Vísir - 08.04.1969, Side 7
V I S IR . Þriðjudagur 8. apríl 1969.
Rogers hefur boðað nýjar til-
lögur Bandarikjastjórnar til
lausnar styrjöldinni í Víetnam
• Rogers utanríkisráóherra
Bandaríkjanna skýrði frétta-
mönnum í Washington frá því
í gær að stjóm Bandaríkjanna
gerði sér vonir um, að ná sam-
komulagi við Norður-Víetnam
um nokkurn, gagnkvæman brott
flutning heríiðs frá Suður-Víet-
nam á þessu ári. Hann kvað
Bandaríkjastjórn hafa reiöubún-
ar heiðaríegar og sanngjarnar til
lögur til friðsamlegra lykta styrj
aldarinnar í Víetnam, en gerði
ekki nánari grein fyrir þeim.
Rogers tók fram, að um gagn-
kvæmt samkomulag yrði að verða
að ræða.
Hussein ræðir við
U Thant og Nixon
jONDON: Hussein Jórdaníukon-
ángur er í Bandaríkjunum til við-
ræðna við U Thant frkvstj. Sam-
?inuðu þjóðanna og Nixon forseta.
Hussein konungur sagði í gær,
að ef samkomulag næöist ekki bráð
lega í deilum ísraels og Arabaríkj-
anna, myndi færast nær hættan á
viötækari átökum, ef til vill meö
srlendri íhlutun. Konungur kvaöst
gera sér vonir um samkomulag
Fjórveldanna, sem yrði til þess að
deilurnar leystust.
□ í ísrael er hafin barátta um
land a-llt fyrir að menn skrifi
sig á lista fyrir 100 milljón dollara
láni, til greiðslu yt kostnaðar vegna
kaupa á Phantom-herþotum í
Bandaríkjunum.
□ Herdömstóll í Nablus hefur
dæmt 6 E1 Fatah skæruliða i
ævilangt fangelsi, en þeir börðust
■j'O ísraelska hermenn þar í bæn-
utn i október í fyrra. Sex Arabar
féllu í bardaganum.
□ Franska stjórnin sakar brezku
stjórnina um að reyna að ein-
angra Frakkland frá hinum sam-
markaöslöndunum (EBE).
Orðrómur hefur veriö á kreiki
um, að Nixon forseti hefði fyrir-
skipað, að flytja burt 200.000 banda
ríska hermenn frá Víetnam á þessu
ári, og sé það ein af tiilögunum,
sem Rogers minntist á.
Bandaríkjalið hefur fellt um 60
Noröur-Víetnama í grennd við
landamæri Kambodíu.
Dregið hefuv úr eldflaugaárásum
á bæi og herstöðvar í Suður-Víet-
nam.
Concorde-reynslu-
flugi frestnð
London I gær: Reynsluflugi brezk-
frönsku Concorde farþegaþotunn-
ar, sem smíðuð er á Bretlandi, var
frestað til miðvikudags vegna þess,
að hjólbarði undir henni sprakk, er
hún í gær var dregin út á flug-
braut.
Elísabet II í reynsluferð
Myndin er af nýja brezka hafskipinu „Elísabet II“, sem laust
fyrir bænadagana fór í nýja reynsluferö suður með ströndum
Vestur-Afríku. Gestir voru 6 — 700, starfsmenn Cunard-skipa-
félagsins og skipasmiðir. — Fyrsta ferð skipsins vestur yfir
haf er ráðgerð frá Southampton 2. maí.
Ssroelsnxenn gerðu
sprengjuórásir
i morgun
L^naon: Israelsmenn gerðu
sprengjuárásir í morgun á stöðvar
' Jórdaníu til hefndar fyrir eld-
ílaugaárásir á Elat.
Hussein
Uzuokoli í rústum,
en á valdi Bíafra
• Uzuakoli noröan Umuahia er or
ugglega á valdi Bíafraliðs, þ. e. a. s.
rústir bæjarins.
London í morgun: Fréttaritari
franskrar fréttastofu kveðst hafa
farið um götur Uzuakoli, járnbraut-
arbæjar um 20 km. vegalengd fyr-
ir norðan Umuahia í Bíafra. Hann
kvað bæinn á valdi Bíafrahers, en
vera í rústum. Útvarpið í Bíafra
segir, að bærinn hafi verið tekinn
fyrir þremur dögum, en því var
neitað í Lagos.
f tilkynningu frá Blafra segir, að
herflokkar sambandsstjórnar á þess
um slóðum hörfi undan norður á
bóginn, en Bíafralið sæki þar fram.
