
Birmingham - Charlton 0 0
Blackburn — Portsmouth 3 1
Blackpool—Bristol 1 0
Bolton—Bristol 1 0
Cardiff — Burly 2 0
Derby—Sheffield 1 0
Hull—Fulham 4 0
Norwich — Huddersfield 1 0
Birgir vann
tvíkeppnina
• Nafn Birgis Guðlaugssonar frá
Siglufirði er fyrir löngu vel þekkt
í norrænni tvíkeppni á skíðalands-
mótum, en keppnin er fólgin í að
fá sem flest möguleg stig saman-
lagt í tveim greinum, skíðastökki
og 15 km göngu. Birgir vann ör-
uggan sigur eins og við mátti búast,
hann hlaut 492.10 stig en Bjömþór
Ólafsson, Ólafsfirði, varð annar
með 474.36 stig, Sigurjón Erlends
son ‘Jiglofirði var í 3. sæti með
452.50 stig.
Staðan í deildunum er nú þann-
ig að Leeds er efst með 58 stig,
Liverpool með 54, Arsenal 51, öll
eftir 36 leiki, — eiga 6 leiki eftir,
Everton er í fjórða sæti með 47
stig en 34 leiki. Queens Park Rang-
ers eru þegar fallnir í 2. deild með
aðeins 16 stig eftir 40 leiki, Leicest
er er í hættu ásamt Coventry, —
Leicester er með 22 stig f 33 leikj-
um en Coventry 26 stig í 37 leikj-
um.
í 2. deild er De’rby efst með 57
stig og vantar aðeins 2 stig til að
tryggja sér sigurinn, Crystal Pal-
ace er með 50 st»g og Middlesbor-
ough 48, Cardiff og Charlton 47
stig.
(H)
GÓLFTEPPI (IR
ÍSLENZKRI ULL
Verð kr. 545.—
fermetrinn af rúllunni.
HUSGAGNAAKLÆÐI
Mikið úrval
aitima
Kjörgarði, Sími 22209.