H0RFUR ÍSKYGGILEGAR
í TÉKKÓSLÓVAKÍU
Valdhafarnir neyddir til ad framkvæma ströng
fyrirmæli Rússa
• Prag í gær: Lögreglu- og
herlið vopnað vélbyssum
var í gær á verði á götunum í
Prag og verður til þess að koma
í veg fyrir, að Sovétríkjunum
verói á ný sýnd andúð, eins og
eftir komu íshockey-flokksins
frá Stokkhólmi á dögunum, en
andúöar-aðgerðir þá leiddu til
þess, að leiðtogar Tékkóslóvakíu
urðu að beygja sig fyrir kröfum
Sovétríkianna, og boða að her-
inn væri hafður til taks lögregl-
unni til aðstoðar. ef þyrfti, og
einnig var komið á algerri rit-
skoðun, sem nær til blaða, sjón-
varps og hljóðvarps.
Stjórnarvöldin óttuðust greini-
lega, að eitthvaö kynni að gerast,
enda alger óvissa ríkjandi um það,
hvort aóvaranir leiðtoganna myndu
Sólskin og hiti á megin-
landi álfunnar um páskana
og mikiö um slysfarir
Londoni í gær var glaöa sólskin og
hiti á meginlandi álfunnar n-v
verðu og lokkaði góöviðrið milljón-
ir manna út á þjóðvegina og til bað
staða og fjalla, en vegna hins mikla
bifreiöafjölda á vegum var mikiö
um slys. í París komst hitinn upp
í 21.3 stig á Celsius og var það heit
asti dagur ársins þar til þessa. Hit-
inn í London komst í gær upp í
17 stig og í Belgíu upp í 22 stig.
Að minnsta kosti 55 menn létu
lífiö í bifreiðaslysum á vegum
Frakklands yfir páskahelgina
og 390 meiddust, og eru þetta
bráðabirgðatölur.
Á Spáni létu 37 menn lifið af
völdum bilslysa og i Bretlandi 55.
Þeir, sem fóru á skiði urðu fyrir
vonbrigðum. Þíðviðri var í Ölpun-
um og fjallahéruðum viða, flóð og
skriðuhlaup og létu lífið af slíkum
náttúruhamförum aö minnsta kosti
9 menn yfir helgina.
bera þann árangur, að menn sættu
sig við öryggisráðstafanir hennar.
En þaö var yfirleitt kvrrt í land-
inu yfir páskahelgina. þótt þjóðin
án vafa væri slegin óhug út af á-
standi og horfum, en menn létu
það ekki hafa áhrif á sig og
skruppu úr bæjunum til þess að
njóta útiveru um páskana.
Þeir sem gerst fylgjast með mál-
um telja, að ekki sé ólíklegt, að úr
því verði skorjð í þessari viku,
hvort hinar róttæku ráðstafanir,
sem stjórnin boðaði, muni duga.
Umbótamenn í Moskvu halda því
fram, að „Moskvulínumenn" vinni
ákaft að því, aö sú skoðun verði
ríkjandi, að núverandi leiðtogar
geti ekki komið á ró í landinu.
Stöðugt er orðrömur á kreiki um
mikla sovézka liðflutninga, m. a.
að mikið lið hafi verið sent flug-
leiðis til flugvallar fyrir norðan
Prag, en almenningur virðist taka
þessum fregnum með ró, þar sem
menn ætla, að Rússar hafi þegar
nógan vanda á höndum með það lið
sitt, sem fyrir var. Og menn hafa
vanið sig á, að láta sem þeir sjái
ekki sovézka hermenn. Vladimir
Oucky ambassador Tékkóslóvakíu
í Moskvu ræddi í gær við Kosygin
forsætisráðherra.
Andrej Gretsko landvarnaráð-
herra Sovétríkjanna og Semjonov
aðstoðarutanrikisráðherra, eru trú-
lega enn í Prag. #
Miðstjórn Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu kann að koma sam-
an í þessari viku.
Bæði valdhöfum Tékkóslóvakíu
og Sovétríkjanna er mikill vandi á
höndum — og hinum síðarnefndu
m. a. vegna erfiöleikanna, sem þcir
eru i varðandi Kína og vegna á-
formanna um alþjóðafundinn i júní
— tíminn sem sé er óhentugur fyr-
ir þá til að beita hervaldi gegn
Tékkum.
NU ER ÓDÝRT
' AÐ TAKA SVART
MYNDIR
FRAMKÖLLUN
KOPiERING
, EFTIRTÖKUR eftir
GÖMLUM MYNDUM
| mmwmwmT®)?
IÆKJARTORGI
■T AUSTURSTRÆTI 6